Morgunblaðið - 30.07.1972, Side 13

Morgunblaðið - 30.07.1972, Side 13
MORGU'NBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JOLI 1972 13 JÓN Á LAXAMÝRI NÍRÆÐUR NÍRÆÐUR er á morgiun Jón H. Þorbergsson, bóndi á Laxamýri, þjóðkunnur maður fyrir marg- háttuð störf í þágu lands og þjóð ar. Af svo miklu er að taka á við- burðaríkri og athafnasamri ævi Jóns bónda að stikla verður á stóru, þagar um stutta afmælis- grein er að ræða. Venjan er sú, að fólk hnýtist vináttuböndum fyrri hliuta ævi- skeiðsins, en ekki hefir svo farið með okkur Jón og fjöiskyldu hans, því að vinátta okkar hóflst fyrir röskum tuttugu árum og hefir dafnað æ siðan. Ævintýrið um fátækan sveita- dreng, sem kemst til bjargálna fyrir eigin dugnað og atorkiu, sannast eftirminnilega á Jóni á Laxamýri. Hann er Þimgeyingur að ætt og uppruna, og greinir vel frá ætt erni sinu í ævisögu sinni í bók- inni „Ævidagar11, sem út kom 1964. Að honum standa sterkir þinigeyskir stofnar enda ber skap höfn hans þess mikil merki um igáfnafar, óhemju dugnað, vilja- festu, fróðleiksfýsn, félagsanda og síðast en ek’ki sízt trúarhneigð og handleiðslu Drottins. Ungur að áruim eða átta ára gamall missti hann móður sína og ólst síðan upp hjá vandalaus um bændahjónum. Þarf ekki að eyða orðum að því, hve mikið áfalil þetta hefir verið hinuim unga sveini, en Jón hefir sagt mér, að trúrækni sín stafi ekki minnst af uppeldi, sem hann naut hjá móður sinni. Hún kenndi hon um guðhræðslu og góða siðu, því að hún var mikil trúkona. í þessu sambandi langar mig að segja frá atviki, sem varpar skýru ljósi á hugarfar þessa uniga drengs. Atburður þessi gérðist um ári eftir að hann missir móður sina, en þá viM svo til, þegar hann eitt sinn er stadd ur úti í haga, að hann stendur undir svoköiluðum friðarboga, en það var trú, að þá mætti sá óska sér einhvers, sem homum lægi mest á hjarta, og myndi það ganga eftir. Óskaði drengiurinn þá, og hugsaði til móður sinnar: „a‘ð ég mætti verða góður og Guði þóknanlegur maður“. Má fulilyrða, að þessi ósk drengsins hafi rætzt. Við sem til þekkjum vituim, að tillitssemi og skilning ur á kjörum og málefnum ann- arra hefir verið sem rauður þráð ur í samskiptum Jóns við menn og málefni. Er óhætt að kalla hann mikinn mannasættir. Víst er uim það, að oft hefir hann lát ið í minni pokann persónuiliega til þess að ná samstöðu eða sætt- um i málum. Þegar litið er yfir langan far- inn veg eða ævi Jóns á Laxamýri sést strax hve djúp og heiillavæn- leg spor hann markar í æviferil sinn, þegar hann ungur og bláfá tækur drífur sig á bændaskóla í Noregi, en lætur ekki þar við sitja, heldur leitar sér framhalds menntunar i S'kotlandi í sauðfjár rækt. Er mér nær að halda, að slikt sé algjört einsdæmi í þann tnð. Svo var hann brennandi í áhuganuim á þessu máli, að hann ferðaðist í hvern hrepp landsins, gangandi eða riðandi, sparaði hvorki í þvi efni persórtuleg fj'ár útiát né krafta sína. Ég læt öðr um og mér færari um að meta hið mikla framlag Jóns bónda til ræktunar og kynbóta isliemzku saiuðfé, en veit að með þeim störf um, sem eru mikil að vöxtum og gæðum, hefir hann reist sér ó- brotgjarnan minnisvarða. Er þá mangt ótalið á lanigri og starf- samri ævi hans, en hér verður að eins drepið á fátt eitt. Jón var ekki aðeins framfara sinnaður í landbúmaðinum i ræðu oig riti að loknu námi erlendis, heldur lét sér emgin þjóðmái ó- viðikomandi, þótt