Morgunblaðið - 30.07.1972, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JULI 1972
SAGAIM __________í frjálsu riki eftir V. S. Naipaul
bila og þvo bíla. Og þvo og
hreinsa hreinsa og þvo.
Sjónvarpið hafði undarleg
áhrif á mig. Ef ég mætti Amerík
ana á götunni, reyndi ég undir
eins að s'kipa honum eða henni
sess í einhverri sjónvarpsaug-
lýsingunni. Mér fannst ég sjá
þama i>ersóinu sem hafði fengið
stundarfrí frá sjónvarpsvinn-
unni. Að vissu leyti hefur þessi
hugmynd min um Ameríkana
festst í huga mér. Mér finnst þeir
óraunverulegt fóik, fólk sem hef
ur brugðið sér smöggvast af
s j ón varpsskerminum.
Stundum sást hubshi I sjón-
varpimu. Ekki til að tala um mál-
efni hubshi-anna, heldur til að
þvo svolítið hjá sjálfum sér. Um
hann gilti öðru máli. Hann var
öðruvísi en hubshi-arnir sem ég
sá á göbunum og ég vissi að sá
á skerminum var leikari. Ég
vissi, að hann var bara að leika
ag yrði að fara aftur á götuna,
þegar þessu sjónvarpsstarfi
hans var lokið.
Einu sinni þegar hubshi-stúlk-
an við penitngakassann í mat-
vöruverzluninni tók við pening-
unum af mér, sussaði hún að
mér og sagði: „Það er alltaf
jafn góð lykt af þér, kunningi."
Húm var vingjamleg og loks
gat ég ráðið igátuna um, hvaða
iykt fannst af mér. Hún var af
lélega grasinu, sem ég vafði mér
í vimdlinga. Það var fátækralykt
af því, sem ég skammaðist mín
svolítið fyrir, ef satt skal segja.
En stúlkan var afar vingjarn-
leg. Bg hafði tekið með mér
töluvert af þessu illgresi minu
frá Bombay í eimum pinklinum
mínum ásamt 100 rakblöð-
um, vegna þess að ég áleit hvort
tveggja £tl-dndverskt fyrirbæri.
Ég bauð stúlkunni svolitla visk
af grasinu og í staðinn kenndi
hún mér nokkur ensk orð. „Ég
svört og falleg." Það kemndi
hún mér fyrst. Svo benti hún á
lögregluþjóninn með byssuna,
sem stóð fyrir utan og kenndi
mér meira: „Hann svin,“ sagði
hún.
Önnur hubshi-stúlka, sem var
til aðstoðar hjá einhverjum á
sama gangi og við í fjölbýlis-
húsinu, tók siðan við ensku-
kennslunni. Henni fannst líka
góð lykt af mér. Og brátt komst
ég að því, að henni fannst ég
skemmtilega smávaxinn og fram
andi. Sjálf var hún stór og dig-
ur, breiðleit með há kinnbein,
frökk augu og þykkar var-
ir. Mér var um og ó vegna þess,
hvað hún var mikil um sig og
reyndi að einbeita mér að and-
litinu. Hún misskildi það. Stund
um henti hún rnikið gaman að
mér og það á grófan hátt. Mér
féll það ekki vegna þess að ég
gat ekki borgað henni í sömu
mynt eins og ég hefði viljað, og
vegna þess að útlit hennar heill-
aði mig þrátt fyrir allt. Lyktin
af henni í blamd við ilmvatnið,
sem hún notaði, hafði furðuleg
áhrif á mig.
Hún var stöðugt að gera sér
erindi inn til mín. Hún trufl-
aði mig, þegar ég var að horfa
á Amerikanana í sjónvarpinu.
Ég var skelfdur af lyktinni sem
eftir sat, þegar hún var farin.
Ég s/at eftir í skýi af svita-ilm-
vatnslýkt og lyktinni af tóbak-
inu mínu og bað til bronsguð-
anna, sem húsbóndi minn hafði
skreytt með stofuna, að hún
drægi mig ekki í vansæmd. Já,
ég segi vansæmd. Ég veit að það
kann að hljóma annarlega í eyr-
í þýðingu
Huldu Valtýsdóttur.
um fólks hér, sem hefur horft á
það umyrðalaust að allir þessir
hubshi-ar setjist. að hjá þvi og
hlýtur því að hafa töluvert álit
á þeim. En í okkar landi kær-
um við okkur ekkert um hubshi.
1 bðkum okkar, bæði þeim heil-
ögu og þeim ekki mjög heilögu,
segir að það sé rangt og ósæmi-
legt manni af okkar þjóðemi að
velvakandi
0 „Ég var svo
einfaldur . . .“
Velvakanda berast nú mörg
bréf um skattheimtuna, að
mestu frá fólki, sem komið
er á efri ár. Er ekki farið fögr
um orðum um ríkisstjórnina
og skattpíningarstefnu hennar
þar.
