Morgunblaðið - 05.03.1972, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 05.03.1972, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1972 5 Wmmá wWi ÆmSBm ffBplps .•■V' i; Sigurður Pétursson útgerðarmaður 60 ára Á morgiun, mánudaginn 6. marz, verður Sigurður Péturs- son, útgerðarmaður', Stígahlíð 43, Reykjavík, sextugur, en hann er íæddur í Bolungarvik 1912. Foreldrar hans voru Pétur Sig- urðsson skipstjórt og kona hans Kristjana Einarsdóttlr. Móður sína missti Sigurður þegar hann var bam að aldri, en faðir hans kvæntist afitur, hinni ágætustu konu, Guðbjörgu Magnúsdóttur, sem reyinzt hefur Sigurði og systk inum hans sem hin bezta móð- ir, en hún nýitur nú ævikvölds- ins og dvelur á Hrafnistu. Sigurður hóf starfsferil .'inn á sjónum eins og titt var og er enn meðal ungra manna á Vest- fjörðum, og fékik sína fyrstu skólun í skipsrúmi hjá föður sín um, kunnum sjósðknara og skip stjórnarmanni. Sigurður naut menntunar í Núpsskóla og minnist oft ára sinna þar og rnargra skólafélaga, sem nú eru kunnir menn. Hefur námið þar verið haldgott vega- nesti ungum manni, framgjörn- um, með viljaþrek og trú á eig- in starfis- og stefnumótun, enda liðu ekki mörg ár þar til Sigurð ur eignaðist sinn fyrsta bát, þá kominn norður i Reykjarfjörð á Ströndum. Árin á Djúpuvík urðu mörg, stundum erfið og annasöm, öll þó, hans beztu ár í minmingunni. Þar lagði hann grundvöll að framtíð sinni og fjölskyldu, — útgerðarmaður sem annaðist um áætlunarferðir á Húnaflóa, oddviti hreppsiins, stöðvarstjóri Pósts og sima, svo eitthvað sé nefnt. Hann stofn- aði fyrsta verkalýðsfélag i Ár- neshreppi og var formaður þess um árabil, og i framboði þar i sýslunni til Alþingis fyrir Al- þýðuflokkinn. Fjölmörgum trún aðarstörfum gegndi hann fyrir sveit sína, enda oftast til Sigurð ar leitað bæði af vinum og vandalausum, því drengur er hann góður, baráttumaður fyrir hverjum góðum málstað, hollráð ur, glettinn og kátur að jöfnu, og mikill vinur vina sinna. Árið 1956 flytur Sigurður með fjölskyldiu sína til Reykjavikur og hefur útgerð þaðam sama ár. Gerði hann út tvo báta, nú á sið ustu árum, myndarleg aflaskip og rak á tímabili fiskverkun, en dró sig að mestu leyti í hlé frá útgerðarstörfum fyrir tveim ár- um, sökum heiilsubrests. Sigurður hefur starfað mörg ár i verðlagsráði sjávarútvegs- ins og í ýmsum nefindum fyrir út vegsmenn og á vegum hins opin bera, enda er hann ósérhlífinn og fastur fyrir ef að er sótt. Ekki er frásögn mín öll fyrr en ína er komin inn í myndina, enda ekki nema hálf sagan sögð ef hennar er að eingu getið. Eiginkona Sigurðar, Sigvaid- íná Jensen, er fædd 2. október 1911, kjördóttir Carls Jensen, kaupmanns í Kúvíkum við Reykjarfjörð, og koniu hans Sig- ríðar Jensen. Ina varð sextug i haúst og brugðu þau hjón sér þá út fyrir landsteinana til að gera sér dagamun. Ina ólst upp á gestkvæmu risnuheimili þar sem komur hér- aðsmanna voru tíðar, svo og ferðalanga, innlendra sem er- lendra. Vandist hún ung, á að taka tii hendi, og við móttöku margmennis, sem kom sér vel, þvi upp úr fermingu missti hún móður sína og kom þá öll hús- stjóm á hennar ungu herðar. Það var fagurt veður yifir Reykjarfirði, þegar undirritað- ur kom þangað í fyrsta sinn, í fýlgd þeirra inu og Sigurðar, en báðar hliðar veðráttunnar sýndiu sig áður en dvölin þar var á enda, því Strandimar eru stórbrotnar, bæði landslag og veðrátta. Sagt er að landshætt- ir móti að einhverju leyti skap- gerð manna, og nokkuð er vist að ina er stórhrotin kona, sem staðið hefur við hiið manns síns í blíðiu og striðu. Eiga þau sjö dætur og tvo syni og eina dótt- ur átti Sigurður fyrir, áður en hann kynntist Iniu. Hefiur ína því alltaf átt annasama daiga um ævina