Morgunblaðið - 07.07.1972, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 1972
Fimmtugur í dag:
Bjarni Jónsson
trésmíðameistari, Keflavík
ÞVl verður ekki neitað, að um-
hverfið, sem við lifum i, hefir
bæði mikla þýðingu og mikil
áhrif á okkar daglega lif. 1 þétt-
býlinu verða nágrannarnir ávallt
snar þáttur í umhverfiinu, og því
er það mikið lán fyrir hvern,
sem fyrir þvi verður, að eignast
góða nágranna.
Það er þessi einfalda stað-
reynd, sem mér er efst I huga,
þegar ég sezt niður og sendi vini
mínum og næsta nágranna,
Bjarna Jónssyni, örstutta af-
mæliskveðju, en í dag hefir hann
hálfrar aldar skeið að baki sér.
Bjarni er fæddur í Hafnarfirði.
Foreldrar hans voru hjónin Jón
Þorkelssoin og Guðrún Eggerts-
dóttir. Með þeim fluttist hann
suður í Garð í frumbernsku og
ólst þar upp hjá þeim á bernsku-
heimili Guðrúnar móður sinnar
í Kothúsum, og átti þar heimili
til fullorðinsára. Börn þeirra
Jóns og Guðrúnar voru fimm,
og er Bjami næstelztur. Af þeim
eru fjögur á Mfi, en einn dreng-
ur dó á fyrsta ári.
Bjami fór ungur að stunda
sjódnn, eins og títt var meðal
jafnaldra hans þar syðra.
En ekki fannst honum fýsilegt
að gera sjómennskuna að lífs-
starfi sínu. Hóf hann þvl nám
í trésmáði, lauk prófi í þeírri
gredn og hefir stundað trésmíðar
síðan. Um margra ára skeið, eða
frá 1944, hefir hann haft með
höndum verkstjórn hjá varnar-
llðinu á Keflavikurflugvelli og
notið þar mikils áliits og verðugs
trausts.
Árið 1944, 2. september, kvænt-
ist Bjami Ástu Árnadóttur frá
Landakoti í Sandgerði. Hafa þau
lengst af átt heimili í Keflavík.
Þau hafa eignazt fimm börn, en
þrjú þeirra em á lifi. Elzti son-
urinn, Arnar Magnús, lézt af
slysförum á 3. ári og stúlku, er
Sigríður hét, misstu þau fárra
daga gamla. Hin þrjú eru: Arn-
ar, flugvirki í Luxemborg, Guð-
rún, húsmóðir í Reykjavik, og
Sigriður JúMa, nemandi, dvelur
í foreldrahúsum.
Bjarni er hiédrægur maður og
ekki fyrir það gefinn að hafa sig
mikið í frammi eða láta á sér
bera. En við nánari kynni kem-
ur í ljós, að það er vel ómaks-
ins vert að komast inn fyrir skel-
ina, sem ókunnugum virðist
hann svo oft brynja sig með.
Þar kemst maður í kynni við
þá mannkosti, sem ekki er að
finna á hverju strái. Ég ætla
ekki að fara að tiunda þá marg-
þættu mannkosti hér, af því að
það veit ég, að væri vini mínum,
Bjarna, sízt að skapi. En oft hef-
ir mér dottið i hug, að Stefán G.
haífi haft þá manngerð, sem
Bjarni er fulltrúi fyrir, í huga,
þegar hann kvað þessa snjöllu
stöku:
„Þitt er menntað afl og önd,
eigirðu fram að bjóða
hvassan skilniing, haga hönd,
hjartað sanna og góða.“
Þótt Bjami hafi ekki farið á
mis við mótlæti í lífi sínu, þá er
hann eigi að síður mikill ham-
ingjumaður. Hann á góða og
glæsilega kon-u, góð og efnileg
börn, sem alls staðar koma sér
vel og yndislegt heimili. Og hann
er svo gæfusamur að kunna að
meta þá hamingju að verðleik-
um.
Á merkum tímamótum flyt ég
Bjarna, konu hans og bömum
innilegustu heillaóskir mínar og
fjölskyldu minnar. Við erum
þakklátari en orðum verði að
komið fyrir þá gæfu, að hafa
eignazt þau að nágrönnum —
og vinum.
Hamingjan fylgi þér, kæri vin-
ur, á þeirri aldarhelft, sem fram-
undan er.
Bj. Jónsson.
SERSTAKT TÆKIFÆRI-
Hef góðan kaupanda að 3ja—4ra herb. íbúð. Útb. um 1 millj.
fyrir áramót. ÍBÚÐIN ÞARF EKKI AÐ LOSNA FYRR EN EFTIR
12—15 mánuði.
Upplýsingar í símum 20424—14120 — heima 85798.
Veiðimenn
Tryggið yður nú þegar veiðileyfi
í GÓÐA SILUNGVEIÐI
i einni fegurstu veiðiá landsins,
LAXÁ í LAXÁRDAL, S-ÞING.
Gisting í sumarhótelinu að Laugum og á tjaldstæðum, með
hreinlætisaðstöðu á fögrum stað við ána.
Veiðileyfi kr. 1000,00 pr. dag.
Nánari upplýsingar og veiðileyfi fást hjá
VEIÐIVAL, Reykjavík, sími 20485,
SPORTVÖRUVERZLUN BRYNJÓLFS
SVEINSSONAR, Akureyri, sími 11580,
SUMARHÓTELINU AÐ LAUGUM.
BÍLALEIGA AKRUEYRAR, sími 11515.
NILFISK
þegar
um gæðin er
að tefla....
SUÐURGÖTU 10, REYKJAVÍK, SÍMI 24420
150-200 fermetra geymslu-
og verkstæðishúsnæði
óskast til leigu strax.
Tilboö sendist afgreiðslu blaðsins merkt:
„Geymsla — 9964“.
Sjóvátryggingafélag íslands
Bifreiðadeild.
MIÐSTÖÐIN
KIRKJUHVOL!
SlMAR 26260 26261
100 fonna fiskibdlur
Til sölu ar 100 tonna tréfiskibátur ný við-
gerður. Hagstæð kjör.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
VÉLADEILD SAMRANDSINS
LOKAR Á LAUGARDÖGUM
Hér með tilkynnist heiðruðum viðskipta-
vinum vorum að verzlanir vorar að
Ármúla 3 verða lokaðar á laugardögum
nú í júlí og ágúst.
Einnig verður Bedford/Vauxhall-vara-
hlutaverzlunin að Bíldhöfða 8 lokuð á
laugardögum í júlí og ágúst.
VÉLADEILD SAMDANDSINS