Morgunblaðið - 28.12.1971, Page 25

Morgunblaðið - 28.12.1971, Page 25
MQRGUNBLAÐIÐ, Í>RÍÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1971 25 uniii, jafnvel í svartasta sfcamm- diegi, sódiskin min.ninga, sigra og yona. Dætur og tengdasynir, ömmu- böm setja svip sinn á bæinn, með ræðuhöldum og heilsulind- um í léttum dúr og gleðiblæ gró- andi borgar. Gunnarshólmi angar enn sem fyr og áin við heiðarbarminn er söm við sig, þó'tt kynslóðir komi og fari. Lygn streymir Hólmaá við holtin falin, en heldur þó áfram að streyma. Hún er lífæð frá hjarta lands- ins, móðir af mildi Drottins veitt, og sú uppspretta er falin bless- un fjallanna og af djúpum sefa hiimins og jarðar í senn. Mun ekki bregðast né breytast, með- an Guð gefur gróanda lands og fólks. Hvort mundu ekki land- verndarkynslóðir komandi tima mega muna kaupmannshjónin í heiðinni við Hólmsá, sem gerðu sinn draum að veruleika í lífi og starfi, sem vormenn fstands voru fyrirmynd, sem lengi mun lifa, ristu sundur brunabörð og breyttu þeim I græna jörð. Og Margrét í Von er af tærri og þróttmikilli uppsprettu, moli úr bergi mikilla fjalla. Hún er fædd 28. desember 1891 að Þorbrandsstöðum í Langadal í Húnavatnssýslu. Fað- ir hennar var Gunnar Jónsson frá Glaumbæ í Skagafirði, Jóns- sonar, og móðir hennar Guðríð- ur Einarsdóttinr, Andréssonar, skálds frá Bóilu í Skagafirði. For- eldrar Margrétar vildu klífa þrítugan hamairinn, jafnvei flytj ast til framandi landa til að geta veitt börnum sínum, sem bezt uppeldi, og menntun en þurftu þess ekki, það tókst samt. Margrét lauk prófi frá Kvenna- skólanum á Blönduósi og fliuttist til Reykjavíkur 27 ára að aldri. Giiftist 12. mad 1921 Gunnari Sig- urðssyni, kaupmanni í Von, Laugavegi 55. Og þar hafa þau átt sitt óðal í borginni. Gunnar lézt 2. febrúar 1956. En hún er enn á sama stað. Árið 1928 lögðu þau Margrét og Gunnar horn- steininn að Gunnarshólma, ef svo mætti orða landnám þeirra i heiðinni. Það sama ár dó faðir hennar. En móðir hennar eign- aðist þá hamingju að mega fylgj- ast með og vera þátttakandi á sinn hátt í ræktunarstarfi og vel- gengni dóttur sinnar bæði í borg- inni og sveitinni. En það var hliuti af heil'lum Margrétar, sem unni foreldrum sinum mjög og virti þau að verðleikum. Frá þeim eru hennar eðliskost- ir erfðir, festan, tryggðin, hag- mælskan, hreinskilnin, ljúflynd- ið, dáð hennar og drenglund. Aldrei hefur meira traust ver- ið lagt í orð eiginmanns en þessi daglegu ummælli kaupmannsins Von og landnemans í Gunnars- hólma: „Hún sér um þetta, hún Maggý min.“ Og veit nokfcur til, að hún hafi brugðizt því trausti. Dætur eignuðust þau fimm að töLu sem einu sinni voru litlu stúlkurnar „unga rnannsins1' úr Kennaraskólanum en eru nú fín- air og ríkar frúr í Reykjavik. Þær heita: Gyða, gift Kristjáni Hafliða- syni, póstfulltrúa, Guðriður, gift Daniel Helga- syni, flugumferðarsitjóra, Sigríður, gift Jóhanni Jónas- syni, stórkaupmanni. Auður, gift Haraldi Árnasyni, deildarstjóra, Edda, gift Konráði Adolphs- syni, viðkiptafræðingi. Margrét á því fagra framtíð sem ættmóðir á íslandi. Mér ffinnst hún ennþá ung. — Að minnsta kosti er hún falleg og góð. Og getur fegurðin orðið gömul og góðleikinn dáið? Eins og Hólmsá streymir við heiðarbarminn sem lind frá hjartastað landsins og gefur gró- andi líf, þannig munu konur Margréti líkar vemda ættstofn og göfgi íslenzka þjóðarmeiðs- ins um ókomin ár og aldir. Lengi iifi Margrét í Von, húsfreyjan á Gunnarahólma. Heill þér og þin- um, kæra vinkona. Á jólanóttina 1971. Áreiíus Nielsson. „Skiliurðu nú, hvers vegna þú mátt ekki segja öðru fóllfci frá því, sem við töium uim hér hieima?" Svarta stúlkan lieitir Wilma Chestnut og er 18 ára gömul. Hún er blind eftir að ráðizt var á bana fyrir nokkru siðan og telur Iög- reglan, að árásarmaðtirinn hafi ætlað að reyna að koma í veg f.vr- ir að hún gæti borið vitni í þjófnaðarmáli. Hún liefur nú innritazt í blindraskóla og liér sést hún fá kennslu í meðferð straujárns. Árásarmaðurinn náðist, én kveðst saklaus. Hermenn í Japanska varnarliðinu, eins og það er kallað, sjást hér troða niður snjóinn i svigbrautinni í Teine-fjalli í Japan, þar sem næstu vetrar-OlyntpíuIeikar fara frant í febrúarmánuði á na?sta ári. Þetta eru liúsmæður i Cbile, sem mótmæla liarðlega miklum vöruskorti í matvöruverzlunum. Veifa þær yfir höfðum sér „sti'tt- arverkfærununt", pottum og pönnuni, og þrannna síðan i fylk- Lngu niður eftir breiðstrætunum í Santiago. „Hvenær finnst sjúiklin’gunum ég vera orðinn nógu gamalil til að vita hvað ég er að tala uim?“ „Þangað til að ég kynntist þér, herra Jensen, hafði ég eniga lyst á að láifa!“ Ellen Connette, bandarísk kennslukona, 28 ára gönittl, og Ben Crow, tvítugur náiiisiitaður frá Bretlandi, brosa hér við ljósmynd- aranum í fangelsi í Jessore í Austur-Pakistan, en þar höfðu þau setið í tvo niánuði af tveggja ára varðhaldsdómi, sem þau blutu fyrir að fara inn í landið á óiögiegan hátt. Þau voru í brezkwm lijálparflokki, sem reyndi að brjóta bann Pakistanstjórnar við að konia nauðjiurftum inn í landið eftir að bardagar hófust þar f marz. Fullorðin skrilstofudama Reynd, dugleg og örugg, getur fengið atvinnu nú þegar eða á næstunni á skrifstofu i Kópavogi. Góð laun fyrir hæfa dömu. Umsóknir feggíst inn á afgr. Mbl. fyrir 5. janúar merktar: „öryggi — 55G4“,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.