Morgunblaðið - 27.04.1972, Síða 12

Morgunblaðið - 27.04.1972, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1972 „Verða að berjast gegn mér af alefli66 Segir Muskie eftir ósigrana McGovern sigurvegari dagsins Boston og Philadelphia, 26. apríl — AP-NTB „ANDSTÆÐINGAR mínir verða að berjast af alefli ætli þeir að konia í veg fyrir að ég hljóti útnefninguna sem forsetaefni demókrata,“ sagði Edmund Muskie, öldunga- deildarþingmaður frá Maine, eftir að hann hafði tapað prófkjörunum í Massachus- etts og Pennsylvaníu fyrir George McGovern og Hubert Humphrey. Stjórnmálafréttaritararnir segja þessa ósigra gífurlegt áfall fyrir Muskie, en engan bilbug er að finna á Muskie sjálfum. Sigurvegari dagsins var Mc Govern, sem fékk 52% atkvæða í Massachusetts og þar með fylgi allra 108 fulltrúa fylkisins á flokksþinginu í Miami 10. júlí þar sem forsetaefnið vérður val- ið. Eftir kosningarnar í gær hef- ur McGovern hlotið flesta full- trúa, eða 234, Muskie hefur 128 og Humphrey 81. Stuðning 1509 fulltrúa þarf til þess að hljóta út- nefninguna á flokksþinginu. Muskie hlaut aðeins 22% at- kvæða í Massachusetts. I Peninsylvaniu sigraði Hubert Humphrey, fékk 35% atkvæða, Wallace og Muskie fengu 21% hvor og McGovem kom á hæla þeirra með 20%. Þess skal getið, að McGovern háði nær enga kosningabaráttu í Pennsylvaníu, en einbeitti sér að Massachus- etts. Muskie skipti sér hins veg- I fréttaritara að þau skipulagsmis- ar á milli fylkjanna og hefur nú tök hafi orðið til þess, að hann sannazt sá spádómur stjómmála- I tapaði báðum kosningunum. George McGovern — Parísarviðræður Framhald af bls. 1 Kissinger ráðgjafa Nixons for- seta. Athygli vekur, að viðræðurn- ar í Paris eru teknar upp svo skömmu e.ftir leynilega ferð Kissingers til Moskvu, en blaðið Washington Post upplýsti í dag, að Sovétstjórnin hefði á sínum tíma átt talsverðan þátt í því, að Parísarviðræðurnar hófust. Sam- tímis hafi Sovét.menn séð stjórn- inni í Hanoi fyrir miklu magni nýtízkulegra vopna. Bandaríkjaforseti ákvað 23. marz sl. að hætta þátttöku í Parísarfundunum til þess, að hann sagði, að „reyna að stöðva þriggja og hálfs árs málþóf Norð- ur-Víetnama.“ Lagði hann þó jafn framt áherzlu á, að Bandaríkja- menn væru reiðubúnir til raun- verulegra samningaumleitan.a, Sjómaður — lista- maður, snillingur - Ummæli Sigurðar Bjarnasonar * sendiherra Islands, um Jóhannes Kjarval í Berlingske Tidende Kaupmannahöfn, 26. apríl. Frá fréttaritara Morgunbl., Gunnari Ryt'gf -d. Berlingske Tidende birtu í dag minningargrein um Jó- hannes Kjarval eftir Sigurð Bjarnason, sendiherra íslands í Kaupmannahöfn. Voru þar fyrst rakin æviatriði lista- mannsins, frá því hann var ungvir bóndasonur og sjómað- ur, þar til hann gerðist einn af ástsaslustu listmálurum ís- lendinga, og þekktur sem stór brotinn listamaður «m öll Norðurlörid og víðar. Siðar segir í grein sendi- herrans: Jóhannes Kjarval var ó- gleymanlegur persónuleiki, i-ár og grannur, augun leiftr- andi og svipurinn mikilfeng- legur. Plann var engum öðr- um líkur. Sumum fannst á stundum sem hann talaði ó- ljóst. En hann var fjölgáíað- ur, stundum dálítið bæðinn, skáldmæltur og skrifaði