Morgunblaðið - 30.07.1972, Síða 16

Morgunblaðið - 30.07.1972, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1972 Utgefandí hif Árvakui', Rey'kijavík Fna'míwaamdas'tjóri Haratcfur Svamaaon. flítstfórar Matthías Joharvnaasan, Eýrólifuf Konráð Jónsaon Aðítoðarrítsbjó'' Styrmir Gtmnarason. ftftstjióroarfu'lftrúi twrfajöm Guðmundsson Fróttastjón Björn Jóhannason Auttlýsingiastföri Ámi Garöar Kriatinsson flftstjórn 09 afgrsiðsla Aðalstraati 6, sfmi 1Ó-100. AugHýsingar Aðalstraoti 6, sífmi 22-4-60 Aakrrftsrgjard 225,00 kr á 'mónuði ínnsniamte f Sswsasöfu 15,00 Ikr eint-a'kið /\hætt mun að fullyrða, að ^ fátt eða ekkert hafi leitt ísland lengra af braut velferð arþjóðfélagsins en skattafarg- ið, sem núverandi ríkisstjórn hefur lagt á eldra fólkið í landinu, elli- og örorkulífeyr- isþegana. Stuðningsblöð rík- isstjórnarinnar hafa nú við- urkennt, að hér verði að gera á bragarbót og færa eigi þessi málefni í betra horf. t Þetta gerist aðeins fáum mánuðum eftir að stjórnar- flokkarnir ákváðu þessa skatt píningu með nýjum skatta- og tekjustofnalögum. Alþýðu- bandalagið, sem nú ræður mestu um stefnu stjórnarinn- ar, hefur alla tíð barizt fyrir aukinni skattheimtu. Tak- mark sósíalista og kommún- ista er að svipta borgarana fjárhagslegu sjálfstæði og færa sem mest völd í hend- ur ríkisins. Skattaálögur eru leið að þessu marki. Þess vegna lagði Alþýðu- bandalagið ofurkapp á að þyngja skattaálögurnar. Stjórnarflokkunum var vita- skuld ljóst, þegar nýju lögin voru samþykkt, hvaða áhrif þau hefðu á skattabyrði elli- og örorkulífeyrisþeganna. Engin ríkisstjórn ræðst í svo á fjármálaráðherrann, þegar landsmenn hefðu séð hneyksl ið svart á hvítu. Síðan átti að vinna Alþýðubandalaginu fylgi með því að taka undir gagnrýni á fjármálaráðherr- ann og krefjast tafarlausra úrbóta. Einmitt þetta hefur verið að gerast síðustu daga. Svo langt hefur verið gengið í þessum efnum nú, að mál- gagn forsætisráðherra var knúið til þess að birta for- ystugrein, þar sem ítrekað var, að allir stjórnarflokkarn- ir bæru jafna ábyrgð á skattaálögunum, sem ríkis- stjórnin hefur lagt á elli- og örorkulífeyrisþegana. í for- ystugreininni var ennfremur bent á, að það væri órétt- mætt, þegar ákveðinn hópur stuðningsmanna stjórnarinn- ar sakaði einn stjórnarflokk- Samtökum frjálslyndra og vinstri manna. Með slíkum aðferðum hyggst Alþýðu- bandalagið draga til sín óánægjufylgið í þessum röð- um. ístöðuleysið í Framsókn- arflokknum og máttleysi Sam taka frjálslyndra og vinstri manna benda til þess, að kommúnistar geti náð tölu- verðum árangri með þessum hætti. Stjórnarflokkarnir hafa haldið því fram, að hin gífur- lega skatthækkun leggist öll á hátekjumenn í þjóðfélag- inu. í raun hafa þó álögurn- ar lagzt með mestum þunga á elli- og örorkulífeyrisþega og fólk með meðaltekjur. Hjá þessu var naumast unnt að komast með svo gífurlegri hækkun á heildarskattabyrð- inni, sem ríkisstjórnin beitti STJÓRNIN VERÐUR AÐ LÁTA UNDAN umfangsmiklar breytingar á skattkerfinu, nema slíkar upplýsingar séu til staðar. Alþýðubandalagið hefur hagnýtt sér aðstöðu sína til þess að leiða samstarfsflokka sína í ríkisstjóminni í ógöng- ur í hverju málinu á fætur öðru. í þeim tilgangi knúðu ráðherrar kommúnista fram skattpíninguna á elli- og ör- orkulífeyrisþegana. Hugmynd in var sú að skella skuldinni inn öðrum fremur um þetta hneyksli. Alþýðubandalagið hefur beitt þessum vinnubrögðum í fleiri málefnum. Þannig hef- ur mátt lesa í Þjóðviljanum kröfu um nýja efnahags- stefnu, aðeins ári eftir að rík- isstjórnin markaði efnahags- stefnu sína í málefnasamn- ingnum. Allt er þetta gert til þess að róta upp í vinstra armi Framsóknarflokksins og sér fyrir, enda greiðir nú fjöldi skattborgara yfir helm- ing tekna sinna í alla skatta og gjöld til hins opinbera. Álögurnar á eldri borgar- ana eru óhæfa, sem