Morgunblaðið - 28.12.1971, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÆJIÐ, PRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1971
f-
Friðsæl jól en veður
víða rysjótt
GOTT veður var víðast hvar á
laudinu yfir hátíðisdagana nema
á aðfangadag, en þá gerði um
tSma stórhríð á sunnanverðu land
inu og snjóað! nyrðra. Morgun-
blaðið hafði í gær samband við
nokkra staði úti á landi og spurð
ist frétta frá hátiðisdögunum.
AKUREYRI
Mikil snjókoma var hér á að-
fangadag og fram á jóladag, svo
að jafnfallinn snjór er nú orðinn
djúpur og ófærð á vegum í ná-
grennd bæjarins. Sumar götur í
bænum urðu líka þungfærar.
Annars befur veður verið blítt og
bjart yfir hátíðisdagana.
Jólahald hefur verið friðsam-
legt sem vera ber, og ekki er vit
að um nein slys eða meiriháttar
óhöpp.
Kirkjusókn hefur verið mikii,
bæði í Akureyrar- og Lögmanna
hlíðansókn, og einnig hafa mess-
ur verið sungnar á elliheimilun
um og í sjúkrahúsinu.
— Sverrir.
HÚSAVÍK
Um jólin hefur verið hér gott
veður, hægviðri en litilsháttar
snjókoma á aðfangadagskvöld —
annars bjart en dáiítið kalt. Sam
göngur um héraðið eru nokkuð
góðar, en einhver tálmun mun
þó vera á leiðinni til Akureyrair
inn með Eyj afirði.
Karlakórinn Þrymur, Lúðira-
sveit Húsavíkur og kirkjukórinn
efndu til jólatónleika i Húsavík
urkirkju í gær. Stjórnandinn var
tékkneski tónlistarmaðurinn Lad
islav Vojta, sem hingað kom sL
hauat og mun dveljast hér næstu
tvö árin. Orgelleikari var Stein-
grimur Sigfússon. Efnisskráin
vair mjög fjölbreytt og hrifning
áheyrenda mikil — mest þó í lok
efniskrárinnar, þegar kóramir og
lúðrasveitin léku og sungu jóla-
sálma í sénstakri útsetningu söng
stjórans. Má með sanni segja að
þá ómaði kirkjan öll.
HÖFN HORNAFIRÐI
Blinidbylur var hér á Höfn í
Hom'afirðd upp úr hádegi á að-
fanigadag. Fljótlega kom það
mikill snjór á götur, að illfært
vatrð um þorpið. Ráðgerður hafði
verið aftansöngur í Hafnarkirkju
M. 6.00, en presturimi á Kálfa-
fellsstað í Suðursveit treysti sér
ekfci til að komasst á staðiinn
vegna ófærðar, og var því aftan-
söngnum aflýst. Veðrið stóð þó
mjög stutt, því að þegar hátiðin
gekk í garð var komið hið allra
bezta veður og var svo um jólin.
Jólaguðaþjónusta var svo haldim
kl. 2 á jóladag.
Miikil hálka er niú á götum í
Höfn og víða í A.-Skaftafells-
sýslu. — Elías.
EGILSSTAÐIR
Ágætis veður var hér um jólin
HJÁ lögreghmni í Reykjavík
urðu jólin „frekar góð“ að þessu
sinni, að sögn varðstjóra, sem
Mbl. ræddi við í gær.
í umferðinni var þó mikið að
gera á aðfangadag og annan i
jólum. Hretið, sem gekk yfir á
aðfangadag, setti sin mörfc á um
ferðina og urðu áreksrar 19 tals-
ins í Reykjavík. Engin slys urðu
og kauptúnið skrýtt með l.iósum
og jólatrjám. Færð á vegum
hefur verið góð og samgöngur í
lofti með eðlilegu móti. — Hákon.
