Morgunblaðið - 27.04.1972, Page 28

Morgunblaðið - 27.04.1972, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1972 SAGAIM TVITIJG 'STULKA OSKAST. I þýðingu Huldu Valtýsdóttur. „Vel af sér vikið, Duggers. Við unmim í fyrstu lotu.“ „Heldiurðu, að það sé ráðlegt að espa hann svona að ástæðu- lausu?" Loks fengum við drykkinn en sigurinn var ekki nema hálf- ur. Harold kom aftur, um leið og oktour voru rétt glösin, afþakk- aði sjálfur en borgaði fyrir okk ur. Síðan stóð hann þegjandi svo sem spönn frá okkur og beið. Roy reyndi að tefja tím- ann, hélt langar tölur um t»n- listarmenn, sem Harold þekkti hvorki haus né hala á. Tiu mín- ótum síðar vorum við þó komn- ir inn í matsalinn. Á miðju gólf- inu var stórt borð alþakið alls kyns smáréttum. Allt var þó ósnert á diskunum þar og mér fannst að svo mundi verða fram vegis. Við settumst við borð í einu horninu. Yfir okikur hókk málverk af hertoga eða aðais- manni í fullri líkamsstærð. Af svipnum að dæma var hann greinilegt dusilmenni, hvort sem hann var fasisti eður ei. Mat- seðillinn lá fyrir framan okkur og lítil blokk með blýanti hjá Harold þar sem pöntunin skyldi skrifuð. Hann hófst strax handa og skrifaði sdna pöntun um leið og hann muldraði fyrir sjálfum sér (eða okkur): „Saxaðir tómatar. Kjöt og nýrnabúðingur. Mergur og franskar baunir." Ég sá að þetta var skrifað á lausan miða sem fylgdi matseðlimum og var það sem fljötlegast var að framreiða. Ég sagðist vilja það sama og hann. Harold skrifði það nið- ur. Roy var hins vegar ekki eins fíjótur að ákveða. Hann velti vöngum og lyfti brúnum á víxi. Loks sagði hann: „Saxaða tómata, já. Og . . . ætli ég fái svo ekki önd með appelsínusósu og hrásalati." „Þrjá skammta af söxuðum tómötum." Harold bætti því á biaðið. „Önd með . . . hvar er önd á seðlinum ?“ „Hérna,“ sagði Roy með áherzlu og benti á síðuna, sem merkt var „a la Carte". „Nú . . . nú, já, þarna. Önd,“ sagði hann svo með svip svæs- innar grænmetisætu. Hann gerði sig ekki líklegan til að skrifa. Roy strauk hendinni og lét eins og honuim hefOi loks tek izt að leysa mikið vandamál. „Má ég annars breyta pöntuninni?" „Jú, mikil ósköp." „Ætli ég fiái ekki heldur heil- an humar, — já, takk fyrir — fylltan með kavíar. Og svo hrá- salat, eins og ég sagði áðan.“ „En það er orðið áliðið og ég er hræddur um að þessi réttur sé ekki tilbúinn eins og — eh, — til dæmis kjöt og nýrnabúð- ingurinn." „Humarinn og kavíarinn eru tilbúnir hver fyrir sig. Þeir mega koma með þetta sitt í hvoru iagi. Ég get sjálfur sett kaviar- inn í humarinn.“ Þá gafst Haroild upp. Hann tók því eins og hetja, þegar Roy bað um tvöfaldan kampavins- kokteil, en leyfði sér að stinga upp á flösku af Chabliin-vini. Roy sagðist fiá brjóstsviða af ódýrum hvítvínum. Harold stillti sig enn, og hugsaði Roy greinilega þegjandi þörfina. Maturinn var tafarlaust borinn á borðið og vínið sömuleið- is. Annaðhvort voru vinnuaf- köstin óvenju góð þennan dag eða þjónamir höfðu sína reynsiu af viðskiptum við Har- oid. Á meðan Roy jós kavíarn- um á diskinn sinn, fannst mér ég lesa það úr svip Haroids, hvers vegna hann hafði valið þennan stað til fundarins. Har- old var