Morgunblaðið - 22.08.1971, Síða 22

Morgunblaðið - 22.08.1971, Síða 22
22 MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1971 100 ára minning: Hildur Jönsdóttir f. Thorarensen HILDUR Jónsdóttir Thoraren- sen, húsfreyja frá Kotvogi var fœdd 22. ágúst 1871 að Stórholti í Dölum. Foreldrar hennar voru sr. Jón Thorarensen og kona hans Steinunn Jakobina Jónsdóttir. Sr. Jón var sonur Bjarna amt- manns, en Steinunn kona hans dóttir Jóns Halldórssonar prests í Stórholti. Hildur var elzt systkina sinna, en bræður hennar voru Bjarni Jón bæjarfógetaskrifari, Bogi búfræðingur og bóndi og Lárus skáld og prestur i Görðum í Norður-Dakota. Hildur ólst upp í föðurhúsum í Stórholti. Þar var fjölmennt á þeirri tíð. Húsbóndinn glæsi- menni, skáldmæltur vel, og einn af beztu söngmönnum landsins á sinni tíð. Húsfreyjan var mik- il atgerviskona, mikil búkona og stjórnsöm, enda var faðir henn- ar sr. Jón Halldórsson, mesti bú- sýslumaður og hraustmenni, söngmaður ágætur og viður- kenndur læknir á sinni tíð. Ólína Andrésdóttir skáldkona sagði frá því, að sumarið 1876 var hún eitt sinn við messu í Staðar- fellskirkju á Fellsströnd, þá 18 ára gömul. Sá hún þá háa aldr- aða konu í svörtum silkikjól, óvenjulega skartklædda ganga inn kirkjugólfið og leiða litla srtúlku í Ijósum kjól með gylit- ar fléttur, sem bundnar voru rauðum silkiborðum. Þetta voru þær Hildur, amtmannsekkjan frá Möðruvöllum og litla nafna henn ar, sonardóttirin frá Stórholti, þá fimm ára gömul. Hildur gekk í Kvennaskólann i Reykjavík. Hún giftist 1898 Eiríki Sverrissyni cand. phil. frá Bæ í Hrútafirði. Bjuggu þau t Útför eiginmanns míns, föð- ur og afa, Péturs Einarssonar, Ásvallagötu 57, sem lézt 15. þ. m., verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24. ágúst kl. 1,30. Guðný Sigurðardóttir, Auðbjörg Pétursdóttir og barnabörn.___________ t Hugheilar þakkir fyrir auð- sýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför systur okkar, Sigurrósar Þorsteinsdóttur Meðalholti 4. Sérstaklega þökkum við for- stöðukonu og starfsstúlkum dvalarheimilisins Ási í Hvera- gerði. Systkinin. fyrst i Bæ, fluttust svo til Kefla- víkur, en í Reykjavik bjuggu þau, þegar Eirikur lézt 1904. Árin 1905—’06 var Hildur kennari við Kvennaskólann og bauð frk. Ingibjörg H. Bjarna- son henni fasta stöðu við skól- ann, þegar hún tók við skóla- stjórn 1906. Hildur giftist aftur 11. okt. 1907 Katli Ketilssyni óðalsbónda í Kotvogi í Höfnum, syni Ketils dbrm. og konu hans Vilborgar Eiríksdóttur frá Litla-Landi I Ölfusi.. Höfðu þeir Katlamir hver fram af öðrum verið þarna óðalsbændur og útvegsmenn á þessari fomu og merku útvegs- jörð, allt að einnar aldar skeið. Þarna varð Hildur húsfreyja á stóru heimili og mannmörgu. Þegar hér var komið, var tengdafaðirinn dáinn, Ketill dbrm. Hann dó í maí 1902, en kona hans Vilborg var á lifi. Ketill var mikilmenni í sjón og raun og svo stórbrotinn, að enn hefur enginn tekið honum fram þar syðra að rausn og höfðings- lund. Hann byggði Hvalsnes- kirkju þá, sem nú stendur, úr höggnu grjóti á eignarjörð sinni. Ég held því hiklaust fram, að hann hafi byggt hana fyrir eig- in reikning. Að minnsta kosti hafa aldrei reikningar komið í ljós, er gefa annað til kynna. En Vigdís dóttir hans, húsfreyja á Grettisgötu 26, sem var bæði gáfuð og stálminnug, sagði mér ýmislegt, sem bæði styður og staðfestir það. Það er til mál- verk af Lúðvík 14. Frakkakon- ungi, þar sem hann stendur við blossandi kamínuna í höil sinni upppússaður og hendir reikning- um yfir byggingarkostnað Ver- salahallarinnar á eldinn til þess að þeir verði ekki að flækjast fyrir eftirkomendunum. Eitt- hvað þessu líkt virðist Ketill dbrm. hafa gert, minnsta kosti hef ég aldrei séð neina reikn- inga um Hvalsneskirkju. Þegar hann kvæntist konu sinni, Vilborgu, 22. jan. 1858 gaf hann henni 200 ríkisdali í morg- ungjöf, og fleiri sögur