Morgunblaðið - 26.10.1971, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1971
sæærai
Umræður á Alþingi:
Nýjung í atvinnurekstri
sveitarfélaga
— til gagns eða ógagns?
ÞINGFRÉTTIR
- í STUTTU MÁLI
A FUNDI í noAri deild Alþingis
í gær kom til fyrstu iimræðn
frumvarp til laga uni heimild
sveitarfélaíía til stofminar og
starfrækslu atvinmi- og Ji.jón
ustufyrirtækja með takmark-
aðri ábyrffð. Allmiklar umræð-
ur nrðn um frnmvarp þetta, og
deildu menn m.a. um hvort
frumvarpið stuðloði að aiiknum
iimsvifnm sveitarfélaga í at-
vinnurekst.ri á kostnað einka-
framtaksins. Töldu flutnings-
menn frumvarpslns að fyrirtæki
þessi yrðu frekar nnda.ntekning
en regla — J>au myndu fyrst og
fremst verða Stofnuð á þeim
sviðum, þar sem sveitarfélög
reka nú fyrirtæki með ótakmark
aðri ábyrgð. T*ess vegna væri
hér ekki verið að vega að ein-
staklingsframtakinu.
Fyrsti flutningsmaður frum-
varpsins, Stefán Gunnlaiigsson
mælti fyrir því og sagði tilgang-
inn vera þann að auðvelda sveit-
arfélögum að rækja það hlut-
verk sitt að koma í veg fyrir at-
vinnuleysi, en skv. sveitarstjórn
arlögum væri það eitt af hlut-
verkum þeirra. Sveitarstjórnir
hefðu rækt þetta hlutverk sitt
með ýmsum hætti á undanförn-
um árum m.a. með rekstri fyr-
irtækja með ótakmarkaðri
ábyrgð. Oft hefði verið lagt út
I áhættusaman atvinnurekstur
og sveitarsjóðir orðið fyrii
skakkaföllum, sem bitnað hefðu
á annarri þjónustu þeirra. Með
hlutafjárlögum væri einstakling
um gert kleift að reka áhættu-
söm fyrirtæki með ótakmark-
aðri ábyrgð. Hér væri lagt til,
að sveitarfélögum væri fengin
hllðstæð heimild. Þó taldi Stefán
aðstæður hér ólíkar að mörgu
leyti, og rétt væri að setja sér-
staka löggjöf um þessi fyrirtæki
frekar en að gera breytingar á
hlutafjárlögunum. í lok ræðu
sinnar minntist hann á ályktun
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar frá
12. okt. sl. þar sem hún ályktaði
einróma að skora á Alþingi að
setja löggjöf i þá átt, sem hér
væri gert ráð fyrir.
Annar af flutningsmönnum
frumvarpsins, Björn Svein-
björnsson, taldi, að heimild til
stofnunar fyrirtækja, eins og
frumvarpið gerði ráð fyrir,
mætti ekki vera of rúm. Hún
ætti að vera bundin við áhættu-
söm fyrirtæki í atvinnuaukning-
arskyni. Taidi hann það vera
meginefni frumvarpsins, að
sveitarfélögum væri opnuð leið
til stofnunar fyrirtækja með ó-
takmarkaðri ábyrgð og lýsti sig
reiðubúinn, að fallast á allar þær
breytingartillögur, sem til bóta
væru.
Bjarni Guðnason kvaðst ekki
vera fyllilega sannfærður um
ágæti þessa frumvarps. Varpaði
hann fram tveimur fyrirspurn-
um til flutningsmanna; í fyrsta
1-agi, hvort ekki væri hætta á
stofriunum óábyrgra fyrirtækja,
yrði frumvarpið að lögum og í
öðru lagi, hvort rekstrarform
það, er hér væri gerð tillaga
um tíðkaðist annars staðar á
Norðurlöndum. Taldi ræðumað-
ur rekstrarform fyrirtækja á fs-
landi vera í upplausn og glund-
roða. Hér ætti að bæta enn einu
slíku fyrirbæri við. Réttast væri
að láta þetta mál bíða endur-
skoðunar á hlutafélagalögunum.
