Morgunblaðið - 20.10.1971, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.10.1971, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1971 21 Kólnandi veðrátta og ís á Græn- landsmiðum orsök aflabrestsins — segja norskir útvegsmenn Á LANDSFUNDI Lamdssam- bands norskra útvegsmanna, sem haldinn var í byrjun þessa mánaðar voru m.a. lagðar fram niðurstöður nefndar, sem kann- aði orsök minnkandi þorskaíla við Grænland. Segir nefndin á- stæðuna fyrir þessu vera kóln- andi veðráttu. Hitastigið í sjón- um og mikil'l is hafi gert það að verkum, að hrygningarskilyrði hafi verið mjög léleg. Þá segir ennfremur að Græn- landsstofninn hafi ætíð verið i Launahækkanir EBE 10tfo í ár Verðbólgan vaxandi Briissel, 16. október NTB LAUNAHÆKKANIR í Efnahags bandalagslöndnnum sex verða á þessu ári um 10%. Sú hækkun, sem Framkvæmdaráð Efnahags bandalagsins hefur talið hámarks hækknn í því skyni að stemma stigu við verðbólgunni, er 5%. Hækkunin hefur þannig verið tvisvar sinnuin meiri. Kemur þetta fram í skýrslu frá Fram- kvæmdaráðinu í dag. Á öðrum ársfjórðunginum voru launahækkanir minni en áður, en Framkvæmdaráðið telur samt, að þær hafi verið of mikl- ar. Verðhækkanir hafa einnig verið miklar og stefnir þróunin í átt tii enn meiri verðhækkana. — Framfærslukostnaður hefur hækkað uin 7,6% í Hollandi, 4,9% í Frakklandi, 5,4% í V-Þýzka- landi, 4,9% á Ítalíu og 4,2% í Belgiu og Luxembourg. Þenslan á vinnumarkaðinum hefur verið nokkru minni að und anförnu. í sumum aðildarríkjanna sjást merki um meiriháttar at- vinnuleysi og fjöldi lausra starfa hefur minnkað. Eftir sem áður er veruleg eftirspurn eftir fólki í störf, sem laus eru og gæt ir þessa mest á vinnumarkaðin um i Vestur-Þýzkalandi. Lagafrumvarp um stofnun kaupáby rgðar s j óðs 1 EFRI deild Alþingis var á fimmtudag lagt fram frumvarp Gjöf til lamaðra og fatlaðra FÖSTUDAGINN 1. oktióber 1971 kom fulltrúi fyrir 21 rafvirkja, sem vinna hjá ísal í Straums- vík og færði Styrktarfélagi lam- adra og fatlaðra 6300 krónur að gjöf, eða 300 krónur frá hverj- um manni. Þessi upphæð var verðlaun frá ísal fyrir slysalaust ár og þótti rafvirkjunum vel tii fundið að gefa þetta fé tii æf- ingastöðvar Siyrktarfélagsins að Háaleitisbraut 13. Á þann hátt kæmi féð bezt að notum, þeim, ér yrðu fyrir einhverju slysi. Um leið og stjórn félagsins þakkar þessa gjöf vill hún sér- staklega vekja athygli á þeirri hugsun, sem hér liggur að baki, sem er sannarlega til fyrirmynd ar og eftirbreytni. Reykjavík, 7.10. 1971 Stjórn Styrktarfélags lamaöra og tiitlaðra “ til laga um kaupábyrgðarsjóð. 1 frumvarpinu segir í 1. gr.: Stofna skal kaupábyrgðarsjóð. Tilgangur sjóðsins er að tryggja greiðslu launa, ef atvinnurek- andi verður gjaldþrota, kemst í greiðsluþrot eða greiðir ekki laun af öðrum ástæðum. Um tekjuöflun sjóðsins segir í 4. gr. frumvarpsins: Tekjur sjóðsins eru 20% við- auki við iðgjald atvinnurekenda til atvinnulteysistryggingasjóðs. Gjaldið skal leggja á, innheimta og varðveita á sama hátt og lög kveða á um iðgjald til atvinnu- leysistrygginga, eftir því sem þau geta átt við. I upphafi greinargerðar með frumvarpinu segir: 1 þeim stór.u sveiflum, sem átt hafa sér stað á vinnumarkaði : þjóðarinnar undanfarin ár, hef- ur þess oft gætt, að atvinnufyr- irtæki þau, sem nánast eru tengd þessum sveiflum, geta ekki, þeg ar erfiðast er í ári, greitt út lög- ákveðin eða samningsbundin laun til verkafólks síns. Flutningsmenn frumvarps þessa eru Eggert G. Þorsteins- son og Jón Ármann Héðinsson. Perú: 40 fórust í jarðskjálfta sterkum