Morgunblaðið - 30.07.1972, Side 20

Morgunblaðið - 30.07.1972, Side 20
20 MORGU'NBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚLl 1972 ilTVINkYA ATVin XI VÍXXA Menn vnnlnr í fiskvínnu Karlmenn vantar í fiskvinnu. Örugg og mikil vinna. Upplýsingar í síma 18105. Frá Leirárskóla 2 stúlkur vantar til starfa við mötuneyti frá 13. ágúst til 17. september. Upplýsingar veitir Helga Karlsduttir, ráðs- kona í síma 25399 á mánudag og þriðjudag kl. 17 — 20. óskar eftir starfsfolki í eftirtalin störf Reykjavík: Blaðburðarfólk: KLEIF ARVECUR Vesturgata II — Sími 10100 Kópavogur: HÓFGERÐI BRÆÐRATUNGU MORGUNBLAÐIÐ Sími 40748, Skagaströnd Umboðsmaöur óskast til dreifingar og innheimtu á Morgunblaðinu á Skaga- strönd sem fyrst. Upplýsingar hjá umboðsmanni, sími 4680. —MAKASKIPTI— Raðhús í Fossvogshverfi á tveim hæð- um með innb. bílskúr. alls um 240 fm. Húsið er stofur, eldhús (með mjög vand- aðri innréttingu), fjölskylduherb., (með arni), 4 svefnherb., baðherb., þvotta- herb., geymslu o. fl. Húsið sem er í smíðum en vel íbúðahæft fæst í skipt- um fyrir góða (nýlega) sérhæð í Háa- leitis- Haga- eða Melahverfi. FASTEIGNAÞJÓNUSTAN, Austurstræti 17. — Bókhlaóa Framhald af bls. 32. stærð. Ekki er búið að ákveða hve margar hæðir hún verður. Aðstaða á lóðinni og útfærsla hússins yfirleitt kemur til með að ráða þar miklu. Til dæmis er ekki vitað hvenær íþróttavöllur- inn víkur af Melunum eða hver áhrif stækkun Sögu kann að hafa á staðsetninguna. Auk arkitektanna er búið að ákveða aðra þá tæknimenn, sem vinna verkið með þeim. Verk- fræðingarnir Bragi Þorsteinsson og Eyvindur Valdimarsson sjá um burðarþol, Kristján Flygenr- ing um loftræstingu og hitun, Sigurður Halldórsson um raflýs- ingu og Reynir Vilhjálmsson garðaarkitekt um þá hlið. Þá eru erlendir aðilar fræðilegir ráðunautar byggingarnefndar i bókasafnsmálum, Williamsson og Falkner-Brown, og einnig er erlendur sérfræðingur ráðgef- andi um loftræstingu, en slíkt er mjög mikilvægt I bókasafni. En byggingarnefnd Þjóðarbók- hlöðunnar skipa sem kunnugt er Finnbogi Guðmundsson lands- bókavörður, Magnús Már Lárus- son háskólarektor og Hörður Bjarnason, húsameistari ríkisins. Arkitektar hússins og tækni- menn vinna fyrir byggingar- nefndina og með bökavörðum að þessu viðfangsefni. Þeir Manfreð og Þorvaldur fóru utan í vor og kynntu sér háskólasafnsbyggingar, aðallega í Bretlandi. Þeir sögðu að Bret- ar hefðu að undanförnu byggt mikið af slíkum bókasöfnum og yfirleitt eftir evrópsku kerfi, sem Ameríkanar hafa lengi notað. En þeirra aðferð er að hafa bókasöfnin meira opin. Lestrar- salir og geymslur bóka eru þá saman og notandinn fær meiri aðgang að öllu safninu. Þar er að nak’kru leyti sjálfsafgreiðsla og lessvæðin eru viðar í safn- inu, í stað þessara stóru les- sala, sem annars staðar tíðkast. - Eldisstöð Framhald af bls. 32. árlega. Miðað við áð stanga- fjöldi ákveðist af 100 löxum á stöng gæti hér orðið uim að ræða laxveiðisvæði með 100—200 stöngum í einhverju fegursta umhverfi Island.s. Laxamýrarsitöðin er raunar 2. áfanginn í laxeldismálum