Morgunblaðið - 14.11.1971, Side 2

Morgunblaðið - 14.11.1971, Side 2
34 MORGKJNBLAÐIB, SUTvHNUÐAGUR 14. NÓVEMBER 1971 Dr. Vilhjálmur G. Skúlason, dósent: Á þessu ári er liðin háll öld, síðan kanadiski visindamað- urinn Frederiok Grant Banting uppgötvaði insúlin, en skortur þess hjá sumum einstakling- um veldur þeim hræðilega sjúk- dómi, sem kallaður er sykur- sýki. Vitað er, að sykursýki hefur hrjáð mannkynið árþúsund- um saman. Fyrstu áreiðanlegu heimiMina um þennan sjúkdóm er að finna i riturn frá annarri öld eftir Krist. 1 einu þeirra er sagt frá þvi, hvernig sjúkdóm- urinn orsakaði, að „holdið og Hmirnir bráðnuðu og urðu að þvagi“. Ennfremur er sagt frá því, „að sjúklingurinn verði skammlífur vegna þess, að bráðnunin er ör og dauðinn hraður. Ennfremur er Mf slíkra sjúklinga ömuriegt og sársauka fuilt. Þorstinn er óslökkvandi og hefur í för með sér mikla drykkjameyzlu og mikið þvag- lát“. Siðar tóku Rómverjar eft- ir þvi, að býflugur sóttu í þvag, sem sykursýkissjúklingar höfðu kastað af sér og á 5. öld eftir Krist komst Indverjinn Susrata að því, að þvag sykursýkissjúkl inga hafði sætt bragð. Lengi vel höfðu læfcnar aðeins aðferð Sus- rata til áð greina þennan þátt sjúkdómsmyndarinnar, en á síð- ustu áratugum hafa fundizt ýmsar einfaldar efnafræðilegar aðferðir til þess að komast að raun um syfkur í þvagi, sem auk þess eru miklu náfcvæmari en að ferð Susrata. Fyrsti maðurinn, sem sýndi fram á sykur í þvag- inu með efnafræðilegri aðferð var brezki læknirirm Matthew Dobson, sem var uppi á 18. öld. í>egar sykur er kominn í þvag ið, er sykursýki þegar koonin á allhátt stig. Þess vegna er betra með þennan sjúfcdóm eins og aðra að finna hann á byrjunar- stigi með því að athuga sykur- magnlð i blóðinu, áður en það kemst yfir i þvagið. Sykurþois- próf það, sem nú er almennt not að, m.a. hér á landi hjá Hjarta- vernd, byggist á því að mæla, hve hratt sykurmagnið í blóð- inu minnkar eftir að það hefur verið hækkað með því að gefa viðkomandi einstaklingi þrúgu- sykur (glúkósu). Undir eðli'leg- um kringumstæðum bregzt bris- ið við siíkri sykurgjöf á þann hátt, að það framleiðir og gefur frá sér aukið magn af insúBni. Hjá heilbrigðum einstaklingi fellur sykurinn í blóðinu niður í eðlilegt magn imnan tveggja klukkustunda. Ef magnið helzt hátt í þrjár klukkustundir eða lengur, bendir það ti'l Mtillar insúlínframleiðslu og þá er hætta á, að einstaklingur- inn hafi sykursýki á byrjunar- stigi. Upphafsins að uppgötvun insúlíns er að rekja til ársins 1889, er Oskar Minfcowski, sem þá starfaði við háskólann í Strassborg, uppgötvaði, að þeg ar brisið var f jarlægt úr hundi, þá innihélt þvag dýrsins 5% af sykri þegar næsta dag. 1 stuttu máli leiddi brottnám brissins til sykursýki. Minfcowski hólt tiJ - raunum sínum áfram og þær stað festu, að starfsemi brissins var á einhvern hátt tengd framkomu sykursýki, en hann reyndi ekki frekar að finna sambandið þar á milli. Brisið framleiðir tvenns kon- ar vökva. Það