Morgunblaðið - 21.12.1971, Page 3

Morgunblaðið - 21.12.1971, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LRTÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1971 3 Fj árlagaafgreiðslan; Yfir fimm milljarða hækkun á f j árlögum Greiðsluafgangur aðeins 100 milljónir króna STEFNT var að því að ljxika 3. umræðu um fyrstu fjárlög vinstri stjórnarinnar á Al- jingi í gærkvöldi. Var fyrir- sjáanlegt, að hækkun f járlaga frá yfirstandandi ári mundi nema yfir 5 milljörðum króna. Miðað við tillögur f jár- veitinganefndar og þær til- lögur, sem talið var fullvíst að samþykktar yrðu, má gera ráð fyrir að heildartekjur ríkisins á árinu 1972 verði áætlaðar tæplega 16,9 millj- arðar króna, en á fjárlögum þeim, sem nú eru í gildi, voru niðurstöðutölur teknamegin um 11,5 milljarðar króna. Þá var talið, að heildargjöld rík- issjóðs á næsta ári mundu nema 16,5 milljörðum króna, en þau voru áætluð á f járlög- um yfirstandandi árs um 11 milljarðar króna. Þrátt fyrir þessa miklu hækkun fjárlaga er greiðsluafgangur aðeins áætlaður um 98,8 milljónir króna. í umræðum á Alþingi í gær sagði Jón Árnason, að þetta væri meiri hækkun á t'járlögum en dæmi væru um áður. Mesta hækkun á tekjum rikis- ins kemur fram í tekjuskatti ein- staklinga. Þegar vinstri stjórnin lagði fjárlagafnumvarpið fram í haust var áætlað að tekjur ríkis- sjóðs af tekjuskatti einstaklmga mundu nema tæplega 1.5 milljörð um kr. en í kjölfar tekjuskatts- frumvarps ríkisstjórnarinnar hef- ur þessi áætlunartala verið hækk uð í tæplega 2.7 milljarða króna eða hækkun um 1200 miilljómr króna. Þá er áætlað, að tekju- skattur félaga gefi 450 milljónir króna, sem er tæplegia 240 millj- ónum hærri upphæð en áætlað var að þessi tekjustofn mundi gefa þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram í haust. Áætlað er, að söluskattur gefi ríkissjóði í tekjur 900 millj. meira en talið var, þegar fjár- lagafrumvarpið var lagt fram í haust. Þá voru tekjur af sölu- skatti áætlaðar um 3.8 milljarðar en nú eru þær áætlaðar tæplega 4.8 milljarðar. í umræðunum á Alþingi í gær skýrði Matthías Bjarnason frá því, að ríkisstjórn- -in hygðist breyta innheimtufyr- iirkomulagi söluskatts og setja á mánaðarlega firamtalsskyldu eftir 1. júlí 1972. Með þessum hætti er fyrirhugað að söluskattur greiðist fyrr en ella, en það hef- ur þau áhrif að á árinu 1972 innheimtast söluskattstekj ur fyrir 13 mánuði. Þetta veld- ur 380 milljón króna tekju- aukningu hjá rikissjóði, sem Matthias Bjarniason benti á, að mundi koma niður á tekjuöflun ríkissjóðs á árinu 1973. Ennfrem- ur upplýsti hanm, að fyrirhugað væri að setja söluskatt á gjöld til pósts og síma og væri talið að það mundi gefa um 90 milljónir í auknar söluskattstekjur á næsta áiri. Áætlað er, að aðflutningsgjöld gefi ríkisisjóði tæplega 400 milljón krónum meiri tekjur en talið vax, þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram í haust og að rekstrarhagnaður Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins verði 230 milljónum króeia hærri. í umræðunum á ATþingi í gær spurði Matthías Bjarnason, fjár- málaráðherra um það hvernig hægt væri að búast við svo mik- illi tekjuaukningu hjá Á.T.V.R. Rikisstjórnin hefði gefið þær skýringar á verðhækkun áfengis og tóbaks í haust að hún hefði verið nauðsynleg vegna hækkun- ar á innkaupsverði og tdi að draga úr drykkjuskap. Árangurinn væri sá að tekjur af sölu þessara vörutegumda ættu að aukast um 230 miíliljómir króna. Óskaði þingmaðurinm upplýsinga um Framhald á bls. 2. PIOIMŒGH HLJÓMUR MORGUNDAGSINS í DAG ER — PIONEER. ★ STÓR SENDING AF ÞESSUM EFTIRSPURÐU TÆKJUM KOM í DAG. ★ KYNNIÐ YKKUR VERÐ Á ★ PLÖTU SPILURUM — ★ HEYRNARTÆKJUM OG MÖRGU FLEIRU. ★ BEZTU GÆÐI. ÁBYRGÐ. GREIÐSLUSKILMÁLAR. Q.T. 2100 SEGULBAND MEÐ 4-FÖLDUM STEREOTÓN. Q.L. 600 MAGNARI MEÐ 4 SKIPTI OG MAGNARA FYRIR AFTARI RÁSIRNAR. WKARNABÆR TMZK V VEtt ZLUN MJNGA FÓLKSiNS NÝJUNG FRÁ PIONEER QA 800 MAGNARI 4x31 W ★ C 5600 A SETT SAMBYGGÐUR PLÖTUSPILARI OG ÚTVARP MEÐ FM OG HM-BYLGJUM. 