Morgunblaðið - 28.12.1971, Side 23

Morgunblaðið - 28.12.1971, Side 23
MORGUN'RLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1971 23 — Efnahags- stofnunin Framh. af bls. 21 því áætluð 18.5% á hverja bif- reið. Muna- og slysatjón eru vegin saiman I hlutföUumuim 58 og 42%. Samveginn magnþáttur tjóna mun þvi skv. framangreindum áætlunum hækka um 9,5%. Er sú áætlun þó mun meiri óvissu háð til beggja átta en tilsvar- andi áætlun um verðþáttinn. c. Tap & yfirstandandi ári. Gerð er grein fyriir því í skýrslu nefndarformanns, að það muni nema a.m.k. 16% af iðgjalda- stofni. Hér er fremur um mats- atriði en óvissu að ræða. Eigi að viðurkenna rétt tryggingaáé- laga til að vinna upp þetta tap, sem stafar af synjun eða frest- un hækkunarbeiðna, er væntan lega um að ræða að miða við 2—3 ár, þ.e. 5—8% hækkun. d. Hækkun tjónavarasjóða vegna verðhækkunar tjóna er Svipaðs eðlis. Þar sem tjóna- varasjóðir eru svipaðir iðgjalda stofni heils árs, gæti hækkun- in fræðilega numið alls svip- uðu hlutfalli og hækkun verð- þáttar þ.e. 39,5. En sú hækkun væri í eitt skipti fyrir öll og ætti að falla úr gildi eftir árið, og þá e.t.v. önnur að taka við, imiðuð við verðhækkun næsta árs. Tryggingafélögin hafa teþ- ið hófsamlegar á þessu atriði og óskað reglubundins þáttar ið- gjalda til að mæta þessu, en að algjöru lágmarki að það mæti vöxtum af tjónavarasjóði. Til móts við vaxtaforsendu í út- reikningi nefndarformanns (s'bi’. lið 3.7.,) eir þannig um 5% lágmarkskröfu að ræða. Þótt hér sé um eðlilega kröfu að ræða með hliðsjón af ríkj- andi skipan og venjum, er það að sjálfsðgðu ófremdarástand að þurfa þannig sífellt að verð- bæta eldri stofn af nýjum ið- iðgjöldum. Ef verðtryggð geymsla fjármagns á nokkurs staðar við, þá er það í tilvik- um sem þessu. Atlhugun á mögu- Leikum til þess er meðal þeirra atriða, sem framhaldsathugun þyrfti að beinast að. 3. KOSTŒÍ A AFGREIÐSLU mAlsins Hér er vissulega úr vöndu að ráða. Séu teknir saman framan gréindir hækkunarþættir, þ.e. verðþáttur tjóna 12.4% magn- þáttur tjóna 9,5%, uppvinnsla taps á þessu ári 5% og verðbót á tjónavarasjóði a.m.k. 5%, nem ur heildarhækkunin 35,7% (hækkunarhlutföllin standa i margföldunarsamhengi). Þessi hækkun reiknuð ofan á fyrri niðurstöðu 24% hækkun, mundi leiða til 68% hækkunar frá nú- gildandi iðgjðldum. Að vísu er hér ekki að öllu Ieyti um eiginlega verðhækkun að ræða. Að nokkru ætti hækk- unin að deilast á aukið aksturs- magn, og að sínu leyti er hér um viðurlög við ábyrgðarlausu atferli að ræða. En engin tök eru á þvi að breyta reiknings- hætti vísitölunnar án frekari undirbúnings. Þegar borið er saman við mat övissuatriða, sem hér hafa ver- ið tekin til meðferðar, kemur fram sú niðurstaða, að hækkun airbeiðni tryggingafélaganna myndar lágmark, enda gerð með fyrirvara um frekari hækkun skv. síðari endurskoðun. Virðast því eftirtaldir kostir á afgreiðslu málsins standa opn ir: a. Hækkun skv. lágmarkskröfu tryggingafélaganna, með fyr- irvara um endurskoðun 34,5% b. Hækkun skv. mati nefndap formanns, að viðbættu óvissu mati verðþáttar 39,5% c. Sama og b, að viðbættum 5% vegna tjónavarasjóða og/eða áorðins taps 46,5% Tilviki b gæti fylgt fyrirvari um