gefur frá sér melt ingarvökva, sem rennur í gegn- um göng inn í þarmana og hjiáip ar til við að brjóta niður fæð- una, sem hefur tæmzt úr magan- um. En brisið er einnig lokaður kirtill, sem merkir, að það gefur einni'g frá sér efni beint inn i blóðbrautina, sem kallað er hor- món. Síðarnefnda efnið er fram- leitt í sérstökum frumurn í bris- imu, sem kallaðar eru Lamger- han.seyijar eftir þýzfca vefjafræð ingnum E.R. Langenhans, sem uppgötvaði þær árið 1869. Bandaríski sjúkdómafræðingur- inn Eugene Lindsay Opie við Johns Hopkins háskólann sýndi fyrstur fram á, að Langerhans- eyjarnar hrörna hjá sjúklimguim, sem hafa sykursýki. Þetta upp- götvaði hsmn með því að rann- saka brissneiðar látinna syk ursýkissjúklinga undir smá- sjá. Árið 1916 ályktaði brezki lífeðlisfræðingurinn Sir Edward Sharpey-Schafer, að sykursýki stafaði af sfcorti á hormóni, sem Langerhanseyjamar framleiddu. Sir Edward kallaði þetta hugar hormón insúlín af latneskia orð- inu insula, sem merkir eyja. Þeg ar hér var komið sögu hlaut aðeins að verða tíimaspursmál, hvenær vísindamönnum tæk- Banting (til hægri) og Best árið 1921. Með þeim á myndinni er hundur, sem brisið hefur verið tekið lir, en er haldið við góða heilsu með insúlíngjöf. Myndin er úr bók S. Harris: F.G. Banting, sem gefin var út af foi lagi Medéns árið 1947. H afnarfjörður SjálfstæðiskvennaféJagið Vorboði heldur spilakvöld í Sjálfstæðishúsinu mánudag 15. nóvember kl. 8;30. Stjómin. VERKTAKAR SVEITARFÉLÖG WEDA RAFKNÚNAR Rrunndælur HAGKVÆMAR AFKASTAMIKLAR MARGRA ARA REYNSLA — VIÐ ÓLÍKAR AÐSTÆÐUR — HEFUR SANNAÐ ÁGÆTI WEDA-BRUNNDÆLURNAR. humai rStfpzeaöóon h.f Suðurlandsbraot 16 - Peykjavik - Simnefm: »Vclyer« - Sími 35200 Dr. Vilhjálmur G. Skúlason. ist að sanna, að slíkt hormón væri til í raun og veru og að vinna það úr Langerhanseyjum brissins. En það var engain veg- inn hlaupið að þvi að einangra insúlínið úr brisimi m.a. vegna þesis, að meltinigarvökvi brissins eyðilagði hið virka irmihalds- efni Langerhanseyjanna eða með öðrum orðum eyðilagði insúhn- ið. Árið 1920 las Kanadamaður- iim Frederick Grant Banting vis indagrein um „Sambandið á milli Langerhanseyjanna og sykur- sýki“ eftir Moses Barron í Minneapolis. Dr. Barron sagði nákvæmlega frá því, hvernig brisgangarnir höfðu verið bundnir saman í fyrrl tilraunum með kaninur. Afleiðing þess hafði orðið sú, að brisið hafði hrörnað en Lamgerhanseyjarnar höfðu ekki breytzt við aðgerð- ina og þar af leiðandi hafði kan ínan ekfci fengið sykur í þvagið. Banting hugsaði seim svo, að hér væri komin aðferð, sem mundi gera honum kleift að ein- angra hið virka efni úr Langer- hanseyjunum án þess að það skemmdist af meltingargerhvöt- um hins hluta brissins vegna þess, að ef hann hefði hrörnað, þegar göngunum var lofcað, þá mundi meltingarvökvinn ekki vera til staðar til þess að hafa áhrif á hormónið. Þetta var hug myndin, sem gagnitók Bantiing. Frederick Banting fæddist á bóndabæ í Qntarió í Kanada 14. nóvember 