Morgunblaðið - 07.11.1971, Side 11

Morgunblaðið - 07.11.1971, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1971 43 stýrir fundi falskosning-aþings- koma því til leiðar, að ötulasti foringi þess var orðinn fangi, Þrátt fyrir þessar ægilegu að- farir leyndust enn frelsisunn- andi vamarsveitir víðs vegar um Pólland, og nú varð það hlutverk Rauða hersins með aðstoð kommúnistískra hand- benda sinna að ganga milli bois og höfuðs á þeim, Eftir að styrjöldinni lauk, töldu Sovét-yfirvöldin það yf- irleitt Pólverjum til dauða- glæps að hafa verið i pólsku andspyrnuhreyfingunni, eða hafa átt nokkur mök við hana til liðsinnis. Dómum um líflát, þrælaflutninga úr landi eða ævilangt fangelsi rigndi yfir þetta vesalings fólk og hvern þann, sem eitthvert Moskvuþý hirti um að ákæra, 31. desember 1944 lýsti Lubl- in-nefndin þvi yfir, að hún vseri bráðabirgðastjórn Pöi- lands og var þegar í stað við- im valdarán kommúnista ásaint greininni um valda- di, sem birtist sl. sunnudag, 56 eftir sr. Sigurð Einarsson. r hér í tilefni af því að 15 ár Jngverjalandi, sem kommún- urkennd af Sovét-stjórainni þann 5, janúar 1945. Á Yalta-ráðstefnunni í febr- úar komu „hinir þrir stóru“, Stalín, Roosevelt og Churchill, sér saman um yfirlýsingu, sem meðal annars hafði þetta inni að halda: „Bráðabirgðastjórn þá, sem nú fer með völd í Pól- landi, skal þess vegna skipu- leggja á breiðari grund- velii með þátttöku leiðtoga lýð ræðisfiokkanna í Póllandi sjálfu og Pólverja erlendis. Þessi nýja stjórn skal nefn- ast: Bráðabirgðaþjóðeiningar- stjórn Póllands. Þessi stjóra skal skuldbund- in til þess að láta fara fram frjálsar og óháðar kosningar með almennum kosningarétti. Kosningamar séu leynilegar. 1 þessum kosningum skulu allir andnasistískir flokkar hafa leyfi til að taka þátt og hafa menn í kjöri“. Þegar tími kom til þess að fara að framkvæma þessa sam- þykkt, kom það brátt í ljós í endalausu mátþófi Sovét-yfir- valdanna, undanbrögðum, svik um, vanefndum og blekkingum, að Moskva vlldi ekki þola nein ar breytingar á Lublin-nefnd- inni, nema til kæmu þeir menn einir, sem auðmj'úklega tækju við öHum fyrirskipunum frá Moskvu, eða þá í annan stað mönnum, sem væru svo miklir ómerkingar í opinberu lífi, að þeir ættu ekkert fylgi. Molotov lagði því blátt bann við þyi, að íorsætisráðherrann Mikolajczyk fengi sæti í stjórn inni. Það var ekki fyrr en 28, júní sem samkomulag náðist loks, sem í orði kveðnu átti að vera framkvæmd á Yalta-sam- þykktinni, en var það þó vit- anlega engan veginn. Þriggja stórvelda nefnd samdi að lokum ráðherralista, sem Moskva sætti sig við. Baleslaw Bierut varð forseti þjóðráðsins. Forsætisráðherra varð Edward-Osobka-Moraw- sky, — fyrsti váraforsætisráð- herra Wladyslaw Gomulka, sem verið hafði í Lublin-nefnd inni og loks amnar varaforsæt- isráðherra Stanislaw Mikolajc- zyk. Um vorið hafði Rauði herinn tekið upp náið samstarf við pólsku öryggislögregluna, sem kommúnistar höfðu stofnað, og lögðust þessir aðilar á eitt um að þefa upp og draga fyrir rétt fyrrveramdi meðlimi and- spyrnuhreyfimgarinnar og heimavarnaliðsins. Yfirforingi öryggislögreglun rsar var Stan- islaw Radkiewicz, sem áð- ur hafði gegnt svipuðu starfí hjá Lublin nefndinni. Hann var lærisveinn Bería og StaMns og þeim mjög samboðinn. Sem öryggismálaráðherra í nýju stjórninmi hafði hann um- ráð yfir 50 þúsumd manna njósnaraliði, sem þaulæft hafði verið í Moskvu auk ótalinna „sjálfboðaliða". 