síðari endurskoðun, en tæp- lega tilviki c. Sökum óvissuatr- iða varðandi magnþátt verð- tjóna o.fl. er ekki fært að mæla með meiri hækkun en skv. til- viki c. Ennfremur má líta svo á, að það verði sérstaklega við fangsefni nefndarinnar, að ráða bót á hinni miMu tjónaauikningu og áhrifum hennar á iðgjöldin, verði henni falið að starfa áfram. Vísitöluáhrif ofan- igreindra hæKkunarslkrefa munu nema 0.28, 0.32 og 0.37 K-stigum i sömu röð talið. Að þessu sinni hefur ekki ver ið leitað sérstaklega umsagnar um hækfkun húftrygginiga (kasko). Skal þó minnt á, að sú þörf var talin lítið eitt minni en vegna ábyrgðartrygginga, eða um 2% minni hlutfallslega reiknað. Verði húftryggingar áfram undir verðlagshömlum, má bæta hækkun ábyrgðairtry'gig inga eilitið upp með þvi að láta hana einnig gilda um húftrygg- ingar. 4. NÁNARI ATHU GUN AREFNI 1 fyrri greinargerð Efnahags- stofinuniarmnar var vilkið að atr- iðum, sem kölluðu á frekari at- huganir. Nefndin, sem skipuð var til að endurskoða skipulag og framkvæmd trygginganna, hefur enn aðeins að litlu leyti annað þessum athugunum vegna þess bráðabirgðaverkefnis síns að meta hækkunarþörfina. Er þessi greinargerð einnig háð þeim annmarka, sem af þessu leiðir. Er hér að lokum aðeins minnt á nokkur þessara atriða. a. Áhrif bónus-kerfis og hlið- stæðra aðgerða á nettóiðgjöld, tjónamagn og iðgjaldaþörf. b. Viðeigandi verðmælikvarði iðgjalda í vísitölu framfærslu- kostnaðar, þ.m.t. athugun á, hvort verðhækkun hefur verið ofmetin. c. Aðferðir til verðtryggðrar vörzlu tjónavarasjóða til að fyr irbyggja sérstaka hækkunar’ þörf af þeim sökum. d. Eftirlit með ábyrgðartrygg ingum bifreiða, og þá ekki sízt með nýstofnun félaga og sam- keppni á kostnað traustra tjóna varasjóða. Skuttogari Getura útvegað um 900 tonna skuttogara STRAX. Vel búinn vélum og tækjum. Verð innan við 90 millj. kr,, ef samið er strax. Upplýsingar í skrifstofunni 1 Hamarshúsinu, 5. hæð. L. M. JOHANNSSON & CO., skipamiðlarar. ORÐSENDING Um þessar mundir er njtt píputóbak boðið til sölu á islen^kum markaði í fyrsta sinn. Tóbak þetta er ólíkt þeim gerðum tóbaks, sem nú fást hérlendis. Tóbaks- blandan er að mestu úr Burlej og Marjland tegundum að viðbœttum vindþurrkuðum Virginiu og Oriental laufum. Þessi njja blanda er sérlega mild í rejkingu, en um leið ilmandi og bragðmikil. Tóbakið er skorið í cavendish skurði, löngum skurði, sem logar vel án þess að hitna of mikið. Þess vegna höfum við gefið því nafnið EDGEWORTH CAVENDISH. Rejktóbakið er selt í poljethjlene umbúðum, sem eru með sérstöku jtrabjrði til þess að trjggja það, að bragð og rakastig tóbaksins sé nákvcemlega rétt. Við álítum Edgeworth Cavendish einstakt rejktóbak, en við vildum gjarnan að þér sannfœrðust einnig um það af eigin rejnslu. Fáið jður EDGEWORTH CAVENDISH / ncestu búð, eða sendið okkur nafnjðar og heimilisfang svo að við getum sent jður sjnishorn. Síðan þcetti okkur vcent um að fá frá jður línu um álit jðar á gceðum EDGEWORTH CAVENDISH. Heimilisfangið er: EDGEWORTH CAVENDISH Pósthólf: 5133, Reykjavík. HOUSE OF EDGEWORTH RICHMOND, VIRGINIA, U.S.A. Stærstu reyktóbaksútflytjendur Ðandaríkjanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.