Morgunblaðið - 27.04.1972, Page 17

Morgunblaðið - 27.04.1972, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. APRlL 1972 17 Þorvaldur Gardar Kristjánsson, alþingismaður: Fasteignaskattar og réttlæti ríkisstjórnarinnar Við setoimgu hinna nýju skattalaiga héldiu stjórnar- liðar fram, að þeir væru að létta skattbyrðum af þeim, sem verst væru settir í þjóð- félaiginu, en að sama skapi að leggja þyngri byrðar á hina með breiðu bökin. Frá þessu sjónarmiði sögðu þeir fjór- fjö’.dun fasteignaskattsins vera réttlætismál. En hvert er nú þeirra réttlæti? Fasteignaskatt'ur þýðir, að ein tegund fjármunamyndun- ar er skattlögð umfram aðrar. Þótt ménn kunni að 'greina á um fasteiignasikatta, fer þess vegna naumast milli mála, að fasteignaskattur er til þess fallinn að draga úr f jármuna- myndun í húsbyggimgum, íbúðarhúsum og bygigingum í þágu atvinnuveganna. Af þessu leiðir, að fas-teignaskatt ur er til þess fallinn að örva fjármiunamynidun á einhverj- um öðrum sviðum, svo sem t.d. til að örva kaup verð- bréfa eða hlutabréfa. 1 fram- haldi af þessu má þá spyrja, hvort ájstæða sé tii að skattleggja meir þá fjármuni, sem eru bunidnir við jörðina, en hina, sem geymdir eru í bankahólfum eða peninga- skápum. Fasteignaskattur hefir eitt það einkenni, sem skilur á milli hans og ancnarrar s!katt- heimtu. Fasteignaskatturinn er lagður á án' tiliits til hinn- ar raunverulegu eiignar gjald andans. Aftur á móti er önn- ur skattheimta eftir hlut 'gjaidandans, hivort h-eldur er í eign, tekjum eða neyzlu. Þannig er söluskattur greidd ur eftir þvi, hve neyzta gjald anda er mikil. Tekjuskattur og útsvar eru greidd í álkveðnu hlutfalli við tekj'ur gjald- anda. Og eignarskattur er greiddur af eignarf jármunum að frádregnum skuldum gjaldanda eða nettóeiign. En fasteignaskattur skai greiðast jafnt af fátœka manninum, sem á fasteign sína í sk'uld, og hinum rí'ka, sem á fasteign sína skuldlausa. Fasteignaskattur kemur nið ur á atvinn'uvegunum með af- ar mismunandi hætti. Það er mjög mdsjafnt, hvað atvinnu- reksturinn þarf á miklum fast eignum að halda. Sá atvinnu rekstur sem við oft köll- um framleiðsluatvinnuvegina, þarf á mestum fasteignum að halda. Það er sama, hvort það er í sjávarúbvegi eða land- búnaði, hvort það eru hrað- frystihús og fiskimjölsverk- smiðjur eða peningshús og sláturhús. Fasteignaskattur beinist fyrst og fremst að þeim atvinnuvegum, sém leggja verða mest í fasteign- Þorv. Garðjir Krist.jánsson. ir. Og innan einstakra at- vinniugreina getur skattur- inn einnig komið mjög mis- jafnt niður, svo sem t.d. i verzlun. 