Morgunblaðið - 30.07.1972, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚLl 1972
23
heftir alltaf verid
á undan logunum
í sífelldri leit sinni að nýjum og betri
öryggisbúnaði, hafa tæknifræðingar
Volvo haft það að reglu að búa allar
gerðir Volvo bifreiða nýjungum í
öryggistækni, Jafnskjótt og þær hafa
verið reyndar til þrautar af
verksmlðjunum. Þess vegna hafa
nýjungar í öryggisbúnaði hjá Volvo
sjaldnast fylgt árgerðaskiptum. Oft
hafa nýjungar komið inn í
framleiðsluna á miðju ári, - og alltaf
á undan lögum og reglugerðum um
öryggisbúnað. Þar af ieiðandi hafa
Volvo eigendur búið við fyllsta öryggí
Mraustum og vönduðum bifreiðum.
Árið 1944, til dæmis, voru allar gerðir
Volvo bifreiða búnar tveggja laga
öryggisgleri - 24 árum áður en
nokkur lög gerðu kröfu um' slíkan
búnað.
Árið 1959 gerði Volvo hið svonefnda
þriggja póla öryggisbelti að föstum
búnaði í öllum gerðum bífreiða sinna -
9 árum á undan lögunum.
Árið 1966, svo enn eitt dæmi sé
nefnt, voru Volvo bifreiðir, fyrstar allra,
búnar tveggja kerfa hemlabúnaði með
þríhyrningsverkun. Þetta hemlakerfi er
álitið hið öruggasta, sem völ er á.
Lögin um slík hemlakerfi eiga ennþá
eftir að sjá dagsins Ijós.
Þeir, sem bera ábyrgð á öryggi
annarra, treysta Volvo fyrir sínu eigin.
c VOLVO5
<__ÖRYGG! 5