tengslum við íslenzka þorskstofninn og hafi sá græn- lenzki á undanförnum árum í æ ríkara mæli hrygnt á íslandsmið um. Þetta sé merki um að hrygn ingarsvæði Grænlandsþorsksins hafi minnkað af völdum kóln- andi veðráttu. Segir nefndin að ógerningur sé að spá um hversu lengi þetta ástanda haldist , vitað sé um fyrri dæmi um slíik tima- bil. Þá segir nefndin að sökum erfiðleika af völdum ísreks sé ekki um ofveiði að ræða á þess- um slóðum, heldur þvert á móti of litla veiði. Það var norska blaðið Fiskar en, sem skýrði frá þessu í frétt af fundinum. 1 sama tölublaði er í leiðara fjallað um landsfundimn og þau mál, sem fyrir honum lágu. Þar er m.a. fjallað um fyr irhugaða útfærslu íslenzku land helginnar. „Nú er landhelgismál okkar ekki einungis • mál, sem snertir samband okkar við EBE. Eftir að íslendingar hafa gert kröfu til 50 mílna landhelgi höf um við Norðmenn neyðzt til að íhuga hvað við eigum að gera. Eigum við að fylgja fordæmi ís lands, eða eigum við að gera kröfu til alls landgrunnsins? Um þetta verða auðvitað ekki allir á sama máli, en við vitum að slik landhelgi myndi hafa mikla þýðingu fyrir verndun fiskstofn ann.a, með tilheyrandi reglugerð um og við vitum öll að það er hvorki auðvelt né fljótlegt að ná alþjóðlegri samstöðu um slík mál.“ Lima, Perú, 18. okt. — AP YFIR 40 manns létu lífið í jarð skjálfta í Perú nii um helgina að sögn yfirvalda í höfuðborg lands ins, Lima. Jarðskjálftinn varð í suðvesturhluta landsins í af- skekktu héraði og fréttist ekkert af honum í tvo daga, vegna þess að símalínur slitnuðu. Það voru bændur af jarð- skjálftasvæðinu, sem tilkynntu um hann, en þeir höfðu þá geng ið 40 km vegalengd. Að sögn þeirra varð mikið tjón á mann- virkjum og samgönguleiðum. — Talið er að 4 daga taki að gera við vegina, þannig að hægt verði að koma björgunar- og hjálpar- gögnum á staðinn. —■ Fregnir herma að allt Rimaraeshéraðið við ræður Andesfjalla hat'i lagzt í rúst af völdum jarðskjálftans. Flugvél frá flugher Perú fór í gærkvöldi með lækna og hjúkrun arlið á staðinn, en um 10 klst. gangur er frá flugvellinum til svæðisins. Byrjenda- námsefni í dönsku RÍKISÚTGÁFA námsbóka, hef- ur gefið út byrjendanámsefni í dönsku, er nefnist — Jeg taler dansk, eftir Gurli Doltrup. Náms efnið er á 80 myndskreyttum vinnublöðum í stóru broti, og er einkum ætlað 11 og 12 ára nem endum. Gert er ráð fyrir, að efni á einu blaði nægi til kennslu í eina klukkustund. Vinnublöðin eru á dönsku, og fer öU kennslan fram á því máli. Börnin byrja strax að tala málið, og er áherzla lögð á að kenna al gengustu dönsku orðin sem fyrst. Vinnublöðin eru sérstaklega mið uð við íslenzkt mál. Kennurum er frjálst að semja aukaverkefni og fella inn í náms efnið eftir þörfum. en óheimilt er að taka blöð úr Jeg taler dansk, til að fella að öðru náms- efni í dönsku. Mjög ítarlegar kennsluleiðbein ingar hafa verið gefnar út með þessu námsefni. Þar er gerð greln fyrir hvernig kenna má hvert ein stakt blað. Einnig verða gefin út segulbönd með öllum þeim orð- um, sem eru á blöðunum, i þeirri röð, sem þau koma fyrir i fyrsta skipti, sömuleiðis verða á þeim 11 sungnar vísur af blöðunum. Að áliti höfundar er ekki ráð- legt fyrir þá kennara, sem ekki hafa sótt námskeið í kennslu á þessu nýja námsefni, að kenna það, nema þeir hafi gott vald á dönsku. Á niyndinni sést teikning af Pólver.jannm ofan í inktiinnn og lögreglumanni með sporlmnd að leit í vagninum. Ótrúlegur flótti H.G. Stokkhólmi, 11. okt. ÞAÐ var aðeins ein hugsun sem stjórnaði Pólverja nokkr um, þegar hann læddist í skjóli myrkurs upp i vöru- flutningalest, sem hafði við- dvöl í heimabæ hans Kato- wice, fyrir sjö dögum síðan: Frelsi. 