Alþýðublaðið - 11.07.1958, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 11.07.1958, Blaðsíða 6
6 AlþýðublaSið Föstudagur 11. júlí 1958 c KÉNVER.SKI kommúnista- S flokkurinn hefur í allan vetur 1 geng.ð feti Lengra í baráttunni; gegn Tító og endurskoðunar- stefnunni, heldur en sá rúss- neski, og nú hefur sú barátta náð hámarki sínu — í bili — með aftökunum í Budapest. iSÞað er þó ekki víst aö þeim rússnesku hafi leiðst mjög of- stæki kín.versku kommúnist- anna, að minnsta kosti varla foringjum þeirra. Krústjov hef ur að undanförnu leik ð það bragð að beita öðrum kommún- istaflokkum kerfisbundið fyrir sig, — þeim kínversku, austur. evrópsku og jafnvel þeim vest- urevrópsku, til þess að Rússar sjálfir yrðu ekki sakaðir um heimsyfirráðastefnu. Á kommúnistaþingmu sem haldið var i Moskvu í sambandi við byltingarafmælið í nóvem- ber, voru kínversku fulitrúarn- ir, sem beittu sér fyrir því að íhafin yrði miskunnarlaus bar- átta gegn endurskoðunarsinn- um, og viðurkennt forystuvald Rússa innan austurblakkarinn- ar. þegar Krústjov var, — jafnvel eftir júgóslavneska flokksþingið í maí s. 1. — dálít- ið smeykur við að taka upp aft- ur stefnu Stalíns gagnvart Tító, þá var það aðalmálgagn kínverska komrnúnistaflokks- ins, sem birti samþykkt komin- forms frá 1948 varðandi Tító og sló því föstu að sú sambykkt væri rétt í öllu er máli skipti. Utan úr heimi ) Mao tse-tung. „Rauði fáninn“, málgagn kín- verskra ungkommúnista, hefur tekið upp aftur orðbragð það gegn Tító ,sem notað var á vel- mektartímabili kominforms. — „Endurskoðunastefna júgóslav neska kommúnistaflokksins er ekki annað en dulbúin undirróð ur heimsveldissinna", og síðan er Júgóslövum lýst sem svik- urum og málaþegum auðvalds ins. Krefjast Kínverjar þar í raun réttri að kominformstefn an sé tekin upp aftur, — og virðast nú hafa fengið því fram gengt. Kínversku kommúnistaleið- togarnix hafa sínar góðu og gildu ástæður til að reka slík- an áróður. Þeir hafa sjáífir full not fyrir lán það, sem Júgóslöv um var ætlað og hver veit nema Kína yrði þá afskiptara, ef Sov étleiðtogarnir tækju aö vinna að því að úr viðsjám drægi við Vesturveldin. En meginorsakar innar er þó að leita í innanrík- isstjórnmálum Kínverja. Tilraun Maos varðandi „hundrað blómin“ kom af stað s’líkri skriðu af gagnstæðum skoðunum og sjónarmiðum að flokkurinn varð svo óttasleginn að hann sá sér þann kost vænst an að taka tafarlaust upp strang asta og öfgafyllsta Stalinisma. Um þessar mundir er verið að hreinsa til í flokknum af kappi miklu. Og ekki nóg með það, heldur verður margur ó- flokksbundinn fyrir henm, ein- ungis fyrir þá sök, að þeir leyfðu sér að bera fram gagn- rýni á flokkinn, — einmitt þeg- ar framámenn hans æsktu eft- ir gagnrýni. Þá eru og mennta menn margir og rithöfundar á- kærðir fyrir fyigi við endur- skoðunarstefnuna og flokks- st.arfsmenn fyrir hneigð til frjálslyndis. Þessir kínversku endurskoð unarfylgjendur eru vægðar. laust settir á bás með austur- evrópskum uppreisnarseggjum, og þó fyrst og fremst þeim Tító og Nagy. Kínversku flokksleið- togunum er því mjög í mun að endurskoðunarfylgjendur í Evr Íslenzk og erlend úrvaSsijóS: effir Hufdu. í FJARLÆGUM, fögrum skógi ég friðsælt rjóður veit. Þar skjá'lfa geislar í grasi, þar ganga hindir á beit. Á bak við blávötn og akra rís borgin með þys og ljós, en skóggyðjan felur í faðmi friðarins hvítu rós. Þar líður tíminn og líður — sem laufelskur, mildur blær. Og yfir nöfnunum okkar á eikinni börkur grær. S S s s s s s s s s s s s s s s s s > s s s s s s \ l s I s ópu verði beittir ekki minni hörku en tíðkast nú í Kína. Því hafa þeir viljað láta aust urblokkina taka upp sína eigin stefnu. Þegar Mao hóf blómatilraun sína bentu margir vestrænir rithöfundar á það hve hún væri Lík um flest þeim hugmyndum, sem hægri klíkan í 'kommún- istaflokk Sovétríkjanna hafði á oddimun árin 1923—’28, und ir forystu Bukharins, sem lengi vel átti Stalin að samiherja-. Þessi hægri klíka vildi jsoma á tiltölulega hægfara iðnvæð- ingu. Vildi hún leggja megin áherzluna á framleiðslu neyzlu varnings, þar sem bændurnir royndu auka framleiðslu sína, ef