sér- kennilegar ba?kur og spaugi- leg Ijóð. Hið íslenzka landslag var líf hans og yndi, hraunið, mos- inn og fjöllin. Inn í landslags- myndir hans blönduðust svo ævintýrið, huldu.fólkið, tröll og hafgúur. Jóhannes Kjarval var í senn snillingur og barn. Verk hans voru eftirsóknarverðustu og dýrmætustu málverk þjöð- arinnar, en hann átti oft til með að gefa þau vinum sín- um, bílstjóranum sínum eða þvottakonunni. Hann elskaði í.slai.d og nátt- úrufegurð. Hið mikla haf og hina bláu strauma þungra vatna. Við and’át Kjarvals lýkur merkum þætti í íslenzkri lista sögu og menningarlífi. En.g- inn myndiistarmaður hefur markað dýpri spor í ís'.enzku mennin.garlifi. Það er Islendingum gleði- efni, að Kjarval var ve! þekkt ur meðal frændlþjóðanna á Norðurlöndum, ekki sízt hér í Danmörku. Hér eiga margir listaverk eftir hann, og hér var sérkennileg og stórbrotin list hans míkils metin. í lok greinarinriar getur Sig urður Bjarnason þess, að bæði börn Kjarvais og Tove Kjarv- als, rithöfundar, konu hans, Sveinn Kjarval arkitekt og Aase Lökken, keramikker, séu nú búsett í Danmörku. Jóhannes Sveinsson Kjarval hefur iokið sinni löngu veg- ferð gegnum lífið og listina. En verk hans lifa fram um aldirnar. ísland og öll Norð- urlönd hafa misst einn af sín- um stærstu sonum, sagði sendiherrann i lolk greinarinn- ar í Berlingske Tidende. bæði eftir opinberum og leyni- legum leiðum. Fyrir rúmri viku lýstu bæði William Rogers, utanríkisráð- herra, og Melviin Laird, land- vamaráðherra Bandaríkjanna, því yfir, að viðræðurnar í París yrðu ekld teknar upp aftur fyrr en sókn N-Víetnama í S-Víetmam hætti. Sögðu þeir, að sendinefnd N-Víetnams og Víet-Cong notuðu fundina til þess eins að koma á framfæri áróðri sínum og sýndu enga raunverulega viðledtni til að leysa málin. Utanríkisráðherra N-Víetnamis, Xuan Thuy, hafði á hinn bóginn lýst því yfir á blaðamannafundi 17. apríl sl., að Le Duc Tho gæti farið til Parísar, til áframhald- andi leyniviðræðna, ef Banda- ríkjamenn féllust á að taka aft- ur upp hina vikulegu fundi þar og hætta jafnframt loftárásun- um á N-Víetnam. Nú hefur stjórn N-Víetoams fallið frá kröfunni um að loftárásum verði hætt og Bandaríkjastjórn f.rá sinmi kröfu um að sókn N-Víetnam.a í S-Víet- nam linni. AP hefur eftir Charles W. Bray, talsimanni utanríkisráðu- neytisins í Washimgton, að ekki sé víst, að viðræðunum verði haldið áfram eftir fundinn á morgun, það fari alveg eftir því, hvort þar komi fram einhver alvarleg viðleitni til samninga. Sem fyrr segir, hefur blaðið The Washington Posit skýrt svo frá, að Sovétstjórnin hafi „á nofekrum erfiðum augnablikum“ lagt hönd á plóginm í því skyni, að koma á friðarviðræðunum i París, samtímis því, sem hún sá Hanoi-stjórninni fyrir nýtízku- legum vopnum til þess að mota í Víetnam. Blaðið segisf byggja þessar upplýsingar á skýrslu, dagsettri 21. desemtoer 1969, sem hafi verið unnin fyrir öryggisráð bandaríska ríkisins. Virðist mega ráða af frétt AP um mál þetta, að skýrsla þessi sé sú hin sama, sem New York Times, News- week og dálkahöfundurimn Jack Anderson hafa áður birt kafla úr. Þar er að finma almennt yfirlit yfir styrjöldina í Víetnam um þær