1 ársbyrjun 1945 höfðu þúsundir manna úr andspyrnuhreyfingunni verið teknir höndum, sendir i þræla- búðir eða skotnir. Seint í marz var svo líkast því, sem komm- únistar hefðu í hyggju að breyta eitthvað um stefnu. Rússneskur hershöfðingi, Ivanov, gerði leiðtogum pólsku neðanjarðarhreyfingar- innar bóð að koma á fund með sér á tilteknum stað I nánd við Warsjá. Var þeim heitið full- um griðum, enda skyldu þetta vera vinsamlegar viðræður um það, hveraig skyldi skipa mál- um andspyrnuhreyfingarinnar í framtíðinni. Sextán leiðtogar ginntust til að sækja þetta rússneska boð, þar á meðal Okulicki hershöfð- ingi, eftirmaður Bors, og full- trúar þeirra flokka, sem stóðu að útiagastjórninni í London. Til þessara manna spurðist aMrei síðan, fyrr en það kom í ljós, að þeir höfðu allir verið sviknir og handteknir, fluttir til Moskvu og leiddir þar fyr- ir rétt 18. júní. Nokkrir „ját- uðu“, en rússneskur herréttur dæmdi tólf þeirra seka. Að dóm um þarf ekki að spyrja. Þeir voru nægilega strangir til þess, að þessir menn gerðu kommún- istum ekki ónæði í bráð. Þannig var ástatt í Póllandi, þegar Mikolajczyk kom til Warsjár til þess að gerast land búnaðarráðherra í hinni nýju stjórn. Af 21 ráðherra í stjórn- inni höfðu 14 átt sæti í Lúbl- innefndinni, Bændflokknum hafði afdráttarlaust verið lofað einum þriðja ráðherraembætt- anna og allrar stjómlegrar ábyrgðar. Það urðu ekkert annað en svik að gömlum Sovét-vanda. Hann hiaut í raun og veru aðeins fjögur minniháttar ráðherraembætti. Og þó var það ekki nema sýndin ein, þvli að kommúnist- ar voiru skipaðir í nýstofnuð ráðherraembætti, sem sölsuðu undir sig verksvið bænda- flokks-ráðherranna. En ekki var stjórnin fyrr setzt á laggimar en kommún- istar tóku að gera áætlanir um, hvernig ætti að koma Bænda- flokknum á kné með vélræðuim,. Eitt fyrsta skref þeirra 1946 var í þvi fólgið að skipuleggja gervi-bændafiökk til höfuðs honum, og fékk hann hið virðu Vishinsky — trúnaðarvinur Stalíns. lega nafn: Bsendaflokkur hins nýja frelsis. Eins pg í öllum hinum nágrannalöndunum töldu kommúnistar sér alian heiður af jarðaskiptalögunum og öðrum ráðstöfunum, sem ætla mátti, að væru bændum að geði. Eln raunar var öll sú lög- gjöf í Póllandi undirbúin af hiinum borgaralegu bænda- flokkum. Jarðaskiptalögin voru sam- þykkt í september 1945. Með framkvæmd þeirra á sinni hendi gá'tu korrfmúnistar mútað og ógnað að vild og beittu allri framkvæmdinni á ógeðslegasta hátt til eflingar Moskvu-vald- inu í landinu. Kommúuistakiika Bieruts tók nú og að þrengja kosti Bændaflokksins- á þmgi. Sam- kvæmt Moskvu-samkomulag- inu frá 1944 átti Bændaflokk- urinn að fá þriðjung þingsæta, eða 145 þingmenn. Á fyrsta þinginu, sem háð var, gaf Bierut flokknum engan kost þess að fá nema 30 þingmenn, en hækkaði þessa tölu síðan upp í 52 á þinginu, sem háð var frá þvi í des. 1945, þangað til í jan. 1946. Þingmenn Bændafiokksins gátu vitanlega engin áhrif haft, eins og í pottiinn var búið og mættu, aðallega á þingfundum til þess að mótmæla gerræði Moskvudjndlanna, sem þarna voru í meírihluta, án þess að hafa snefll af umboði frá þjóð- inni. Þessari andspyrnu gegn o’fbeldinu fyLgdi þó ærinn mannháSki. Helztu vopn gegin Bænda- floKknum voru grimulausar ógnir og persónulegt ofbeMi, seím ' béitt yar miskunnarlaust af öryggislögreglunni í náinni samvinnu við rússnesku leyni- lögregiuna (N.K.V.D.). 