Ellert B. Schram tók í sama
streng, að rétt væri að bíða end-
urskoðunar á hlutafélagalögun-
um. Hér væri um lagasetningu
að ræða, sem byggði að veru-
legu leyti á þeim hlutafélagalög-
um sem væru hálfrar aldar
gömul og úrelt orðin. Ellert
kvaðst ekki vilja stuðla að aukn-
um atvinnurekstri hins opinbera,
en það væri gert með þessu
frumvarpi. Löggjöfin ætti fyrst
og fremst að stuðla að því, að
einstaklingarnir legðu út i at-
vinnurekstur og ekki mætti láta
sveitarfélög og ríki njóta meiri
réttar en einstaklingarnir njóta.
í frumvarpinu væri gert ráð fyr
ir þvi, að fyrirtæki þessi yrðu
undanþegin greiðslu opinberra
gjalda og mætti búast við, að
sveitarfélögin færðu út kvíarnar
og tækju til atvinnurekstrar á
fleiri sviðum en nú er. Ræðumað
ur benti á, að nú væri til athug-
unar verkaskipting milli ríkis og
sveitarfélaga, sem leiddi væntan
lega til þess, að sveitarfélög
fengju aukna starfsemi á sínar
hendur. Væri rétt að taka tii at-
hugunar i sambandi við það, að
hve miklu leyti sveitarfélög ættu
að standa í atvinnurekstri og
þjónustu.
Guðlaugiir Gíslason áleit betra,
að sveitarfélögin tækju höndum
saman við einstaklinga um þann
atvinnurekstur, sem þau vildu
standa að. Á nýsköpunarárun-
um hefðu allmörg sveitarfélög
ráðizt í rekstur útgerðarfyrir-
tækja með ótakmarkaðri ábyrgð.
Þau fyrirtæki hefðu á sínum
tíma flest orðið fyrir miklum
skakkaföllum. Hver hefði þá átt
að greiða hallann ef þetta hefðu
þá verið lög og þessi fyrirtæki
rekin með takmarkaðri ábyrgð?
Guðlaugur sagðist þess fullviss
að engin sveitarstjórn á land
inu mundi láta aðra aðila borga
halla á þeim fyrirtækjum, sem
hún réðist í.
Stefán Giinnlaugsson ítrekaði
það, sem hann hafði áður sagt,
að hér væri verið að auðvelda
sveitarstjórnum að rækja það
hlutverk sitt að sporna gegn at-
vinnuleysi. Með frumvarpinu
væri einungis verið að veita
sveitarfélögum sama rétt og ein
staklingarnir hefðu samkvæmt
hlutafélagalögunum. Sér væri
ekki kunnugt um að þetta rekstr
arform væri til annars staðar
á Norðurlöndum. Islendingum
væri sómi að því að verða fyrst-
ir Norðurlandaþjóðanna til að
innleiða það.
Matthías Á. Mathiesen, en
hann er einn af flutningsmönn-
um þessa frumvarps, kvað eðli-
Iegt, að það tæki menn tlma að
átta sig á hver mergur máls-
ins væri. Hér væri ekki verið að
stuðla að opinberum rekstri.
Ætlazt væri til, að rekstur i hinu
nýja formi yrði á þeim sviðum,
þar sem sveitarfélög nú rækju
fyrirtæki með ótakmarkaðri
ábyrgð. Hann benti á, að lána-
stofnanir lánuðu fyrirtækjum
sveitarfélaga oft meira fé en
gert mundi, ef rekstrargrund-
völlur þeirra væri kannaður.
Frumvarp þetta, ef að lögum
Lúxusferðir
WASHINGTON: Bandaríski
flugherinn eyddi í fyrra
500.000 dollurum til þess að
flytja kaupsýslumenn, stjórn-
málamenn og aðra kunna
borgara í hanastélsboð, á sýn
ingar og í hádegisverðarboð
að sögn þingmannsins Henry
Reuss frá Wisconsin.
yrði, stuðlaði að því, að bankar
og aðrar lánastofnanir könnuðu
betur rekstrargrundvöll fyrir-
tækja sveitarfélaga. Matthías
sagðist vera persónulega andvíg
utr því, að fyrirtæki í eigu sveit-
arfélaga nytu skattfrelsis. 1
frumvarpi því, sem hér lægi fyr-
ir, væri aðeins gert ráð fyrir,
að hin nýju fyrirtæki nytu
slíkra hlunninda, meðan önnur
fyrirtæki sveitarfélaga nytu
þeirra. Kvaðst ræðumaður
mundu styðja niðurfellingu
slíkra hlunninda með öllu, ef til-
laga kæmi fram um slíkt.
