Morgunblaðið - 22.08.1971, Page 17

Morgunblaðið - 22.08.1971, Page 17
? i > MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. ÁGtjST 1971 17 Á Kili Reykjavíkurbréf Laugardagur 21. ágúst Jón í Möðrudal Einn af svipmestu fulltrúum íslenzkrar bændastéttar, Jón bóndi í Möðrudal, er fallinn í valinn á tíræðisaldri. Hann var einn þeirra manna, siem seitbu svip á íslenzkt þjóðlíf og mun áreiðanlega oft koma í hug þeirra, sem sáu hann og kynnt- ust. Fyrr á árum, var Jón hús- böndi á umsvifamiklu heimili í þjóðbraut og má með sanni segja, að mörgum göngumóðum veg- faranda hefur það heimili yljað um dagana. Þau hjón voru frá- bærlega gestrisin og á heimili þeirra átti margur griðastað í hrjóstrugum óbyggðum Möðru- dalsöræfa. Nú tekur því fólki að fækka, sem enn býr í hrikafögrum sveitum á Fjöllunum, sem hafa Bilíf og sjálfa Herðubreið að umgjörð, en þess er að vænta að svo verði um hnútana búið, að ávallt verði éinhverjir eftir á þessum slóðum til að setja svip á umhverfið og ekiki síður til að tryggj a öryggi vegfarenda á þessum erfiða fjallvegi, þar sem oft er vetrarríki meira en við eigum að venjast í þéttbýl- inu. Sem betur fer situr Krist- ján bóndi í þjóðbraut á Gríms- stöðum, alúðlegur maður og ein- staklega hjálpsamur, og veitir alla þá aðstoð, sem vegfarendur þurfa á að halda. Það mundi verða beinlínis hættulegt, ef Fjöllin legðust í eyði, en nú er mannfæð þar orðin svo mikil, að erfitt er um vilk fyrir bændur að smala saman fé sínu á haustin, og sjá þá allir hvert stefnir. Jón í Möðrudal var kóngur í ríki sínu. Hann átti djúpar ræt ur í einverukyrrð íslenzkra ör- æfa. Til hennar stóð hugur hans og hjarta, en þó var hann einnig, eins og aðrir svipmiklir íslenzk- ir bændur, alþjóðlega sinnaður, fylgdist með öllu, drakk í sig mienntun samtímans og skilaði þeim áhrifum aftur í listrænni tjáningu, hvort sem hann sat að málverki sínu eða við orgelið. Slíkur hefur löngum verið heim- ur íslenzka afdalabóndans: ann- ars vegar sú einangrun, sem á- vallt fylgir öræfasveitinni og hins vegar alþjóðlegt andrúm, ménnt- að og listrænt viðhorf. Jón í Möðrudal var auk þess kynlegur kvistur. Enginn vafi er á, að einangrunin setti á mann- inn mark, — en hún mótaði einn- ig hugann, stældi kjark. Að mönn um eins og Jóni í Möðrudal er sjónarsviptir. Hann var hvort tveggja í senn herra og þjónn öræfanna. Þar stendur nú enn kirkjan sem hann reisti sjálfur. Islenzkur öræfaheimur „Íslenzikuír öræfaheimur getur verið ofurlitið seintðkinn, en áhrif hans vara því lengur. Og þau ábrif eru holl, hressandi, giftusamleg bæði fyrir sál og Mkama. Taktu þeim opnum hug og örmum og njóttu þeirra vel og Ienigi.“ Þannig kemtst Hall- grímur Jónasson að orði í Ár- bók Ferðafélags , íslands 1971 eftir að hafa lýst Kjalvegi hin um foma. Og undir þessi orð munu áreiðanlega taka f jöilmarg- ir þeirra ferðamarana, sem í sum- ar hafa ferðazt um hálendi fs- lands, Kjöl og Sprengisand og aðrar hálendisteiðdr. Sá sem í fyrsta sinn fer um þessar silóðir lítur Island nýju ljósi. Auðnin, svo langt, sem auigað eygir, er ótrúleg, og sú spurning leitar á, hvoirt hægt sé að umbyilta þessu landi og rækta það upp. Sumum mundi þykja það framför, en ekki er ólíklegt, að öðrum þætti minna til koma. Það hefur óneit- anlega sérstæð ábrif á ferða- langa að fara uim þessar auðnir mi'lili jöklanna og sjá varla nokkuð kvikt utan einmana fugl hér og þar. Það er gaman að koma að Hvitárvatni og virða fiyrir sér skriðjökulinn handan vatnsins, sem hefur á sér sér- kennilegan blágrænan bjarma og iisjakana á vatninu. En nokkru norðar blasa Hveravellir skyndiliega við. Þar er eina byggðin á hinu víðáttumikla há- lendii, veðurathugunarsitöð Veð- urstofu Islands. Þar hafa sörou hjónin búið um nokkurra ára skeið og gert veðurmælingar á þri.ggja kluikkutima fresti. Þótt