8ú verzlun, sem fæst mest við svokailaða nauð- synjavöru, þarf alla jaftnan mest á fasteignum að halda við reksturinn. En það er hægt að reka umfangsmi'kla verzlun með munaðarvörur án þess að umtalsverðar fast- eignir þurfi að koma til. En svo mjög sem áhrif fasteignaskatts eru vafasöm á atvinnureksturinn i landinu, þá fær almenningur fyrst oig fremst smjiörþefinn af honum í formi skattlagningar ibúðar húsnæðis. Þetta á við allan fjöldann. Það er algengara, að einstaklingar eigi sitt eigið íibúðarhúsnæði hér á landi held ur en nokkurs staðar annars staðar í nálægum löndum. Þetta er svo algengt, að ann- að telst nálega til undantekn ingar. Þetta er almenna regl- am, hvort heddur það eru efn aðir borgarar eða 'fátækt fólk. Það stefna allir að því að koma sér upp þaki ytfir höf uðið. Og það er mikið álag á margt fólik og ekki sízt það, að sjálfsögðu, sem verst er sett fjárhagslega, fátækt launafólk. En þetta fólk hef- ir sýnt, að það hefir dug og þrek til þess að framkvæma þetta. Það framikvæmir þetta oft á tíðum með nærri ofurmannlegri vinnu, spar semi og hagsýni. Með fjór földun fasteiignaskatts er veg ið að þessu fólki. Höggvið er þar sem hlífa skyídi. Allir þurfa þak yfir höifuð- ið í einhverju formi. Hækkun fasteignaskattanna aftrar ekki þeim, sem eru vel efnum bún- ir að búa í eigin húsnæði. En hinum fátæku er gert erfitt fyrir. Stefnt er því i átt til þess, að eigið húsnæði verði forréttindi hinna efnameiri en leiguhúsnæði hl'Utskipti hinna, sem minna mega sín. Stefnt er frá jöifnuði þeim og dreifinigu þjóðarauðsins, sem fylgir hinni almennu íbúðareign, til eignaraðildar á færri höndum. Þetta kemur sérlega hart niður á umgu fólki, sem er að hefja búskap og vill koma sér upp eigið húsnæði. Það hefir þótt á undaniförnum ár um ærið átak. En nú er ekki látið við það sitjá að marg- falda fasteignaskattinn af þessu húsnæði heldur jafn- framt er þetta fióik svipt rétt- inum til að draga frá til út- svars vexti af lámum þeim. sem það hefir þurft að taka tii að koma upp húseign sinni. Þegar svo er komið, þarf emgan að undra, þó að margur ungur maður fari að hugsa sig vel 'um, áður en hann tek- ur á sig byrðar þær, sem nú fyleja því að koma sér upp eigin 'húsnæði. Þessu er ekki til að dreifa með þá, sem eldri eru. Gamla fólkið hefir þegar tek ið sína ákvörðun. Það hefir lagt á sig það erfiði, sem fylgdi þvi að koma sér upp þaki yfir höfuðið i trausti þess að njóta þess á elliárun um. En með hinni mikliu hæfck ún fasteignaskattsinis er í fjölda tilfella stefnt i voða möguleikum þessa fólks til að halda íbúðum sínum. Þessu fólki er gert ökleift að njóta þess, sem það hefir lagt á sig oft á tiðum alla starfsævina. Gamalt fól'k, sem lifir af ellistyrk símum og e.t.v. því, sem það hefir sparað af naum um laúnatekjum á löngum starfsdegi, stendur ekki und- ir þessari auknu byrði og verður því að grípa til þess úrræðis að losa sig við eigið húsnæði. Öðru máli gegn- ir með þá, sem eru vel efnum búnir. Þetta heitir réttiæti á máli stjórnarsinna. Hér hefir verið fjallað um fasteignaskatt og réttiæti rík- isstjórnarinnar. Slæmt er þeirra ranglæti, en verra er þeirra réttlæti. Johan Jörgen Holst — Hinn smái og hinn voldugi I: Norrænt öryggi og þróun f lota- mála á NA-Atlantshaf i Við erum nú á breytingar- tímum í samskiptum ríkja í Evrópu. Skipulag og starfs- aðferðir fortíðarinnar verða