aldrei hatfi hann viiljað láta draga sig í neinn á- kveðinn stjómmálaileigan dilik. — Hamn hefir haldið sínum hætti að rita á ári hverju greinar um landbúnaðarmál og trúmál, þar að auki flutt fjölda erinda i hljóðvarp. Greinar hans í blöð og tímarit nema hundruðum aiuk sjálfstæðra ritlinga. Sl. vetur birtust t.d. tvær greinar eftir hann, önnur um sauðfjárrækt en hin um trúmál. Hann er því mik ilvirkur rithöfundur á báðum þessurn sviðum, landbúnaði og trúmálum. Til merkis um það, hve víða huigur Jóns á Laxamýri hefir leitað til fræðsilufanga fyrir al- þjóð og að koma þeim fróðleik á framfæri, stofnar hann ásamt tveimur öðrum, Jónasi Jóns- syni, ráðherra, frá Hriflu og Sig urgeiri Friðrifcssyni, siðar bóka- verði, í desember 1915 utan- fliokka blað, sem varð upphaf að dagblaðinu „Tímamum". Eklki lýsir það sázt mann- gildi Jóns, að hann eiigmalaus maður, verður eigandi að og hef ir búsetu á tveim einum mestu vildisjörðum landsins. Á Bessa- stöðum býr hann frá 1917 til 1828, að hann flyzt að Laxamýri og hefir búið þar siðan, hin síðari ár með sonum sínurn tveim, Birni og Vigfúsi og konum þeirra. Meðan Jón bjó á Bessastöðum kynntist hamn konu sinni E'línu vn gfúisdóttur frá Guililberastöð- um, sem ber ætt sinni fagurt vitni um sterka skapgerð og skarpar gáfur. Hefir Jón oft lýst því við miig, að aldrei fái hann nógsamleiga þakkað forsjóninni þá góðu Guðsgjöf, sem konan sín sé. Ætíð hefir verið gaman að koma á Laxamýrarheimilið, en ekki sízt nú í aftamiskini ævi- kveldsins, þegar barnabörnin snúast í kringuim heiðurshjónin, afa og ömmu. Þá er sá þáttur eftir, sem leiddi heista okkar Jóns á Laxamýri saman, en það voru laxveiðimál- in. I þeim málum sem öðrum ræktunarmálum hefir Jón haft forgöngu meðai bænda i Aðail- dal. Árið 1935 stofnar hamn á- samt nokkruim bændum „Klakfé laig Laxár“. Kaupir laxaseiði frá hinum kunna laxaræktarmanni, Árna í Alviðru í Ölfusi og sett er á stofn laxaklak við Laxá. Sum- arið 1940 var stofnað félag bænda um vatnahverfi Laxár og 1941 var veiðisvæði Laxár leiigt út og aðal leigutakar voru bræð urnir Kristinn, heitinn, Stefáns- son, prófessor, og Sæmundur Stetfánsson, stónkaupmaður, Og fleiri. Nokkrum árum síðar var upp úr þessum félags- skap stofnað það veiðifélag, sem nú hefir mikinn hluta Laxár á leigu eða „Laxárfélagið" og hefir því áin verið leigð sama veiðifé- lagi um þrjátíu ára skeið. Lýsir það bezt gaignkvæmiu trausti og virðingiu leigusala og leigutaka. Mér er því bæði ljúft og skylt að nota þetta tækifæri sem formað- ur þriggja deilda „Laxárféiags- ins“ að þakka öllum bændum sem viðsemjendum okkar, óvenjugóð og affarasæl samskipti í veiðmál um og samningum á sl. þremur áratuigum. Árið 1941, er Laxá var í fyrsta sinn leigð í heild, lét Jón á Laxa mýri hætta allri kistuveiði og netaveiði í ánni. Sem fyrr lét hann ekki persónulegan gróða tefja fyrir réttum tökum á lax- veiðimálunum, enda hefir hann æ síðan verið ötulasti forvígis- maður þar nyrðra urn laxeldis- mál. Standa því islenzkir lax- veiðimenn i ómældri þakkar- skuld við Jón á Laxamýri fyrir framlag hans til laxveiðimála. — Veit ég, að honum hlýnar um hjartarætur er hann sér nú risa af grunni í Laxamýrarlandi myndarlega liaxeldisstöð undir forystu sona sinna, Björns og Viigfúsar og Kristjáns, bónda, Benediktssonar á Hólmavaði. Fæstir þegnar þjóðtfélagsdns ná níræðisaldri. Til þess að svo