„Ég var svo einfaldur að
halda, að vinstri stefna byggð-
ist m.a. á því að hjálpa þeim
éfnaminni í þjóðfélaginu, öldr-
uðum og vanheilum og þeim,
sem verr gengur í lífsbarátt-
unni efnahagslega séð,“ skrifar
Þ.H. „En það er öðru nær að
sú sé framkvæmdin. Hitt virðist
miklu fremur markmiðið að of-
bjóða efnalegri getu þeirra á
hinn ódrengilegasta hátt. Ég,
sem hripa þessar línur niður,
er ellilífeyrisþegi og þekki því
mæta vel af eigin raun, hvað
um er að ræða í þessum efn-
um. Á siðastliðnu ári þurfti
ég aðeins að greiða milli 20 og
30 þús. kr. i skatta, en á þessu
ári með aðeins meiri tekjur
segi og skrifa 120 þús. krónur.
Sjá allir hvilík fjarstæða sú
endemis skattheimta er. Hjá
öldruðu fólki er þetta hrein
eignaupptaka, sem aldrei get-
ur þó fyllt hina gráðugu ríkis-
hít.“
NILFISK
þegar
um gæÓln er
að tefla....
fiími m
SUÐURGÖTU 10, REYKJAVÍK, SÍMI 24420
0 Ómennskt fyrirbæri
Og bréfritari heldur áfram:
„Það er sannarlega ómennskt
fyrirbæri að reytt sé af gamla
fólkinu allt, sem það hefurmeð
súrum sveita reynt að nurla
saman til elliáranna. 1 eldri
skattalögum voru ellilífeyris-
þegar undanþegnir sjúkrasam-
lags- og tryggingagjöldum, en
samkvæmt þessum nýju lög-
um eru allir landsmenn und-
anþegnir þessum gjöldum, en
nú fær gamla fólkið ekkert í
staðinn fyrir þau réttindi, sem
eldri lög skópu þeim við 67
ára aldurinn."
Hér hafa aðeins verið gripn-
ar nokkrar setningar úr löngu
bréfi. — Þá eru hér tvö önn-
ur bréf — styttri — um sama
efni.
0 Skattamál aldraðra
Sesselja Jónsdóttir skrifar:
„Halló, Velvakandi!
Þegar ég las um skattamál
gamla fólksins í sunnudagsblað
inu 23. júlí sl., ákvað ég að
láta verða af þvi að skrifa þér.
Hvilíkt hneyksli!
Er maður ekki búinn að
borga í þessa sjóði til þess að
eiga þetta til elliáranna, rentu
laust; að vísu er lífeyrissjóðs-
gjald frádráttarbært til skatts.
Hugsum okkur fólk, sem byrj
ar að borga í sjóðina, þegar
það er 16 ára að aldri og greið-
ir í þá til sjötugs. Ef þetta sama
fólk legði heldur sömu upphæð
ir í banka og gæti tekið pening
ana með rentum og rentu-rent
um, eftir sjötíu ára aldur, þá
væru þessir peningar undan-
þegnir skatti, eða er ekki spari-
fé skattfrjálst? Eins og nú er
háttað, þá er í mörgum til-
vikum enginn ættingi til svo ná-
kominn, að hann eigi tilkall
til innlagðs lífeyris, ef sjóðsfé-
lagi fellur frá.
Svo þegar sjötugsaldri er náð
og enginn kærir sig lengur um
að hafa viðkomandi i vinnu,
þótt sá hinn sami sé vinnu-
fær, þá á að draga frá þvi
litla, sem skammtað er, í
skatta,
Að lokum langar mig til að
spyrja: Hver ákveður gjald-
daga á fasteignagjöldum?
Hafa bæja- og sveitarfélags-
stjórnir leyfi til að breyta aug-
lýstum gjalddaga, sem var 15.
júlí, vegna þess að lokað var
þann dag og taka dráttarvexti
af þeim, sem ekki komust til
að borga fyrir kl. 3, þann 14.
júlí?
Sesselja Jónsdót.tir.“
0 Öllu náð aftur
„Kæri Velvakandi, viltu vera
svo góður að birta þessar lín-
ur fyrir mig.
Bíddu rótt, sé boðið ótt,
blekkist fljótt, sá gladdist
skjótt,
sagði Einar Benediktsson
skáld. Margt gamalt fólk gladd
ist þegar tryggingamálaráð-
herra fór að greiða aukinn elli-
styrk fyrr en ætlazt var til,
og síðar er styrkurinn var
hækkaður. Mér datt strax í
hug að ráðstafanir ráðherrans
væru ekki gerðar undirliyggju-
laust. Það hafði verið ákveð-
ið að ná þessu öllu af okkur
aftur með sköttum og það
tókst. Svona lítur hún nú út
vinstri stefnan á íslandi.
Vinstri menn ætluðu að vera
stoð og stytta hinna láglaun-
uðu, og gömlu, sem þeir nú
fara aftan að.
73 ára ekkjumaður."
— FOSSVOGUR —
Einbýlishús á einni hæð 198 fm. og 28
fm. bílskúr. Húsið skiptist í stofu, skála,
4 svefnherb., húsbóndaherb., eldhús,
baðherb., þvottaherb., geymslur o. fl.
Fullfrágengið mjög vandað hús. Verð:
um 8.0 millj. möguleiki á skiptum fyrir
tvær minni eignir.
Uppl. um þessa eign aðeins á skifstofu.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN,
Austurstræti 17.
Sími 26600.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
I
i
i
i
i
Ferðatrygging er ótrúlega ódýr. |
ALMENNAR
TRYGGINGARf
®17700