Morgunblaðið - 28.12.1971, Page 21

Morgunblaðið - 28.12.1971, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1971 21 Kfnahagsstofnunin: 3 valkostir um ábyrgðartrygg inga bifreiða Efnahagsstofnunin hefur að beiðni heilbrigrðis- og: tryg-ging'a ráðuneytisins látið frá sér fara greinargerð uni þörf trygginga- félaganna fyrir iðgjaldahækkun ábyrgðartrygginga bifreiða og er niðurstaðan sú að þrír val- kostir eru fyrir hendi. f fyrsta lagi hækkun samkvæmt lág- markskröf u try ggingaf élaganna með fyrirvara um endurskoðun, 34,5%. f öðru lagi hækkun sam- kvæmt mati formanns nefndar, sem skipuð var til þess að gera athuganir í þessum efnum að viðbættu óvissumati verðþáttar, 39,5% og í þriðja lagi hækkun samkvæmt mati nefndarfor- manns, að viðbættu óvissumati verðþáttar og 5% vegna tjóna varasjóða og/eða áorðins taps, samtals 46,5%. Hér fer á eftir greinargerð Ef nahagsstof nunarinnar: 12. nóvember, 1971. Greinargerð um þörf trygg- ingafélaganna fyrir iðgjalda- hækkun áhyrgðatrygginga bif- reiða. 1. Inngangur. 2. Mat óvissuatriða. 3. Kostir á afgreiðslu málsins. 4. Nánari athugunarefni. 1. INNGANGliR Heilbrigðis- og tryggingamála ráðuneytið hefur með bréfi dags. 28. okt. 1971 (tilv. 40. A. 1. /JI/AG), æskt nánari um- sagnar Efnahagsstofnunarinnar í framhaldi af skýrslu formanns nefndar þeirrar, sem skipuð var til að gera athuganir í þessum efnum. Umsögn þessi fer hér á eftir. Að loknum þessum inn- gangi um málsmeðferð o.þ.h., verður leitazt við að leggja mat á helztu óvissuatriðin og síðan bent á helztu kosti, sem um er að velja við afgreiðslu máls- ins. Loks verður minnt á nán- ari athugunarefni, sem telja má nauðsynlegt að sinna til þess að komast að niðurstöðu um varan lega úrlausn þessa máls. Efnahagsstofnunin hlýtur að telja sér skylt að koimast nú að tiltölulega afdráttarlausum niður stöðum um meðmæli með ákveðnum hækkunaraðgerðum. I greinargerð stofnunarinnar frá 15. april þ.á. var vísað til atriða, sem kölluðu á nánari skýringar, áður en full vissa lægi fyrir um hækkunarþörf ina. Átti það sinn þátt í að efnislegri afgreiðslu málsins var skotið á frest og því vísað til nánari athugunar, enda þótt tryggingafélögin hefðu skömmu síðar getað skýrt með sennileg- um hætti það, sem talið var vannýting iðgjaldastofnsins. Að sjálfsögðu eru bráðabirgða- niðurstöður nefndarinnar ekki á ábyrgð Efnahagsstofnunarinnar né heldur takmarkast álit stofn unarinnar af þeim. Eigi að síður var álit nefndarinnar, svo langt sem það nær, unnið í framhaldi fyrri gréinargerðar stofnunar- innar og að sama skapi hagan- legast að byggja hér ofan á þann grunn, sem lagður er með skýrslu nefndárformanns. liækkun 2. MAT ÓVISSUATRIÐA Mat nefndarformanns á hækkunarþörfinni byggðist á verðlagi og kauplagi verðstöðv unartímans, svo sem það lá fyr- ir eða var metið í fyrri grein- argerð Efnahagsstofnunarinnar. Óvissuatriðin varða þvi áhrif þeirra breytipga verðlags- og kauplagsþátta, sem þegar eru orðin á verðstöðvunartímanum, eða munu verða á næstunni skv. þegar gerðum eða væntanlegum kjarasamningum. Ennfremur kemur til álita sú tjónaþróun, sem komið hefur í ljós á þessu ári (sbr. lið 4.3. í skýrslu for- manns), áorðihn taprekstur fé laganna vegna synjunar um hækkun (sbr. lið 4.2), svo og væntanleg hækkun tjónavara- sjóða, þegar verðstöðvun lýkur (sbr. lið 3.5.). Verða þessir þætt ir teknir til athugunar hver fyr ir sig og siðan reynt að meta í samhengi, hvert tillit skuli til þeirra taka. a. Verðþáttur t.jóna. Að þess- um þætti er vikið i lið 4.1. i greinargerð nefndarinnar. Hefur nú verið gerð nánari athugun á sennilegri hækkun þessa þáttar. Tjónin skiptast í munatjón og slysatjón. Greinist verðlag hins fyrrgreinda í efniskostnað og vinnukostnað, en hinn síðari fylgir einkum almennri þróun tekna, auk sjúkrahúskostnaðar, sem jafnframt er næmur fyrir breytingum launakostnaðar. Efniskostnaður munatjóna hefur hækkað mjög verulega af völdum erlendra verðhækkana. Samvegnar upplýsingar trygg- ingafélaga sýna 17.5% hækkun varahlutaverðs frá 1970, og verð lag nýrra bila