1 þetta skipti skyldi það tak ast. Fyrir nokkrum ' árum hafði hann reynt að flýja, en verið handtekinn og dæmdur í tveggja ára fangelsi. Næð- ist hann núna þýddi það lífs- tiðarfangelsi. Flóttaáætluriin var á þá leið, að Pólverjanum tókst að komast upp í vöruflutninga- lest sem hann hélt á lieið til Vestur-Þýzkalands. Vagninr, var hlaðinn með 50 stórum tunnum af biki og tjöru, en þær voru tómar af hendingu. Pólverjinn sagaði aðra í sund ur í miðjunni og skreið inn i hana. I sjö daga þorði hann ekki að hreyfa sig, liggjandi í bikinu, matarlaus og kald- ur. Lögregla og sporhundar komu hvað eftir annað inn i lestina, en vegna hinnar sterku tjörulyktar fundu þeir hann ekki. Thure Sjövall brautarstjóri í Trelleborg var sá fyrsti, sem uppgötvaði manninn frá því er flðttinn hófst. Hann segir: í ellefu ár hef ég unnið hér á stöðinni og séð hundruð flóttamanna birtast á ólíkleg- ustu stöðum, en þetta er stór- kostlegasti flótti sem ég man eftir. Ég kom að manninum þar sem hann var að reyna að skriða út úr tunnunni, en hann gat naumast skriðið á fjórum fótum. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús, en fyrsta ósk hans var, að hafa sam- band við sendiráð Vestur- Þýzkalands í Svíþjóð og biðja um hæli sem pólitískur flótta- maður. Það er ekkert nýtt að fólk frá einræðisrikjum kommún ista flýi til Svíþjóðar og nemur fjöldi þeirra árlega mörgum tugum. Margir sterkir skákmenn - taka þátt í stórmóti hér í febrúar FORKEPPNI Hau.stsmót.s Tafl- fólags Reykjavíikur lauik föstu- daginn 15. olct. sri. TeEit var i þremur riðl'um í meistairaflokki og komast tveir efstu men,n úr hverjum riðli í úrslitakeppnina. 1 1. riðli urðu úrsilit þessi: Bjöm Sigurjónsson 6 v (af 6 möguleguim), 2. Torfi Stefánsson og Jóhann Örn Siigurjómsson 35/2 v. Torfi fer í úrslitaikeppn ina samkvæmt stigaútreifeningi. — 2. riðlll: 1. Bragi Kristjánisson 714 vinninig (af 8 möguilegum), 2. Jón Þorsteimsson 7 vinninga, 3. Harvey Georgsson 6 v. 3. riðW'l: 1. Gunmar Gunnarsison 7 v. (af 8 mögulegum), 2.—4. Kristján Guðmundsson, Ólafur H. Ólafs- Dagar við vatnið eftir Drífu Viðar — komin út hjá Heimskringlu FYRIR sikömmu kom út hjá Heimskringlu Dagar við vatnið eftir Drífu Viðar, en hún lézt sem kunnugt er fyrr á þessu ári. Bókin er álls 146 bls. og hefur hún að geyma ljóðrænar stemn- ingar, þanka og smásagnaþætti; alls 22 þætti. son og Jón Páisson 6 v. Kristján var i öðru sæti sa.mkvæmt stiga útreikningi. Auk þessara manna munni tefla í úrslituinum þeir Björn Þorsteinssom, Freysteinn Þor bergsson, Magnús Sólmundarson og Ingi R. Jóhannsson. í fyrsta flokki varð eflsituit Þóriir Sigursteinsson, en Hanald- ur Haraldsson varð annar sam- kvasmt stigum. Flytjast þeir í meistaraflokk. í unigiimgaflokki urðu efstir þeir Vígl'umdur Jónsson og Grét- ar Eyþórsson með 5 vinninga. 1 öðrum flokki er keppni enn ölokið. Keppnin í meistairafloikki vai jafnframt úrtökukeppni fyrir ál- þjóðlegt skákmót, sem háð verð- ur í Reykjavíik í febrúar á næsta ári. Þar mumu verða meðal keppenda tveir stórmeistarar frá Sovétiríkjum'um, Hort frá Tékkó- slóvakí'u, Anderson frá Sviþjóð og Gheorgia frá Rúmeníu. Auk þeirra hefur stórmeistaranium Gligorie frá Júgóslaviu verið boðið, en svar frá honum hefur ekki borizt ennþá. íslenzku titi'l hafairnir Friðrik Óiafsson og Guðmundur Sigurjónsson verða einniig meðal þátttakemda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.