Morgunblaðið - 25.01.1972, Blaðsíða 11
11
MORGUN<BLAf>IÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚÁR 1972
1
Talsmenn Sjálfstæðisflokksins um orkumálin;
Sjálfsforræði byggða í
orkumálum höf uðatriði
Háspennulína til Norðurlands 1973 og 1974?
Kostar um 300 milljónir króna
ÓLAFUR Jóhannesson, for-
sætisráðherra, vildi ekki við-
urkenna í umræðum um
orkumál á Alþingi í gær, að
um ágreining væri að ræða
milli ríkisstjórnarinnar og
Norðlendinga varðandi stefn
una í raforkumálum en Lár-
us Jónsson, alþingismaður,
benti á það í umræðunum að
verulegur styr stæði milli
ríkisstjómarinnar og Norð-
lendinga í þessum málum.
Teldu Norðlendingar sig ekki
aðeins vera að berjast fyrir
eigin hagsmunum, heldur
hagsmunum þjóðarheildar-
innar í raforkumálum.
Umræður um orkumálin
spunnust í framhaldi af umræð-
um um þings-
ályktunartillögu
Sjálfstæðis-
manna um end-
urskoðun orku-
laga og beindi
Guðlaugnr Gísla
son (S) þeirri
fyrirspurn til
inðaðarráðherra
hvort i vændum
væri stefnubreyting hjá ríkis-
stjórninni þess efnis, að Raf-
magnsveitur ríkisins yrðu dreif-
ingaraðilar raforkunnar í enn-
þá ríkari mæli en nú væri.
Magnús Kjartansson, iðnaðar-
TILLAGA sú, sem Birgir ísleifur
Gunnarsson og Albert Guðmunds-
son, tveir af borgarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins höfðu flutt
í borgarstjórn 18. nóvember
s.I., um stofnun hjúkrunarskóla
í tengslum við Borgarspítalann
kom til annarrar umræðu og af-
greiðslu á fundi borgarstjórnar
s.I. fimmtudag. Að Iokinni fyrri
umræðu um tillöguna hafði
henni verið vísað til heilbrigðis-
máiaráðs til umsagnar. Heil-
brigðismálaráð hafði fjallað um
tillöguna á fundi sínum 14.
janúar og lagði þá til að tillagan
yrði samþykkt af borgarstjórn-
inni með lítilsháttar breytingum,
þar sem tillit væri tekið tll
breytingartillagna, sem fram
komu í borgarstjórninni við fyrri
umræðu um tillöguna.
Tillagan með áorðnum breyt-
ingum lá fyrix svohljóðandi:
Borgarstjóm ályktar að fela
borgarstjóra í samráði við borg-
arlækni og heilbrigðismálaráð að
undirbúa stofnun nýs hjúkrunar-
skóla, sem starfræktur verði i
tengslum við Borgarspítalanin.
Markmið ákólans verði að veita
nemendum sínum full hjúkrunar
réttinidi, en starfsemi hans miðuð
við að auðvelda hjúkrunar- og
iíknarstofnunum borgaritmar að
fá hjúkrunarfólk til starfa.
ráðherra, sagði, að það væri al-
veg rétt, að raforkumáLin væru
nú í gagngerðri
endurskoðun . í
iðnaðarráðuneyt
inu. Fyrir mér
er það megin-
efni, að fram-
kvæmd verði
samtenging
orkuvera og
samrekstur
þeirra í fram-
tíðinni, sagði ráðherrann. Mögu-
leikar á lægri vinnslukostnaði
eru fyrst og fremst tengdir
stærri framleiðslueiningum. Full
komin nýting fæst ekki nema
með samtengingu. Slík samteng-
ing er yfirlýst stefna ríkisstjóm-
arinnar. Hins vegar kemur inn
i þetta dæmi, hvernig á að skipu-
leggja dreifingu orkunnar. Raf-
magnsveitur ríkisins hafa haft
forystu í þeim efnum. Mér er
kunnugt um, að mörg ágrein-
ingsefni hafa komið upp milli
bæjarfélaga og landshluta ann-
ars vegar og Rafmagnsveitna
ríkisins hins vegar. Einmitt
þess vegna er nauðsynlegt að
breyta til, t.d. með aðild lands-
hlutanna að Rafmagnsveitum
ríkisins í einni eða annarri
mynd. Ég tel ekki tímabært að
leggja niður Raímagnsveitur
rikisins á þessu stigi. Með því
væri dregið úr forystu rikisins i
dreifingu raforkunnar um land-
ið. En hins vegar tel ég, að
landshlutarnir verði að fá miklu
Borgarstjórn felur borgar-
stjóra að hefja viðiræður við-
menntamálaráðuneyti og heil-
brigðisráðuneyti um fyrir-
komulag skólans, en eðlilegt er
að ríkisvaldið kosti hina bóklegu
kennslu, bæði kennslukrafta, hús-
næðiskostnað og anmað, sem þeim
þætti námsims fylgir.