ríkis- stjórnin verður að leiðrétta. Hér er um svo alvarlega at- lögu að hagsmunum þessa fólks að ræða, að stjórnar- flokkarnir geta ekki skotið sér undan því að gera alveg á næstunni sérstakar ráðstaf- anir til þess að rétta hlut þess. Víst er að mikill meiri hluti þjóðarinnar ætlast til þess að stjórnin geri tafar- laust ráðstafanir í þessu skyni. Ráðherrarnir hljóta að beygja sig fyrir þeirri sterku gagnrýni, sem fram hefur komið að undanförnu á skatta stefnu stjórnarinnar. Ljóst er, að sú stefna, sem fram kemur í skatta- og tekjustofnalögunum nýju, sætir verulegri gagnrýni og fólkið krefst þess, að ný vinnubrögð verði tekin upp. Sjálfstæðismenn hafa bent á, að rétt væri að auka hlut- deild óbeinna skatta í fjáröfl- un opinberra aðila. Bent hef- ur verið t.a.m. á, að óbeinir skattar dragi úr skattsvikum, sem eru alvarlegt þjóðfélags- mein. í ritstjórnardálki í Tíman- um í gær er einnig bent á, að skattaeftirlit, hversu öfl- ugt sem það er, hafi tak- markaða möguleika á að koma í veg fyrir skattsvik. í þessu sambandi varpar rit- stjóri Tímans fram þeirri spurningu, hvort ekki sé nauðsynlegt að gera róttækar grundvallarbreytingar á skatt heimtunni til þess að tryggja réttláta niðurjöfnun. Hér hlýtur ritstjórinn m.a. að hafa í huga óbeina skatta. Því ber auðvitað að fagna, ef einhver öfl innan stjórnar- flokkanna eru reiðubúin til þess að taka upp skynsam- leg vinnubrögð í þessum efn- um. Reykjavíkurbréf -----Laugardagur 29. júlí _____ Aukin skattbyrði Þegar metið er, hvernig skatt byrðin breytist frá einu ári til annars, verður að sjálfsögðu að miða við það hvort tekjurnar hafi vaxið hlutfallslega meira eða minna en nemur skatta- hækkuninni. Stundum getur þetta verið álitamál. Svo er þó ekki að þessu sinni. Það liggur ljóst fyrir, að í ár verða menn að borga nær 50% hærri opin- ber gjöld en í fyrra af skatt- stofni, sem aðeins hefur hækk- að um 26.5%. Svo mikil þynging skattbyrð- innar á einu ári getur að sjálf- sögðu ekki orðið, nema það lendi að einhverju leyti á öllum þorra manna að standa undir henni. Enda er það svo. Þó þyngist skattbyrðin nokkuð mismunandi, en langmest á elli- og örorkulífeyrisþegum, sem einhverjar launatekjur hafa. Næstum 50% hlutfallsleg hækkun hefur orðið á opinber- um gjöldum af launatekjum eig- inkonu, sem vinnur úti. Þegar á það er litið, hversu þýðingar- mikið það er t.d. fyrir fiskiðn- aðinn, skóla og hjúkrunarstofn- anir að eiginkonur telji sér hag í því að vinna utan heimilis, verður þessi hækkun að teljast næsta varhugaverð, en aðstoð við heimilisstörf og annað því um líkt er ekki frádráttarbær. Sjómenn borga hlutfallslega hærri skatta nú en áður, en þó nokkuð mismunandi. Einkum eru það farmenn, sem nú standa verr að vígi en áður. Loks hefur skattbyrði ein- hleypra aukizt verulega. Er raunar óskiljaniegt, hversu mik il gjöld þessi hópur þjóðfélags- þegnanna er látinn greiða til hins opinbera og verður að verða þar breyting á. Endurbætur óhjákvæmilegar Þótt ekki séu nema rúmir fjór ir mánuðir siðan nýju skattalög in voru afgreidd frá Alþingi, er svo komið, að enginn mælir þeim lengur bót og eru stjórnar- blöðin byrjuð að karpa um það, hverjum þau séu að kenna, eins og sjá má af þessum ummæl um í forystugrein Tímans s.l. föstudag: „Þar á meðal stóðu þeir (þ.e. stjórnarflokkarnir) allir og bera allir jafna ábyrgð á einstökum atriðum í skattalög unum eins og t.d. persónufrá- drætti ellilífeyrisþega. Að kenna einum öðrum fremur er óréttmætt og farsælla að standa saman að þeim lagfær- ingum, sem nauðsynlegar eru.