Morgunblaðið - 20.10.1971, Síða 22

Morgunblaðið - 20.10.1971, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1971 Georg Þorsteinsson — Minningarorð Fæddur 12. desember 1907. Dáinn 13. október 1971. Sjá, nú er liðin ein sú fegursta sumartíð, sem við höfum upplif- að hér í Reykjavík, hennar dýr- legi sólarljómi hefur yljað okk- ur og endurnært. En áður en okkur varir vöknum við einn morguninn og sjáum hvar vetur konungur boðar komu sína, okk- ar gamla og fallega Esja er hjúp uð hvítum möttli vetrarskrúð- ans og frost á jörðu. Svo snögg eru umskipti í ríki náttúrunnar, „blómin fölna á einni hélunótt", þetta minnir okkur á fallvaltleikaLnn í ltö okk ar mannanna, fótmálið eina, sem okkur öllum er fyrirbúið að stiga fyrr eða siðar. Og með þess um fyrsta vetrarboða barst okk- ur harmafregn „heill í gær, en nár i dag“, og okkur setur hljóð, þyí við erum jafnan óviðbúin að taka á móti þessari fregn svo hversdagsleg sem hún þó er og jafn vis og árstíðaskiptin. Svo fór fyrir mér, og ég veit að svo var um fleiri er okkur barst andlátsfregn Georgs Þor- steinssonar fulltrúa, er í dag verðtir kvaddur hinztu kveðju í hans kæru Dómkirkju, þar sem hann um margra árabil stóð á söngpalli og söng hinztu kveðj- ur yfir svo mörgum samferðar- mönnum sínum. Það er þó trú mín, að vinur minn Georg, hafi ekki verið óvið búinn þótt brátt að bæri, að til hans var kallað, að stiga hið sið asta fótmál. Svo örugga fcrú og einlægt Guðstraust bar hann i hjarta sínu, að ég er sannfærður um, að öruggur og óttalaus hef- ur hann gengið yfir síðasta þrep ið, þvi hann trúði og vissi að för hans stefndi „til Guðs himnesku landa." Georg Þorsteinsson var fædd- ur að Eyvindartungu í Laugar- dal, 12. des. 1907, yngsti sonur þeirra gagnmerku hjóna Arn- heiðar Magnúsdóttur, frá Laug- arvatni, alsystur Böðvars, hins landskunna bændahöfðingja á Laugarvatni og Þorsteihs Jónssonar frá Úthlíð í Biskups- tungum, ættir þeirra hjóna eru vel þekktar um allt Suðurland og víðar og verða þvi ekki rakt ar hér. Georg var því grein af góðum stofni kominn, hann var yngstur níu alsystkina er upp komust tveggja systra og sjö bræðra, jafnan voru þau systkin kennd við fæðingarstað sinn Eyvindartungu, ÖH voru þau mesta manndóms- og myndarfólk, sem reynzt hefur nýtir og farsæl- ir þjóðfélagsþegnar. t Maðurinn minn og faðir okkar, GUÐJÓN JÓNSSON, Austurgötu 17, Hafnarfirði, andaðist í Landsspítalanum mánudaginn 18. þ. m.. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði laugardag- inn 23. þ. m. kl. 11 f. h. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlega bent á Minningasjóð Jóns Guðjónssonar hjá Hjálparsveit skáta í Hafn- arfirði, eða líknarstofnanir. Ingibjörg Snorradóttir, Kristinn Guðjónsson, Hreiðar Guðjónsson, Elín Guðjónsdóttir. t Útför mannsins míns, PÉTURS SIGURÐSSONAR, fyrrverandi háskóiaritara, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 21. þ. m. kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hins látna, vinsamlegast láti líknar- stofnanir njóta þess. Þóra Sigurðardóttir. t Eiginmaður minn, BENEDIKT GUÐBJARTSSON, fyrrverandi yfirverkstjóri í Stálsmiðjunni, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. október klukkan 10.30 fyrir hádegi. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlegast bent á líknarstofnanir. Magnúsína Jakobsdóttir, Eskihlíð 12 B. t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfatl og útför eiginkonu minnar og móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÓLAFÍU HELGADÓTTUR, Hringbraut 38, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir eru færðar læknum, hjúkrunarkonum og öðru starfsfólki Vífilsstaðarhælis, og öllum sem önnuðust hana í veikindum hennar. Gunnar Sigurðsson, Sverrir Gunnarsson, Hreiðar Georgsson, Eygló Guðmundsdóttir, Sigurður Gunnarsson, Halldóra Ivarsdóttir, Helgi Gunnarsson, Vigdís Grétarsdóttir og bamaböm. Georg mun hafa verið á tí- uuda árinu þegar faðir hans fél frá, og var hann með móð- ur sinni eftir það unz hann flutt ist hingað til Reykjavikur 19 ára gamall og hér í borg hefur hann átt heima allt til þessa. Hann var mjög glæsilegur og fagurlimaður ungur maður, með brennandi áhuga fyrir íþróttum og líkamsrækt, og sótti þá þeg- ar íþróttanám hjá hinum þekkta íþróttaþjálfara Jóni Þorsteins- syni og hjá honum lauk hann fimleikaþjálfaraprófi. Brátt vald ist hann í úrvalsfimleikaflokk undir stjórn Jóns Haldórssonar og fór með honum í sýningar- ferð til Þýzkalands árið 1929. Aðra sýningarferð fór hann til Sviþjóðar 1932 með glímu- og fimleikaflokki undir stjórn Jóns Þorsteinssonar, og sýndu þeir meðal annars á íslenzku vikunni er þá var haldin í Stokkhólmi, við mjög góðar undirtektir. Georg var mikill glímumaður, fjaðurmagnaður og sterkur vel, hann glímdi ávallt vegna aðdá- unar sinnar á þessari þjóðlegu iþrótt, en ekki til metnaðar, hann hlaut ár eftir ár fyrstu verðlaun fyrir fegurðarglímu. Georg var gæddur mikiffi sönggáfu og var í nærfellt 40 ár í Karlakór K.F.U.M. og Fóst- bræðrum, og fór margar söng- ferðir með þeim vítt um lönd. Auk þess, sem hann söng um langt árabil við ýmis tækifæri, og munu margir minnast hans, sem söngmannsins ljúfa og góða er ávallt var reiðubúinn að láta söngsins unaðarmál lyfta hug og sál, hvort heldur var á gleðinn ar góðvinafundum eða í sorgar- ranni. Hann var fastur starfsmaður Reykjavíkurborgar i full fjöru- tiu og fjögur ár. 1. júnl 1927 gerðist hann innheimtumaður hjá Gasstöðinni og síðar bókari, það an fór hann á borgarskrifstof- ima, sem fulltrúi við útsvarsinn- heimtuna og þegar Gjaldheimt- an var stofnsett til innheimtu opinberra gjalda fluttist hann þangað og gegndi þar fulltrúa starfi allt fram á kvöld síns sið- asta ævidags. Hvarvetna gat Georg sér gott orð, trúr og samvizkusamur starfsmaður, einstaklega lipur og prúður í allri framkomu. Að vísu hafði heilsu hans og vinnuþreki hrakað mjög hin siðari ár, en vinnugleði hans og áhugi var ó- bugaður. 1 áratug sat Georg í stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, og alla tíð, sem gjald- keri og þar sem annars staðar er hann hafði þjónustust.örfum að gegna var hann heill í starfi, trúr og traustur, sá maður er í einu og öliu mátti að fuliu treysta. Fleiri trúnaðarstörfum gegndi hann fyrir félagið, m.a. var hann fulltrúi þess á þingurn B.S.R.B. og sat eitt sinn þing norrænna borganstarfsmanna í Stokkhóltni. Georg átti því Iáni að fagna að eignast traustan lífsförunaut, Esther Jóhönnu Bergþórsdóttur, en þau gengu I hjónaband 23. febrúar 1934. Hjónaband þeirra var einstaklega hamingjusamt, KRISTlN Valdimarsdóttir var fædd á Akureyri 12. janúar 1925. Foreldrar hennar voru Sigurveig Þórarinsdóttir og Valdimar Jó- hannsson. Þegar hún var 5 ára fór hún í fóstur til sæmdarhjóna, þeirra Guðbjargar Kristjánsdótt- ur og Gunnars Sigurðssonar, sem voru henni sem ástkærustu foreldrar. Það var sumar og sól, ilmur úr grasi. Ungir og aldnir fögn- uðu yndisleik sumarsins. Ég var nýkomin heim í sveitina mína til heyskaparvinnu. Við áttum von á gestum af næsta bæ. Það var fólk, sem var nýflutt þangað úr öðru byggðarlagi. Þegar gestirn- ir komu er mér minnisstæðust ung stúlka, hún var svo fögur og heillandi, Kristín Valdimars- dóttir hét hún. fansælt og