Ellert B. Schram taldi hafa
komið fram við umræðurnar, að
skilningur flutningsmanna frum
varpsins væri mjög skiptur á
eðli þess. Stefán teldi frumvarp-
ið miða að útbreiðslu „hinnar
ágætu“ jafnaðarstefnu, en skiln
ingur síðasta ræðumanns væri
greinilega annar. Ellert taldi
frumvarpið sjálft ekki fela í sér
takmarkanir á, að sveitarfélög-
in gætu fært sig út á nánast öll
svið atvúnnureksturs, og ættu
þau að njóta þar hlunninda, sem
einkafyrirtæki nytu ekki.
Björn Sveinbjörnsson talaði
síðastur og sagði, að þessi fyr-
irtæki yrðu frekaí undantekn-
ingar en regla. Þau yrðu stofn-
uð, þar sem þess væri þörf, en
ekki til að keppa við aðra. Björn
sagði löggjöf um hlutafélög í
Danmörku vera þannig úr garði
gerða, að fyrirtækjaform þetta
væri óþarft. Hér væri um brýnt
hagsmunamál sveitarfélaga að
ræða, sem ekki mætti bíða end-
urskoðunar hlutafjárlaganna.
Fleiri höfðu ekki kvatt sér
hljóðs,' og var frumvarpinu vís-
að til 2. umræðu og heilbrigðis-
og félagsmálanefndar.
gatnaniótiiin Kringluniýrarbraut
ar og Sléttuvcgair olli þvi uð
yfirvöld bönnuöu vinstri beygj-
ur á gatnaniótiinum. Komust
ökiimenn þá ekki inn á gamla
Hafna.rf jarðarveginn, þyrftu
J>eir að fara í miðba* Beykja-
víkitr eða vestur í borgina.
Vinstra beygjuljós á gatnamót-
nm Kringliimýrarbmutar og
Miklulirantar hleypti mjög tak-
Á FUNDI neðri deildar í gær
gerði Hannibal Valdimarsson
félagsmálaráðherra grein fyrir
frumvarpi um breytingar á lögum
um erfðafjárskatt, en það felur
í sér verulegar hækkanir á skatt-
inum frá því sem verið hefur.
Lögunum er ætlað að taka gildi
l. janúar 1972.
í ræðu sinni gat ráðherra þess
m. a., að hlutverk erfðafjársjóðs
sé það að endurhæfa það fólk,
sem af einhverjum ástæðum get-
ur ekki séð sér farborða með eig-
in vinnu eða skapa aðstöðu fyrir
það til þess að það geti starfað
að nytsamlegum verkefnum.
Með lögum frá 27. apríl 1970
voru sett ákvæði um endurhæf-
mgu. Ef lög þessi eiga að ná mark
miði sínu, sagði ráðherra, verður
að afla aukins fjár til endurhæf-
ingarmála, m. ö. o. að auka tekj-
ur erfðafjársjóðs.
Frumvarpinu var vísað til 2.
umræðu og heilbrigðis- og félags
málanefndar.
Næsta mál á dagskrá var frum
varp um ríkisreikninginn 1969,
sem kom til 1. umræðu. Mælti
Halldór E. Sigurðsson, fjármála-
ráðherra fyrir frumvarpinu og
gat þess, að ekki hefði verið unnt
að leggja frumvarpið fram á síð-
asta þingi, þar sem greinargerð
um skipan nefnda og greiðslur
til nefndamanna á árinu 1969
hefði ekki verið tilbúin í tæka
tíð. Einnig kvaddi Pétur Sigurðs
son sér hljóðs og fór nokkrum
orðum um störf yfirskoðunar-
manna o.fl. Að svo búnu var
frumvarpinu vísað til 2. umræðu
og fjárhagsnefndar.