veðurathugunarstöðin á Hvera- völlum sé líiklega einangraðasta byggð á íslandi og þangað sé ekki fært nema örfáa mánuöi á ári hverju, skortir samt ekiki umsækjendur um starfið. Hjón- in, sem þar hafa búið síðan 1965 eru nú að hverfa á brott en uimsækjendur voru fi.mim að því er sagði í blaðafreginum fiyr- ir skömmu. Á Hveravöllum er mikið hverasvæði, sumir hverirnir eru mjög fallegir og þar rná enn sjá vegsummerki eftir dvöl Fjalla- Eyviindar og Höllu en þau munu vera fyrsta fóikið, sem tók sér bölfestu á Hveravölluim. Það skyggir ndkkuð á ánægj- una af að koma til Hveravalla, að aukin umferð þar hin síðari ár hefur valdið þvi að subbUr legt er um að litast í námunda við sæluhúsið, eins og raunar stunduim yiil verða við hvera- svæði en engu að síður er nauð- synlegt að ráða þar bót á og kamia sérstaklega hreinlætisað- stöðu í betra horf en nú er. Auknar mannaferðir um hálend ið mega ekki verða ti'l að spilla þeirri náttúrufeigurð, sem þar gefur að líta. Greiðfær leið Leiðin um Kjiöl noröur í land er gre'iðfiærari en margur hygg- ur. Sjálfsagt er það útbreidd skoðun, að ekiki sé unnt að fara þessa hátendisleið neima á jepp- um og öðrum torfærubiifreiðum. En því fieir fijárri að svo sé. Eina helgi fyrir skömm-u var mikil umferð uim Kjöl og voru það ekki síður fóllksbíiar, stórir og smáir en viðameiri ökutæki. Helztu farartálmar eru fyrstu árnar, sem farið er yfir þegar komið er frá Gullifossi, sérstak- lega þó hin fyrsta, Sandá, sem var a.m.k. á þessuim tíma vatns- mesta áin, en aðrar ár tiltölu- lega aiuðveldar yfirferðar. Veg- urinn er einnig verstur í nám- unda við Gulltfoss en batnar efit- ir því, sem norðar dregur. Aug- Ijóst er, að ekki þarf miklu til að kasta tii þess að gera veg- inn yfir Kjöl vel greiðfæran ffliestum bifreiðum að sumar- lagi og er það sannarlega þess virði að leggja í þann kostnað og opna þar með til al- mennra nota aö sumri tii nýja leið miiii Norður- og Suður- Iands. Hins vegar er ástæða til að gefa þá aðvörun vegfarend- um um Kjöl o>g sjálfisaigt einnig aðrar hálendisleiðir, að hættan á umferðarslysum af völdum annarra bifreiða er þar ekki al- veg úr sögunni. Þannig varð höfundur þessa Reykjavíkur- bréfis fyrir þeirri einstæðu lífs- reynslu norðan Hveravalla, þegar nánast engin umferð var um veginn, að verða fiyrir ákeyrslu! Skal ósagt látið, hvort þar varð fyrsti árekstur á Kjal- vegi hinuim forna, en hiít er viist, að árnar leika hemJa bif- reiða grátt og þass vegna hyggi- legt að fiara að öliu með gát, þótt umiferðin sé minni en i þétt- býliinu. Ekki verður hjá því komizt að minna enn einu sinni á, að aðstaða öli við Gullfloss, þar sem þúsundir ferðamanna koma árlega er ekki með þeim hættd, að sæmi þeiim stað. 1 veitinga- skúr þeim, sem er við Gullifoss er vissulega mjög snyrtileg um- gengni innan dyra en skúrbygig- ingarnar á staðnum eru ekki við hæfi og hreinlætisaðsitaða ekki sem skyldi, svo að vægt sé tii orða tekið. Raunar ligguir það í landi hér, að þar sem fjöldi fóliks kemur, er hreinliætisað- staða oftast með endemum. Kjósarskarðs- vegur Úr því rætt er um nýjar ferðamannaleiðir er ekki úr vegi að beina þvi til hins nýj'a samgönguráðherra, — sem hef- ur ekki mörgu öðru að sinna þessa dagana en að sjá til þess að verkefni þau, seim Ingólfiur Jónsson undirbjó og hratt í framkvæmd verði farsællega til lykta leidd, •— að hann beiti sér fyrir því, að vega(rspotti milli Kjósarinnar og Stíflisdals, svo nefndur Kjósarskarðsvegur verði gerður vel ökufær. Þegar ekið er upp Kjósina framhjá Fremra-Háksi er komið á ruddan veg, sem fiær er jepp- um og öðruim siíkum farartækj- um upp í Stífflisdal og þaðan upp á Þingvaliaveg, en veigna farartálma skammt íyrir ofain Stíflisdalsvatn og fyrir neðan Fellsenda er ólíklegt, að fólks- biflreiðar komist þessa leið. Raunar þarf