1891. Æska hans á bóndabænum, sem að mestu fór i hina sífeUdu baráttu við að afla Mfsviðurværis úr jarðveg- inum, þroskaði með honum ósveigjanlega og þrotlausa þol- inmæði sem og ást á kanadisku útiMfi. Á síðari árum hans kom þessi ást í Ijós í frábærum mál- verkum aif kanadísku landslagi og í gönguférðum hans í hæðum og f jöllum Kanada. í skóla þótti Banting í meðal- lagi góður námsmaður, en hin þrotlausa vinnugleði hans vakti athygli Dr. Glarence Starr, sem NÝTT NÝTT Molly hárrúllur Auðveldar í notkun. Sveigjanlegar, svo sofa má með þær í hárinu. + Engar spennur eða aðrar festingar. h Fyrirferðalitlar, 20 stk. í plastpoka ásamt rúllusnúð. Tilvaldar í ferðalög. Fást í snyrtivörudeildum lyfjaverzlana og snyrtivöruverzlunum. Heildsölubirgðir: 6. Hannesson & Co. sími 35389. var yfirskurðlæknir við bama- sjúkrahúsið í Toronto. Þar stundaði Banting verklega nám- ið og varð sérfræðingur í beina- aðgerðum. 1 fyrri heimsstyrjöldinni gerð ist Banting sjálfboðailiði í hjúkrunarsveitum kanadíska landhersins. 1 styrjöldinni særð ist hann svo alvarlega á hægri handlegg, að herlæknamir ætl- uöu að taka hann af, en Bant- ing léði ekki máls á því og kvaðst heldur vilja deyja en að 'teta taka af sér höndina, sem rnuindi biímia enda á starf hans sem skurðlækmr. Til alilrair ham- ingju greru sár hans og hann sneri aftur til starfs síns sem skurðlæknir við sjúkrahúsið í Ontaríó eftir að hann hafði hlot- ið heiðursmerki fyrir hugrekki í styrjöldinni. Eftir reynslu hans af eyðingu styrjaidarinnar hel-g- aði hann sig með mikilli ánægju hinu uppbyggjandi starfi við að hjálpa til við að endurheimta heilsu hinna sáru og sjúku. Árið 1920 ákvað Banting að hefja Iæknisstörf á eigin vegum, en honum gekfc illa að fá sjúkl- inga íil þess að sækja stofu sína. Tekjur hans fyrsta mánuðinn námu aðeins fjórum dölum. Til þess að drýgja tefcjur sínar, gerðlst hann stundafcennari við læknadeild háskólans í Vestur- Toronto. Dag nokkurn, þegar Banting undirbjó fyrirlestur um brisið, las hann áðumefnda grein eftir Dr. Barron um sam- bandið á milli Langerhanseyj- anna og syfcursýki og þar með hófst leit hans að !yfi gegn þess um sjúkdómi. Vandamálið gagn- tók hann svo mjög, að hann lá andvaka heilu nætumar. Ein siik nótt var aðfararnótt hins 30. októfeer 1920, er Banting sá fyr- ir sér á hvem hátt hann gæti ef til vill leyst það vandamál, sem engum hafði tefcizt til þess tima. Hann þaut fram úr rúminu og skrifaði eftirfarandi í minnisbók sína: „Binda fyrir brisgangana í hundi. Bfiða í sex eða átta vifcur. Fjarlægja og einangra". Síðar minntist Banting and- vökunáittanna, er hann sagði: „Við vitum ekki hvaðan hug- myndimar koma, en mikilvægi þeirra við rannsóknir er ekfci bægt að ofmeta. Eðli máls- ins samkvæmt verða þær ekki til við velmegun, auð og ánægju, en fremur i myrkri örvænting- arinnar, ekki í dagsbirtunni, efckl við bjarma sviðsljósanná. Banting og upp- götvun insúlíns

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.