Morgunblaðið - 28.12.1971, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.12.1971, Blaðsíða 3
MQRGIMBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1971 3 ! Þurfti ekki miklar fortölur til að fá Barenboim til íslands — ÞAÐ þurfti ekki mikl- ar fortölur til að fá Daniel Barenboim til að koma hingað, sagði Vladimir Ash kenazy er fréttamenn Mbl. litu inn á heimili þeirra Þórunnar við Brekku- gerði síðdegis í gær. Hon- unr líkaði vel hér síðast þegar hann kom á tónlist- arhátíðina. Það var bara að finna tíma. Og það er erfitt að komasl til íslands. — Já, ég varð að fljúga frá London til Brússel og þaðan til Kaupmannahafnai og síðan til Islands, sagði Barenboim til skýringar. Og svo týndist taskan mín. Að öðru leyti er allt í iagi. Að vísu kom í ljós að í töskunni eru nótur, sem hann á að nota í Bandarikjunum. En strax eftir hljómleikana með Sinfóníuhljómsveit ís- iands á fimmtudag, flýgur hann til Bandarikjanna, þar sem hann byrjar 214 mánaðar hljómleikaferð. En hingað kom hann eftir tveggja vikna hljómleikaferð um Evrópu. — Þetta verður ekki svo slæmt í Bandaríkjunum, seg- ir Baremboim, þvi ég verð tvær vikur í Chieago, tvær í Cleveland og þrjár í Los Angeles. Barenboim og Ashkenazy leika ekkert saman í Banda- rikjunum að þessu sinni, þótt Ashkenazy-hjónin leggi upp IJm víða veröld vekja þeir athygli tónlistarsnillingarnir hér á myndinni, þeir Vladimir Ash- kenazy og Daniel Barenboim. En þegar komið er heim í stofuna i Brekkugerði, er litli hnokk- inn stjarnan í hópnum, þar sem hann situr í kjöltu móður sinnar, Þórunnar Ashkenazy. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) héðan 11. janúar í 6 vikna hljómleikaferð um Bandarík- in. Þau fara svo eftir tveggja daga stanz á Islandi í Evrópu- ferð. En í apríl ieika þeir Barenboim og Asbkenazy saman í London og þá inn á hijómplötu. Barenboim kom i fyrra- kvöld og fyrri hluta dags í gær hafði hann verið að æfa með Sinfóníuhljómsveit ls- lands fyrir tónleikana, sem hann stjórnar 29. og 30. des. Á fyrri hljómleikunum leik- ur Ashkenazy einleik. Það var ákaflega notalegt þarna í stofunni. Músik barst frá afburða hljómtækjum og litli hnokkinn, sonur Vladi- mirs og Þórunnar, diliaði sér eftir henni, meðan snilling- amir hlustuðu og vöktu at- hygli hvor annars á ákveðn- um köflum. Þeir njóta þess sýnilega að geta hitzt. Og Þórimn og Vladimir kváðust hafa notið þess að vera heima og halda jól með bömunum. Reyni að halda áfram 0 a mundsdóttir WrRfht, sem t vlsinda störtnm -r T J.k/XJL I.VI.lA'k/ A JL 111 minndngar um ættingja her hún fæddist hinn 12. aipril 1892. Hún átti litrikan ævi- feril, enda var persónuleiki hennar sé<rstæðuirii Á sdðustu árum ævinnar lét Ása breyta búgarði sinum á Trinidad í friðland náttúruskoðara og hún vairð þekkt meðal fugla- fræðinga. Hluta andvirðis eignarinnax gaf hún til sjóðs- Franih. á bls. 31 sagði Ingimar Óskarsson, grasafræðingur, sem hlaut í gær heiðursverðlaun úr sjóði Ásu Wright — MÉR er það efst í huga, eftir að hafa tekið við þessum verðlaunuin, að reyna að halda áfram visindastörfum á þessu sviði, sagði Ingimar Óskars- son grasafræðingur í viðtali við Morgunblaðið, en í gær hlaut Ingimar heiðursverðlaun þau, 100 þúsund krónnr, sem árlega eru veitt úr Verðlauna- sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright. Formaður sjóðsins dr. Sturla Friðriksson, afhenti Ingimar verðlaimin við athöfn sem fram fór í Norræna hús- inu. í Sjóðsstjóm eiga sæti þrír meirn, herra Kristján Eldjárn, forseti Islands, dr. Jóhannes Nordal og dr. Sturla, sem er formaður sjóðstjórnar. Aðspuröur um hvort hanm istarfaði nú að ákveðnum vedk- efnum, sagði Ingim.ar Óskars- son, að svo væri ekki. — En verkefnán eru alltaf nægileg, ef maður hefur tíma til þess að sinna þeim, sagði haim. Aðalranins'ókniir mánar hafa verið á skeldýrum við ísland, og auk þess hef ég einnig feng- izt við ramnsókn.ir á unda- fíflum, sem eru blóm af körfu- blómaætt, eftir því sem tími hefur leyft í raærfellt 20 ár. Eiranág