Morgunblaðið - 07.07.1972, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.07.1972, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚLl 1972 SjTVfBA l\l maisret fær samvizkubit eftirseorges simenon „Ég verð önnum kafinn fram að hádegi og veit ekki einu sinni hvort ég kem heim að borða.“ Rödd hans var þreytuleg. „Er nokkuð að.“ spurði hún. „Hafðu engar áhyggjur. Ég fæ kaffi hérna." Loks sneri hann sér aftur að Bonfils: „Sendið Janvier inn til min, þegar hann kemur.“ Hann rétti henni bollann og diskinn með vínarbrauðunum en hún afþakkaði þau. „Sykur?“ Mágkonan hristi höfuðið. Hún vildi heldur ekkert borða svo hann gerði sér einn vínarbrauð- in að góðu, án þess þó að hafa nokkra verulega lyst. Dagur var runninn upp en þó var ekki nógu bjart til þess að hægt væri að slökkva ljósin. Jenny hafði tvisvar opnað munn inn eins og hún ætlaði að fara að spyrja einhvers en hafði misst kjarkinn um leið og hún leit framan i yfirforingjann. Stundin var komin. Maigret fékk sér aftur í bollann og tróð í pípu sína, sem hann hafði val- ið úr mörgum á borðinu. Svo stóð hann á fætur og leit á konurnar til skiptis. „Ætli ég byrji ekki á því að tala við yður,“ sagði hann við frú Marton. Jenny hrökk við og ætlaði enn að segja eitthvað. „Á meðan bíðið þér í öðru herbergi hjá einum starfsmanni mínum.“ Hann kallaði aftur á Janin. „Fylgdu þessari frú inn i grænu skrifstofuna og bíddu hjá henni þar, þangað til ég kalla.“ „Gott og vel." „Er Janvier ekki kominn?" „Mér heyrðist ég heyra til hans á ganginum." „Segðu honum að koma hing- að strax." Janin fór með mágkonuna. Augnabliki síðar kom Janvier inn en brá í brún, þegar hann sá frú Marton sitja þar i stól með kaffibolla fyrir framan sig. „Marton er látinn," sagði Maigret. „Lapoiinte er á staðnum. Hann hefur staðið á verði í alla nótt, svo þú verður að fara og leysa hann af hólmi." „Lapointe segir þér, það sem þú átt að vita. Ef þú tekur leigubíl verðurðu kominn á und an þeim frá saksóknaraembætt- inu.“ „Kemur þú ekki?“ „Ég held ekki.“ Loks var búið að loka báðum hurðum og Maigret og frú Mar- ton sátu ein á skrifstofunni. >að var emgu líkara en hún hefði beð ið eftir þessu augnabliki. Hann þagði mest af o. tottaði pipu sína, en eftir því sem á samtalið leið, var eins og hún lifnaði við eða vaknaði úr einhvers konar dái. >að var skrítið að fylgjast með þvi, hvemig andlit hennar varð mennskt á ný, litur færð- ist í kinnamar og úr augunum skein annað en kvíðinn einber. „Þér haldið auðvitað að ég hafi eitrað fyrir honum.“ Hann svaraði ekki strax. Það var ekki í fyrsta sinn þennan morgun,*sem hann hafði dregið að bera fram spurningar að af- stöðnum glæp. Oft var betra að láta fólk ekki fara að tala of fljótt, hvort sem um ákærða eða vitni er að ræða. Því oft heldur fólk fast við fyrsta framburð af ótta við að vera sakað um ósannsögli. Hann hafði með vilja gefið þeim báðum tækifæri til að hugsa, tima til að taka afstöðu og velja orðin vel. „Ég held ekkert," sagði hann loks. „Þér sjáið að ég hef ekki kallað hraðritara hingað inn. Ég skrifa ekki niður það sem þér segið, en bið yður aðeins að segja mér hvað gerðist." Hann vissi að hún undraðist hve rólegur og blátt áfram hann var- „Þér gætuð byrjað á kvöld- inu í gær.“ „Frá hverju á ég að segja?“ „Öllu.“ Hún komst í vandræði, vissi ekki á hverju hún átti að byrja, svo hanm hjálpaði henni að kom ast af stað. „Þér komuð heim frá vinnu ..." „Eins og ég geri alltaf." „Hvað var klukkan þá?“ „Átta. þegar búið var að loka verzluninni, fékk ég mér drykk á krá i Castiglione-götu." „Með Monsieur Harris?“ „Já.“ „Og svo?“ „Maðurinn minrn var kominn á unidan mér. Systir mín var líka heima. Við settumst við borðið." „Var það systir yðar sem hafði matreitt?" „Já, eins og venjulega.“ ^„Borðið þið niðri, þar sem bæði er setu- og vinnustofa og þar sem eiginímaður yðar sefur?“ „Hann ákvað sjálfur að sofa þar fyrir nokkrum mánuðum.'1 „Fyrir hvað mörgum mán- uðum?“ Hún hugsaði sig um og bærði varirnar eins og hún væri að telja. „Fyrir átta mánuðum," sagði hún loks. „Hvað borðuðuð þið?“ „Fyrst súpu . . . sömu súpu og við höfðum borðað daginn áður. Jenny býr alltaf til súpu til tveggja daga. Siðan svina- kjöt og salat, ost og perur . . . " „Og kaffi?