Borgarstjóm skorar jafnframt
á ríkisvaldið að efla þann skóla,
sem fyrir er, og beita sér fyrir
stofnun kennsludeildar í hjúkr-
un við Háskóla íslands, sem taki
til starfa svo fljótt sem auðið er.
Steinunn Finnbogadóttir (SFV)
tók fyrst til máls og lýsti ánægju
sinni með samþykkt heilbrigðis-
málaráðs. Kvaðst hún' þó mest
vera ánægð með þá skjótu hugar-
farsbreytimgu, sem orðið hefði til
máls þessa af hálfu borgarstjóm-
armeirihlutaniS. Hún hefði sjálf
flutt tillögu um þetta sama efni
í marz s.l., en þeirri tillögu hefði
þá verið vísað frá. Nú lægi tillaga
um efnið hins vegar fyrir borgar-
stjórninni til siamþykktar, þótt
ekki væri liðinn lengri timi frá
frávisun sinnar tillögu en raun
bæri vitni um.
Birgir Isleifur Gunnarsson (S)
kvaðst í tilefni af ræðu Stein-
unnar vilja rifja nokkuð upp
gamg þessa máls. Þegar Steinunn
hefði flutt tillögu sínia í marz í
meiri áhrif á rekstur Rafmagns-
veitna ríkisins en verið hefur og
ég geri mér vonir um, að ég
geti gert Alþingi frekari grein
fyrir hugmyndum minum um
þetta efni innan skamms tima.
Lárus Jónsson (S) sagði, að
tiilaga Sjálfstæðismanna gengi
út á það að dreifa ákvörðunar-
i/aldinu út til
Eólksins í byggð-
um landsins. —
Fyrir hverjar
kosningar vildu
iliir stjórnmála-
clokkar dreifa
valdinu til fólks-
ins, en svo vildi
stundum fara
þegar til fram-
Allsnörp orðaskipti urðu á
fundi Ik>rgarstjörnar Reykjavik-
ur sl. fimmtudag milli tveggja
borgarfulltrúa minnihlutans,
þeirra Steinunnar Finnbogadótt-
ur (SFV) og Sigurjóns Péturs-
sonar (Ab) vegna afstöðu
flokka þeirra til nefndakosninga
fyrra, hefði heilbrigðismálaráð
verið búið á nokkrum funidum
að fjalla um málið. Það væri því
ekki Steinurm, sem fyrst hefði
hreyft máli þessu í borgarkerf-
inu. Annars skipti það litlu máli,
hver hefði fyrstur bryddað upp
á máiinu. Fulltrúar minnihluta-
flokkanina væru oft ákaflega við-
kvæmir fyrir því, hvaðan frum-
kvæði að málum kæmi.
Hann sagði, að tillögu Stein-
unnar hefði á sínum tíma verið
vísað frá með þeim rökum, að
annar hjúkrunarskóli væri starf
andi og hefði sá alls ekki ver-
ið fullnýttur. Eðlilegt hefði þvi
verið að kanna fyrst, hvort ekki
væri unnt að nýta þann skóla
betur, áður en ráðizt væri i að
stofnsetja nýjan. Hins vegar
hefði verið orðið ljóst, þegar
þeir Albert Guðmundsson hefðu
flutt sina tillögu 18. nóv. s.l., að
engin hreyfing væri í þá átt af
hálfu ríkisvaldsins að efla
Hjúkrunarskóla Islands. Auk
þess hofðu þá legið fyrir kann-
anir, sem sýndu, að Hjúkrunar-
skólinn myndi ekki geta sinnt
þörfinni jafnvei þótt fullnýttur
væri.
Birgir ísleifur Gunnarsson
rakti nú nokkrum orðum grein-
argerð, sem lögð hafði verið
fram í heilbrigðismálaráði um
málið og gerð hafði verið af Her
dísi Biering, Sigurlínu Gunnars
dóttur og Hauki Benediktssyni.
