Morgunblaðið - 26.10.1971, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1971
Háskólahátíðin s.l. laugardag:
„Verið síspyrjandi um
tilgang og leiðiru
Cr hópi nýstúdanta.
os Ordass, biskups frá Ungverja
landi. Ordass gat ekki verið við-
staddur athöfnina, þar sem ung-
versk yfirvöld neituðu honum
um fararleyfi, og bað Jóhann
Hannesson gesti því að rísa úr
sætum til að votta honum virð-
ingu sína.
Gaukur Jörundsson, forseti
lagadeildar, lýsti kjöri Giinthers
Beitzke, prófessors við háskó1!-
ann í Bonn, Svante Bergström,
prófessors við Uppsalaháskóla,
Anders Vinding Kruse prófess-
ors við Kaupmannahafnarhá-
skóla og Stephan Hurwitz, pró-
fessors við Kaupmannahafnar-
háskóla. Þeir veittu allir viður-
kenningarskjölunum viðtöku,
nema Stephan Hurwitz, sem ekki
gat verið viðstaddur athöfnina.
Bað Gaukur Jörundsson við-
stadda að rísa úr sætum til að
votta honum virðingu sína.
Sveinn Skorri Höskuldsson
lýsti kjöri Einars Haugen og
Steblin-Kamenskijs, fyrir hönd
heimspekideildar, í fjarveru Ól-
afs Hanssonar, deildarforseta.
Einar Haugen veitti heiðurs-
skjali viðtöku, en Steblin-Kam-
enskij gat ekki verið viðstadd-
ur athöfnina. Bað Sveinn Skorri
menn að risa úr sætum til að
votta honum virðingu sína.
Loks lýsti Guðmundur K.
Magnússon, forseti viðskipta-
deildar, kjöri Gylfa Þ. Gislason-
ar. Hann gat ekki verið viðstadd
ur athöfnina, og bað Guðmund-
ur menn að risa úr sætum, til
að votta honum virðingu sína.
Þá ávarpaði rektor nýstúd-
enta. Sagði hann, að fyrir hönd-
um hjá þeim væri nú mikið
starf, og mörg erfið próf væru
framundan. Margir hefðu i há-
skólanámi verið haldnir próf-
skrekk, og vitnaði hann í visu
Hannesar Hafstein, Á litlum lær
dómshesti . . . Bar hann loks ný-
stúdenta „að vera síspyrjandi
um tilgang og leiðir" og vak-
andi í starfi.
Nýstúdentum hafði verið af-
hent háskólaborgarabréf, og
gengu þeir fyrir rektor sem
bauð þá velkomna í skólann
með handabandi.
Formaður Stúdentaráðs, Gylfi
Jónsson, stud. theol. f'lutti stutt
ávarp, þar sem hann gagnrýndi
m.a. núverandi ástand í húsnæð-
is- og lánamáLum stúdenta.
Ræða Gylfa er birt i heiild á bls.
5 í blaðinu í dag.
Loks flutti Sinfóniuhljómsveit
íslands Akademískan hátíðarfor
leik eftir Johannes Brahms, und
ir stjórn dr. Róberts Abrahams
Ottóssonar, og að þvú loknu síeit
rektor athöfninni.
Heiðursdoktorar veita viðtöku viðiirkenningiirskjöliim. Efstur
er dr, Anders Vinding Kruse, þá dr. Gúnthflr Beitzke, dr. Svante
Bergström, og loks dr. Einar Haugen. Með þeirn á myndunum
eru Gaukur Jörundsson á þremur efsitu og Sveinn Skorri Hösk-
uid-sson á þeirri neðstu.
Nýstúdenfcair ganga fyrir rektor.
Kektor Kaupmannaliafnarhá-
skóla, Mogens Fog.
sagði rektor H.I. Magnús
Már Lárusson, í ávarpi
til nýstúdenta
HÁSKÓLAHÁTÍÐIN var haldin
í Háskóiabíói sl. iaugardag, að
viðstöddum forsetahjónumim,
herra Kristjáni Eldjárn og frú
Halldóru Eldjárn, menntamála-
ráðherra, Magnú-ii Torfa Ólafs-
syni, Geir Hallgrrínissyni, borg-
arstjóra, Ásgeiri Ásgeirssyni,
fyrrv. forseita og sendimönnnm
erlendra ríkja. Ennfremur voru
viðstaddir prófe«iso(rar og kenn-
arar við H.I., rektor Kanpmanna
hafnarháskóla, Mogens Fog,
sem var heiðursgeistur, auk
fjölda Stúdenta.
Hátiðin hófst kl. 2 síðdegis á
því að Stúdentakórinn söng und-
ir stjórn Atla Heimis Sveinsson-
ar, tónskálds. Þá flutti rektor,
Magnús Már Lárússon, ræðu, en
hún var birt í heild í Morgun-
blaðinu á sunnudag.
Næstur tók til máls rektor
Kaupmannahafnarháskóla, Mog-
ens Fog. Ræddi hann þau tengsl
sem væru milli háskólanna
tveggja. íslendingar hefðu löng-
um sótt menntun sina til Kaup-
mannahafnarháskóla og þvi
hefðu menningartengsl þess-
ara tveggja landa ætið
verið mjög samtvinnuð.
Ekki bæri að skilja það svo,
að íslendingar hefðu ætíð verið
þiggjendur í því tilliti. Þeir
hefðu átt marga mæta fræði-
menn, þótt nöfn þeirra eldri
hefðu mörg failið í gleymsku.
Nokkrir íslendingar fyrri alda
skipuðu þó sess meðal helztu
fræðimanna Norðurlanda og
mætti þar nefna Amgrím Jóns-
son, Brynjólf Sveinsson og Árna
Magnússon. Loks þakkaði rektor
þann heiður, sem sér hefði ver-
ið sýndur með því að vera boð-
ið hingað til háskólahátíðar-
innar, einum rektora af Norð-
urlöndum.
Þá var lýst kjöri heiðursdokt-
ora. Jóhann Hannesson, forseti
guðfræðideildar, lýsti kjöri Laj-