Aðaldadinga og tekur við af stöð, sem starfrækt hefur ver- ið á HúsaVík undir stjórn Kristjáns Ósikarssanar, en Kristján heifur borið hita og þuniga starfsins. Þeir bræð'ur sögðu að stöðin heíði verið byggð til að rækta Laxá því að bændur hefðu eðli'lega ekki viljað annan laxastafn en Laxárstafninn. Eingöngu væru notaðir stórlaxar til undaneldis, sem veiddir eru með fyrirdrætti í lök veiði- tímabilsins. Það er ekki annað að sjá, en að þessi ræktun hafi borið árangur, þvi að það sem af er sumri hefur verið metveiði í Laxá og meðalþungi laxanna um 14,5 pund. Um 40 l'axar 20 pund og þyngri eru komnir á land. Aðspurðir um kostnað við framkvæmdimar sögðu þeir bræður að fyrsti áfanginn, sem reistur verður í surnar og á að vera tilbúinn í febrúar nk., væri áætlaður um 6 millj. króna. Er hér um að ræða eldishús, 12x30 metrar á stærð, svo ag lagningu vatnsleiðslna fyrir heitt og kait vatn. Stöðinni heifur verið va'linn staður í túninu utan og ofan við Laxa- rnýrarbæina og kalda vatnið verður leitt um km vegaiengd úr vatnsbódi í heiðinni fyrir ofan. Heita vatnið verður tekið úr hitaveitustofcknum til Húsavíkur, sem liggur Skammt fyrir ofan Laxamýri, en þeir Vigfús og Björn sögðu að heita vatnið væri grundvaliarskilyrði fyrir byggingu stöðvarinnar. Þegar stöðin verður full- byggð verður urn 4 eldishús að ræða, 12x30 smetra að stærð, svo og eldistjamir eftir þvi sem þörf krefur. Varð- andi fjármögnun fyrirtgekis- ins sögðu Laxamýrarbændur að þeir reiknuðu með láni úr stofmliánasj óði landbúnaðarins og einnig vonuðust þeir eftir styrk úr fiskræfctarsjóði, en síðan yrði auðvitað að koma til mikið eiginfjármagn. Þeir bræður sögðu að í sambandi við undirbúninginn hefðu þeir fengið mifcla og góða fyrir- greiðslu og hoill ráð frá veiði- málastjóra, sem hefðu auð- veldað stanfið, en Hönnun hf. hefur séð um teikningar. Þess má að lokum geta að á morgun, mánudag, verður Jón bóndi Þorbergsson á Laxamýri míræður og áreiðan- ’lega getur hann efcki fengið veglegri afmælisgjöf en þá sem nú er verið að reisa á Laxamýrartúni. — »hj. — Umhverfi Framhald af bls. 17. aði.“ Þá hefur og de Fontenay, sem var sendiherra Dana hér á iandi fyr- ir mörgum árum og var vel lærður í Austurlandafræðum, bent á ýmsa þætti sameiginlega í menningu Araba og Islendinga, svo að staða okkar, sem hreinræktaðrar landbúnaðar- þjóðar á fyrri öldum er nokkuð vafa- söm. Eins og áður var sagt, þá hafa hirðingjaþjóðir yfirleitt skilið eftir sviðin lönd og nakin, og víða svo mjög, að náttúran ein getur ekki bætt skemmdirnar. Stór hluti Mið- jarðarhafslandanna, sem áður voru ein hin frjósömustu og fegurstu í víðri veröld, er nú aðeins svipur hjá sjón og sumt orðið að eyðimörk sakir vatnsskorts. Önnur dæmi þessu lík eru nær óteljandi frá ýmsum tímum veraldarsögunnar. Nærtækasta dæmið er þó island sjálft. Sakir veðurfars, legu lands- ins og af enn fleiri orsökum hafa gengnar kynslóðir orðdð að mergsjúga gróður landsins til að lifa af. Frum- orsökin til þess, að um eða yfir helmingur af gróðurberandi landi er farinn veg allrar veraldar og að