Þar væri um að ræða athugun-
arefni, sem hliðsjón yrði höfð af
við nánari framgang málsins.
Hugmyndin væri sú, sagði ræðu
maður að lokum, að ríkisvaldið
kvæmdanna kæmi, að þá væri
farið öfugt að. Þetta væri til
dæmis komið í ljós hjá þeirri
rikL'istjórn, sem nú sæti. Veru-
legur styr ér á milii ríkis-
stjómarinnar og Norðlendinga i
þessu máh, sagði Lárus Jóns-
son og Norðlendingar telja sig
ekki aðeins standa á eigin hags-
munum, heldur berjast fyrir
þjóðarheildina og hagsmunum
hennar i þessu mádd.
Lárus Jónsson beindi þeirri
fyrirspurn til iðnaðarráðherra,
hvort ráðuneytið hefði látið
hanna háspennulinu frá Þjórs-
ársvæðinu til Norðurlands, hvað
hún kostaði og hver flutnings-
kostnaður væri á kwst. Enn-
fremur spurði hann, hvort ráðu-
neytið hefði gert sér nákvæma
grein fyrir því, hvort samteng-
ing væri tímabær og hvort hún
væri hagkvæm.
Magnús Kjartansson, iðnaðar-
ráðherra, sagði, að ekki hefði
verið hönnuð háspennulina frá
Þjórsársvæðinu til Norðurlands.
Hins vegar hefði verið talað um
að leggja hana á árunum 1973
og 1974 um svipað leyti og raf-
orkuskortur mundi verða á Norð
urlandi og væri áætlaður kostn-
aður við hana um 300 milljónir
króna. En hana verður að fjár-
magna með sérstökum hætti,
sagði ráðherrann, annað hvort
verður að greiða niður flutn-
ingskostnaðinn eða afskrifa
hann. Ég hef hugsað mér, að
heildsöluverð rafmagns verði að
vera hið sama um alit land. Ég
borgarstjórnarinnar vorið 1970,
að loknnm síðnstu borgarstjórn-
arkosningum. Umræður þessar
spunnust af umræðum um til-
lögu, sem boi'garfulltriiar Al-
þýðubandalagsins fluttu um
kosningu fimm manna nefndar
til að vinna að úthlutun á bygg-
kostaði bóklega kennslu við skól
ann en Borgarspítalinn sæi um
verklegu kennsluna.
Adda Bára Sigfúsdóttir (Ab)
kvað það hafa verið vanhugsað
I fyrra að visa tillögu Steinunn-
ar frá. Taldi hún, að Hjúkrun-
arskólinn starfaði með fullum af
köstum núna. Einnig sagði hún
það skoðun sína, að í fyrra hefði
mátt sjá, að Hjúkrunarskólinn
gæti ekki sinnt þörfinni á hjúkr
unarfóiki þó að fuhnýttur væri.
Sigurlaug Bjarnadóttir (S)
sagði, að tillögur minnihlutans í
borgarstjórninni væru oft um
mál, sem búið væri að hreyfa
áður annars staðar i borgarkerf
inu. Um þetta væri gott eitt að
segja þvi þetta gæti ýtt á eftir
málum. Það væri hins vegar létt
vægt af þeirra hálfu að hreykja
sér af þvi að hafa haft frum-
kvæði í slíkum málum.
Hún kvaðst að lokum vilja
spyrja aðstoðarráðherrann,
Öddu Báru, hvort I þeim umræð
um, sem fram hefðu farið um
hjúkrunarmenntun á háskóla
stigi, væri gert ráð fyrir, að þar
yrði um menntun hjúkrunarkenn
ara að ræða eða samsvarandi
menntun og veitt væri í Hjúkr-
unarskóla Islands.
Adda Bára Sigfúsdóttir sagði
þetta vera á umræðustigi enn
sem komið væri. Bæði væri rætt
um kennaramenntun, sérstaka
sérmenntun hjúkrunarkvenna,
svo og almenna hjúkrunarmennt
un. Hér hefði verið fyrir
skömmu fulltrúi frá Alþjóðaheil
brigðisstofnuninni til að ræða
þessi efni og væri væntanlegt
álit hans á næstunni.