á því sviði er mikið af verkefnium fraimundan, þar sem þetta er mjög erfið ætt- kvisl til rannsókma. Dr. Sturla gat þess í ræðu, sem hann flutti við athöfnána í gær að Vísindafélagi íslend- iinga hefði verið gefin pen- ingagjöf hinn 1. desember 1968 til stofnunar sérstaks verð- launasjóðte, er skyldi vera sjálfseigraarstofmun í vörzlu félagsinis. Skyldu vextir sjóðs- ins stainda undir verðlaunaveit ingum og viðurkeniniragagjöf- um til Islendinga, sem urandð hefðu veigamdlkið visindalegt afrek á íslandi eða fyrir Ís- land. Stofnfé gaf Ása Guð- Dr. Sturla Friðriksson afhendir Ingimar Óskarssyni verðlaunin, Frá athöfninni í Norræna húsinu. Fremst sitja Magnús Torfi Ólafsson, menntamálaráðherra og frú, herra Kristján Eldjárn, forseti íslands, frú Halldóra Eldjárn og Ingimar Óskarsson. STAKSTEIHAR Er hægt að sanna allt með tölum? Eftir að skattafrumvörp rikis- st.jómarinnar vom lögð fram, hefur því mjog verið beitt að setja fram einstök dæmi til þess að menn geti glöggvað sig á, hver heildaráhrif skattbreyting- anna verði fyrir hinn almenna borgara. Svo undarlega betnr þó brugðið við, að engan veginn ber sarnan um útkomuna, eflir því hver reiknar. Þannig hafa t. d. málssvarar ríkisstjórnarinnar og sjálfur f jármálaráðherra mjög reynt að gefa það í skyn, að því fari fjarri, að um nokkra skatta- hækkun sé að ræða á niiðlungs- laun. Kjarni þessa máls er þó sá, að ríkisstjórnin hefur látið sam- þykkja fjárlög frá Alþingi þar sem gert er ráð fyrir meira en helmings hækkun útgjaldanna. Það þarf enga tölvu til þess að fá það út úr dæminu, að slíkt stökk hlýtur að leiða af sér aiikin gjöld bæði fyrir almenning í landinti og atvinnuvegina. Allar tilrannir til að sanna hið gagn- stæða geta aldrei orðið annað en kák. Það má vera, að einhverjir verði til þess að taka mark á þeim næsta kastið eða þangað til skattaskráin kemur út. En lengur verður ekki dulizt. í Þjóðviljanum fyrir skiiinmn var því slegið upp með stærsta fyrirsagnarletri, að skrif Morg- unblaðsins um skattafrumvarpið væri „hrikaleg talnafölsun" og vrar vitnað til útreikninga endur- skoðandans Gunnar R. Magnús- sonar í því sambandi, án þess þó að þeir væm sýndir. Engin tök eru á því hér, að elta ólar við allar rangfærslur endiirskoðand- ans, en látið verður nægja að rekja eitt dæmið og gera svo grein fyrir úíreikningunum, að allir geti áttað sig á því, hvort rétt er að farið. Sundurliðun dæmisins í einu af dæmum endurskoð- andans er því haldið fram, að hjón með tvö böm og 250 þús. kr. brúttótekjur muni greiða 14 þús. kr. í öll gjöld samkvæmt nýja skattkerfinu. Endurskoð- andinn ætti þó að geta reiknað út jafn einfalt reikningsdæmi og það, að 6% aí’ 250 þús. kr. cru kr. 15 þús. (útsvar), sem að vlð- bættu kirkjugarðsgjaldi (1,5% af útsvari) verða kr. 15.225, en geta aldrei orðið 14 þús. kr., hvemig sem reiknað er. Þá á eftir að reikna með fasteignaskatti, sem þeir stjórnarsinnar hafa látið hjá líða að taka með í útreikningum sinum. Dæmi það, sem endurskoðand- inn vísaði til i Morgiinblaðinu og segir vera alrangt, er eitt aí' þeim dæmum, sem endurreiknað var eftir ráðherra úr hljóðvarpi á dögunum. Ráðherra var þar með dæmi nm hjón með tvö böm, sem hefðu 257 þús. brúttótekjur og 200 þús. kr. nettótekjur. Miðað við 23% tekjnhækkun milli ár- anna 1970 og 1971 hcfðu brúttó- tekjur hjónanna á skattframtali 1971 verið 209 þús. kr. og nettó- tekjur 163 þús. kr. Dæmi þetta verður hér sundurliðað til að end- urskoðandinn geti áttað sig, en að sjálfsögðu eru allir þeir skattar og gjöld, sem fyrirhugað er að breyta, með í dæminu. Miðað er við álagningu í Reykjavík 1971. Tekjuskattur er engin í báð- um dæmunum. Tekjuútsvar að viðbættu kirkjugarðsgjaldi nem- ur 4.590 kr. 1971, en 15.631 kr. 1972. Sjúkrasamlagsgjald nemur 7.290 kr. og almannatrygginga- gjald 7.660 kr. 1971, en er ekkert 1972. Fasteignaskattur er 1.758 kr. 1971, en 7.000 kr. 1972. Sam- tals kr. 21.290 1971, en kr. 22.Ö3J 1972.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.