2 LAUSUM HÁTÖLURUM MEÐ INN- BYGGÐUM MÖGNURUM — — MULTI AMPER SYSTEM — ★ ÞETTA ÁSAMT MÖRGUM FLEIRI NÝJUNGUM KYNNUM VIÐ OG BJÓÐUM VIÐSKIPTAVINUM AÐ SKOÐA í NÝJU SÝNINGARRÚMI Á II. HÆÐ í VERZLUNUM OKKAR Á LAUGAVEGI 66. OPIÐ TIL KL. 10 8TAKSTEINAR Steinunn þagöi Athygli vakti á fundi borgar- stjórnar fimmtudaginn 16. þ.m. þegar til ximræðu var að fresta afgreiðslu fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar, þar tU frum varpið um tekjustofna sveitarfé- laga hefur verið afgreitt frá Al- þingi, að eini flokkurinn, sem ekki gerði grein fyrir afstöðu sinni til málsins var Samtök frjálslyndra og vinstri manna, en fulitrúi þess flokks í borgarstjórn er Steinimn Finn- bogadóttir. Var frestunin rök- studd með þvi, að engin leið væri að gera sér grein fyrir, hver áhrif boðuð löggjöf um tekjustofnana og breytingu út- gjaldaliða sveitarfélaga kæmi tU með að hafa á rekstrarafkomu borgarsjóðs. Við samningu frmn- varpsins hefði ekki verið reynt að gera sér grein fyrir áhrifum þess, hvað þetta snerti, og ekld hefði verið liaft samráð við Reykjavíkurborg né Samband ísl. sveitarfélaga, nema mjög óverulega, tU að fá fram sjón- armið þessara aðila í málinu. Var sýnt fram á það á fundin- um með útreikningum, að frum- varpið, eins og það nú lægi fyr- ir, skerti mjög rekstrarafkomu borgarsjóðs, svo að tU stórvand- ræða horfði. Steinunn Finnbogadóttir, borgarfuUtrúi SFV, átti sæti í nefnd þeirri, sem á vegum fé- lagsmálaráðuneytisins undirbjó frumvarp þetta. Lék mönnum því forviltni á að heyra, hvað Steinxmn hefði að segja nefnd- arstörfum sínum til varnar. En hún þagði þunnu hljóði, á með- an fulltrúar allra liinna minni- hlutaflokkanna gerðu grein fyr ir samþykki flokka sinna á frest uninni. Er tU atkvæðagreiðslu kom viðurkenndi borgarfulltrú- inn þó óbeint á sig skömmina með því að greiða frestuninni at kvæði, en hún var samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum. Sendisveinn Lúðvíks Frá því snemma í haust hefur Jónas Ámason, alþingismað- ur, vart stigið fæti á íslenzka grund. Hann hefur verið á stöð ugum þeysingi heimsálfa á miUi, fyrst og fremst í erindum I.úð- víks Jósepssonar. Heimsreisa þingmannsins hófst með því, að hann gerðist um skeið fuUtrúi flokks síns á Allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna og dvaldi þar í góðu yfirlæti um nokkurra vikna skeið. En tæp- lega var hann kominn heim úr þeirri för, þegar I.úðvik tUnefndi hann sérstakan fulltrúa sinn i viðræðum embættismanna við starfsbræður þeirra í London og Bonn xim landhelgismálið. Þegar þeim erindum var loldð töldu menn, að nii gæti þingmað urinn snúið sér að skyldustörf- um fyrir k.jósendur á Alþingi ls lendinga. En ekki var því að heilsa. Hann var umsvifa- laust sendur tU Moskvu og enn sem sérstakur sendimaður Liið- víks Jósepssonar. Ekki þarf að draga i efa, að Jónas Árnason imir sér vel sem sendisveinn Lúðvíks í helztu stórborgum lieims — en óneitanlega læðist sá grunur að mönnum, að flokks menn Jónasar telji bezt fara á því að lialda honum utan land- steinanna sem lengst og kemurj það engum á óvart.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.