Alþýðublaðið - 04.08.1920, Page 1
Alþýðublaðið
Crefið út af A.lþýðaflokkuum.
1920
€rlenð símskeyti.
Khöfn, 2. ágúst.
Engin sætt með írum og Bretum.
Símað er frá London, að sátta-
umleitanir milli íra og Breta hafi
niistekist. Og er búist við nýjum
ntanndrápum.
Búmenar ígla sig.
Símað er frá Belgrad, að Rúmen-
ía krefjist þess, að Rússar hafi
sig á braut frá Bessarabfu innan
þriggja daga.
Yarsjá í hættu.
Símað er frá Varsjá, að búist
sé við innreið bolsivfka í bæinn
þá og þegar; að víggirðingu borg-
arinnar er unnið kappsamlega.
Sama er að segja frá Lemberg.
Khöfn, 4. ágúst.
Hernaður Grikkja.
Sfmað er frá London, að Grikk-
ir hafi hertekið Þrakíu að Tchat-
aicha.
Spasamningarnir
hafa verið samþyktir í neðri má!-
stofu enska þingsins.
Bolsivíkar í London.
Símað frá London, að Kamen-
«ff og Krassin séu komnir þangað.
Náðaðir.
Símað frá Berlín, að samþykt
hafi verið að náða pólitíska af-
brotamenn, nema bayerska bolsi-
víka og fylgismenn Kapps.
Nýja stjórnin
i Konstantinopel er andvíg þjóð-
ernissinnunum.
Pólska stríðið.
Frá Warschawa er sfmað, að
.v>ð Brest Litowsk og Brody standi
hötð orusta. Herforingjar bolsivíka
kafa neitað að stöðva framsóknina
%r en vopnahléssamningarnir séu
Miðvikudaginn 4. ágúst.
undirritaðir og gengið hafi verið
að skilyrðum Rússa.
Slgurjón.
Sigurjón heldur iðnsýningu í
Bárubúð þessa daga. Það þarf
ekki að tilgreina það nánar hvaða
Sigurjón það er, allir vita það.
Á þessari sýningu eru vörur af
þremur verksmiðjum sem Sigurjón
á, og er sýningin hin myndar-
legasta.
Frá klæðaverksmiðjunni á Ála-
fossi eru sýndar margar tegundir
af fataefni, og eru margar þeirra
mjög smekklegar. Þar eð þau eru
úr alull, eru þau sterkari en fiest
útlend fataefni er hingað fiytjast,
og vill Alþ.bl. ráðleggja mönnum
að kaupa heldur innlend fataefni,
heldur en útlend, enda ætti það
að vera nokkur hvöt fyrir menn
til þess að styðja þennan innlenda
iðnað, að þeir með því gera góð■
verk á sjálýunt sér. Þessi fataefni
eru sem sé nákvcemlega helmingi
ódýrari en útlend fataefni. Það
virðist býsna öfugt að nota þau
útlendu, meðan íslenzkt efni fæst,
enda munu þau sjálfsagt ganga
öll út í rykknum og ættu þeir
sem þurfá að fá sér föt í haust
að fiýta sér að ná sér í fataefni.
Þá er nú prjónlesið sem búið
er til á Álafossi.
En frá því ætlar blaðið að segja
á morgun.
Sá „spánska" á GrænlaniL
Hungurvofan gereyðir heil héruð.
í vetur hefir „spánska veikin"
geisað víða í Grænlandi og gert
mikinn usla. Að því er segir í
bréfi frá Alfred Berthelsen lækni,
hefir veikin gert fólki, á mörgum
175. tölubl.
steðum í Norður-Grænlandi, ó-
mögulegt fyrir um aðdrætti til
vetrarins. í einni sveitinni átu íbú-
arnir fyrst alla hunda sína, en að
mánuði liðnum voru þeir þó al-
gerlega matarlausir. Um jólin dóu
tvö börn úr hungri og eftir 27.
desember má segja, að eitt dauðs-
fall hafi verið á dag. Hópur manna,
sem sendur var af stað til þess að
ná til annara héraða, varð að snúa
aftur án þess að hafa komist þang-
að; og er hann kom aftur fann
hann flesta íbúa nýlendunnar dauða.
(Frá sendiherra Dana hér.)
Farmgjöld lækka stórkostlega.
Fyrstu mánuði ársins greiddu
hafnirnar á Norður-Frakklandi 90
shillings í farmgjald fyrir smá-
lestina trá Tyne í Englandi, en
nú kostar að eins 25 shillings
undir smálestina þaðan. Á sama
tíma hafa farmgjöld frá Tyne til
Miðjarðarhafshafnanna fallið úr 65
sh. niður í 47 sh. og 6 pence;
og frá Tyne til spánskra hafna úr
57 sh. niður í 40 sh. Þangað til
í júnímánuði var farmgjaldið fyrir
smálest frá Tyne til London 12
sh. 6 pence, en nú er það 9. sh:
Um miðjan júlí lágu tugir gufu-
skipa á Tyne og biðu þess, að
fá farm. Orsökin til þessa er fyrst
og fremst takmarkaður kolaút-
flutningur frá Bretlandi og í öðru
lagi það, að geisilega mikið af
skipum sem lítið sem ekkert fá
að flytja bætist stöðugt við í
heimsflotann.
Eanpstefuan í Fredericia á
Jótlandi var opnuð á laugardag-
inn. Hélt Rothe verslunarráðherra
ræðu um leið og hann setti stefn-
una og lofaði mörgu fögru, sem
ekki er ólíklegt að hinum frjáls-
Jyndari Dönum þyki súrmatar-
bragð að.