frjósemi þess jarðvegs, sem enn er eftir, er ekki nema svipur hjá sjón er auðvitað sú, að iandið þoldi ekki hjarðmennskubúskapinn. Annað mál er, að vindur og vatn hafa höggvið stærri skörð í jarðveginn en búféð, en þau öfl komu ekki til greina fyrr en gróðureyðingin var komin áleiðis sakir höggs og beitar. íslendingar hafa hreppt lík örlög og hjarðmenn annarra þjóða, en hér var enginn Abel til að hefna sín á. Ef gjöfull sjór og ýmis hlunnindi hefðu ekki komið til er hætt við að ísiendingar væru ekki meðal iifandi þjóða i dag. Sá frægi maður, Oliver Wendell Holmes, sagði einu sinni að það skipti í raun og veru litlu máli, hvað orðið hefði eða gert hefði verið fram að þessu. Aðalatriðið væri að marka nýja og heilbrigða stefnu, byggða á reynslu og þekkingu, og halda henni svo fast fram. Þess gengur enginn dulinn, að margvisleg mistök hafa átt sér stað í meðferð landsins, og við ræktun þess og endurgræðsiu hefur og ým- islegt misheppnazt. Um slíkt tjóar ekki að tala. Af óhöppum verða menn hyggndr en ekki ríkir, og flestum Islendingum er nú orðið ljóst, að unnt er að gera landið betra og byggilegra en það nú er. Hér verður að byggja á þekkingu og reynslu, og sízt af öllu má óskhyggja og fijót- ræði leiða menn á glapstigu. Nú er uppi mikil náttúruverndar- öld, og ekki vonum fyrr. Allir virð- ast á einu máli um að spyrna verði við fótum svo að landið spillist ekki meir en orðið er. Þetta er mikið gieði- efni fyrir þá, sem um mörg ár hafa unnið að bættri meðferð lands og reynt að bæta gróðurfarið. En þessi gleði er ekki óblandin, því að svo virðist sem óskhyggjan ráði gerðum margra áhugamanna, og að máiin séu ekki skoðuð af raunsæi. svo virðist einnig sem ýmsir gleymi því, að þjóð- in sjálf er brot af lífheild landsins og hún verði að búa hér áfram. Oss er skylt að fara þannig með landið, að það geti orðið eins ákjós- anlegur dvalarstaður fyrir þjóðina og náttúruskilyrðin framast leyfa. Skilyrði fyrir því eru fyrst og fremst að hætta hvers konar rányrkju, sem því miður viðgengst enn meira og minna víðast hvar um landið. Næst er að auka gróðurlendið frá því, sem nú er, og ennfremur að auðga plöntu riki landsins með nytsömum gróðri, sem getur lifað sjálfstæðu lífi í ís- lenzkri náttúru og aukið kyn sift án þess að mannshöndin komi þar til, nema til þess að koma honum á stað. Ýmsir hafa rekið hornin í og am- azt við erlendum plöntutegundum en menn skyldu gæta þess, að þær plöntutegundir, sem fluttar hafa ver- ið til landsins úr héruðum, sem hafa svipað veðurfar og Island, vaxa yf- ieitt miklu hraðar en innlendur grþður. Sem dæmi má nefna að sí- biriskt lerki vex allt að 7 sinnum hraðar en islenzkt birki og að meigresi frá Alaska gefur miklu meiri blaðvöxt en íslenzkt. Þegar svo er’ háttað, væri óðs manns æði að slá hendi við slíkum vaxtarauka, sem fæst fyrir ekki neitt. Listin hlýtur að verða sú. að beizla orku sólarinnar á hverju sumri á þann veg, að hún gefi þjóðinni sem mest í aðra hönd. Á þann hátt einan verður Mfvæn- legt í landinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.