“ Þessi ummæli bera það glöggt með sér, að innan stjórnarher- búðanna hafa menn áttað sig á þvi, að með skattalagabreyting- unum var gengið einum of langt í skattpíningu elli- og örorkulíf- eyrisþega, þótt við afgreiðslu skattalaganna á Alþingi í vetur hafi itrekaðar tilraunir sjálf- stæðismanna til 'þess að verja rétt þessa fólks mætt hreinni andstöðu stjórnarliða. Og það verður að segjast eins og er, að skrif Þjóðviljans og Tímans um málefni þessa fólks nú í vikunni hafa verið ósæmandi með öllu. Þannig hefur þvi verið haldið fram fullum fetum í forystu- greinum þessara blaða beggja, að við Reykjavíkurborg sé að sakast, þótt fyrir liggi, að hún hefur ásamt ýmsum öðrum sveit arfélögum nýtt allar heimildir tekjustofnalaganna til hagsbóta fyrir elli- og örorkulífeyris- þega. Hitt er hins vegar rétt hjá rit stjóra Tímans, að stjómarflokk- arnir „bera allir jafna ábyrgð á einstökum atriðum í skatta- lögunum eins og t.d. persónufrá- drætti ellilifeyrisþega" og hefði hann mátt bæta örorkulífeyris- þegum við. Sjálfstæðismenn fluttu um það tillögu á Alþingi i vetur, að hinn sérstaki frá- dráttur ellilífeyrisþega til tekju skatts, sem nam 2/5 af persónu- frádrætti, fengi að haldast í lög- um og skyldi einnig ná til ör- orkulífeyrisþega. Þessi frádrátt- ur hefði i ár numið 58 þús. kr. hjá einstaklingi, en 116 þús. kr. hjá hjónum. Stjórnarflokkarnir voru sammála um að afnema þetta ákvæði, en þýðing þess verður bezt skýrð með því að taka dæmi af hjónum á ellilíf- eyrisaldri með 400 þús. kr. brúttótekjur sl. ár. Samkvæmt núgildandi lögum greiða þau 59.275 kr. í tekjuskatta, en hefðu að óbreyttum 1 ögum greitt 14.717 kr. Þar munar mest um tekjuskattinn tii ríkisins. Samkvæmt gömlu lögunum hefði hann enginn verið, en sam kvæmt nýju lögunum verður hann 36.078 kr. Að vísu er það rétt, að elli- og örorkulifeyrir hefur hækkað nokkuð. En öll sú hækkun hef- ur verið étin upp af verðbólg- unni. Skattahækkanirnar eru því hrein kjararýrnun, sem þetta fólk verður að mæta með því að draga við sig neyzluna. Réttur sveitarfélaganna brotinn Eins og menn rekur minni til var sveitarfélögunum ekki gef- inn kostur á að skipa menn í þá nefnd, er samdi tekjustofna- frumvarpið. Með því var horfið frá þeim sjálfsögðu vinnubrögð um fyrrverandi ríkisstjórnar að standa þannig að málefnum sveitarfélaganna, að þeim yrði ekki skipað nema í fullu samráði og samvinnu við þau. Á engu sviði eru þetta þó jafn nauðsyn- leg og sjálfsögð vinnubrögð og í sambandi við endurskoðun tekjustofnalaga og verkefna- skiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þegar um þau mál er að ræða, hljóta ríki og sveitarfélög að mætast sem jafningar, nema við völd sé ríkisstjórn, sem vinnur markvisst að því að skerða rétt sveitarfélaganna og draga úr sjálfstæði þeirra. Og því miður verður ekki annað sagt um þá ríkisstjórn, sem nú situr. Það má glöggt marka af hinum ýmsu stjórnarathöfnum. Nú síðast af því, að iðnaðarráðuneytið hefur tilkynnt, að ríkisstjórnin hygg- ist framfylgja þingsályktunartil lögu um raforkumál, sem ekki er þingfylgi fyrir og sveitarfé- lögin andvíg. Sjálfstæðismenn lögðu á það höfuðáherzlu við skattalagaum- ræðurnar, að hlutdeild sveitarfé laganna í hinni opinberu skatt- heimtu mætti ekki skerða miðað við verkefni og því bæri þeim stærri hundraðshluti af tekju- sköttunum en ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar á Al- þingi höfðu hugsað sér. Á þetta var ekki fal'lizt og allar tillög ur sjálfstæðismanna í þessa átt felldar. Svo langt var getigið, að sveitarfélögin voru svipt tekju útsvari af atvinnurekstrirrum og lá þó fyrir, að viss sveitarfélög, þar sem umsvif voru mikil eins og í Grindavík og Vestmanna- eyjum, yrðu illa úti eins og reynslan hefur nú sannað. Það er til marks um hækkun tekju- skatts einstaklinga, að hann hef ur þrefaldazt frá sl. ári á sama tíma og útsvörin hafa hrekkað innan við 15%, þegar álagsheim ildinni er beitt. Fasteigna- skatturinn Sjálfstæðismenn vöruðu sér- staklega við of háum fasteigna skatti og bentu á, að hann væri Júlídagur vsð Reykjavíkurtjöri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.