Morgunblaðið - 05.03.1972, Page 12

Morgunblaðið - 05.03.1972, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1972 Tekjustofna- og skattafrum- vörpum ætti að vísa frá Alþingi — Frá umræðum í Borgarstjórn Reykjavíkur HÉR birtist framhald umræðna I Borgarstjórn Reykjavíkur frá því á fimmtudaginn, er til um- ræðu var áJyktimartillaga sjálf- Btæðismanna um sjálfstjórn Bveitarfélaga og tekjustofna þeirra, en í blaðinu í gær var ályktunin birt ásamt frásögn af framsöguræðu Geirs Ilallgríms- sonar, borgarstjóra. Steinunn Finnbogadóttir (SFV) Ikvaddi sér hljóðs næst á eftir borgarstjöra. Sagði hún tilgang- inn með tJUöguflutningi þessum yera að undirstrika málþöf Morg unblaðsins um skattamálin. Ástæðan sem lægi til grundvallar væri sú staðreynd, að borgar- Stjórnarmeirihl. Sjálfstæðisfl. styddist ekki lengur við ríkis- stjörnina í landinu. Þá kvað hún tafimar, sem orðið hefðu á af- 'gíreiðslu tekjustofnafrumvarps- ins í Alþingi, stafa af því, að tóm hefði verið gefið til að koma til móts við sjónarmið sveitarfé- laganna. Taldi hún ástæðulaust að óttast, að Reykjavíkur- borg fengi ekki nægar tekjur á árinu, enda hefðu tekjustofn- ar hennar ekki verið fullnýttir hingað til. Hún kvaðst vona, að tekjurnar yrðu nógar — reynsl- an myndi skera úr þvi. Kristján Benediktsson (F) sagði ummælii borgarstjóra um, að skipan nefndarinnar til að und irbúa tekjustoínafrumvarpið hefði verið stefnt gegn sveitar- félögunum, ekki fá staðist. Rakti hann síðan, hverjir hefðu setið í timræddri nefnd og taldi, að þeir menn hefðu ávallt verið hliðholl- ir sveitarstjómunum i landinu. Bongarfulltrúinn sagði ástæð- una fyrir því, hve seint frum- varpið hefði komið fram á Al- þingi vera, að fyrrverandi ríkis- stjóm hefði hundzað óskir Sam bamds íslenzkra sveitarfélaga um aukna sjálfsstjórn og skýrari verkaskiptingu milli rikis og sveitarfélaga. Óskir um gjald- skrárhækkanir Rafmágnsveitu, Hitaveitu og S.V.R. taldi hann vera óeðlilega miklar — of mikl- ar til að hægt væri að taka þær í einum áfanga. Þörfin á þessum hækkunum nú væri ein af afleið- ingum hrollvekjunnar svoköll- uðu. Þá taldi hann ótimabært nú að tala um, hvernig tekjustofna- frumvarpið kæmi út fyrir fjár- hagsáætlun borgarinnar, þar sem frumvarpið væri ekki enn af- greitt sem lög frá Alþingi. Enn- fremur mótmælti hann þvi, að frumvarpið skerti sjálfstæði sveitarfélaga. Mælti hann að lok um fyrir breytingartillögu, sem borgarfulltrúar Framsóknar, Al- þýðubandaiags og Samtaka frjáls lyndra fluttu við tillögu Sjálf- stæðismanna, i þá átt, að borg- arstjórnin lýsti ánægju sinni yf- ir tekjustofnafrumvarpinu og treysti því, að Alþingi og ríkis- stjóm standi hér eftir sem hing- að tii vörð um sjálfstæði sveit- arfélaga og tryggi þeim næga tekjustofna til að framkvæma þau verkiefni, sem þeim hverju sinni væri ætlað að leysa. Birgir Isleifur Gunnarsson (S) sagði, að þegar borgaæráð hafi byrjað að undirbúa gerð f járhags áæft'ilunar í október síðastliðnum hafi sá orðrómur komið upp, að ríkisstjómin hygðist gjörbreyta tekjustofnakerfi sveitarfélag- anna fyrir áramót. Þá hafi Kristj án Benediktsson sagt, að ekki kæmi til greina að pressa ætti fram slika gjörbreytingu með svo skömimum fyrirvara. Við þessa yfiriýsingu borgarstjórnar- fullitrúa eins stjórnarflokksins hafi fulltrúum r eirihlutans i borgarráði létt mikið og áfram hefði verið unnið að fjárhags- IJiætluninni með venjulegum