og þó líklega hvað flesta á Djúpuvík, því við stórt heimil- ið bættist svo móttaka gesta og gangandi, sem var daglegt brauð, og bein afleiðing af fjöl- breyttum störfum manns hennar. Þaðan gekk enginn þurfandi, hvorki þingmaður i yfirreið né umirenningurinn á göngu sinni, enda hefur gestrisni og rausn verið hennar aðail alla tið. Öll eru börn þeirra ínu og Sigurðar uppkomin, mannkosta- fólk og barnabörnin orðin 25. Æviferill og störf þeirra hjóna er óskráð saga, ein af mörgum um atorkufólk, sem átt hefur hvað mestan þátt I upp- byggingunni á tuttugustu ö!d- inni og gert hefiur Island að því, sem það er í dag. Undirritaður og fjölskylda hans færa Inu og Sigurði beztu árnaðaróskir á þessum tímamót- um, þess meðvitandi að undir það taka hinir fjöilmörgu vinir þeirra viða um land, með þakk- læti fyrir ánægjulegar samveru stundir og trygga vináttu lið- inna ára. Árni Friðjónsson. frú Inu Jensen, sem líka átti sextugs afmæli þann 2. október s.l. En hiver gat þá fengið af sér að minna konu á bezta aldri á það, að árin væru allt í einu orðin svona og svona mörg, ekki sízt, þegar hún, á þeirri sömu stundu, unir suðrænum himni við sólar skin og söng blæsins í vaggandi pálmakrónium, vafin ást og umhyggjiu sins ekta- maka, sem er skammt undan og leikiur liistir sinar fyrir hana eina, byltandi sér í dimmbliáum öldum sólheitra vatna. Og hvað getur hann sosum gert að því, þótt hrifnir áhorfendur greini þarna mikil sundafrek og sæmi hann fyrir skrautliegum „diplóm um“, sem, kringd höfgum um- gjörðum, verða heimkomin heim- ilisprýði, stolt húsbóndans og uppspretta glaðværðar og skemmtilegheita utan enda. En þá er i rauninni komið að kjama þessa mái'Bt „Glaður og reifur skyli gumna hver, unz sinn bíður bana.“ Þessi fleyga lífsspeki Háva- máia kemur mér jafnan í hug, þegar ég er samvistum við Sig'- urð Pétursson. Hún einkennix svo allt hans viðmót og dagfar. Hvar sem hann kemur, verður óhjákvæmilega líf og kæti og þá mega málin vera komin í mikið óefni, ef honum tekst ekki að sjá á þeim einhverja spaugilega hlið. Það er mikil unun að dvelja á heimili þeirra hjóna. Hverjum gesti er tekið, eins og hann væri hinn glataði sonur, belgd- ur út af dýrindis krásum á svignandi borðum og dildað á meðan með spaklegum viðiræð- um um landsiris gagn og na-uð- synjar eða þá skopsögum og skritlum, eins og þær gerast beztar. Húsfreyjan lætur heldur ekki sitt eftir liggja, viðmótið svo hlýleigt og móðurlegt og gætt látlausri reisn. Á svona heimili h'.ýtur að verða gestkvæmt. Þar er andleg heilsubót að vera. Það á ekki við, að fjölyrða nú um ættir afmælisbarnanna, vitna i kirkjubækur eða tíunda emb- ætti og einstök afrek athafna- mannsins, svo hár er nú aldiur- inn ekki orðinn enn. Ég vildi aðeins árna þeim hjónum heilla með farsæl timamót og áfanga á. lifsleiðinni, þaklka hin góðu kyinni og það ekki sízt að hafa fengið að draga það úr eigu þeirra, sem mér er öðru dýnmæt- ara. Friðbjörn Gunnlaugsson. Velkcmin í ^ Valhúsðösn hf. KOMIÐ OG SKOÐIÐ í GLUGGANA UM HELGINA 60 cm 37cm Á morgun, mánudaginn 6. marz, verður Sigurður Péturs- son, útgerðarmaður, Sigahlið 43, Reykjavik, sextugur. Mér finnst einnig, að vel fari á því að helga þetta ldtla afmæl- isspjali hans ágætu eiginkonu, Víalhúsgögn1 ÁRMÚLA 4 SÍMI 82275 UM PASKA BROSANDI SUMARSÓL Á COSTA DEL SOL ENGINN STAÐUR EVROPU GETUR KEPl’T VIÐ COSTA DEL SOL UM VEÐURSÆLD OG VINSÆLDIR. NÚ ERU SÍÐUSTU FORVÖD AD TRYGGJA SÉR SÆTI í PÁSKAFERDINA VINSÆLU 28. MARZ — 4. APRÍI,. ÞOTUFLUG FLUGFÉLAGS ÍSLANDS — 1. FL. GISTING. VERD FRÁ KR. 15.500. PERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN AUSTURSTRÆTI 17. SÍMAR 20100/23510/21080.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.