Morgunblaðið - 22.08.1971, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1971
11
Viötal Restons vid Chou En-lai:
Okkur greinir að vísu á
en Kínverjar eru reiðubúnir til samvinnu
DREPIÐ hefur verið í Mbl. á
viðtal það, sem bandaríski
blaðamaðurinn James Reston
átti við Chou En-lai, forsætis-
ráðherra Kína i Peking fyrir
stuttu. Grein Restons um fund
þeirra fer hér á eftir i laus-
legri þýðingu og endursögn.
„Chou En-lai, forsætisráð-
herra Kína, er reiðubúinn til við-
ræðna við Nixon Bandarikjafor-
Chou En-lai
seta á breiðum grundvelli um
heimsvandamálin, þegar bandar-
íski þjóðhöfðinginn kemur til
Peking einhvern tíma á önd-
verðu næsta ári. í fimm stunda
löngu samtali, sem var tekið
upp á band og ráðherrann fór
sjálfur í gegnum á eftir og sam-
þykkti til birtingar, kemur fram
að hann er með hugann bund-
inn' við fjölmörg mál og ein-
blínir ekki aðeins á þau vanda-
mál, sem við augum blasa og eru
innan seilingar, svo sem að leiða
tii lykta Víetnamstyrjöldina,
deilurnar um hvernig verði
leystur ágreiningur um aðild
Formósu og/eða Kina að Sam-
einuðu þjóðunum, heldur lét
hann einnig í ljós vilja á að
ræða hlutverkaskipun Banda-
ríkjanna, Japans og Sovétríkj-
anna í Asíu og á Kyrrahafs-
svæðunum.
— Kínverjar óttast ekki kjarn-
orkusprengjur. Við höfum búið
okkur undir slíka árás, við er-
um viðbúnir þvi að þeir ráðist
á okkur til að verða fyrri til.
t>ess vegna byggjum við neðan-
jarðarbyrgi. Ég býst við að þér
hafið heyrt um þau.
Ég hafði veitt eftirtekt stór-
um moldarbingjum og undarleg-
um uppgreftri um höfuðborg-
ina þvera og endilanga og ég
svaraði þvi til að þetta væri
neðanjarðarbyrgjanet.
— Og ekki aðeins í Peking,
sagði forsætisráðherrann. — I
flestum stærri borgum okkar er
sama uppi á teningnum.
Reston vikur þvi nsest að því
ágæta andrúmslofti, sem hafi
verið ríkjandi í viðræðunum og
telur að það hafi verið einkar
þægilegt: „Chou En-lai kom
hvað eftir annað fram með
gagnrýni á Bandarikin, Sovét-
ríkin og sér i lagi Japan, en
hann var aldrei herskár, upp-
næmur eða beizkur, þegar hann
talaði um fortíðina."
~ Kina, sagði hann með lágri
röddu, er land, sem Bandaríkin
höfðu i einangrun í tuttugu ár.
F;yrst menn vilja nú líta til
Kína er það í, stakasta lagi. Og
fyrst óskir eru - um að ræða
málin, erum við reiðubúnir til
að tala. Auðvitað greinir okkur
á, og eigi okkur að takast að
draga úr spennu, verður að vera
um það sameiginlegur vilji.
Þess vegna verður að ihuga hin
ýmsu vandamál og öll þessi
vandamál verður að taka með
á dagskrána.
Við gerum ekki ráð fyrir að
öll vandamál verði leyst í einu
vetfangi. Það er ógemingur.
Væri ekki framkvæmanlegt. En
með þvi að skapa tengsl okkar
í milli, getum við glöggvað okk-
ur á hvar við eigum að byrja
til að geta greitt úr þessum
málum.
Chou En-lai lítur svo á að
Nixon-kenningin sé örvun fyrir
japanska hemaðarsinna. Og
þeir verða í hans augum æ viða-
meira vandamál. Þeir eru hvatt-
ir til að fylgja eftir efnahags-
undrinu í Japan með hernaðar-
legri þenslu. Chou En-lai setti
nánast fram þá fullyrðingu,
að veldi á hernaðarsviðinu fylgi
i kjölfar efnahagslegs veldis.