mundir, sem viðræðurnar í París voru að hefjast og Banda- ríkjamenn að draga úr loftárás- um sínum á N-Víetoam. í skýrslunni er talað um, að Valerian Zorin, sendiherra Sovét- ríkjanma í Washington, og Valem- tin Oberemko, sendiherra þeirra í París, hafi verið milligöngu- menn um að viðræðurmar hæf- ust. Þá hafi hins vegar stjórnirnar í Moskvu og Hanoi harðmeitað því, að Rússar ættu þar nokkurn hlut að máli. — í skýrslunmi segir, að Hanoi-stjórn- in hafi ekki gefið Sovétstjórn- inmi neitt neitunarvald varðandi tilraunir til að hefja viðræðurn- ar, en haft er eftir William P. Rogers, utanríkisráðherra, að hún hafi engu að síður gegnt veigamiklu hlutverki í þeim efn- Fishing News; Gagnrýnir land- helgisbæklinginn I LEIÐABA brezka blaðsins Fishing News 7. anríl sl. er fjallað nm „áróður“ fsleiul- inga til að réttlæta útfærslu landlielginnar og hann gagn- rýndnr liarðlega. Leiðarinn fjallar um bækling, sem Hann es .lónsson blaðafnlltriii ís- lenzkn ríkisstjórnarinnar bjó til prentunar. I leiðaranom er spurt hvað verði um frið og öryggi fiski- manna þeirra landa, sem verst verði úti veigna útfærsl- unnar. Er í þessiu sambandi vitn-að til ummæla Ólafs Jó- hannessonar forsætisiráðherra í lanidhelgisiumrseðiunum á Al- þingi, þar sem hann sagði: „Islendingar hafa ætíð orðið að berjast fyrir rétti sinum. Þeir hafa aldrei fengið neinu framgemgt mieð öðrum hætti. Eins og áður verða þeir nú að tala það mál, sem kemur andstæðingum okkair í skiln- ing um að okkur er alvara. Það þýðir ekkert að tala tæpi- tungu, slikt hjálpaði aldrei í sjálfsitæðisbaráttu Islend- inga.“ Þá segir að Mklega hefði bæklingurimn orðið ísilending- um að meira gagni, ef hann hefði verið takma.rkaðiur við nokkrar blaðsíður, en ekki 48 síður og ef höfundurinn hefði staðizt þá freistingu að vitna í svo alvitran mann uim f.reis- ið á hafinu, eins og Lee Met- calf, öldunigadeildarþing- mann frá Montanafylki, sem hvergi liggur að sjó. Þá segir í leiðaranum að það sé leiðinlegiur galli á þess- um opinbera bæklingi, hvern- ig farið sé í kringum sann- leikann. Notaðar töb.ir og stað reyndir algerlega slitnar úr samhengi úr greinum, sem skrifaðar hafa verið í erlend- um fjölmiðliuim, þar sem fek- ið hefur verið undir staðhæf- ingar íslendinga unn rányrkju erlendra fisikimanna á Islands miðum, þar sem brezkir fisiki- menn eru höfuðpauramir. M. a. segi í bækhn.gnium að fyrir nokkru.m áruim hafi sild verið um helmingur heildar- afla íslendinga, en nú hafi stofninn verið þurrausinn vegna rányrkju margra er- lendra þjóða. „Þessar mörgu þjóðir, segir Fishing News, „voru auðvitað íslendingar og Norðmenn, sem sín á mi’lli veiddu um 4/5 af himum gif- urlega magni Atlantshafssild- arinnar." Leiðaranum lýkur á eftir- farandi hátt. „Skipaskráningabækur — Lloyds eru notaðar sem heim- iidir, þar sem segn að Bretar áttu aðeins 9 to-gara yfir 900 lestir árið 1963, en 1969 hafi þeir verið orðnir 31. Hins veg- ar er ekkert á það minnzt, að stóru skipin eru frystitogarar, sem sjaldnast veiða á íslands- miðum. Þessi staðreyndaleit, leiðir til nokkurra athyglisverðra andstæðna. Á bls. 9 er okk- ur sagt að stórveldin styðji minni