það ljóst, að þarna mundi Roy varast að missa stjórn á sér, rjúka burt í fússi eða ráðast á hann. Harold var lika minni að manni. Ef Roy tækist hins vegar ekki að halda sér í skefjum, var Retrencement- klúbburinn einmitt rétti staður- inn. Það var Harold vissulega í hag, ef Roy yrði sér til skamm- ar innan um gesti klúbbsins. Álit mitt á Harold jókst, enda þótt mér væri það þvert um geð. Hann vissi, að fullyrðingar Roys um fyrirlitningu sína á þeim anda, sem þarna ríkti og fólkinu, sem þarna var, voru orð in tóm. Hann hellti víninu í glösin og hafði ekki augun af Roy um leið og hann dró sam- anbrotið blað upp úr brjóstvas- anum. „Við skulum þá snúa okkur að erindinu. Þér eruð óæskileg- ur förunautur dóttur minnar og yrðuð enn óæskilegii eiginmað- ur hennar. Ég ætla méf að binda enda á allt samneyti yðar við hana og koma í veg fyrir, að af giftingu geti orðið. Dóttir mín hlítir ekki mínum ráðum af ástæðum, sem ég kæri mig ekki um að ræða hér. Fyrir tíu árum, eða áður en endanleg upplausn fjölskyldutengsla varð og hlýðni og skyldur urðu úrelt hugtök, hefði ég getað stöðvað þessa vit leysu í krafti foreldraréttarins. Nú er tilgangslaust fyrir mig að reyna að senda hana burt. Hún mundi undir eins vera komin tii yðar aftur. Þetta ástand má þakka yður og yðar likum. Ég veit reyndar um einn stað, þar sem hún gæti verið örugglega geymd og þó er það ef til vill of mikið sagt, þar sem nú er í tízku að kenna þjóðfélaginu um álla hluti og okkur er sagt að við megum ekki beita okkur við þessa „elsku vesaiinga“ . . . það er engu líkara en þeir geti geng ið út, hvenær sem ...“ Harold rétti úr sér. „Ég hugs- aði um það í fullri alvöru að láta setja hana I fangelsi. Fyrir það að hafa marihuana undir höndum. En því miður. Jafnvel þótt hún hefði ekki sloppið með 10 punda sekt og lauslegt loforð um að gera þetta ekki aftur í eina eða tvær vikur, ef það væri ekki til of mikiis maalzt . . . þá hefði hún blandað yður i málið. Það hefði getað orðið sæmilegt hneyksli og komið sér illa fyrir yður og þess vegna náð tilgangi. Gallinn var bara sá, að þá mundi ég missa öli tök á ykkur báðum og þess vegna . . „Ég skil ekki, hvers vegna ég er svona óæskilegur," sagði Roy með fullan munnintn. „Ég get séð miklu betur fyrir henni en nokikur . . . nökkur þessara unglinga, sem hún umgekkst, áð ur en ég kynntist henni. Aldur- inn skiptir ekki máli. Þér eruð andvigur stjórnmálaskoðunum mínum og ætlið að láta þá and- úð standa í vegi fyrir hamingju Sylvíu og það er . . .“ „Ég fyrirlít stjórnmálaskoðan ir yðar, ef skoðanir skyldi kalla . . . þann hálfsoðna hrærigraut. Þið gleypið allt hrátt og skell- ið ákollæyrum við staðreynd- um. Viljið bara selja allt í hend ur Rússum. En stjórnmál korna þessu máli ekkert við. Þér eruð hins vegar alger andstæða við þann mann, sem væri ákjósan- legur eiginmaður fyrir dóttur mína. Sá maður þyrfti að vera skapfastur, skynsamur, traust- vekjandi, stilltur og þolinmóð- ur. Þér eruð . . .“ „Sleppum því. En hvert var erindið, sem þér minntust á?