metgi verða, hljóta saman að fara ýmsir þættir ti] langlífis, svo sem andlegt og Jiiikamlegt atgervi og sterkir ættarstofnar. Meðal annars vegna þessara nefndu þátta, getur Jón bóndi þakkað lífshamingju sína, að hann aldr aður maður heldur sínum sálar- kröftum og ferilsvist, mætir á mannþinfum, heldur þar ræður og skrifar blaðagreinar sem umg ur væri. Ekki er síður gleðilegt til að vita, að Elín kona hams, sem er átta árum yngri, ber ald ur sinn engu síður en bóndi hennar. Fyrir hönd okkar hjóna og veiðifélaga minna úr „Laxárfé- laginu“, leyfi ég mér á þessum tímamótum að færa þér, Jón á Laxamýri og konu þinni, aliúðar fyllstu þakkir fýrir mæt kynni og gestrisni á heijnili y'kkar á undanförnum áratugum, að ó- gleymduim ótal unaðsstundum að veiðum við Laxá. Einnig færum við þér innileg- ustu hamingjuóskir á niræðisaf mælinu með þeim óskum, að þið hjóniin megið njóta sameigin- lega andlegrar og líkamlegrar reisnar allt ykkar æviskeið. Sig. Samúelsson. Hinn 31. júlí verður hinn lands kunni merkismaður, Jón Helgi Þorbergsson, óðalsbóndi á Laxa mýri níutíu ára. Þeir, sem nú eru vel á miðj- um aldri, en hafa átt því láni að fagna, að eiga vináttu Jóns á Laxamýri frá barnæsku, skilja betur en flestir aðrir, hvílíkur afburðamaður og merkismaður. þessi síungi öldungur er og hversu geysimerkilegt og mikið starf hann hefur unnið á hin- um langa ævidegi sinum. IJm það fjallar að vísu hin ágæta ævisaga hans í bókinni Ævidag- ar, en þó ekki til þeirrar hlítar, sem nánustu vinir hans og sam- ferðamenn hafa fundið ,og vita um. Þeir hafa kynnzt gróður- löndum hjartans og hugans hjá Jóni á Laxamýri. Sú eign er gulli betri. Þar er ek'kert hefðar- stand, heldur maðurinn sjálfur ’guilið, öflugur og sterkur í and- anum og trúnni, tryggastur vina og sá sterki skaphafnarstólpi, er hvergi hallast og því síður bogn ar. Af öllum hinum miklu og mörgu mannkostum Jóns á Laxamýri, er ræktunarmaður- inn, i þessa orðs beztu og mestu merkimgu, jafnan efst í huga okkar vina Laxamýrarbóndans. Fjárræktarmaðurinn Jón Þor- bengsson er löngu landskunnur og hefur hann í þeim eínum lyft Grettistökum. Ungur að ár- um fór hann utan til að afla sér þekkingar og reynslu í þessum eflnum. Þegar heim kom miðl- aði hann íslenzkum bændum af þekkingu sinni, ferðaðist um alit landið við hin erfiðustu skilyrði og kynnti bændum búfjárkyn- bætur á sauðfé, er borið hafa heilladrjúgan árangur. Þetta mákla brautryðjandastarf Jóns Þorbergssonar verður seint þakkað að verðleikum. Jarðræktarmaðurinn Jón Þor- bergsson hefur setið tvö af mestu stórbýlum landsins, Bessa staði og Laxamýri með þeim sóma, að fáir mundu geta fetað í fótspor hans í þeim efnum. Samtimis annasömu og tíma- freku starfi bóndans, hni'gu svo félagsmálastörf bænda mjög í fang Jóns Þorbergssonar innan Búnaðarfélags íslands, ræktun- arsamtaka þeirra héraða, er hann bjó í, stofnun Landnáms í Reykjavík, og svo mætti lengi telja. Alls staðar var hin rækt- andi hönd og hugur Jóns Þor- bergssonar að starfi til góðis fyr ir land og þjóð. Víða var hann forystumaður og frumkvöðull, annars staðar upplýstur og fræð- andi samstjórnarmaður félags- samtaka bændanna. Alltf já- kvæður — aldrei neikvæður. Fiskræktarmaðurinn Jón á Laxamýri lagði niður kistuveið- ar í Laxá í Aðaldal — stórmikil verðmætahlunnindi — og skóp þar með hinum silfurgljáandi lónbúa — laxinum — greiðari för fram á