Morgunblaðið - 20.10.1971, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.10.1971, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÖBER 1971 7 Franski spítaliiin. Frakka- stígur Ef Leifi heppna dytti einhvern tíma í hug að iíta til hægri, mundi blasa við honum Koila- fjörðurinn og Kjalarnesið með Esjuna í blárri fegurð að baki. Uetta viðsýni af Skólavörðu- hæðinni er Frakkastignum að þakka þar sem hann Mggur beinn og breiður til sjávar. Það er raunar aðdáunarvert, að hann skuli halda sér svona vel þessi gamli stígur og vera þó undirorpinn langmestu umferð borgarinnar sem sifellt streym- ir um flestar þær götur, sem yfir Frakkastiginn liggja. Enda þótt húsin við Frakka- stig séu flest komin til ára sinna er bygigð hans æði fjölbreytileg. Um mdðbik hans setur verzlun- in svip sinn á hann en að ofan cg neðan bera húsin hið látlausa yfirbragð ráðdeildar hinnar gömlu Reykjavikur. Eitt kunn- asta hús Frakkastígsins frá fyrri timum stendur við horn Gettisgötunnar og ber númerið 12. Það er bæði hátt og iangt, járnklætt frá hvirfli til ilja enda timbur hið innra, sem óvar ið mundi illa þola vætuna. Þetta er 4ra hæða hús með 5 ■litium kvistum á þaki auk vísis að turni á horninu. En þótt þetta hús teljist til Frakkastígs þá er það bara að líkamanum til. Sál þess á heima við Grettis götuna — því að sá sem byggði þetta hús — Kristinn vagnasmið ur -— han.n hafði verkstæði sitt víð hiið þessa húss við Grettis- götu. Krístinn vagnasmiður var al- kunnur vinnugarpur, einn kappsamasti iðnaðarmaður þessa bæjar á sinni tíð. Hann smiðaði 5000—6000 vagna. Einu sinni stóð hann 54 stundir sam- ffl eyt t á verkstæðinu meðan bændurnir biðu eftir kerrunum tfl að komast heim með varn- ing sinn. Það var sumarið 1921. Þá kostaði kerran 125—135 kr. og aktygin fylgdu. Nú er langt siðan nokkur kerra hefur verið smíðuð á verkstæði Kristins Jónssonar. Nú hefur franskt bílaumboð þar sina bækistöð. Skilti þess — PEUGEOUT — hangir yfir dyr unum. En skjaldarmerki vagna smiðisins — pilárahjólið — er entn í verkstæðishurðinni og minnir á manninn, sem setti svjp sinn á Suðjuriand á kerruöld- inni áður en hin mótorknúnu farartæki tóku völdin. Og hvergi er bílalestin þétt- ari heldur en hér í nágrenni við gömilu vagnafabrikkuna. Hér er hún óslitin allan daginn niður Laugaveg og inn Hverfisgötu. Á Lindargötu og Grettisgötu er allt rólegra enda einstefnu- akstur. Enn erum við ekkd komin að uppruna Frakkastígsins. Til þess verðum við að fara alla leið niður undir sjó, þar sem gamli spítalinn stendur rauður og grænn, penn og prúður á sinu malbikaða hlaði. Af honum dregur Frakkastígurinn nafn. Til að rekja þá sögu þarf að líta aft.ur til aldamóta, er Frakk ar stofnuðu félag um að reisa sjúkrahús í Reykjavik vegna sinna mörgu fiskimanna hér við land. Húsið var byggt rárið 1902 með 20 rúmum. En það var fyrst 22. marz 1904, sem reksturinn hófst fyrir alvöru, segir í Lækna tali, og 22. júní þetta sama ár kemur þan.gað fyrsti íslenzkí sjúklingurinn. Síðan áttu Islendingar gre;ð- an aðgang að þvi, einkum milli vertiða Frakka, enda lögðum við til lækninn. Matthías Einarsson var læknir Franska spítalans næstum frá upphafi unz rekstri hans lauk. Lengi síðan kom Franski spit aiinn að góðum notum fyrir bæj arbúa þegar farsóftir gengu yf ir eins og t.d. spánska veikin 1918 eða taugaveikifaralöur kom upp í bænum eins og ekki var óalgengt á fyrri tið. Rekstri Franska spítalans var hætt árið 1927. Skömmu síðar keypti Reykjavíkurbær húsið. Siðan var þar möt.uneyti á krepputímum. Nú hefur það um langa stund verið skóli — Gaggó-Lindó — í munni táning anna og sjái'fsagt verður þetta þekka og vel hirta hús kunn- ast sem slikt i framtíðinni með- an því endist aidur. Og það er, eins og fleira, borg aryfirvöldunum til mikils sóma hve vel þessu failega húsi er haldið við og likur eru fyrir því að það muni standa um langan aldur. En jafnvel — þegar það hverfur, mun götuheitið — Frakkastígur — ætíð minna Reykvíkinga á gamla Franska spitalann, sem hýsti marga sjúka, einmana sjómenn hér norður á þessum hjara meðan dansinn diunaði heima í Frans. G Br. Frá horfnum tíma Frakkíuatígur 12. Séð niður Frakkastig. MIKIÐ ORVAt af röndóttum tán iogapeysum, verð 600 k.r. Drengjapeysur með 'reninilós,. stærðit 8—16. Mi'kið úrval af rúlliukraga- peysum. Prjónastofan Nýtendug. 15 A m sölu Vegna brottfiutni'ngs, nýtegt, sæns'kt boröstofusett fyri'r fjóra, eldhústoorð og stólar f. fjóira, hjónanúm, tvís'kipt, og sjónvarp. Uppl. í siima 22925 eftirkil. 19. BROTAMALMUR Kaupi allan brotamáim lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 2-58-91. TRAUSTUfl MIÐSTÖÐARKETHLL ásamt sjálfvirkuim breminara (Giltoarco) er til söl'u á góðu verði. Ennfnemui sérstæðu'r vatnsihitari með rörum. Nán- ari uppl. í síma 34144, eða 36943, Reykjavík. Laus staða Slaða ritara hjá Vita- og hafnarmálastjóra er laus til umsóknar. Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi starfsmanna rfkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist samgönguráðuneytinu fyrir 29. október 1971. Safari-skórnir komnir aftur, nýjar gerðir. Póstsendum. Skóverzlun Péturs Andréssonar, Laugavegi 17, Framnesvegi 2. Verkáœtlanir — Rafeindavirkjun Óskum að ráða mann til starfa við verkáætl- anir og fleira í Mæla- og rafeindadeild vorri í Straumsvík. Nauðsynlegt er, að umsækjandi geti hafið störf sem allra fyrst. Æskileg menntun er rafeindavirkjun, svo sem útvarpsvirkjun eða símvirkjun. Umsækj- endur, sem ekki hafa ofangreinda menntun koma þó til greina, ef starfsreynsla þeirra er á þann veg að henta þykir. Kunnátta í vél- ritun æskileg. P-)!»sn, sem eiga eldri umsóknrr hjá fyrirtækinu er bent á að hafa samband við starfsmannastjóra. Umsóknareyðublöð tást hjá bókaverzlun Sigfúsar Eymundsson- ar, Austurstræti, Reykjavik, og Bókabúð Olivers Steins, Hafnar- firði. Umsóknir óskast sendar fyrir 26. október 1971 í póshólf 244, Hafnarfirði. íslenzka álfélagið hf., Straumsvík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.