“ 2.000.000 - TVÆR MILLJÓNIR - 2.000.000 Höfum góða kaupendur að 120—150 fm. íbúðarhæðum, rað- hús og einbýlishús koma einnig til greina. FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN, AUSTURSTRÆTI 12, SlMAR 20424—14120 — HEIMA 85798. velvakandi 0 Hvar eru meistararnir? •Hér er bréf, sem Iðmfræðslu ráð getur eflaust svarað. „1 öðru orði er talað um það, hversu nauðsynlegt það sé öll- um sem það geta að læra eitt- hvað, til þess að vera frekar gjaldgengir á hinum almenna vinnumarkaði. Síðastliðið haust hélt Iðnfræðsluráð nám- skeið fyrir eldri menn sem vildu læra eitthvað, en höfðu dregizt afturúr af einhverri á- steeðu og því var þeim gefinn kostur á þessum námskeiðum til að ná réttindum fyrir inn- göngu í iðnskóla. Ég var einn þeirra sem greip gæsina glóð- volga og náði ágætis einkunn. En var það nóg? Nei, því ég kemst þrátt fyrir það eteki í iðnskóla, vegna þess, að mig vantar meistara. Ég er ekki gæddur neinum sérstökum hæfileikum og hef engar sérgáfur á neinu sviði og ég er heldur e'kki neitt ein- stakur né sérstakur. Það er bara þetta sem ég neita að sætta mig við, en þar er kannski bara um skilningsleysi mitt að ræða og staðreyndin kannski sú, að vonbrigði er sjaldan hægt að leiðrétta eða bæta fyrir. En þjóðfélag sem telur sig vera á framfara- braut getur ekki uppfyllt þá einu ósk mína og margra ann- arra, að mega læra það sem mig langar til. Ég hef aðeins eina löngun og eina þrá sem ég get sætt mig við og finn mig í að njóta, en það er að smíða úr tré sem kall að er. Ég á marga hluti sem ég hef hannað bæði útskorna og ekki, sem ættu að geta lýst þeirri natni og ánægju sem ég hef af því að handleika spýt- ur. En það virðist sem ekkert pláss sé fiyrir hendi, þar sem ég og svo margir aðrir getum komið löngun okkar í framkvæmd. 1 veg fyrir það koma nokkrir menn, sem kall- ast meistarar og þeir ráða og stjórna því, hverjir koma lösng un sinni í framkvæmd og hverj ir ekki. Þetta er kannski rétt- látt og nauðlsynlegt, en spurn- ingin er, til hvers voru þessi námskeið haldin? Og því spyr ég, hvar og hverjir eru þessir meistar- ar sem vilja uppfylla ósk- ir okkar og koma okkur á rétta braut? VirðingarfyiLst, Jóhann Gislason, Hátúni 12, Keflavík." 0 Fyrirmynd fyrir börnin Þetta bréf barst okkur norð- an yfir fjöll um reykingarnar. „Kæri Velvakandi! Það gleðiur mig að sjá, að vaknaður er áhugi fiyrir and- spymu gegn reykingum. Ég er á þeim aldri að ég byrjaði reyk ingar á stríðsárunum. Þeg- ar tóbak flæddi sem gjafavör- ur yfir landið. Ég var þræll þessa ósóma í 24 ár og þurfti oft að skammast mín fyrir það bæði vegna þeirra sem ekki reyktu og kærðu sig ekki um að reykt væri í kringum þá, s-vo og þess að vera þessum ósóma háður. Þegar ég var fer- tugur hafði ég fyrir konu og sjö bömum að sjá. Konan reykti svolítið en bömin voru að komast á þann aldiur þegar unglingar byrja að reykja. Þá ákvað ég einn dag að hætta að reykja, ef vera mætti að það minnkaði líkurnar fyrir því að börnin færu að reykja. Þetta var ekki erfitt. Ég var lítið heima og enginn tók eftir þessu fyrr en að hálfum mán- uði liðnum og ég losnaði við alla meðaumkun og umtal um geðvonzku. Konan hætti svo líka að reýkja og ekkert barn anna hefur byrjað reykingar. Ég vil taka fram að ég hef aldrei beðið þau að reykja ekki og mun ekki gera, en ég hef sagt þeim að ég væri ham- imgjusamur að vera laus við þennan ófiögmuð sem tóbakið er og ég hef aldrei í sex ár, sem liðin eru, þurft að bera kinn- roða af þvi að reykja ekki. Víkingur Guðnnmdsson". 