þeir ættu völ á nægum neyzluvarningi í staðinn, Framhaldandi þróun til sósíal isma átti síðan að verða smám saman. Lífskjörin myndu fara batnandi með ári hverju, en bændur, og aðrir, sem ekki voru sem áreiðanlegastir fylg- ismenn, myndu komast á þá skoðun að það borgaði sig bezt að fylgja flokknum að málum. Þá mundi friður og sátt ríkja í landinu og ekki koma til blóð- ugra reikningsskila og átaka innbyrðis. Framhald á 11- 58 B A R N A G A M A N BARNAGAMAN 59 Frímann Jónasson: Á Valda þangað, færði þann úr blautum frakk anum og lyfti honum næst upp á bekkin. Valda þótti skringilegt, að sjá hvernig gleraug an færðust fram á nef- ið á manninum þegar hann laut áfram. Og svo var hann svo maga Stór að Valdi hafði aldrei séð annað eins. Honum fannst þetta svo kátlegt, að það mun aði minnstu, að hann gæti farið að hlæja. Þarnú sat nú Valdi í Götu uppi á Legubekk ihni í skrifstofu hjá rík- um líaupmanni í Ríeykja vík. Hann horfði undr- andi og feiminn í kring- um sig, upp um hillur og skápa, sem voru full flf bókum og skjölum. Starsýnast varð hon- um samt á þennan gild- vaxna mann, sem ætl- aði að hjálpa honum að finna mömrnu sína aft- ur. Maðurinn var nú aft ,ur seztur við borðið, en á því voru ýmsir ein- kennilegir hlutir, sem Valdi hafði aldrel séð fyrr. Hann sá nú ut undan sér, að kaupmaður fór að pota með fingrinum í kringlótta plötu á einu áhaldinu. í hvert skipti snerist platan og um leið heyrðist í henni dá- lítið urr. Svo tók mað- urinn eitthvað, hélt öðr- um endanum upp að eyranu, en fór að tala í hinn. Þá þóttist Valdi vifa, að þetta væri sími. Hann hafði einu sinni verið viðstaddur, þegar talað var í síma. Það Var á Hofi, þar sem sím stöðin var. En þessi sími var allt öðruvísi. Á Hofi ,var síminn uppi á þili, og þar þurfti alltaf að vera að segja halló, þalló, og það þurfti áð kalla voða hátt í sím- ann á Hofi. — En mað- urinn við skrifborðið talaði svo lágt, að Valdi heyrði varla hvað hann sagði. Allt í einu varð hon- um það Ijóst, að maður- inn væri að tala eitt- hvað um hann sjálfan í símann. Hann fór að leggja við eyrun. Hann heyrði manninn nefna lögreglustöð. Honum fór ekki að verða um sel og fékk hjartslátt. Eitt- hvað hafði hann heyrt um það, að lögreglan væri ekkert lamb að leika við. Katipmaður lagði nú frá sér áhaldið, sneri sér að Valda og sagði: — Ég var að tala við menn sem ætla að'hjálpa þér til að komast heim til mömmu þinnar. Þeir ætla að koma og sækja þig í bíl. Svo ferðu með þeim og þeir ætla að reyna að finna húsið hans frænda þíns.- En þú verður að hjálpa þeim og segja þeim allt, sem þú veizt og þeir spyrja þig um. Að svo mæltu gekk kaupmaður að ofninum, þar sem hann hafði hengt frakkann til þerr- is. — Hérna er frakk- inn þinn. Farðu nú í hann, þó hann kannske sé ekki orðinn vel þurr. Þeir geta komið á hVsrri stundu. Svo hjálpaði NÚ FÓR ILLA! Óli Litli kunni ekki umferðarreglurnar. Hann var ekki nógu gætinn. Og því fór sem fór. S-plunkunýja hjóLið hans fór alveg í klessu. hann Valda í frakkann. Þar næst seildist hann upp á hiílu og kom með súkkulaðiplötij í fallegu bréfi. — Gerðu þér gott af þessu — ég sting því hérna ofan í frakkavasa þinn. Valda hafði verið kennt að þakka fyrir sig. Hann tók í hönd mannsins og sagði undir leitur og feiminn: — Þakka þér fyrir í sama bili heyrðist bíll baula úti á götunni. — Þarna eru þeir þá komnir, sagði kaupmað- ur og leiddi Valda með sér fram í gegnurn búð- ina. Lítill, svartur bíll beið fyrir utan dyrnar. Þegar Valdi sá mann- inn við stýrið, hnykkti honum við. Maður.ihn var með gyllta hnappa og borðalagður , með gljáandi belti og húfu eins og herforingi. Þann ig búning hafði Valdi séð á myndum. Hann hefði getað trúað, að þetta væri kóngurinn sjáKur. Kaupmaðurinn talaði nokkair orð við. þann borðalagða, tók því næst Valda og lyfti hon- um upp í sætið við hlíð- ina á honum. Tók því næst í höndina á drengn um og sagði: —- Vertu nú sæll, og ég er viss um, að bráð- um verður.ðij. kom.inn heini til mömmu þinn- ar. Og áður en Valdi fengi ráðrúm til að taka undir kveðjuna, var bíll inn rokinn af stað.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.