Morgunblaðið - 07.11.1971, Blaðsíða 4
MORGUNBLA£»EE>, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1971
36
Landgræðsluáætlun
fyrir Norðurland
Ályktanir landbúnaðarnefndar
Fjórðungssamb. Norðlendinga
Akureyri, 3. nóvember.
LANDBÚNAÐARNEFND I' jórA
ungssambands Norðlendinga hélt
nýlega fund á Akureyri. Ingvi
Þorsteinsson magister flutti er-
indi á fundinum um gróðureyð-
ingu og landgrœðslu. Hann taldi
að 26 þúsund ferkilómetrar lands
hefði blásið upp frá landnáms-
tíð til vorra daga. Nú væri um
helmingur landsins utan jökla
ofbeittur, um 30% hæfilega
jpeittur og um 20% vansetinn.
Þá taldi hann að um 220 þúsund
ærgildi hefðu ekld nægUega beit.
Hann taldi nauðsynlegt að
auka beitarþol landsins stórlega
með ýmsum ráðum, m.a. með
áburðardreifingu á úthaga. Tii-
raunir á Vaðlaheiði hefðu t. d.
leitt til tíföldunar á uppskeru,
Fundurinn samþykkti eftirfar-
andi ályktanir:
1) Niðurstöður af rannsóknum
og gróðurkortagerð Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins hafa
leitt í ljós mjög víðtæka ofbeit
á afréttura og heimalöndum,
meðal annars á Norðurlandi.
Hraðað verði úttekt á beitar-
þoli og ræktunarhæfni jarða
sem hafin er. 1 þessu skyni þarf
að stórauka f járframlög til gróð-
ur- og jarðakorta, sem eru grund
völlur skipulagðra aðgerða við
ræktun beitilands.
Jafnframt telur nefndin eðli-
legt, að fullkomin samvinna sé
um nefnda kortagerð miHi Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins,
Landnáms ríkisins, Fasteigna-
mats rikisins og þeirra stofnana
annarra, sem hlut eiga að máli
tll þess að þau megi verða sem
fullkomnust varðandi skráningu
jarða, stærð og landamerki.
KANVAS
Tízkunýjung
Dönsk stretch-stígvél
Tízka og þægindi sameinuð í einum skó.
Fallegir og léttir — hvort heldur í sam-
kvæmi eða á götunni.
TEG. 141—20, lit Opal.
Stærðir: 2—8 í Vz nr. VERÐ KR. 1.985,—
líka fáanlegir í:
TEG. 141—37. Hvítt lakk m/hvítum hæl.
Stærðir 2—8 í Vz nr. VERÐ KR. 1.985,—
Danskir götuskór
framleiddir úr kálfsskinni.
Sérstaklega mjúkir og þægilegir með
hrufóttum gúmmísóla og 45 mm hæl.
TEG. 2049. lit. brúnn. Stærðir 3Vz—7.
VERÐ KR. 1.485,—
Sérstakf tilboð
ítalskir sandalar vel stoppaðir með slit-
sterkum sóla og lágum hæl. Henta vel
bæði heima og á vinnustað.
TEG. 8855. lit. beige. Stærðir 36—41.
VERÐ AÐEINS KR. 385,—
Danskir hœlbandaskór
með 55 mm hæl frá ECCOLET, einum
þekktasta og stærsta framleiðanda tízku-
skófatnaðar í Danmörku.
TEG. 136—16 lit. Opal.
TEG. 136—17 lit. Hvítt.
Stærðir 3—8 í Vz
VERÐ KR. 1.250,—
Vinsœlu dönsku
SAFARI
skórnir
með hlýju loðfóðri í sléttu rúskinni.
Litur grár. Stærðir 2—8 í Vz nr.
VERÐ KR. 1.495,—
Ófóðraðir í grófu ósléttu rúskinni.
Litur brúnn. Stærðr 2—8 í Vz nr.
VERÐ KR. 1.495,—
í dökkbrúnu sléttu rúskinni.
Stærðir 41—46.
VERÐ KR. 1.838,—
PÓSTSENDUM.
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
við Austurvöll — Sími 14181.
Samhliða heUdaráætlun fyrir
gróðurvemd og landgræðsLu í
landitxu verði gerðar fram-
kvaamdaáætlanir fyrir einstaka
landshluta um þau efni og þörf
á ræktun bithaga til að létta af
ofbeit og koma í veg fyrir bú-
stofnsskerðingu. Nefndin skorar
á landbúnaðarráðherra og Al-
þingi að tryggja fjármagn til
landgræðsluáætlunar fyrir Norð-
urland.
2) Nefndin telur nauðsynlegt,
að sem fyrst verði gerðar til-
raunir sem sýni hvaða áhrif mis-
góð sumarbeit hefur á vænleika
sauðfjár að hausti. I þessu skyni
og Ö1 þess að gera aknenuar
rannsóknir á nýtingu beitilanda,
telur nefndin að fengnu áliti sér-
fróðra manna, að jörðin Krókur
í Þorkelshólshreppi í Vestur-
Húnavatnssýslu sé ákjósanleg.
Jörð þessi er í eigu Þorkelshóls-
hrepps og er nú I eyði. Bygg-
ingar eru þar allmiklar og einn-
ig ræktun á jörðinni.
— Sv. P.
Steikhúsið heitir nýr matsölu
staður, sem opnaður hefur
verið í Lækjargötu 10. Eigend
ur eru Stefán Kristjánsson og
Guðmundur Brynjólfsson og
sjást þeir hér á myndinni
ásamt matsveinum Steik-
hússins. öll húsgögn, er gestir
borða við, hanga í loftinu og
má segja að innréttingar séu
fyrir það allsérstæðar. Á boð
stólum er heitur matur og
smurt brauð, grillaðar steik
ur, kjúklingar o.fl. Unnt er að
kaupa mat á staðnum og
fara með hann heim. — Ljós-
mynd. Kr. Ben.
"í
Laugavegur 95
Verzlunarhúsið að Laugavegi 95 er til sölu, í því ásigkomu-
lagi, sem það nú er í, en það varð fyrir nokkrum bruna-
skemmdum, að innan, á s.l. sumri.
Húsið er mjög rammbyggt og stendur t. d. á afar öflugri stál-
grind, og er það gert með flutning fyrir augum, enda á að
fjarlægja húsið af núverandi stað, svo fljótt sem auðið er.
Söluverð er hugsað sem næst brunabótamati, að frádregnum
þeim brunaskemmdum, sem á því urðu.
Tillögu-uppdrættir um breytingu á húsinu í einbýlishús eða
parhús (tvær íbúðir), geta fylgt. Einnig gæti það hentað vel
sem lítið félagsheimili eða samkomuhús. Húsið er um 200
fermetrar að flatarmáli.
Upplýsingar í síma 41594 í dag og á morgun.
Leikjoteppi og bílabraut
Sendið mér gegn póstkröfu — stk. á 395 kr.
LITLI SKOGUR
Snorrabraut 22.