hætti. Nú réðist þessi sami borgarfull- trúi í það lítt öfiundsverða hlut- verk að verja gerðir ríkisstjórn- arinnar gegn beinum hagsmun- um Reykjavíkurborgar og gegn hagsmunum umbjóðenda sinna. Ræðumaður sagði, að varla þyrfti að rif ja upp tilgang stjórn arskrárgjafans, er hann setti á- kvæði um sjálfsstjórn sveitar- félaga í stjórnarskrána.. Meg- insjónarmiðið fyrir því f yr- irkomulagi væri, að málefnum hvers héraðs væri bezt komið hjá fólikinu í héraðinu. Frum- kvœði fólksins á hverjum stað væri Iíklegast til að auka hag- sældina. Þetta hefði Samband islenzkra sveitarfélaga séð á- stæðu til að álykta um á fundi sínum 19. janúar sl. Nú gerðist það, að ríkisvaldið tæki tvo mála flokka undan sveitanfélögunum, jafnframt því, að draiga úr tekju möguleikum þeirra mun meira en þessum málaflokkum næmi. Hér kærni fram tiihneyging rik- isvaldsins til að ganga á sjálfs- ákvörðunarrétt sveitarfé’aga, en sú tilhneyging kæmi fram á ýms um fleiri sviðum. Hann sagði, að óvissa sú, sem ríkti um tekjur ársins væri mjög bagafeg. Ennfremur væri óvissa um, hvort hin ýmsu íþyngjandi ákvæði frumvarpsins stæðust fyr ir dómstólum landsins, hvað aft- urvirk áhrif þeirra varðar. Mjög liklegt væri, að einhverjir yrðu til þess að láta reyna á það. Birgir Isteifur Gunnarsson kvaðst hafa orðið fyrir vonbrigð- um með, hvernig afstaða ein- stakra fulltrúa í borgarstjórn til tillögu sjálfstæðismanna væri. „Finnst þessum borgarfuK'rrúum ekkert athugavert við, að nú, er tveir mánuðir eru liðnir af ár- inu, vita þeir ekkert um tekjur borgarinnar á árinu; að stórkost lega kemur til með að vanta á ráðstöfunarfé Reykjavíkurborg- ar á árinu; að skera þurfi niður framkvætmdir borgarinnar á ár- inu og að íbúar borgarinnar viti ekkert um fjárhagsafkomiu sí:ia á þessu ári?“ spurði borgarfull- trúinn að lokum. Adtla Bára Sigfúsdöttir (Ab) kvað það vera rétt, að ekki væri gert ráð fyrir nægjanlegum sveigjanleika í tekjustofnafrum- varpinu til handa sveitarfélögun- um. Sagði hún, að meira svig- rúm heíði mátt vera, hvað varð- ar álagningu aðstöðugjalda. Bar hún fram tiillögu þess efnis, að borgarstjórn beindi tilmælum til Alþingis um, að rýmkuð yrði heimildin til álagningár aðstöðu- gjaldanna. Meðfliutningsmaður hennar að tiliögu þessari var Kristján Benediktsson. Björgvin Guðniiindsson (A) kvaðst geta tekið undir flest atr- iðin í tililögu sjálfstæðismanna og myndi hann greiða atkvæði með tillögunni. Kristján J. Gunnarsson (S) sagði, að augljósit væri, að mjög hefði höndum verið til kastað við undirbúninginn á tekjustofna- frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Steinunn Finnbotgadðttir hefði sagt eittihvað á þessa leið: „Von- andi reynast tekjur nógar — reynzlan sker úr því.“ í þessum orðum bargarfullitrúans, sem raunar hefði átt sæti í nefnd- inni, sem samdi frumvarp- ið, mætti lesa þá óskhyggju, sem ráða virtist ríkjum hjá höfundum frumvarpsins. Steinunn hefði ekki haldið, að frumvarpið rýrði sjáiísstjórn- arrétt sveitarfélaga. Hún ætti að a'thuga í hvaða félagsskap hún og hennar flokkur væri í ríkis- stjórninni. Þar væri einn filokk- ur, Alþýðubandálagið, sem hefði það fyrir yfirlýsta stefnu að draga stöðugt fleiri mál undir ríkisva'dið. Þetta frumvarp væri enn eitt dæmið um áhrifamáitt þeirrar stefnu á stjórnarstefn- una. Sigur.jón Pétnrsson (Ab) kvað eína tillögu hafa komið fr-am á fundimum, sem væri raunhæf feið til