Morgunblaðið - 05.03.1972, Side 11

Morgunblaðið - 05.03.1972, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1972 11 Æskulýðsdagurinn er í dag 10 ungmenni svara spurningunni, hvað þeim virðist um Krist I dag er svonefndur Æsku lýðsdasrur haldinn í kirkjum landsins. Sérstakur dagur, þar sem hinu unga íslandi er sérstaklega boðið að hlýða á guðsþjónustu, ogr má það þykja til tíðinda, eftir öll skrifin Um popmessur og fleira, að nú er æskulýðnum í dag boðið upp á ósköp venjulega messu. Gamaldags, munu máski einhverjir segja, en við hinir eldri föllumst hiklaust á þá skoðun, að íhaldssemi í trúmálum á svo sannarlega rétt á sér. Af þessu tilefni fengum við á fund okkar ungmenni úr hin um ýmsu sóknum Reykjavík- ur og úr iingiingadeildum KFUM og K, sem eru sam- bærileg æskulýðsfélög. Björg Ólafsdóttir ★ Fyrsta hitti ég að máli Björgu Ólafsdóttur úr Hjúkr unarskólanum, sem sagðist útskrifast úr skólanum í september 1974, ef allt gengi að óskum. „Hvernig komst þú inn í málið varðandi þennan Æsku lýðsdag?" „Jú, ég var kjörin í Æsku- lýðsstarfsnefnd Þjóðkirkj- unnar, sem fulltrúi skipti- nema. Ég var heilt ár í Höne- foss í Hringaríki í Noregi, en í þessari nefnd höfum við haldið fundi frá jólum tvisv- ar í viku. Við vinnum þann- ig, að við gefum út bækling, þar sem við skýrum frá hinni almennu messu, og i ár er meiningin, að bjóða ung- dóminum upp á þetta gamla, sígilda messuform. Messan á að vera aðalatriðið. Engin popmessa, heldur messa, sem á bæði að geta verið fyrir unga og aldna. I þess- ari messu lesa unglingar skýringar við messuform- ið, og í sumum kirkjum a.m.k. prédika unglingar; ég veít ekki í hve mörgum." „Þá er mín síðasta spurn- ing, Björg til þín þessi: Hvað virðist þér sjálfri um Krist?“ „Þú ættir máski að orða spurninguna öðru vísi, eins og t.d.: Hvað er Jesús fyrir mér? Fyrir mér er hann þannig: Hann lifði og dó, hann reis upp, allt fyrir mig. Hann hefur í sannleika ver- ið mér ákaflega mikill styrk ur, og þá ekkert frekar í mótlæti en - meðlæti. Og Jes- ús lagði á sig allar þessar þjáningar fyrir mig. Það finnst mér máski vera aðal- atriðið." „1 hvaða söfnuði ertu, Björg?“ „Ég er í Óháða söfnuðin- um, og þar rikir mjög mikil eindrægni og eining.“ Tryggvi Gunnarsson ★ Og áður en ég vissi af, var staddur hjá mér Tryggvi Gunnarsson, 16 ára nemandi í Gagnfræðaskóla Austur- bæjar, sem tekur þátt í Æskulýðsstarfi í unglinga deildum KFUM. „Við höldum hálfsmánaðar lega fundi, þar kynnist fólk oft mjög náið, vinátta skap- ast. Á fundunum erum við með létt efni, helgistundir, en frá þvi er frómt að segja, að aðsóknin mætti vera betri. Og við sækjum kirkjur á sunnudögum. Svo eigum við bústað uppi við Úlfars- fell, og erum þar oft um helg ar.“ „Hvað virðist þér um Krist, Tryggvi?" „Jesús Kristur spurði læri sveina sína um þetta. Þeir svöruðu ýmsu. Pétur Símon sagði: „Þú ert Kristur, sonur hins lifandi Guðs.“ Fólk svarar enn í dag á ýmsa vegu. Það segir, að Kristur hafi verið mikill spekingur, en kirkjan bygg- ir á þessari játningu Péturs, að hann sé sonur hins lif- andi Guðs, sem er ennþá lif- andi og virkt afl í kirkjunni, og i kirkjulegu starfi er játn ing þessi boðuð. Fyrir mér er Kristur allt, og ég tek und- ir með Pétri og bæti við: Kristur er fyrir mér fre’.sari minn, sem fyrir mig dó á kossi.“ Ásta Öskarsdóttir ★ Þá hitti ég að máli 16 ára stúlku úr Kvennaskólanum, Ástu Óskarsdóttur, en hún er í Æskulýðsstarfsnefnd, þeirri sem undirbýr æsku- lýðsdaginn á sunnudag, og við lögðum fyrir hana spurn inguna: Hvað virðist þér um Forsíða bæklingsins, sem æskulýðsnefndin gefur út. Krist? Ásta svaraði þvi til, að fyrst og fremst tryði hún á Krist, og ságði að margt hefði orðið sér ljósara og skýrara eftir að hún tók að starfa með æskulýðsnefnd inni. „Á þessum æskulýðs- degi, ætlum við að kynna hina venjulegu messu, og bæklingurinn, sem við gefum út, skýrir það.“ „Af hverju heldurðu, að ungmenni komi í kirkju?“ „Hugsazt getur, að þau lcomi af forvitni fyrst, seinna af þörf, og ég er viss um, að margt ungmennið mun sækja kirkjur á sunnu- daginn. En þessar messur eru þó engu síður fyrir hina eldri. í kirkjunni geta kyn- slóðirnar rnætzt." ★ Næst kom til mín Málfríð- ur Finnbogadóttir, 18 ára nemandi úr Kennaraskólan- um. Hún kvaðst vera í Ungl- ingadeild KFUK. Þær héldu fundi vikulega, þar sem væru flútt ávörp og erindi, og stundum væru saumafund ir og kvöldvökur með blönd- uðu efni. Framhald á bls. 27. HÖFUM 10-150 MANNA SALI FYRIR RÁÐSTEFNUR, FUNDI, SPILAKVÖLD, FERMINCARVEIZLUR, BRÚÐKAUPSVEIZLUR OC FLEIRA Sjáum um veitingar, mat og drykk. Dansgólf - Bar. FUNDARSALUR heill, tvískiptur eða þriskiptur Í—J. FUNDAR HERBERGI jW'j'o'j '-^y-SQZ SOi BAR SETUSTOFA ln [H| — i UPPLÝSINGAR f SÍMA 82200 rt • ívt*;; í ■ vj Ji f'í A

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.