vafalaust ekki fyrirmynd framtíðarinnar. En sérhver breyting krefst mats á reynislu hins liðna. Við kunn um að vita, hvar við erum og hvernig við komumst hing að, en við vitum ekki, hvert við höldum. Á slíkum tímum kunna vonir og draumar heið arlegra manna að vera langt á undan atburðum samtíðar- innar. Við getum ekki gert upp hug okkar og greint al- gjörlega á mi'lli þekkingar- innar á því, sem gerzt hef- ur, og draumsýnarinnar um framtíðina. Á tímum eins og þessum er sérstaklega mikilvægt, að fyigjast með stefnu og þró- un ytri krafta í því skyni að laga stjórnmálastefnur að kröfum framtíðarinnar. Lðndin umhverfis Noregs- haf eru öll þátttakendur í þeim breytingum, sem nú eru að gerast á alþjóðavettvangi. Sérstaklega er mikilvægt að átta sig á þessum breyting- um, þar sem svo margir þætt- ir alþjóðamála tengjast á þessu svæði. Fyrirhuguð stækkun Efnahagsbandalags Evrópu við aðild Dammerk- ur, Noregs, Írlands og Bret- lands að því mun skapa nýj- an vettvang og áður ókunna staðreynd í evrópskum stjórnmálum, ný rikjatengsl og skuldbindingar. Hraðinn og þunginn í endurreisn Vest ur-Evrópu mun að nokkru leyti ráðast aJ því, hvernig skuldbindingum Banda- rikjanna gagnvart Evrópu verður háttað. 1 þvi efni mun þáttur íslands skipta miklu, hvort sem hann verður efn- islegur eða formlegur. Auk- in óvissa um getu Bandaríkj anna til afskipta í Norður- Evrópu leiðir óhjákvæmilega til þess, að jaðarríki Evrópu, eins og Dajimörk og Noreg- ur, verða að treysta stöðu sína í álfunni. Einnig eru, líkur á endur- reisn í samskiptum austurs og vesturs í Evrópu. Við er- um ekki við hlið Nirvana, heldur stöndum við frammi fyrir tímabili, þar sem fom- ir múrar hugmyndafræðilegr ar kreddu og landskiptingar munu riðlast. Við verðum einnig að átta okkur á landa merkjum: Hver eru landfræði leg mörk þeirrar Evrópu, sem er í mótun? Hvernig er unnt að stuðla að breytingum án þess að raska samtímis því öryggi og þeirri ró, sem skap azt hefur? Mér virðist, að öll ríki í Bvrópu þ. á m. jaðarrikin við Noregisfhaf séu skuldbundin til að meta aðgerðir sínar inn an ramma samevrópskrar þró irnar. Þess vegna verða að- gerðir í innanríkismálum ein stakra ríkja oft að miðast við framvindu endurreisnarinn- ar í Evrópu, til þess að þær stangist ekki á við viðtekið skipulag og almennan stöðug leika. Bandaríkin hafa tryggt ríkjandi frið í Evrópu. Traustið á þessa tryggingu byggist að verulegu leyti á því, að þær hernaðar- legu skuldbindingar, sem ætl að er að koma í veg fyrir forystuhlutverk Sovétríkj- anna í evrópskum stjórnmál- um séu augljósar og fyrirsjá- an'legar. Flókið jafnvægi að- halds og skuldbindinga, sem hefur skapazt í Norður-Evr- ópu virðist vera í beinum tengslum við það, að Banda- ríkjunum takist með afskipt um sínum að koma i veg fyr- ir, að Sovétríkin hljóti stjóm málalegan ávinning af svæðis bundum hernaðaryfirburð- um. Traustið á, að Bandarík- in geti staðið við skuldbind- ingar sínar, byggist að mjög verulegu