1 sept- ember hélt bændaflokkurmn fyrsta þing sitt efttr stríð. Það var háð í Krakow. Samþykkti það ýmsar ályfktanir og þar á meðál eina um nauðsyn þess að koma á lýðræðisstjörnarfari í Póllandi, „sem byggðist á lög- um og rétti og heiibrigðu efina- hagskerfi". Svar kommúnista var í því fólgið að brermi- merkja Mikolajczyk og Bænda flokkinn, sem „andbylting- arsinnuð þý auðvaldsrikj- aruna“. Frá þvi þetta ■ gerðist Bor hershöfðingi og þangað til flokkurinn hélt næsta þing sitt I janúar 1946, færðust handtökur og morð á Bændaflokksmönnum mjög i vöxt. Þetta síðara þimg krafð- ist þess, að endi yrði bundinn á lögregluógniraar, og að brátt yrðu háðar frjálsar kosn- ingar. Þegar kommúnistaklíka Bieruts varð þess áskynja, hve einbeittir baandur voru, gerði Bierut „forsætisráðherra" tals- mann sinn á fund eirra og setti þeim úrslitakosti: Annað hvort skyldi Bændaflokkurinn hafa sameimazt stjórnarklík- unni og stuðningsliði hennar fyrir 1. marz eða verða afmáð ur. Bændur og leiðtogar þeirra létu ekki bugast og höfnuðu góðu boði. Og var þá þegar tek I in upp hin grimmasta ógnar- stjómn gegn þeim með látlaus- urn ofsóknum. Bierut-stjórnin hafði vitan- lega að engu samþykkt Yalta- ráðstefmunnar um frjálsar kosningar svo fljótt, sem verða mætti, og frestaði alveg að gera tilraun til nokkurs þess, er kosn ingar mætti telja, þangað til í janúar 1947. Á meðan undir- hjuggu kommúnistar og skipu- lögðu kosnimgavél, sem var botmlaus kúgunar- og svika- mylla frá upphafi til enda. Öll tæki ríkisvaldsims til áhrifa og ógrna voru tekin í notkun. Kosningadagur var ákveðinn 19. janúar, og eftir því sem hanm málgaðist meir voru fleiri og fleiri þúsundir bæmdaflokksmanna handtekn- ar og haldið í fangelsum og fangabúðum án dóms og laga. Brotizt var inn á heimil þeirra og þau rannsökuð, meðlima- Skrár og flokksskjöl voru gerð upptæk, eigur flokksins voru eyðilagðar og fundum hans sundrað af kylfubúnum bullum og „öryggislögreglu“ í samein- ingu. 25% af flokksfélögunum voru bönnuð í héruðum, þar sem flokkurinn átti mestu fylgi að fagna. Hundruð flokks- manna voru myrt, og hvaðan- æva bárust fregnir um hroða- legar misþyrmingar, sem bsendaflokksmenn höfðu orðið fyrir. Blöð Bændaflokksins voru að sjálfsögðu undir strangri rit Skoðun, og fengu ekki fréttr nema af mjög skornum skammti. 75 frambjóðendur flokksins voru handteknir rétt fyirir kosningarnar, 40 aðr- ir strikaður út af framboðslist- unum. Þeir, sem þá voru eftir, urðu að fara að meira eða minna leyti huldu höfði vegna hótana og ofsókna. Snemma í janúar vakti stjórn Bandarikjanna athygli Bretastjórnar og Ráðstjómar- innar á brotum þeim, sem fram in voru á Yalta-samþykktinni í Póllandi og bar fram harðorð mótmæli. Lagði hún áherzlu á þá kröfu sina, að staðið væri við milliríkjasamninga. Sovét-stjórnin svaraði 13. janúar með harla hlálegu plaggi, Hélt hún því fram, að „vissir meðlimir" Bændaflokks- ins hefðu staðið í sambandi við ólöglega leynihreyfingu og gripið til „hvers konar hótana, ofbeldis og morða“ i því skyni að hindra það, að kosningaund irbúningur til þingsins gæti far ið fram á eðlilegan hátt. Það væri hins vegar augljós skylda stjórnarinnar að gera nauðsyiti legar ráðstafanir gaignvart þessum glæpsamlegu öflum, og ) PÓLLANDI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.