“ „Við drekkum aldrei kaffi á kvöldin." „Urðuð þér varar við nokkuð óvanalegt?" Hún hikaði en horfði beint í augu hans. „Það fer eftir þvi, hvað þér kallið óvenjulegt. Ég veit ekki, hverju ég á að segja frá, vegina þess að ég held, að þér vitið meira um ýmislegt en ég. Enda var lögreglumaður á verði við húsið. Ég fór upp til að taka af mér yfirhöfnina áður en við fórum að borða og klæddi mig í í þýðingu Huldu Valtýsdóttur. inniskó. Þá sá ég, að systir min hafði farið út og var nýkomin inn aftur." „Hvernig sáuð þér það?“ „Vegna þess, að ég opnaði dyrnar að herbergi hennar og sá þar skó, sem voru enn blaut- ir. Kápan hennar var líka rök.“ „Hvers vegna lituð þér inn i herbergi hennar?" „Til þess að fullvissa mig um, að hún hefði farið út.“ „Til hvers?“ Hún leit enn ekki undan. „Til að vita það fyrir víst.“ „Tók Jenny af borðinu?" „Já.“ „Er hún vön þvi?“ Hún fór fram á það sjálf að greiða þannig fyrir framfærslu sina.“ „Þvær hún lika leirtauið?" „Stundum hjálpar maðurinn minin henni við það.“ „En ekki þér?“ „Nei.“ „Haldið áfram." HELLESENS HLAÐIÐ ORKU..... I helcfcsrmcttinn Nýr lax, pr. kg. Nýr svartfugl, pr. stk Nýtt hvalkjöt, pr. kg. Nýtt folaldasnitehel, pr. kg. Folaldagullasch, pr. kg. Folaldahakk pr. kg. Saltað folaldakjöt, pr. kg. Úrvals nautsnitchel pr. kg. Nauta Roast Beef, pr. kg. Nautagullasch, pr. kg. Nautahakk, pr. kg. Nauta grill-steikur, pr. kg. Nauta bógsteikur, pr. kg. Kalkúnar — Endur — Hænur Kjúklingalæri og bringur. kr. 330,00 65,00 67,00 330,00 290,00 160,00 115,00 470,00 450,00 370,00 280,00 225,00 215,00 Rjúpur — Kjúkliingar Opið til klukkon 8 í kvöld Opið lougardog til kl. 12 DS=B^íir(Mt]D®@'TT®CE)D[M Laugalsek 2. REYKJAVIK, slml 3 5o 2o velvakandi 0 Góður upplesari Kristín Guðnmndsdóttir skrifar: „Eins og hlustendur útvarps vita er nýlokið lestri á gamalli sögu eftir Kristínu Sigfúsdótt- ur, rithöfund. Sagan var lesin með sérstökum ágætum og hef- ur lesturinn vakið athygli margra hlustenda. Vil ég því biðja Velvakanda að koma þeirri ósk minni og fleiri áheyrenda á framfæri, að þessi ágæta rödd fái sem oftast að berast til eyrna okk- ar hlustenda útvarps. Bæði er frú Ólöf Jónsdóttir ágætur rithöfundur og gædd sérstökum persónutöfrum, sem koma fram í frjálsum fram- burði og hljómfagurri rödd, sem vert væri að lofa okkur hlustendum að njóta, ef hægt eæri, bæði i bundnu og óbundnu máli. Skrifað fyrir mina hönd og fleiri hlustenda á Jónsmessu. Kristín Guðmundsdóttir við Ranðavatn númer 7.“ 0 Minnsti skammtur 5 kg, takk! „Einbúi" skrifar: „Velvakandi góður! Ekki hélt ég að ég ætti það eftir að fara að skrifa þér um „kerlimgamál", en ég bý einn og er vanur að elda mér heitan mat á kvöldin. Kartöfl- um hefi ég alltaf haft mesta dá- læti á og hef þær á borðum þegar hægt er, en oft eru þær kartöflur, sem á boðstólum eru í verzlunum, alls ekki manna- matur. Bæði vegna þess hversu lélegar þær eru (yfirleitt), og eins vegna hins, að ein hræða kemst ekki yfir að borða mjög mikið af þessari einu fæðuteg- und, er ég vanur að kaupa 2% kíló í einu. En enginn skyldi vera svo einfaldur að halda, að slikra hlunninda (að fá að kaupa einungis 2V2 kiló i einu) njóti hver sem er. Ónei! Maður þarf sko að vera búinm að sjá sér út einhvem alveg sérstak- an kaupmann til þess og vera þar að auki búinn að vera að koma sér vel í mjúkinn hjá honum til þess að fá hann til þess að skipta þessum „stand- ard“ 5 kílógrammapokum frá Grænmetissölunmi. Þess vegna varð mér það á að brosa, er ég var staddur inni í verzlun einni nýverið og varð vitni að einfeidni tveggja kvenna, sem báðu um hvor sín 2Vz kíló af kartöflum. Báðar fengu þær það svar, að í þessari verzlun væri aldrei selt minna en 5 kiló i einu (þetta var sagt með við- eigandi drýldni og meðaumk- un). Þegar þama var komið sögu langaði mig til þess að blanda mér í málið og stinga upp á því, að þær skiptu með sér poka, en stillti mig um það, enda fór svo, að báðar roguð- ust út með hvor sinn 5 kílóa poka af kartöflum! Ég get ekki vorkennt svona fólki, en væri það ekki verðugt verkefni fyr- ir Neytendasamtökin eða sam- tök húsmæðra, ef þau eru þá til, að halda námskeið í þvi að láta ekki bjóða sér hvað sem er? Einbúi."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.