Á fundi efri deildar kom til
fyrstu umræðu lagafrumvarp
um breytingu á lögum .30/1966
um meðferð, skoðun og mat á
sláturafurðum. Halldór E. Sig-
urðsson, landbúnaðarráðherra
mælti fyrir frumvarpinu, sem
flutt er til staðfestingar á bráða-
birgðalögum frá 19. maí í vor.
Var því vísað til 2. umræðu og
landbúnaðarnefndar.
markaðri umft*rð í gegn, og þvi
óku menn um Hamralilíð tij liees
að verða elgi fyrir töfum.
Við Hamrahlíð er stór barna-
skóli. Fundur foreldra og kenn-
ara í skólanum krafðist vinstra
beygjubanns á gatnamótuxn
Kringlumýrarbrautar og Hamra
hlíðar. Það bann var sett eigi
alds fyrir löngu og myndaðist þá
umferðaröngþveiti vdð ljósin á
Miklubraut. í Ijós kom, að sliikt
Þá gerði Magnús Torfi Ólafs-
son, menntarnálaráðherra grain
fyrir frumvarpi til laga um
Stýrimannaskólann í Reykjavík,
sem var til fyrstu umræðu.
Frumvarp þetta var flutt af ríkis
stjórninni á síðasta þingi, en varð
ekki útrætt þá og er nú endur-
flutt. Var frumvarpinu vísað til
2. umræðu og menntamálanefnd-
ar.
Lagt var fram á Alþingi í gær
frumvarp um stofnun og slit hjú
skapar, Það er samhljóða sams
konar frumvarpi, sem lagt var
fram á Alþingi sl. ár, en ekki
vannst tími til að afgreiða það
þá. í því var m.a. la.gt til, að fest-
ar verði úr lögum numdar. Enn-
fremur að þjóðkirkjupresti, sem
látið hefur af embætti, verði
óheimjlt að framkvæma hjóna-
vígslu eftir 1. jan. 1972 að telja.
Þá var einnig lagt fram frum-
va.rp um gjaldþrotaskipti, en það
var einnig lagt fram á síðasta
þingi, en varð ekki útrætt.
Fram voru lagðar fyilrspurnir
frá Steingrími Hermannssyni
um jöfnun á flutningskostnaði og
um áætlun um að ljúka rafvæð-
ingu dreifbýlisins á þrem árum.
Frá Helga S. Seljan var lögð
fram fyrirspurn um það, hvort
ríkisstjórnin hefði uppi áform
um að beita sér fyrir breytingum
á vegalögum, á þann veg að rikið
tæki að sér uppbyggingu þjóð-
vega, sem liggja um kaupstaði
eða kauptún.
Loks var lögð fram þingsálykt-
unartillaga frá Helga F. Seljan
um bætta rekstraraðstöðu félags
heimila.
Á fundi í Sameinuðu þingi í
gær var Haralds Guðmundsson-
ar fyrrum alþingismanns og ráð-
herra minnzt í ræðu, sem Ey-
steinn Jónsson forse-ti Sam,einaðs
þings flutti. Að ræðu hans lok-
inni risu þingmenn úr sætum og
vottuðu hinum látna virðingu
sína. Minningarræðan birtist síð-
ar hér í blaðinu.
getur ekki gengið til lengdar,
auk þess sem krafizt er afnáms
beygjubannsins við Hamrahlíð
vegna verzlana þar.
Nú hafa yfirvöld fundið nýja
lausn á þessu vandamáli. 1 gær
voru gerðar mælingar vegna
breytinga á Kringiuimýrarbraut
á móts við Fossvogsveg. 1 ráði
er að beina umferðinni af eýstri
akrein Kringluniýrarbrautar ská
yfir umferðareyna, yfir vestarl
akreinina og spilduna, sem aí-
Framliald á bls. 27
Bcyg.jiibivimið við Hiunrahlíð olll töfum vlð Ijósin inn á Miklubraut.
— (Ljósm. Mbl. Kr. Ben.).
Akrein af Kringlumýrarbraut
á Hafnarfjarðarveg
ÁREKSTRA- og slysatíðni á