úrbóta, en það væri til- lága Öddu Báru og Kristjáns Benediktssonar. Hann sagði það lengi hafa verið kröfu sveitarfé- Ikganna að fá skýrari verka- skiptingu milli ríkis og sveitar- félaga. Með tekjustofnafrum- varpi ríkisstjómarinnar væri ver ið að koma til móts við þessa kröfu. Þá saigði ræðumaður, að þörfin á gjaldskrárhækkunum Rafmagnsveitu, Hitaveitu og Stræitisvagna væri angi af hinu slœtma ástandi efnahagsmála, sem fyirrverandi rikisstjórn hefði skildð eftir sig. Ólafur B. Tliors (S) sagði, að nú væri svokölliuðu aðgerðarleysi fyrrvérandi rikisstjórnar kennt um, að tekjustofmamál sveitarfé- laganna hefðu verið komin í bráð an háska, svo mikinn háska, að nauðsyntegt hafi verið að gjör- byflta tekjustofnakerfinu i einu vetfangi, án þess að nokkur gæfi gert sér grein fyrir afleiðingun- um — um þær ynði aðeins að treysta á guð og lukkuna. Borg- arfiulltrúinn kvaðis-t ekki hafa skynjað þá bráðahættu, sem gerði slíkt írafár nauðsynlegt. Hvers vegna mætti ekki vinna að þessu máli á eðli'legan hátt og lláta lögin taka giildi árið 1973? Ó'afur B. Thors sagði, það rétt, að sveitarfélögin hefðu sjálf ósk- að eftir skýrari vedkaskiptingu milli rí'kis og sveitarfélaga. En í slikri ósk hefði ekki falizt beiðni um skerðingu á athafnafreisi og fjárhagslegu frelsi. Að svo miMu feyti sem skýrari verkefnaskipt- ing hafi fengizt í frumvarpinu væci því ekki mótmsalit. Það væri hin stórkositlega skerðing tekju- stofnanna, sem verið væri að mótmæla. Geir Hallgrímsson kvaðst vilja leggja áherzlu á vonbrigði sín með viðbrögð mininiihlutaÆlokk- anina við tillögunni. Þeir hefðu sagt, að bráðum kæmi í ljós hverjar afleiðingar frumvarpið hefði fyrir Reykjavíkurborg og Steinunm Finnbogadóttir hefði sagt, að vera mætti, að fasteigna- gjöld yrðu eitthvað meiri en út- reikningar sýna. Við undirbún- ing lagafrumvarpa, ekki sízt skattalagafrumvarpa yrðu memn að gera sér sem bezta grein fyrir því fyriirfram, hverjar af- leiðingar lagasetningin hefði. Borgars-tjóri sagði, að þótt tekið væri tillit til þeirra breyt- iingartillagna við tekjustofna- frumvairpið, sem meixi hluti heil- brigðis- og félagsmálanefndar Alþingis hefði lagt fram fyrr um daginn, væri fullijóst, að álagsheimildir sveitarfélaga væru takmarkaðar við það minmBta, eða jafnvel ennþá mimna, sera hægt væri að komast af með. Hamn ítrekaði, að sveigjamilediki þyrfti að vera í tekjustofmalög- um, veigná þess hvað hinir ýmrmu teikjustofnar gæfu misjafnilega mikið af sér á himum misnvun- andi gtöðuim á lan'dinu. Sú skerð- íng, sem nú væri gerð á frjálsu ráðstöfunarfé sveitarfélaganna, jafngilti skerðingu á sjálfstjórn þeirra, þar sem svigrúm til verfc- legra framkvæmda væri skert. Borgarstjóri sagði það rétt, að í frumvarpinu fælust gleggri skil á milli vei'kefna sveitarfé- laga og ríkisins. Um það atriði, í sjálfu sér, væri ekki ágrein- inigur, en hanin kvaðst vilja benda á, að með ályktunum sín- um í þessa átt hefðu sveitarfé- lögin viljað fá fleiri verkefni á sínar hendur en verið hefði. Krafa þeirra hefði verið, að fyrst yrði verkefnaskiptin'gin endursikóðuð og síðan yrði ákveðið um tekjustofnama á grundvelli þeirrar endurskoðun- ar. Adda Bára Sigfúsdóttir kvaðst vilja ítreka þá skoðun sdna, að til árangurs í málinu væri væn- legast að borgarstjótnn sam- þykkti tiliögu sína og Kristjáns Benediktssonair. Kristján Benediktsson sagði, að borgarfulltrúar Sjáll'stæðis- flokksinis