Morgunblaðið - 30.07.1972, Page 22

Morgunblaðið - 30.07.1972, Page 22
-r+i * .3^.--^WiJr.ýir' jm?M 22 MORGÚNBLAÐIÐ, SUNNUDAGÚR 30. JÚLl 1972 t Eiginmaður minn, SIGURBRANDUR MAGNÚSSON, póstfulltrúi, sem andaðist að Borgarspítalanum 26. júlí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjúdaginn 1. ágúst kl. 3. Blóm og kransar afþakkað, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á kristniboðið i Konsó. Kristín Dagbjartsdóttir. t Eiginmaður mirni, faðir okkar og terrgdafaðir ANDREAS GUÐMUNDSSON, Rauðalæk 63, verður jarðsunginn mánudaginn 31. júlí frð Fossvogskirkju kl. 3. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Björndís Bjamadóttir, böm og tengdabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför UNNAR KJARTANSDÓTTUR, fyrrverandi kennslukonu frá Kruna. Fyrir hönd aðstandenda Helgi Kjartansson, Kr. Guðmundur Guðmundsson. t Þökkum öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, INDRIÐA JÓNS GUNNLAUGSSONAR, Víðigerði Mosfellssveit. Svava Elíasdóttir, Hrefna Indriðadóttir, Bjami Indriðason, Jens Indriðason, Ásgeir Indriðason, Jón Björnsson, Aðalheiður Steigrímsdóttir, Guðrún Indriðadóttir, og barnaböm. t Hjartanlegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkar samúð og vináttu við andlát og jarðarför HELGU BJÖRNSDÓTTUR Guðrún Júliusdóttir, Ingibjörg Júliusdóttir, Finnbogi Júlíusson, Ellert Ólafsson, bamaböm og bamabamaböm. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför VALDIMARS MAGNÚSSONAR, húsasmíðameistara. Eiginkona, böm, tengdaböm, barnabörn og systkini hins látna. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns mins og föður GlSLA GlSLASONAR, matsveins, Ásvallagötu 55. Ólína Sigvaldadóttir, Guðrún Gísladóttir, Þráinn Gíslason, Kristin Gisladóttir, Auðunn Helgason, og bamabörn. Ragnar Breiðfjörð Sveinbjörnsson Minningarorð Á morg’Un verður gerð frá Foss vogskapellu útför Ragnars Breið fjörð Sveinbjömssonar bryta. Ragnar fæddist 20. júní 1917 í' Stykkishóimi, sonur hjónanna Svéinbjamar Bjarnasonar, skip- stjóra í Stykkishólmi og Albínu Guðmundsdóttur frá Sandi á Snæfellsnesi. Hann ólst upp í foreldrahúsum í Stykkishólmi á- samt þrem systkinum sínum. Sveinbjöm faðir hans drukknaði, er Ragnar var bam að aldri, en móðir hans giftist síðar Guð- mundi Sumarliðasyni, trésmið. Albína lézt fyrir allmörgum ár- um, en Guðmundur fyrir rúmu ári síðan. Systkini Ragnars eru öll á L'ífi. Snemma vandist Ragnar allri algengri og fjöibreytilegri vinnu og koœn þá fljótt í ijós megin- þáttur skaphafnar hans og lífs- viðhorfs, sem speglaðist i óvenju mikilli starfsorku og starfsgleði. Hann fór ungur til sjós, sigldi á ýmsum skipum og öðlaðist marg víslega reynslu. Siðar meir lagði hann fyrir sig matreiðslustörf, réðst til Skipaútgerðar ríkisins °g starfaði þar yfir 20 ár sem matsveinn og síðar bryti. Varð hann í því starfi vinsæll og vin- t Eiginmaður minn og faðif, Davíð Þorláksson, veitingaþjónn, lézt að Elliheimilinu Grund hinn 25. þ.m. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 31. þ.m. kl. 10:30. margur víða um land. Fyrir rúm um áratug hvarf hann síðan til starfa i landi og stundaði þá lengstum matreiðslustörf, sem ætíð áttu vel við hann, og vann hann síðast við sumarhótelið að Laugum i S-Þingeyjarsýslu. Ragnar kvæntist 7. júlí 1945 eftirlifandi konu sinni, Lilju Guð mundsdóttur, Guðmundssonar, frá Stokkseyri, mestu mýndar- og ágætiskonu, sem var honum góður og traustur lifsförunautur og bjó honum indælt heimili. Þrjá sonu ei-gnuðust þau Ragn ar og Lilja: Sveinbjörn Sævar, prentara, Pál Steinar, sem er að ljúka gullsmíðanámi