leyti á dvöl Banda ríkjamanna á íslandi. Ógnarjafnvægið og jafn vægið í gagnkvæmum viðbún aði, sem rikir milli risaveld- anna tveggja, er nú til um- ræðu í samningaviðræðum milli Washington og Moskvu. Svo vill til, að alvæpnið, sem er grundvöllur jafnvægisins, nær til — og það í æ ríkara mæli — vopna á hafi úti, sem eru á Noregshafi eða nauð- synlegt að flytja um það. Samningaviðræðurnar um takmörkun gereyðingar- vopna, eru nú á viðkvæmu stigi, þegar búast má við ým- iss konar þáttaskilum. Eftir- litsstarfið á hafi útl, sem unn ið er frá Keflavík á Islandi og Andey í Noregi, er þátt- ur í heildarmyndinni, sem mótar jafnvægið milli ris- anna. Þannig gæti stöðv- un og/eða endurmótun eft- irlitsstarfsins frá þessum tveimur jaðarlöndum Evr- ópu haft áhrif á vilja og áhuga risaveldanna í viðræð unum um takmörkun gereyð- ingarvopna (SALT), einkum þar sem í starfinu felst eftir- lit með siglingum kafbáta, sem búnir eru langdrægum kjarnorkueldflaugum. Liklegt er, að hernaðarlegt gildi adls Norðurheimskauts- svæðisins aukist, þegar fram líða stundir, vegna tækniþró unarinnar við smíði lang- drægra vopna; nýtingu nátt- úruauðlinda á landssvæðinu við Ishafið og á landgrunni þess og þeirra nýju sam- gönguleiða miHi iðnkjarna veraldarinnar, sem verða til í tengslum við þetta. ★ Lítum þá nánar á þau her stjórnarlegu vandamál, seom eru í tengslum við þróunina á Norðaustur-Atlantshafi að mínu mati. Ég mun leitast við að draga fram forsendur stefnumótunar en ekki setja fram ákveðna stefnu fyr- ir ríkin umhverfis Noregs- haf. í upphafi verður að hafa hugfast, að eitt af jaðarríkj- unum á þessu svæði, Noreg- ur, á landamæri að Sovétríkj unum. Loftf jarlægðin frá landamærunum til Kólafjarð Framhald á bls. 23 Tafla 1. Sovfizki flotinn.Heildarfjöldi og dreifing hans f Norðurflotann oz Evstraaalt*. flotann. » Heildar- Noröur- Eystrasalte- fjöldi flotinn flot'inn Pyrlumfiðurskip (orrustuskip) CH® 2(3) - Eldflauga-teitiskip CLGM 10 3 2 Beltislcip GL 10 2 3 Eldflauga-timdurspillar DLG/DDGS 40 8 6 Tundurspillar DD 60 15 12 Elðflaugaf-eftirlitsbfitar (OSAAOMAR) 150 20 40 Uthafs-fyígdarskip DE/PCE 100 35 20 Strand-fylgdarskip PO/SC 250 40 70 Hraöskreiðir eftirlitsbfitar 250 60 125 TundurduflaslŒðarar MSP/MSMAiHC 300 60 120 Landgöngu skip LST/LSM/LSV 120 25 42 Landgönguprammar LCG 120 - 15 Dfsilkafbfitar meðaldrægir SS(W,R) 140 50 50 Dfsilkafbátar skammdrægir SS(q) 15 - 10 Dfsilkafbfitar langdrægir SS(P,Z) 60 30 15 Kjamorkukafbfitar langdrægir SSN (N,C,V) 22 18 - Kjamorkukafbfitar skammdrægir SSN (b) 4 - - SSCM^kaftoStár (aísil) SSO (j,w) 28 12 2 SSCM kafbfitar (kjamorku) SSGN (e) 33 20 _ SLBsftiafbStar (aísil) SSB (o,z) 28 15 SXiBM kafbátar (kjamorku) SSBB (h,y) 35 25 - SSCMtSurface-to-surface continental miesilejþ.e.langdrœg eldflaug,sem skotið er frí yfirbotði sjfivar, *SIBM:Subraarine-1aunched ballisctic missile,þ.e.langdiwg eldflaug,sem skotið «r tír kafi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.