ekki nema nokkuir bíihlöss af otfaníburði á þann stað til þess að flestir bílar kom ist þessa leið með þokkaleguim hætti. En þarna á auðvitað að leggja góðan malarveg, sem varla kostar mikið fié, a.m.k. ekki fyrir vinstri stjórnina sem sýnist hafia yfir ótæmamdi fjár- sjóðum að ráða. Með því að leggja .slíkan veg væri búið að opna nýja hringleið fyrir íbúa þéttbýlissvæðanna suðvestan- landis, sem áreiðanlega yrði ekki síður vinsæl en hringurinn Hveragerði-Þingvellir-Reykjiaviik og mundi þar með auka á fjöl- breytni I sunnudaigsakstri höifu-ð- borgarbúa og nýir tekjumögu- leikar ef til vlll opna.st fiyrir íibúa Kjósarinnar. Þá er augljöst, að góður veguir á þessu svæði atl- an ársins hring mundi stytta íibúum Suðurlands mjög leiðima vestur og norður, þótt Uxa- hryg'gj'aleiðin sé að sjáifisögiðu enn styttri, en hún er nú ein- igöngu flær að sumarlagi. Holl útivist Það er skaði, hve laxveiði er orðin kostnaöarsöm á landi vwu, þvi að holiari útivenu er tæplega hægt að hugsa sér, nema ef vera skyldi hestamennska. Svo mun vera um fleista, setm takast ferð á hendur, að þeir flara laingar leiðir i biflrelð og virða fiyrir sér útsýnið o.g lands- lagið út um gluigga bifreiðar- innar en hreyfa sig iítið út úr fiarartækinu. Veiðivonin rekur laxveiði- mennina hims vegar til þess að skátma upp og niður með ám klukkuitímum saman i von um að fá þó ekki væri nema einn fisk. En þótt laximn sýni þeim' eif tii vill efcki þann heiður að bíta á önguiinn, hefur þó sá árangur hafzt með erfiðimu, að veiðimað- u,rinn hefur kynnzt ánni og landinu í krinig og notið hollr- ar útiveru, hvort sem er í sól- skini og blíðu eða roki og rigin- ingu — því að góður veiðimað- ur lætur haimifarir náttúruafil- anna ekki halida aftur af sér í eltingaleilknuim við laxinn. Þeir, sem murna eifitir gamla, veginum ög brúnni yfir Gljúf- urá í Borgarfirði,. bera sjálfsagt ekki ýkja hliýjar tilifin.ninigar tii Gljúfiurár, en sá vegarspptti var llöngum talinin hinm hættulegasti í Borgarflirði. Öðru máli gegnir um þá, sem kynnzt hafia Gljúf- urá með þvi að ganga upp með ámni, ef til vill í vonlítilli leit að laxi. GljiúÆur'á er sérstaktega fögur og sérikennileg á og I blíð- skaparveðri og rökkri var áhrifamiikið að sitja við hina svonefndu Skáflossa og virða flyr ir sér náttúrufegurðina á þess- um stað. En þvi miður er lax- veiðin orðin svo dýrt sport að hætt er við, að þeir verði otf flá- ir, sem eiga þess kosit að kynn- ast útiveru af þessu tagi. Suims staðar mun það vera svo við laxveiðiár, að nauðsyn legt er að ha.fa hesta til farar- innar eins og t.d. á eíra svæði Þverár í Borgarfirði. Þanniig tekst með skemmtilegum hætti að sameina laxveiði og hesta- mennsku, þessar tvær tegundir útiveru,. sem kanniski eru einna hollastar, — ásamt gönguiflerð- um um öræfi og óbyggðir ís- lands. Þegar talað er um kostn- að við slíka útiveru er þó holLt að minnast þess, að margir verja nú umtalsverðum fjármunuim til að kaupa sér sól í suðliægum löndum og er ekki ólíklegt, að aft sé þar leitað langt yfir skammt til þess að njóta útivilst- ar og hvíldar frá skarkala og arrnæðu hins daglega lifis. Dularfull þögn Sú þögn, sem rikt hefur í fliest- um fljölmiðium landsins, nema Morgunblaðinu, um ræðu þá, sem fulltrúii Sovétríkjanna flutti á fundi hafsbotnsnefndar Samein- uðu þjóðanna í Gení á flöstudag í fyrri viku er mjög dularfiull — svo að ekki verði meira sagt. Morgunblaðið skýrði frá eflni þessarar ræðu sl. þriðjiudag og eins og þar mátti lesa skipti hún okkur Islendinga miklu. Þar kom fram bein áskorun flrá Sovétstjórninni á Islendinga að hverfa frá fyrirætlumum um 50 sjómílna fiskveiðilögsögu. Nú er svo langt um liðið síðan ræða þessi var flutt, að það er í meiira lagi einkennilegt og ekkí ein- Framh. á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.