fisikveiðilögsögur, til þess að þau geti sent hin risa- stóru og velútbúnu verik- smiðjuskip, sem næst strönd- utm strandríkjanna. Á bls. 6 er aftur á möti bent á það að meiri fjárfesting sé að baki eins i.slenzks sjómanns en hjá flestum öðrum fiskiveiðiþjóð- um. Hann notar aðeins beztu skip, tæfeni og tæfei. Hann veiðir meiri fisk en sjómenn annarra þjóða og 1969 var afl- inn 143,3 lestír á hve-rn ís- lenzkan sjómann, miðað við 60—90 lestir á sjómann hjá „stórveldunum með stóru ný- tízku fisfeiskipaflotana." — Vietnam Framhafel af bls. 1 Ein þeirra var á þorpið Thrung Lap, sem er um 32 km fyrir norð vestan Saigon. Af hundrað hús- um í þorpinu stóð aðeins eiti uppi í dag og fyrir utan dyr hússins lá tveggja metra löng ósprungin sprengja. Lykilstaða S-Víetnama í strand héraðinu Phu My við þjóðbraut 1 hefur verið undir stöðugri árás í nær sólarhring, að þvi er frétta- menn AP segja. Þeir herma og að hermenn N-Víetnama hafi ein angrað bæ einn í Bong Song- héraði og neytt óbreytta borgara með vopnavaldi til að starfa fyr- ir sig. Enn standa bardagar við borg- ina An Loc, sem er um 95 km norður af Saigon. Var hún undir nær stöðugri skothríð N-Víet- nama í allan gærdag. — V-Í»ýzkaland Fratnhald af bls. 1 að nokkrir þingmenn Frjálsra demókrata, — ti.lgreindír eru Wolfram Dorn, Wilhelm Helms, Knut Von Kúhlmann-Stumm og Gerhard Kienbaum — greiði at- kvæði með stjómarandstöðunni. Þorir eimginn að spá um úrslit þessa máls. 1 NTB frétt frá Möskvu segir að Nikolai Podgorny haf'i tjáð nýskipuðum sendiherra Vestur- Þýzkalands í Moskvu, er hann afhenti forsetanum trúnaðar- bréf sitt, — að Sovétstjórnin muni ekki ganga til nýrra samn- inga við Vestur-Þjóðverja um griðasáttmála. Sagði Podgorny, að Sovétstjórnin væri reiðubúin að uppfylla öll ákvæði austur- samninganna og starfa í fuliu samræmi við anda og bátestaf þeirra. Lögreglan v-þýzka hefur uppi talsverðan viðbúnað við þin.ghús- ið í Bonn, þar sem búizt er við því, að mannfjöldi safnizt þar saman meðan atkvæðagreiðslan fer fram, og jafnvel þegar i kvöld eða nótt. Egon Bahr, ráðuneytisstjóri, sem hefur verið i Austur-Berlín að ræða samgöngumálin milli A- og V-Þýzkalands flaug í skyndi í dag til Bonn, þar sem hann ráðfærði siig við Brandt og Walter Soheel, utanríkksráð- herra. Var uppi orðrómur um það í Bonn, að viðræðurnar um samgöngumiálin væru alve'g á lokastigi og hann hefði feomið til að fá endanlegt samþyikki stjórn- arinnar, áður. en hann skrifaði undir. Er talið hugsanlegt, að slá'kt -gætí haft einhiver áihrif á atkivæðagreiðsluna á morgun. Camre játar sök Kaupmanmahöfn, 26. april. — NTB. — DANSKI þingmaðurinn Mog- ens Camre játaði fyrir rétti í dag, að hann hefði gerzt sekur nm að hafa ólöglegt vopn í fórum sínum. Hann neitaði hins vegar að vera sekur um ólöglegan vopnaflutaing inm í Dan- mörku. Skammbyssa fannst í farangri Gamres á Kastirup- flugvelli, þar sem hann var að bíða eftir flugfari til Austur- ríkis, en Camre hafði rétt áð- ur komið frá Stolkkhólmi. — Byssuna var Camre að geyma fyrir vin simn, að því er hann segir. Mál þetta vakti mikið umtal er það komat upp 18. októbar sl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.