ættu að geta samþykkt tiillögu sina og Öddiu Báru, þar sem í henni fiæhst nokkur gagn- rýni á ríkisstjórnina. Signrjón Pétnrsson ræddi gjaldskrárhEekkanirnar og sagð- ist vera þeim sammála, ef i ljós kasmi, að tekjur borgarsjóðs á árinu yrðu ekki nægar. Geir Hallgrímsson bar fram frávísunartillögu á tillögu Öddu Báru og Kristjáns Beniedilktsson- air á þá leið, að þair seim fyrir boirgarstjórninini lægi önnur til- laga, sem fæli í sér ályktun um sama efni, teldi borgarstjórnin ekki vera ástæðu til frekari ályktana. Að svo mæltu var breytingar- tillaga Alþýðubamdalagsins, Fram sóknar og Álþýðuflokksins við t’ilösu Siátfstæðii'sEiokk'sins fe’’d með 9 atkvæðum gegn 6 og til- laga Sjálifstæðisflokksins samþ. með sömu atkvæðum. Frávísun- artillaga Geirs Hallgríms'sonar var samþykkt, að viðhöfðu nafna kálli, með 8 atkvæðum gegn 6, en Steinunm Finmtoogadóttir sat hjá. Loftmynd af einu hinna nýju hverfa í Reykjavík. Viðskulumekki gleyma Hólum EKKI hefir heyrzt mikið í fjöl- miðlum frá Hólum að undan- förnu. Við heyrum forystumenn landbúnaðar auglýsa mjög, hve mikið fjármagn sé veitt til Hvanneyrar. Landbúnaðarskól- arnir eru alls góðs maklegir, en okkur Norðlendingum finnst heldur halla á Hóla í fjárútlátum hins opinbera, en þar þarf stór átök að gera í framtíðinni ef stað urinn á að vera starfi sínu vax- inn sem uppalandi bændaefna. Á Hólum eru nú 33 nemar, sem kennarar segja mjög efniiega, þar hefir verið og er hin ágæt- asta verkleg kennsla, ásamt öðru góðu kennaraliði. Ágætur félagsandi ríkir í skól- anum. Illa gengur þó að halda uppi málfundastarfi, en áður fyrr fengu margir piltar þar sína fyrstu þjálfun í að koma skoðun um sínum fram í mæltu máli. — Starfsemi ungmennafélaga og bændaskólarnir voru þá mikil- vægir aðilar í þroskun ungl- inga á því sviði. Nú er útvarp og sjónvarp tekið við öllum frístund um, enda sást það sl. miðviku- dag, er margt. af um 80 manna heimafólki á Hólum sat yfir sjón varpi meðan Harpan, blandaður kór frá Hofsósi, skemmti með ágætum sönig á staðnum. Árni Ingimundar frá Akureyri tekur nú að sér þjálfun pilta í söng um tíma. Fá þeir þar liinn ágætasta stjómanda sem völ er á. Skólapiltar eru nú farnir að temja hross, sem þeir hafa með sér, og eru 14 ungviði nú þegar tekin í þjálfun af þeim. Auk þess er ráðsmaður búsins, Magnús Jó hannsson, með 7 hryssur og 5 stóðhesta í tamningu fyrir búið. Má því sjá margan á hestbaki um þennan tíma heima á Hólum. Bústofn á staðnum er nú 540 fjár, 72 hross og 22 kýr. Fjósið og ræktun nautgripa þar hefir lengi verið áhyggjuefni skóla- stjóra og ráðamanna á Hólum, en þar þarf mikið fjármagn til uppbyggingar. Það hefir þó ekki legið á lausu. Margt þarf að gera til viðhalds og uppbyggingar skólasetri, sem Hólum, og erum við Norð- lendingar allt annað en ánaegðir, ef Hólar eiga að vera hálfgerð hornreka, við viljum alltaf geta sagt með stolti: Heim að Hólum. Ennþá setur svip sinn á Hóla- stað öldungurinn Friðbjörn Tmustason, fyrrverandi kennari þar. Hann gengur enn um næstum beiinn í baki þótt ekki sé hann eins kvikur og áður var, en jafn- vel aldraðir Hólameinn muna hann sem söngkennara sinn og hressilegan félaga. Hin rammís- lenzka tryggð við æskustöðvar feemur einmitt glögglega fram hjá þessum aldna heiðursmanni. Heilbrigði hefir verið á staðn- um í vetur og ánægjulegt heim- ilislPf. — Björn í Bæ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.