gott, sameigmlega höfðu þau byggt upp sitt fallega heimili, þar sem gott var að dvelja I glaðværð og góðvild samrýmdra hjóna. Það var sem hver dagur samvistar þeirra væru samfelldir hveitibrauðsdag ar, sem enga skugga bar á. Börn þeirra hjóna eru fjögur, Gerður Árný, búsett hér i borg, gift Sigurði Ásmundssyni, raf- virkja. Guðrún búsett í Hvera- gerði, gift Skúla Marteinssyni, bifreiðastjóra. Gyða búsett í Kaliforniu, gift Robert Lee Mc. Farland verkfræðingi og er hún nú komin um langan veg til að heiðra minningu síns elskulega föður; og Ari Garðar, 16 ára skólanemi í föðurgarði. Sjö eru barnabörn þeirra. Margs er að minnast á skiln- aðarstund, eftir full þrjátíu ára kynni, sem vinnufélaga og sam- ítarfsmanns í félagsmálum, ferða félaga og I fyrstu kunningsskap ar sem þróaðist í hreina vináttu er aldrei féll skuggi á. Trygg- lyndi Georgs var viðbrugðið. Það þekktum við bezt er áttum því láni að fagna að eiga vin- áttu hans. Hann var sá er aldrei brást, sá er ávaHt treysta mátti. Man ég glaðar stundir ferðalaga okkar, já og margar aðrar, sem hér er ekki rúm til að rekja. Minningarnar hreinar og bjart- ar geymast í hug og hjarta með- an mín lífsferð endist. Og þeg- Margt var sér til gamans gert þetta sumar, komið á hestbak, farið á næstu bæi, svo komu haustréttimar. Þá man ég að heima var slegið upp dansleik unga fólkinu til gamans. Sumar- ið leið eins og önnur sumur. Ár- in liða, margt drífur á dagana á æviskeiðinu, sumir standa af sér öll hret, aðrir geta orðið úti. Rúmum 20 árum seinna lágu leiðir okkar Kristínar saman aftur heima í Hveragerði. Síðast átti hún heima á hæðinni fyrir ofan mig. Hún var sama hug- ljúfa persónan, nú með ára- reynslu að baki. Það kom fyrir að hún kom með mér, þegar ég t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför Kristínar systur okkar. ÓIi P. Kristjánsson, •Tóhann G. Kristjánsson. t Við þökkum innilega auð- sýnda samúð við andlát og jarðarför mannsins mins, föð- ur og sonar, Garðars Sveinbjamarsonar, Gautlandi 17. Þórunn Sigurjónsdóttir, Birna Garðarsdóttir, Sveinbjöm Friðfinnsson ogaðrir aðstandendur. Kristín Valdima rs- dóttir — Minning t Þökkum hjartanlega öllum, nær og fjær, sem auðsýndu okk- ur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður minnar, JÓHÖNNU JÓNSDÓTTUR, Ránargötu 25, Akureyri. Sérstaklega þökkum við læknum og hjúkrunarkonum og öðru starfsfólki Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir góða hjúkr- un og umönnun. Biðjum Guð að blessa ykkur öll. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Ragnheiður Arnadóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, EÐVALDS EINARS STEFANSSONAR, skipasmiðs, Sævarlandi 18, Reykjavík. Stefán G. Eðvaldsson, Guðrún Ragnarsdóttir, Rósa Eðvaldsdóttir, Gísíi Benjamínsson, Katrín Eðvaldsdóttir, Árni Sófusson og barnabörn. fór til Þorlákshafnar eða til Sel- foss á bílnum minum, einhverra erinda. Alltaf var hún jafn hæg- lát og dul. Daginn áður en hún kvaddi þennan heim, gekk hún fyrir gluggann hjá mér. Ég kallaði tll hennar og spurði: „Máttu ekki vera að því að líta inn?“ „Jú,“ sagði hún, „ég kem seinna." Þær minningar, sem ég hef um Kristínu Valdimarsdóttur eru mér hugljúfar og þakka ég henni samveruna með kvæði skáldsins okkar: óá,éag ,gghgÖu5d efdlð-Ló.i q Hinn skýra svip, hið mikla mál ég man hjá ungum svanna, þar vakti djúp og viðkvæm sál sem vildi skilja og kanna. Hún átti ei til neitt tál né fals hún trúði á dyggðir manna á frelsi og rétt í framsókn alis hið fagra, góða og sanna. Blessuð sé minning hennar. Guðrún Mjöll.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.