KEFLAVÍK
Gott veður hefur verið hér um
jólin, nema hvað aftaka veður
gerði hér um hádegisbilið á að-
faingadag. Ofanhríð var og skaf-
reruninguir, þannig að varla sást
milli húsa þegax verst lét Þetta
veður varði hins vegar aðeins
stutta stund, og þegar hátíðin
gekk í garð var komið hið feg-
ursta veður stillt og bjart.
Jólaguðsþjónustur voru haldin-
ar alla hátíðisdagana og var
kirkjusókn mjög góð. Mikið er
um ýmsar jólaskreytimgar víða
vegar um bæinm, og rekur mig
vart mitauni til að bærinn hafi
verið einis fagurlega skreyttur
áður. — Kristján.
á mönnum. Á jöladag urðu 3
árekstrar og á annan í jólum 13,
en eins og á aðfangadag, slapp
fðlk án teljandi meiðsla.
Tveir menn voru teknir úr um
ferð sakir ölvunar á aðfangadags
kvöld og þrír gistu fangageyms'lu
lögreglunnar á jóladag. í fyrra-
kvöld og um nóttina gistu hátt i
30 manns fangageymsluna i
lengri eða sfcemmri tíma.
Friðþjófur
á Patreks-
firði látinn
FRIÐÞJÓFUR Ó. Jóhannesson
forstjóri á Vatnseyri andaðist i
Sjúfcrahúsi Patreksf jarðar á jóla
dag, 25. desember, eftir langa og
erfiða legu.
Ffciðþjöfur fæddist á Vatnseyri
28. desember 1905 og bjó þar tái
dauðadags. Hann var mikilvirkur
athafnamaðuæ i útgerðar- og at-
vinnumálum. Var hann meðal
annars firumfcivöðuli að hafnar-
gerð fyrir Patreksfjarðairhrepp
og ýmsum öðrum framfaramál-
um. Hann átti sæti í hreppsnefnd
í fjölda ára, og hann vann braut.
ryðjandastarf i karfavinnsiu á ls-'
landi. Friðþjóifur var fulltrúi ís-
lenzkra togaraeigenda í Vestur-
Þýzkalandi árin 1948—49, og ræð
ismaður Vestur-Þýzkalands á Pat
reksfirði frá árinu 1960.
Þessa mikla athafnamanns
verður nánar getið hér í blaðinu.
Höfðing-
legar
gjafir
til Reyni-
staðarkirkju
SUMARIÐ 1970 fór fram gagn-
gerð endurbót á Reynistaðar-
kirkju í Skagafirði. — 1 tilefni af
þvi bárust kirkjunni stórgjafir
(peningar og vinna), bæði frá nú
verandi og fyrrverandi sókmr-
bömum kirkjunnar.
Nú viil sóknamefndin hér með
þafcka af alhug gjafir þessar og
þann hlýhug og skilning, sem gef
endur sýndu kirkju sinni með
þessiu móti.
Sérstaklega þöfcfcum við Kven-
fétlagi Staðarhrepps fyrir höfðing
legar gjafir, sam var bæði teppi
á gólf ög lýsing í kirkjuna.
Sóknamefndin.
Vinnings-
númerið
VINNIN GSNÚMERIÐ í happ-
drætti Krabbameinsfél. er 29446.
Vinninginn hlaut fjölsfcylda
Helga Árnasonar, véistjóra, að
Hlaðbæ 15, Reykjavík.
Svæðismót
votta Jehóva
DAGANA 31. desember 1971 til
2. janúar 1972 halda vottar Jehóva
á íslandi svæðismót Þá mumi
vottar frá öUum söfnuðum á land
inu koma saman til þess að hlusta
á fræðandi dagskrá. En mótið
verður haidið i Sjómannaskólan-
m
Flugeldasýning
og sala
— hjá Hjálparsveit skáta
Hundavinir berjast áfram:
Málshöfðun
Lögreglan:
,Frekargóð6jól
— en mikið að gera í umferðinni
— Fréttaritari.
ISAFJÖRÐUR
Veðrið hefur ekki verið sem
bezt hér yfir hátíðamar, og enn
í dág er hér mikU snjókoma. Sam
göngur eru erfiðar, og á aðfanga-
dag lokaðist vegurinn til Bolung
arvikur, er snjóflóð féU á veginn.
