Morgunblaðið - 05.03.1972, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1972
. . . OG MANNIX FKKK
LlKA VERÐLAUN
>á íékk annar góökunningi,
Mike Connors, betur þekktur
úr Mannixmyndum verðiaun
íyrir frammistöðu sína í þeim
sjónvarpsmyndaflokki. Með
honum á myndinni er leikkon-
an Eiizabeth Ashiey.
ÚTHLUTAÐ GULLHNÖTTUM
Þeir gera sér alltaf eitthvað
til hátíðabrigða í Hollywood og
úthluta viðurkenningum og
verðlaunum öðru hverju. Ný-
lega var „GuUhnöttunum" út-
hlutað og var þessi mynd tek-
in þá. Ali Mac Graw, sem les-
endur þekkja úr Love Story
var kjörin „vinsælasta leikkona
hnattarins" og Topol var kjör-
inn bezti söngleikjaleikarinn.
Með þeim á myndinni er Ging-
er Rogers, sem gat sér frægð í
dansmyndum fyrir 20—30 ár-
um, en hefur iítt komið við
sögu síðustu áratugi, enda
nokkuð farin að reskjast. Við
hlið hennar er svo þúsund-
þjalasmiðurinn Peter Ustinov.
FARA NIXONDÆTUR
TIL KÍNA
Dætur Bandaríkjaforseta
hafa sagt að ekki sé með öllu
ljóst hvort þær geti þegið boð
Chou En-lais um að koma í
heimsókn til Kína með eigin-
mönnum sinum. Eiginmaður
Triciu, Edward Cox, er við há-
skólanám, en maður Julíu,
David Eisenhower, gegnir her-
þjónustu um þessar mundir.
HEIMAHÚSUM
Vilji tónlistarunnendur njóta
hljómlistar heima væri kannski
ekki úr vegi að útvega sér
mini hljómleikasal. í Bandarikj-
unum hófst framleiðsla á slík-
um útbúnaði sem sést á mynd-
inni og inni í stólnum er flók-
inn hátalaraútbúnaður og
hljómburður er sagður mesta
afbragð. Og það ætti ekki að
skemma að stólinn er hægt að
fá í ýmsum litum.
Bomba í vélinni eftir allt - leikkonan Britt Ekland
Tímasprengja!! Tikkið heyrist greinilega.
I»egar Barbara kom heim af faeðingardeildinni með soninn.
BARNARDH.IÓNIN
EIGNUDUST SON
Suður-afríski hjartaskurð-
læknirinn og glaumgosinn
Christian Bamard og hin unga
eiginkona hans, Barbara, hafa
fyrir nokkru eignazt sitt fyrsta
barn, og var það drengur.
Skömmu eftir að frúin ko.m
DÖNSK PÍA GIFTIST
BREZKUM PRINS
Dönsk stúlka frá Fjóni, Bir-
gitte van Deurs og Richard
prins af Gloucester, náfrændi
Elizabetar Bretadrottningar,
hafa opinberað trúlofun sína
og munu gifta sig í sumar.
Prinsinn er númer tíu í röðinni
sem erfingi brezku krúnunnar.
Þau Birgitte og Richard hafa
þekkzt í fimm ár. Þau kynnt-
ust í téboði í Oxford á sínum
tíma, þegar hún var þar við
Twiggy og prinsessan
ANNA HEILSAÐI UPP A
TWIGGY
Anna Bretaprinsessa hefur
mikið gaman af að íara í kvik-
myndahús, rétt eins og móðir
hennar. Fyrir nokkru var hún
viðstödd frumsýningu á mynd-
inni „The Boy Friend" og á
eftir heilsaði hún upp á aðal-
leikkonu myndarinnar, Twiggy,
fyrrverandi sýningarstúlku. —
Frammástaða Twiggy i mynd-
inni þykir mjög góð.
heim aí fæðingardeildinni héldu
þau hjón í hressingar- og
skemmtiferð til Brasiláu, enda
hefur Bamard átt erfitt með að
eira á sama stað, eftir að hann
varð frægur og boðin tóku að
streyma til hans úr ölium
heimshornum. Þau tóku soninn,
þótt ungur væri, með sér í reis-
um.
málanám, en hann lagði stund
á arkitektúr. Tókst með þeim
hin ágætasta vinátta og í stað
þess að halda heim til Dan-
merkur að námi loknu, fékk
Birgitte stöðu í danska sendi-
ráðinu í London og þar hefur
hún unnið siðan. Elízabet
Bretadrottning þarf að sjálf-
sögðu að leggja blessun sina á
þennan ráðahag frænda síns og
gerði hún það umyrðalaust,
enda þótt Birgitte sé ekki með
blátt blóð í æðunum.
NÝ MAGATÍZKA
Nýtt fyrirbrigði er að ryðja
sér til rúrns í Bretlandi, að
fróðra manna sögn, svokölluð
magatízka. Það var ung og
framagjörn stúika, Gail nokk-
ur Quested, sem kom fram með
hugmyndina, sennilega til að
vekja athygli á sjáifri sér frek-
ar en tízkunni. En fyrdrbærið
hefur sem sagt fengið forkunn-
ar góðar undirtektir.