mætti tilnefna um þennan stórbrotna mann. Vilborg var lítil kona, fíngerð og gædd einhverjum persónutöfrum, sem ómögulegt er að lýsa. Kristinn sálugi vagnasmiður, sem var þekktur Reykvíkingur, sagði mér frá þvi, þegar Ketill reið austur að Litla-Landi að biðja Vilborgar, og er sú saga svo einstök og rómantísk, að engu er líkara en að hún sé kafli úr faUegu ástarævintýri. Vilborg var bUð og góð, oft leiddi hún litla drenginn 5 ára, sem kom aðvífandi á heimili hennar, * strauk honum með bliðu, mjúku höndunum. Allur matur var Ijúffengur úr hönd- um hennar. Hún hafði ekki að- eins örugga stjórn á búri, eld- um og bæ, heldur Uka á um- t Alúðarþakkr okkar fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför JÓNlNU ÞURlÐAR BENÓNÝSDÓTTUR Holtsgötu 12, Börn, tengdaböm, bamaböm og barnabamabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför bróður okkar og mágs BJÓRNS ÞÓRARINSSONAR Dóra Þórarinsdóttir, Guðrún Þórarinsdóttir. Sigurjón Guðjónsson. brotasömum sjómönnum og leit þá til þeirra, ef henni fannst röstin ýfast og varð þá strax allt réttstreymt og lygnt. Þetta var tengdamóðir Hild- ar, og eftir að Hildur var bú- in að vera þar húsfreyja um tíma, heyrði vinnufólkið, að Vilborg sagði við hana eitt sinn: „Þú kannt öll verk smá og stór og snUldarbragð er á ÖU- um húsfreyjustörfum þínum. Þetta er góð byrjun og mikill sigur.“ KotvogsheimiUð var stórt, bæði skyldmenni húsbænda, fjöldi vinnuhjúa og vertíðar- manna, er komu stundum úr fjarlægum héruðum. Heimilið var hollur skóU fyrir unglinga, sem gátu lært þar alla þjóð- hætti og verkmenningu, reglu, nýtni og aðhald. Þau hjón Hild- ur og Ketill voru samhent í því að rétta öllum hjálparhönd og nutu þvi margir auk heimilis- manna hjálpar þeirra og gest- risni. Mörg böm af næstu bæj- um voru þar svo að segja í hverri máltíð og einstæðingar, sem ferðuðust um á þeim árum vegalausir og allslausir, en settust upp á bæjum, þar sem þeim var skjól veitt, áttu þar ætíð vísan griðastað. Sömu- leiðis þurfti oft að hjálpa skips- höfnum og strandmönnum bæði innlendum og útlendum. 1 öllum þessum önnum var Hildur lýsigulhð á heimilinu, enda átti hún þann mann, sem var göfugmenni og Ijúfmenni, merkur maður í orði og verki, starfssamur og reglufastur, sem hafði bæði efni og ráð í hverj- um vanda. Um Ketil mann henn- ar mætti segja það, sem afi Hildar orti: „Gaf hann af sjálfs síns og gaf óspart gleymdar eru hans gjafir." Rausn og risna á þessu heimili verður öllum ógleymEinleg, sem til þekktu. Þau Hildur og Ketill ólu upp tvö bræðrabörn Hildar, Jón og Boghildi Láru, sömuleiðis frænku Ketils, Ástríði Þórarins- dóttur, ennfremur Fanneyju Gunnlaugsdóttur og Rögnu Bjarnadóttur, og lolcs ól Hildur upp Björn Helgason. Öll þessi fósturbörn þeirra eru á lífi. Auk þess voru systkinabörn Ketils oft hjá þeim. Á fyrstu búskaparárum í Kot- vogi greip Hildur einstaka sinn- um til gítars á kvöldin eftir annir dagsins. Hún hafði gam- an af hljómlist og söng sjálf vel. Hún var lærð í listvefnaði og kenndi hann við Kvennaskól- ann. Sömuleiðis var hún mikil hannyrðakona á yngri árum. Mann sinn, Ketil, missti hún 1921, og varð hann öllum harm- dauði. Síðast bjó Hildur í Reykjavík og lézt að Hrafnistu 2. marz 1960. Minning minna góðu og elsku- legu fósturforeldra verður mér ætíð ófölnanlegur helgidómur. Jón Thorarensen. Schannongs minnisvarSar Bifljið um ókeypis verðskrá. Ö Farimagsgade 42 Köbenhavn Ö Lcaxveiði Tvær stengur lausar í Haukadalsá í Dalasýslu dagana 23. — 25. ágúst. Upplýsingar í síma 40368. Stýrimaðui - Keílovík Vantar stýrimann á m/s Lóm KE 101. Sími 41412 og í Keflavík í síma 2190. Aðalfundur J.C.R. verður haldinn í Verzlunarráði Isiands Laufásvegi 36 kl. 2 e.h. laugardaginn 28. ágúst 1971. Venjuleg aðalfundarstörf. fUUNIOR CHAMBER I REYKJAVÍK Beit að auglysa i MORGIIIilADIl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.