og Guð- mund, skólapilt. Eru þeir allir mestu efnismenn. Fyrir allmörgum árum tengd- úst fjölskylda mín og Ragnars góðum vináttuböndum, sem stað ið hafa æ síðan. Á heimili þeirra Ragnars og Lilju var gotit að koma, þar andaði hlýju og vel- vild og húsbóndinn glaður og reifur. Tekin var skák eða skegg rætt um landsins gagn og nauð- synjar og þótt kapp hlypi í kinn, stöku sinnum, þá var skjótt. brugðið á leik og bros og glað- vaerð gengu í garð. Og nú er hús bóndinn horfinn frá okkur og genginn á fund Herra síns, en söknuður ríkir hjá eiginkonu og sonum. Ragnar heitinn var friður mað ur sýnum, meðalmaður á hæð, þéttvaxinn og karlmannlegur t sjón og raun. Hann var allskap- ríkur, en hið einstaka glaðlyndi hans og velvilji höfðu tíðast yfir hönd. Tilfinninganæmur var hann, þótt hann dyldi það gjarna, sáttfús og drengur góð- ur. Fac et spera — vinn og vona. Það var hinn rauði þráður i lífi Ragnars. Fjölskyldu sinni og heimili helgáði hann alla krafta sína, hvort sem hann var við störf heima eða heiman. Og i faðmi grænna hlíða Reykjadals, þar sem hinn merki „Alþýðu- skóli Þin.geyinga“ var til húsa, en nú er nefndur Laugaskóli, og þjónusta er veitt ferðamönnum á sumrum, þar vann Ragnar sín síðustu störf. Hann lézt í sjúkra- húsinu á Húsavík að mongni 21. júlí s.l. Þegar ég nú að leiðarlokum kveð Ragnar Sveinbjörnsson, þá minnist ég margra sameigin- legra ánægjustunda, þakka hon- um þær allar og bið honum góðr ar ferðar á nýjum leiðum annars Mfs. Lilju og fjölskyldu hennar vottum við hjónin innilega sam- úð okkar og biðjum þeim alls velfarnaðar: Már Jóhannsson. Hæstu gjöld á Akranesi HÆSTU eignar- pg aðstöðugjöld til rikis og bæjár bera eftirtalin fyrirtækí: 1. Haraldur Böðvarsson h.f. kr. 2.170.000,00 2. Þórður Ásmundsson, Ás- mundur og Heimaskagi h.f., sameiginlega kr. 1.595.000,00 3. Óskar og Siili kr. 730.000,00 4. Þorgeir og Ellert h.f. kr. 612.000,00 5. SílcLar- og fiskimjölsverk- smiðjan h.f., kr. 498.000,00 6. Þórður Óskarsson h.f., kr. 408.000,00 Einstaklingar: 1. Fríða Proppé, apótekari, kr. 787.000,00 2. Viðar Karlsson, skipstjóri, kr. 547.000,00 3. Þórður Oddsson, héraðslækn. kr. 486.000,00 4. Einar Ámason, skipstjóri, kr. 461.000,00 5. Einar Helgason, læknir, kr. 452.000,00 Við þessi gjöld bætast svo ým is önnur opinber gjöld, sem hækka greiðslur fyrirtækjanna og einstakiinganna mikið. Þann ig greiðir fyrirtækið Haraldur Böðvarsson h.f. samtals í opin- ber gjöld kr. 3.705.727,00. Hæsti gjaldandi i Vesturlands- umdæmi er Hvalur h.f. í Hval- firði, sem ber kr. 8.562.000,00. — h.jþ. — Reykja- víkurbréf Framliald af bls. 17. kvæmdarinnar. Að raforku- málanefnd Norðurlands vestra fengi að fylgjast með kom að sjálfsögðu ekki til álita og held ur ekki Fjórðungssamband Norð lendinga, eins og þó voru bein fyrirheit um. Þótt iðnaðarráðherra hafi fram til þessa tekizt að halda áfram einstefnuakstri sínum, kemur að því að hann rekur sig á steinvegg, sem ekki lætur und an. Sá steinveggur eru samtök sveitarfélaganna, byggðarlag- anna, fólksins sjálfs. Og þess verður ekki langt að bíða, ef svo heldur fram, sem horíir. Jónína M. Ólafsdóttir, Svavar Davíðsson. Hey til sölu Tilboð óskast í 100 tonn af heyi. Selst í einu lagi eða minni hlutum. Tilboð sendist Mbl. fyrir 10. ágúst merkt: „Hey — 9839“. ÚTSALA á höttum, húfum, peysum o. fl. HATTABÚÐ REYKJAVÍKUR, Laugavegi 10. Hef opnað Lækningastofu í Læknastöðinni Glæsibæ, Álfheimum 74. Sérgrein: kvensjúkdómar og fæðingarhjálp. Viðtalstími eftir umtali í síma 86311. Víglundur Þór Þorsteinsson læknir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.