Alþýðublaðið - 06.08.1920, Síða 1
Grefið út af áLlþýðnflokknum.
1920
Föstudaginn 6 ágúst.
177. tölubl.
finaar og bolsivíkar.
Khöfu, 6. ágúst.
Frá Dorpat [í Eistlaadi] er sícn-.
að, að friðarsamningunum milli
Fmna og Rússa sé nú slitið. [Þetta
er í amiað sinn sem friðarsamn-
ingunum raiili Finna og Russá
[bolsivíka) er slitið. Eftir fyrstu
tilraunina sögðu bolsivíkar að kröf
ur Fimna hefðu verið eins og þeir
væru að semja við land sem þeir
heíðu átt í ófriði við og gersigr-
að!]
*
J ólverjar o§ bolsivikar.
KhÖfn, 6. ágúst.
Frá Varsjá [höfuoborg Póllands]
er sfmað, að ákaft sé barist á
ö!lu hernaðarsvæðinu.
Frá London er símað, að rúss-
nesku bolsivíkarnir hafi komið á
fót sovjetstjórn [með airæði verka-
lýðsins] í þeim pólsku héruðum,
sem eru á þeirra valdi.
Bolsivíkar neita að hætta fram-
rásinni nema Pólverjar leggi niður
vopnin.
Það skeði í París seint í fyrra
mánuði, að götusópari nokkur sá
krókodíl 1 göturæsinu er hann var
að flytja rusl f sorpkistu þar hjá.
Hann var nærri dottinn niður
dauður af hræðslu og hélt að hann
væri orðinn brjálaður og kallaði
á félaga sinn og fékk hana til að
rannsaka nánar hvernig í þessu
lægi. Reyndist það rétt sem götu-
sóparanum hafði sýnst, að þarna
var iifandi krókodíll á ferðinni í
miðri Padsarborg. Signufljót var
samt ekki bústaður hans, heldur
hafði hann sloppið út úr dýra-
temjarabúri (Menagerie) og þurfti
aðv'tað að skernta sér og skoða
borgina eins og hver annar ferða-
langur.
fval á þetta
letigi að ganga?
íslandsbanki neitar að flytja fé
til útlanda fyrir Landsbankann,
sem hann þó er skyldugur til
lögum samkvæmt (eða láta gull
að öðrum kosti). íslandsbanki hefir
hvað eftir annað brotið leyfislög
sín, svo sem oftlega hefir verið
sýnt fram á hér í blaðinu. Hvað
á það lengi að ganga, að íslands-
banki haldi aðeins þau lög sem
honum sjálfum gott þykir? Hvað
á það lengi að lfðast, að íslands-
banki, sumpart fyrir óviturlega
stjórn, sumpart fyrir gróðafíkn
útlendra hiuthafa hans, stöðvi
íslenzkt viðskiftalíf algerlega? Hvað
segir landsstjórnin?
Undrabarn.
lSVa árs gamall fiðluleikari.
Um miðjan júlí kom í Kaup-
mannahöfn fram á leiksviðið rúss-
neskur fiðluleikari: Tossy Spiwa-
kowsky. Gagntók hann hugi á-
heyrandanna með ieik sínum og
framkomu allri og hæla dönsk
blöð honum á hvert reipi.
Þrátt fyrir það, þó Tossy sé
að eins 12V2 árs gamall er leikur
hans svo fullkominn að undrun
sætir. Og svo Iétt er honum um
Jeikinn að þess eru fá dæmi, þó
eldri menn séu. Hann er fæddur
£ Kiew. Foreldrar hans voru bæði
Rússar. Systkynin eru öll listamenn
Eisti bróðirinn er fiðluspilari og
slaghörpuleikari og leikur han
undir fyrir Tossy. Annar Ieikur i
stórum hljóðfæraflokk. Einn bræðr-
anna er frægúr myndhöggvari, sá
fjórði operasöagvari og loks er
systir Tossys söngmær.
Tossy ferðast um með bræðr-
um sínum og eru foreldrarnir
látnir. Hann byrjaði 5 ára gamall
að læra hjá hinum fræga rúss-
neska fiðíuleikara Villy Hess, sem
heima á í Berlín. 9 ára að aldri
kom hann í fyrsta sinn fram við
söngleik í Berlín og vakti þá
mikla athygli. í haust ætlar hann
að ferðast utn Norðurlönd og
hræra hjörtu manna.
Élenðar frélHr.
Næstu kosningar í Svíþjóð.
Hr. Eden fyrv. forsætisráðherra,
foringi frjálslynda flokksins í Svf-
þjóð, hefir lýst yfir því að hans
flokkur muni við næstu kosningar
(í sumar) ganga £ kosningabsnda-
Iag við fhaldsmenn gegn jafnað-
armönnum (þeir sitja nú við stjórn).
Ástæðan er sú að jafnaðarmenn
hafa nú þegar hafið þjóðnýtingu
framleiðslunnar (produktionens
socialisering). Þar má segja að
úlfurinn hafi kastað sauðargærunni
og mun svo fara í flestum lönd-
um áður en lýkur að borgaraflokk-
arnir sjá þýðingarlaust annað en
að kasta öllu freisis og frjálslynd-
ishjali fyrir borð og taka upp sfn
eiginlegu einkunnarsrð: þrælkun
og kúgun.
Hringinn í kringum Evrópn
í ílugvél.
Franskur flugmaður að nafni
Roget er um þessar mundir að
fljúga hringinn í kringum Evrópu.
Hafði hann er s£ðast fréttist náð
að komast til Aþenuborgar; þá
var hann búinn að koma við í
Berlin, Warschau, Lemberg, Bu-
karest og IConstantinopel.