Að svo mæltu var tillagan sam
þykkt í einu hljóði.
vil einnig benda á, að samteng-,
ing er forsenda fyrir medri
háttar virkjunum á Norður-
landi. Og ég vil vara menn við
því að halda, að hægt sé að leysa
orkumálin nema i samhengi.
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, sagði, að Lárus Jóns-
son hefði talið, ■
að ágreiningur
væri milli ríkis-
stjórnarinnar og
Norðlendánga i
orkumálum. —
Mér finnst þetta
nokkur mikið
sagt, sagði for-
sætisráðheira.
Ég er ekki viss
um, að Lárus Jónsson hafi um-
boð til þess að tala fyrir hönd
allra Norðlendinga. Það er
ágreiningur milh Norðlendinga
sjálfra um orkumálin. Rikis-
stjórntin hefur lýst því yfir, að
á næstunni verði kannaðis allir
virkjunarmöguleikar á Norður-
landi, m.a. um Dettifossvirkjun.
Ég hygg, að það sé i samræmi
við óskir Norðlendinga. Ég hef
verið talsmaður þess, að heppS-
legt væri fyrir hvert hérað að
eiga sitt orkuver en um leið er
aðalatriði, að menn fái nægi-
lega raforku, hvaðan sem hún
kemur og á sambærilegu verði
og aðrir.
Guðlaugur Gíslason (S): —
Hafi ég sikilið iðnaðarráðherra
rétt, læt ég i ljós nokkra ánægju
yfir því að veita eiigi landshlut-
Framh. á bls. 24
ingarlóðum. Tillögu þessari
var vísað frá með rökstuddri
dagskrá. Hér á eftir fer frásögn
af umræðum þeim, sem um tillög
una urðu.
Sigurjón Pétursson mælti með
tillögu þeirra Alþýðubandalags-
manna og sagði það hafa tiðk-
azt um margra ára bil, að tveir
embættismanna borgarinnar
gerðu tillögur um lóðaúthlutanir
til borgarráðs, sem síðan hefði
ákvörðunarvaldið um úthlutan-
irnar. Þessir tveir menn skipuðu
svokallaða lóðanefnd. Sagði
hann, að þess hefðu sézt merki,
að þessir embættismenn borgar-
innar hefðu hagað tillögum sín-
um um lóðaúthlutanir þannig að
borgarstjórnarmeirihluta Sjálf-
stæðisflokksins líkaði sem bezt.
Að lokum átaldi ræðumaður, að
lóðanefndin hefði enga formlega
stöðu í borgarkerfinu og engar
starfsreglur til að starfa eftir.
Steinunn Finnbogadóttir
kvaðst vera samþykk því í stór-
um dráttum, að sérstakri nefnd
væri falið að vinna að þessu
verkefni. Hins kvaðst hún ekki
ganga þess dulin, að Alþýðu-
bandalagsmenn ætluðu sér að fá
fulltrúa í þessari 5 manna
nefnd, og treystu þeir þar á
stuðning fulltrúa Framsóknar,
enda hefðu Alþýðubandalags
menn og Framsóknarmenn verið
heitbundnir síðan vorið 1970,
þegar kosið var I nefndir borgar
innar eftir kosningar. Flutti
hún breytingartillögu, þess efn-
is, að hverjum flokki í borgar-
stjórninni yrði tryggð aðild að
nefndinni.
Birgir Isleifur Gunnarsson (S)
sagði tillögur svipaðs efnis hafa
verið fluttar áður í borgar-
stjórninni og þá verið hafnað.
Hinn raunverulegi tilgangur
með tillöguflutningi þessum nú
væri sá sami og áður, og hefði
hann endurspeglazt í ádeilu
Steinunnar Finnbogadóttur á til
löguna. Minnihlutaflokkarnir
væru þegar komnir i hár saman
út af málinu. Hér ætti að koma
upp kvótakerfi milli pólitísku
flokkanna um lóðaúthlutanir
líkt og tíðkazt hefði með litlum
sóma í Húsnæðismálastjórn um
margra ára bil með lánveiting-
ar þaðan.
Benti borgarfulltrúinn á, að
borgarráð væri kosið hlutfalls-
kosningu og ættu fulltrúar
Framh. á bls. 24
Nýr hjúkrunarskóli í
undirbúningi
Viðræður hefjast milli borgar
yfirvalda og ríkisvaldsins
Borgarstjórn Reykjavíkur:
Steinunn og Sigurjón
deildu hart
Frá umræðum um fyrir-
komulag lóðaúthlutana