Féli niður messa á Hnífsdal, þar
sem presturinn tepptíst um tíma
í Bolungarvík og rétt náði hamn
til messuhalds á ísafirði. Hátíð-
amar hafa að öðru leyti farið vel
fram. Mikið er um skreytingar í
bænum, bæði á íbúðarhúsum og
verzlunum.
— Ólafur.
HJÁLPARSVEIT skáta heldur
hina árlegu flugeldasýningu sína
í kvöld (þriðjudaginn 28. desem-
ber) kl. 21. Að þessu sinni verð-
ur sýningin við Laugardalshöll-
ina. Þeta er í fjörða sinn, sem
Hjálparsveitin heldur fflugelda-
sýntogu.
FJugeldasýningin er haidin m.
a. tU þess að minna á að helzta
tefcjuöflunarleið Hjálparsveitar
skóta er sala á fflugeldum. Nú rek
ur Hjálparsveitto Augeldaimark-
að á þremur stöðum í bænum:
Skátabúðinni við Snorrabraut,
Volvosalnum við Suðurlands-
braut og Miðbæjarmarkaðinum
við Aðalstræti. Auk þess er selt
Landhelgismálið
í Iceland Review
CT er komið áramótahefti tíma-
ritsins Atlantica & Iceland Revi-
ew og er ritið að venju mjög vand
að að allri gerð og frágangi. 1
fréttati 1 kynningu frá útgáfufyr-
irtækinu segir svo:
„Viðhorf íslendinga og rök i
femdhelgismálimi eru tekin til
meðferðar í nýútkomnu áramóta
hiefti Atlantica & ICELANDIC
REVIEW. Er þar gerð grein fyrir
forsögu og aðdraganda síðustu á-
kvaiðana um útfærslu og fjailað
um ástand fiskstofnanna og þá
hættu, sem síaukin sókn veiði-
skipa af mörgu þjóðemi skapar.
Gneininni fylgja línurit og af-
stöðumyndir tíl frekari glöggvun
ar, svo og myndir í svart/hvítu
og litum. Ennfremur er í fylgi-
blaði ritsina birtur kafli úr ræðu
utanríkisráðherTa, Einars Ágústs
sonar, sem flutt var á Allsherjar
þingi Sametouðu þjóðanna í
ibaust.
1 Af öðru efni má nefna grein
eftir Forseta fslands, dr. Krist-
ján Eldjám, um uppgröft að
Bergþórshvoli, en jafnframt er
birtur kafli úr Njálu, sem fjallar
um aðförina að Bergsþórshvoli í
þýðingu Magnúaar Magnússonar
— þeirri sömu þýðingu og kom
út hjá Penguin i London.
Mikil grein er í heftinu um
Vestmannaeyjar eftir Pétur Kid
son Karlsson, og er hún skreytt
frábærum myndum þeirra Gunn
ars Hannessonar og Sigurgeirs
Jónaissonar — af lífi og starfi
fólksins, svo og sérkennilegri
náttúru eyjanna.
Lokfl ber að geta greinar og
mynda af snjó og ísi eftir Hjálm
ar R. Bárðarson, en nýlega kom
út eftir hann bók um hliðstætt
efni.
Þessu hefti Atlantica & ICE-
LAND REVIEW fylgir frétta-
blað að vanda og er það helmingi
stærra en venjulega, að töhi-
verðu helgað ferðamálum á ís-
landi 1972.
gegn
bor garstj óra?
Alþjóðadýraverndunarsambandið
íhugar málshöfðun
á alþjóðagrundvelli
úr bifreiðuim sveitarinnar, sem
staðsettar eru við Melabúðina,
Austurver og Árbæjarfcjör.
Á síðasta starfsári var Hjálpar
sveit skáta kölluð út til 'leitar að
týndu fólki tólf stomim. Rúm-
lega 1200 manns nutu aðstoðar
sveitarinnar vegna ýmiss konar
meiðsla og veikinda á áririu. Spor
hundar komu að góðum notuan
við leitir, en kostnaður við þjálí-
un þeirra og eldi er mjög mikill.
