Morgunblaðið - 09.08.1972, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 9. ÁGÚST 1972
11
- ^
Suöur
ísólá
komandi
vetrí
Kanaríeyjaferðir Flugfélagsins hefjast að nýju í nóvem-
ber. í vetur mun Flugfélagið enn gefa fólki kost á ódýr-
um orlofsferðum til hinna sólríku Kanaríeyja.
Reynsla tveggja undanfarandi ára hefur sýnt, að ferð-
irnar hafa notið mikilla og vaxandi vinsælda, enda eru
farpantanir þegar teknar að berast í ferðirnar næsta
vetur. Einnig hafa ýmsar stofnanir og fvrirtæki nú hug
á því að stuðla að vetrarorlofi starfsfólks síns með þess-
um ferðum.
Kanaríeyjaferðirnar verða á hálfsmánaðar og þriggja
vikna fresti frá 9. nóvember. Brottfarardagar verða 9. og
30. nóvember, 14. og 28. desember, 18. janúar, 1. og 15.
febrúar, 1. og 22. marz, 5. og 19. apríl.
Farþegar geta valið á milli dvalarstaða í höfuðborginni
LAS PALMAS eða á baðströndinni PLAYA DEL INGLÉS,
þar sem reyndir íslenzkir fararstjórar eru farþegum til
aðstoðar. Skipulagðar verða ferðir um eyjarnar og til
Afríku.
KANRÍEYJAR ÚTI FYRIR AFRÍ KUSTRÖNDUM ERU SKEMMRA
UNDAN EN MENN ÍMYNDA SÉR. SEX TÍMA ÞOTUFLUG
í HÁSUDUR, ÚR VETRARKULD A í HEITT SÓLRÍKT
SUMARVEÐUR.
FARPANTANIR HJÁ SKRIFSTO FUM FLUGFÉLAGSINS OG
UMBOÐSMÖNNUM ÞESS.
FLUGFELAG /SLAJVDS
del Inglés