í vísitölu fram- færslukostnaðar hefur hækkað um 14.4% frá 1970-meðaltali. Samvegun þessara hækkana gef ur 16.1% hækkun. Til varúðar er þó hin lægri látin gilda, 14.4%, um verð efnisþáttar, en í fyrirliggjandi áætlunum hafði þegar verið reiknað með 5%, svo að 9% leggjast ofan á þær áætlanir. Vinnukostnaður bifreiðaverk- stæða mun án nýrra samnings- ákvæða hafa hækkað í byrjun næsta árs um 8,5% án verðlags aðlögunar. Frekari vinnutíma- stytting að 40 stunda markinu mun valda 2.5% hækkun. Auk þess má ætla, að algjört lág- mark hækkunar launaikostnaðar að öðru leyti verði 5%- Alls yrði hækkun launakostnaðar á unninn tíma þá 16.8%. Ætla má, að hámark þess, sem verkstæð- in geta tekið á sig af þessu, sé um 5%. Yrði hækkun vinnuþátt arins þá 11.2% metin sem lág- mark. Þættir efnis og vinnu eru vegnir saman í hlutföllunum 32.5 og 67.5, þannig að lág- marksáætlun um hækkun verð- þáttar nuinatjóna nemur 10.5% ofan á fyrri áætlanir. Megin- hluti þessarar hækkunar er þeg ar á orðinn eða alveg fyrirsjáan legur. Verðþáttur slysatjóna kemur bezt fram í almennri tekjuþró- un. Umfram það, sem þegar er innifalið í hækkunarmati, hefur allt kauplag hækkað við verðlags bætur um 2.9%. Sérstakar launa- og tekjuhækkamir til opinberra starfsmanna og sjómanna geta numið um 10-11% ofan á þann mælikvarða, sem þegar hefur ver ið notaður, og þá reiknað fram til meðaltals 1972. Til fullrar vissu um að ofgera ekki áætlun um áhrif þessa á slysatjón, verður að sinni aðeins reiknað með 5%. Því til viðbótar þarf að gera ráð fyrir almennri launahækk- un. Algert lágmahk má teljast 7% að heildarmeðaltali, jafnvel þótt aðeins sé litið til beinna kauphækkana, en auk þess hlýt- ur vinnutimastyttingin að koma að talsverðu leyti fram í aukn- um launagreiðslum (þ.e. vegna samsvarandi hækkunar tirna kaups og áframhaldi fyrri vinnu að nokkru í formi yfir- vinnu). Að þessu samtöldu mun hækkun verðþáttar slysatjóna nema 14.9%, og telst það algjör lágmarksáætlun. Þættir muna- og slysatjóna eru vegnir saman i hlutföllun- um 58 og 42%, Verðþáttur tjóna mun skv. þvi hækka um 12.4%. b. Magnþáttur tjóna. 1 skýrslu nefndarformanns, lið 4.3., er fjallað um stórfellda og ugg- vænlega aukningu tjóna og slysa, án þess að af því hafi verið dregnar ákveðnar töluleg ar ályktanir. Hafa þessar stað- reyndir verið athugaðar nokkru nánar. Hér virðist að verulegu leyti um varanlegt stig framvindu að ræða, nema tak- ast megi með beinum og væntan lega langvinnum aðgerðum i um ferðarmálum og ábyrgð öku- manna (tryggingartaka) að bæta úr. Mjög ljóst samhengi virðist ríkja milli efnahagsár- ferðis og meðaltals tjóna á hverja bifreið, enda akstur að jafnaði mun meiri i góðæri. Má og ætla, að við aukinn akstur aukist mót ökutækja í umferð- inni yfirhlutfallslega (þ.e. við margfeldi aukningarþátta), og þar með árekstrar. Ör fjölgun ökutækja og ökumanna, samfara þéttingu umferðar, auknum hraðbrautaakstri o.þ.h. hefur í för með sér óvanaafglöp, sem geta dvínað með tímanum. Fjöldi munatjóna hefur auk- izt um 22% frá jafnlengd fyrra árs, eða um rúm 6% að meðal- tali á bifreið. Auk þess virðast tjónin hafa þyngzt að meðal- tali. Til varúðar er varanleg aukning á magni munatjóna þó aðeins metin 5% á hverja bif- reið, eða 3% umfram þegar reiknað (2% vegna verkfalls). Slysatjónum hefur fjölgað gíf urlega, eða um 58% í Reykjavík í jan.—sept. m.v. sama tíma 1970 eða um 37% ofan á bílafjölg- un. Fjölgunin hefur orðið á öll um slysa,,gráðum“, án þess að aðgreining sé fær að sinni. Verður að gera ráð fyrir, að aukning smáslysa eigi mikinn þátt í fjöldanum og ekki fært að gera ráð fyrir nema helmingi aukningarinnar til næsta árs. Aukning á magni slysatjóna er Framh. á hls. 23 FLUGELDAMARKAÐUR HJÁLPARSV EITAR SKÁTA ER NÚ Á ÞREMUR STÖÐUM: SKÁTARÚÐINNI SNORRABRAUT VOLVOSALNUM, SUBURLANDSBRAUT 16 OG MIÐBÆJARMARKA ÐINUM ADALSTRÆTI OPID TIL KL. 10 ÖLL KVÖLD EINNIG SELT ÚR BÍLUM VIÐ MELABÚÐINA, AUSTURVER, OG ÁRDÆJARKJÖR Yæ WBk vA £1 HVERGI MEIRA URVAL HJÁLPARSVEIT SKÁTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.