Hann fór lofsamlegum orðum
um japönsku þjóðina: „Fólkið
er kjarkmikið og iðjusamt." En
hann hélt þvi fram að Banda-
ríkjamenn kyntu undir efna-
hagslegt og hemaðarlegt veldi
Japana. Ef stjórnin í Washing-
ton kæmi ekki fram af fyllstu
varfærni varðandi lausn For-
mósu- og Kóreu-vandamálanna,
mundu Japanir ráðast inn i þessi
lönd, þegar Bandarikjamenn
hverfa þaðan á brott.
Hann var inntur eftir því,
hvers vegna hann væri svona
ákafur í að numinn yrði á brott
öryggissamningur Bandarikj-
anna og Japana, sem hefur haft
þau áhrif að halda hervæðingu
Japana í skefjum, sérstaklega
er' tekur til kjarnorkuvopna,
fyrst hann væri í raun svona
áhyggjufullur út af því að Jap-
anir gengju of langt.
Þessari spurningu vísaði hann
á bug, en taldi að Japanir gætu
nánast framleitt allt sem til þarf
til kjarnorkuvopna, þrátt fyrir
þennan samning. Framleiðsla
Japans á kjamorku eykst stöð-
ugt, bætti hann við. Bandaríkja-
menn selja þeim ekki nægilega
mikið af úraníum, en þá flytja
þeir það inn frá öðmm löndum.
Og Japanir geta framleitt kjarn-
orkuvopn með stuttum fyrir-
vara, sagði hann.
Ef Japanir láta af metnaðar-
fullum áformum sínum varð-
Framh. á bls. 19
James Reston
TÍGRIS
Hugsaðu máliö
eitt augnablik!
.. og þó þ&u væru tvo. Þetta er nefnilega
fullkomnasta og vandaðasta sjónvarpstækið
á markaðinum I dág. Ekkl taka þeir lítið upp
í sig, þessir menn, hugsarðu kannske, en
auðvitað erum við digurbarkalegir, þegar við
höfirm efnf á þvr. IMPERIAL FT-472 heitir það.
Transistorar og dfóður eru 34, afriðlar ,3 og
lampar aðeins 4. Auk þess eru 3 IC, en það
stendur fyrir “intergrated circuit”, og kemur
hvert þessara stykkja I st'aðinn fyrir 15—20
transistora, díóður og mótstöður, þó að þau
séu litlu stærri en krónupeningurl (hvar endar
þessl byltingarkennda tækniþróun eigin-
legal?) — FT-472.hefur. innbyggðan loftnets-
spenni, 24ra þumlúga myndlampa og elektrðn-
iskan stöðvaveljara, Stillingar fyrir tónstyrk,
myndbirtu og — kontrasta eru dregnar. Utan-
mál kassa eru: breidd 72; hæð 50 og dýpt
22/39 cm. FT-472 fæst hvítt. rautt eða f vai-
hnotu. Óþarft er að fjöiyrða um ábyrgðina
hún er L 3 ÁR. Verðið á FT-472 í valhnotu
kassa er kr. 34,900,00 og f hvítum eða rauðum
kassa kr. 36;100,00 miðað við 9.000,00 kr. lág-
marksútborgun og eftirstöðvar á 10 mánuð-
um. VIÐ STAÐGREIÐSLU ER VEITTUR 8%
AFSLÁTTUR (verðin lækka í kr. 32.108,00 og
kr. 33.212,00). Hugsaðu málið enn eitt augna-
blik, því að betri sjónvarpskaup gerast ekki
um þessar mundirHI
Kaupið Kubalmperial
það borgar sig!
ÍT^mJ^n, iMPERinL
Sjónvarps & stereotæki
NESCOHF
Laugavegi 10, Reykjavík.Símar 19150-19192