0 Að fenginni 14 ára reynslu Og þetta bréf er frá Vest- mannaeyjum. „Veivakandi góður. Þökk sé þér fyrir eindregna afstöðu gegn tóbaksreykingum. Ég reykti í rúmlega 30 ár. Var mikill reykingamaður. Nú eru liðin 14 ár síðan ég hætti. Ég bjóst við að það yrði mér mik- il raun, að hætta, en svo varð ekki. Að vísu sótti að mér nokkur óróleiki fyrstu dagana, — jafnvel fyrstu- vikurnar, en ég lét ekki uradan. Einkum bar mest á þessum óróleika efitir máltiðir og svo að loknum störfum. Reyndist mér þá nokk ur fróun í því að hafa ein- bvern smáhlut milli handanna, t.d. vasahníf, lykil eða eitthivað smávegis. Það var eins og ein- hver fróun í þessu, önnur með- ul raotaði ég ekki. Ég varð allur frískari og létt ara yfir mér, eftir að ég hætti reykingunum. Tel ég mig hafa bjargað heilsu minni með því að hætta tóbaksreykingun um. Ég segi frá þessari reynslu minni til þess að veikja aðra til umhugsunar um það að það sé alls ekki óyfirstígaraleg þraut að hætta tóbafesreykingum. Skaðsemi reykinganna er nú vfsindalega sönnuð. Um það þarf ekki að deila lengur. Þeg- ar ég byrjaði reykiragar var skaðsemin lítið sem ekki kunn, en menra töiuðu þá um kostnað iran. Skattur sá, sem reykinga- maður leggur á sig er mikili, og getur hiver og einn reikn- að það dæmi fiyrir sig. Ég óska svo Velvakanda og öllum þeim, sem berjast gegn tóbaksreykiragum, góðs gengis. Sigareittan er nú orðira eiran af stærri bölvöldum mannkynsins. Vonandi tekst að vinna gegn því böli með góðum árangri og fækka fórnarlömbum þess skað lega ávana. Með beztu kveðjum. S.M. 0 Annað þjóðarböl Og hér er óskað eftir að fieira sé tekið fyrir. „Heiðraði Velvakandi. Ég vona að þú lárair þess- um linum rúm í dálfcum þínum, sé svo ekki veit ég að til er ruslakarfa í þinni nálægð. Það vakti mig til sannrar gleði er ég frétti um framtak læknanema um áróður viðivíkj- andi skaðsemi reykiraga og sennilega tóbafesnotkuraar yfir leitt. Fyrir sitt flramtak eiga þeir skilið þjóðarþökfe. í mörg ár hefi ég vonazt eftir að læknastéttin léti meira til sin taka skaðsemi alkóhólsins, sem er þó stærsta þjóðarböl- ið, það eru aðeins fáar und- antekningar frá þeirra hendi og nefrai ég þar fyrrverandi yf irlækni Helga Ingvarsson. Eng inn þarf þó að halda að sá góð kunni og mikilsiviirti lækn- ir fari með eirahverja rökleysu um skaðsemi þess, þar að auki hiljóta allir að sjá að neyzla tóbafes og alkóhóls er tvennt ólikt. Tóbaksnotkun er að mestu einstaiklingsbundira, en neyzla alfeóhóls þjóðarböl, því hvað veldur ekki hinn óláns- sami drufekni maðuir oft og tiið- um mifelum sársaufea og skaða meðal meðbræðra sinna, það er ómælanlegt. Að lokum þetta, læfenastétt og aðrir menratamenn Islands, hefjið nú herfierð gegn mesta þjóðarbölinu, drykkjusfeapmum. Máltækið segir: „Bftir höfðinu dansa limirn- ir.“ Gleðiilegt sumar. ÞJE, Rl.“ Ueizlumotur Smurt bruuð og Snittur SÍLD & FISKUK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.