Allt starf í sveitinni er sjáltfboða-
liðsstarf, og störfuðu félagar
sveitarinnár á árinu í u.þ.b. 26000
vinnustundir, eða hver félagi 578
klu'kkustundir að meða'ltali.
FREMUR rólegt var hjá slökkvi-
liði Reyfcjavikur um hátíðisdag-
ana, en talsvert er alltaf um
fól'ksfflutntoga hjá slöfcfcviliðinu,
en aðeins eitt alvarlegt brunaút-
fcall varð. Það var á jóladagskvöld
ld. 22.30, þegar tilkynnt var um
reyk i húsinu að Ránargötu 31.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang var húsið læst og enginn
heima, en slökkvfliðsmenn brutu
í FYRRADAG barst beiðni tii
Slysavarnafélags íslands um að
flytja 9 ára gamlan dreng frá Hell
issandi í sjúkrahús til Reykjavik
ur. Var drengurinn með mjög
slæmt flogaveikikast.
Ófært var á flugvellinum
vegna illviðris og hálku, en SVFÍ
hafði þá samband við Vamarlið
HUNDAVINAFÉLAGIÐ skýrir
frá þvi i fréttatilkynungu til
Mbl., að formaður þess, Jakob
sér leið inn i húsið, þar sem eld-
ur var í rishæð. Rúman klufcku-
tíma tók að komast fyrir eld-
inn. Skemmdir urðu talsverðar á
rishæð og nokkrar af völdum
vatras og reyks á neðri hæð.
Stoeimmdimar urðu í íbúð Odds
Bjömssonar leikritaskálds. Ann-
ars var starfsemi slökfcviliðsins
með rólegra móti um hátiðisdag-
ið á Keflavíkurflugvelli og sendi
það um hæl etoa af björgunar-
þyrlum sínum til Hellissands.
Var þyrlan komin til Reykja-
yíkur með drenginn, einum og
hálfum tíma eftir að hún lagði af
stað, en drengnum varð ekki
bjargað og lézt hann um kvöldið
í sjúkrahúsinu.
Jönasson, læknir, hafl verið til-
nefndur fulltrúi Islands í ráð
Alþjóðadýraverndunarsambands-
ins. Er það Tony Carding, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðadýravernd-
unarsambandsins sem tilnefndi
Jakob í ráðið. Jafnframt hefur
Hundavinafélagið verið gert að
aðildarfélagi sambandsins.
AlþjóðasajnbandiO var stofnað
í Haag 1950 og er bundið hol-
lenzkum lögum með konunglegu
samþykki. Aðalstöðvar þess eru
í Sviss. í því eru 300 aSildarfé-
lög i 60 þjóðlöndum og skipta
félagar þess imUjónuim — aS því
er segir í fréttatilkynningunni.
Tony Carding, forstjóri, skýr-
ir frá því í bréfi til Jakobs
Jónassonar, að hann hafi beðið
fastafuUtrúa sambandsins hjá
Evrópuráðinu um að kynna sér
í Mannréttindadeildinni, hvort
möguleikar séu á málshöfðun
gegn borgarstjóra og borgar-
stjóm Reykjavíkur á grundveUi
alþjóðalaga. Einnig er þess get-
ið í fréttatil'kynningu Hundavina-
félagsins, að sá sami Carding,
sem er brezkur dýralæknir, hafí
sent forsætisráöherra Islands
bréf í sambandl við hundabahn-
ið í Reykjavík, þar sem Alþingi
setti lögin um heimild sveitárfé-
laga til bannsins. Forsætisráð-
herra mun enn ekld hafa svarað
bréfinu, — segir í fréttatilkynn-
ingu Hundavinafélagsins.
Húsbruni á Ránar-
götu á jólakvöld
ana.
Þyrla varnarliðsins
í erfiðu sjúkraflugi