hryigningarstöðvarn- ar i Laxá. Sýnir þetta hversu framsýnn og gáfaður fiskrækt- armaður Jón á Laxamýri er og hefur verið. Hann er samtímis einn af fyrstu og beztu hvata- mönnum um aukna fiskrækt í Laxá, hefur styrkt þá starfsemi drengilega, bæði beint og óbeint og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Einmitt á þessu sumri mun Jón á Laxamýri geta litið niður til árinnar eilífu, sem nú fóstrar fleiri laxa en kunn- ugustu menn muna eftir. Það út af fyrir sig, er góð afmælis- gjöf. Jón rak sjáltfur laxaklak á Laxamýri um skeið og miðlaði þá öðrum ám seiðum af hinum öfluga Laxárstotfni. Nú er hann níræður að aldri, einn öflugasti þátttakandinn i vaxandi laxfiska rækt í Laxá í Aðaldal og mun á næsta ári sjá glaasilegt klak- og fiskeldishús rísa af grunni í Laxamýrarlandi. Slíkir fiskrækt armenn sem Jón á Laxamýri eru vandfundnir í landi okkar. En í þessum efnum, eins og svo mörg um öðrum, hefur hann gefið fag urt fordæmi til eftirbreytni. Mannræktarmaðurinn Jón H. Þorbergsson er þó ekki sízt eftir tektarverður og til stórrar fyrir myndar. Þar er Jón á Laxamýri hinn sístarfandi boðberi um bætt og fagurt mannlif í anda Guðs orðs, í trú, von og kærleika. Hann er hinn heittrúaði guðs- maður, bendir mönnum, ungum og öldnum, á orð Biblíunnar, orð Guðs, og er hinn öflugi stuðn- ingsmaður heilagrar kirkju og aukinnar fræðslu í skólium á orði Guðs og boðsikap Biblíunnar. Mengun hugcms er eitur I bein um Jóns á Laxamýri. Hún brýt- ur að hans dómi i bága við þann boðskap, er trúin á almætti Guðs flytur, kærleika á milli mannanna og fegurð lífsins í skjóli þess sannleika og vizku, er heilagt orð boðar. Þvi er hann hreinskiptastur manna, kemur til dyranna eins og hann er klæddur og gerður og villir aldrei á sér heimildir. Og bæmheitari og kærleiksri'kari mann í garð þeirra, er um sárt eiga að binda og í erfiðlei'kum eiga, getur ekki. Á þessum merkisdegi vinar míns Jóns á Laxamýri hlaðast að mér minningar margar. Þær eru allar með sama marki brenndar, bjartar og fagrar. Hinn háaldraði en siungi höfð- ingi, bændahöldurinn Jón á Laxa mýri mun i dag taka á móti þús- und-um heillaóska, svo vinmarg- ur og víðkunnur er þessi afreks maður á marga vísu. Mér er efst í huga þökk til hans, afbragðsgóðrar konu hans, Elínar Vigfúsdóttur frá Gull- berastöðum, til barna hans og allra á Laxamýri. Jón á Laxa- mýri hefur ekki aðeins sýnt mér og fjölskyldu minni óvenjulega vináttu og tryg.gð. Hann hefur líka leiðbeint mér á lífsveginum breiða, frá þvi ég var ungur drengur á Húsavik, og alltaf til góðs. Slíkt verður aldrei nóg- samlega þakkað. Og það er oft sem ég finn sterkt og glöggt fyrir því, þegar hinn miikli rækt unarmaður Jón á Laxamýri sen^ir okkur heitar og djúpar bænir. Lifðu heili, góði vinur, Jón á Laxamýri, og þúsundfaldar þakkir fyrir liðnu árin, kærleika þinn og óviðjafnanlega vináttu. Jakob V. Hafstein. Grein eftir Halldór Pálsson búnaðarmálastjóra og samtal við afmælisbarnið bíður birt- ingar. 3/o herbergja íbúð óskast tii leigu. SIGRlÐUR OG KRISTRÚIM BJARNADÆTUR. SÍMI 11835. EHRENREICH Spindilkúlur, stýrisendar og togstangir í m.a.: V.W. 12 — 13 — 1302 — 15 — 1600. Opel Rekord og Cadett. Volvo Amazon og 142 '— 144. M.-Benz. Póstsendum. G. S. varahlutir, Suðurlandsbraut 12 — Sími 36510. Útsala — Útsala Mikil veröiækkun. GLUGGINN, Laugavegi 49.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.