Alþýðublaðið - 25.07.1958, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 25.07.1958, Qupperneq 4
Alþýðublaðið Föstudagur 25. júlí 1958 VErTVA#6UR M6S/0S ÉG MUN HAFA orðið fyrstur til að skrifa smáleturspistla um daglegt líf í borginni og: lesencl- ur mínir verða að fyrirgefa þó að ég minni á það af hógværö. En ýmsir hafa komið á eftir mér á þessari braut og hef ég kunp- að félagsskapnum vel. Einn bar af öilum í slíkum skrifum: — Steinn Steinarr, sem skrifaði nokkrum sinnum í lítið öagblað, sem gefið var út hér fyrir nokkr «m árum og mig minnir að nefndist Háclegisblaðið. HANN VAR beiskur á brag:ð- ið, hnitmiðaði lagið og geigaði ekki. Hann reitti marga til reiði, miklu fleiri en ég hef getað reitt til reiði á jafnlöngum tíma og eru þeir þó alimargir orðnir. ■—■ 'Svavar Gests skrifaði nokkra pistla í Vísi og einn álpaðist inn ' í Tímann. Svo virðist að valdið hafi, að hann hafi orðið fyrir gremju húsbænda sinna og þeir lokað fyrir hann. ÞESSIR FIS'FJLAR voru mjög snjallir, gamansamir og uppá- fyndingasamir, og vöktu oft hlát ur á kaffihúsum. — Menn sáu 'eftir því þegar þeir hættu. — •Nu hefur Svavar Gests gefið þessa pistla út í sérstakri bók, og bætt nokkrum nýjum við. — Þetta er skemmtileg bók. — Og ,óska ég honum til hamingju með hana. v BORGAEI skrifar mér eftir- “farandi um hitaveituna: ,,Hita- Kæitan er komin í f járþrot, vegna þess að tekjum. hennar hefur verði ráðstafað til óviðkomandi Smáleíurspisilar a£ til- efni Spóaþátta Skemmtileg bók um geislabrok í daglegu lífi. Hitaveitan — Verðið á heitavatninu — Misskipt milli Reykvíkinga hluta“, var sagt í ræðu um bæj- arreikninga Reykjavíkur T9Ö7. Allir, sem lesa reikninga Hita- veitunnar árið 1957 hljóta að sjá að hún skuldar bæjarsjóði lang- drægt þá upphæð sem Skúlagata 2 kostar og þag mætti segja mér, að þeir reikningar verði jafnað- ir á þessu ári. MIKLA PENÍNGA mun Hita- veitan þurfa áður en komið verð ur íullur kraftur á heita vatnið í „Over Snobb" og trúað gæti ég að það fyrirtæki ætti eftir að verða baggi á. Hitaveitunni. — ÉJi ætla ekki að fara að verja Skúlagötuævintýri íhaldsins — heldur benda á það regin- hneyksli í rekstri Hitayeitunnar, áð hafa selt ca. 3,0—4.0 % af bæj arbúum heita vatnið íyrir hálf- virði, samanborið við upphitun með kolum eöa olíu, að cgleymd um ölluin þægindum. ÞETTA IIEEUR verið iátið j viðgangast árum sanian og aldr- í ei svo ég muni til, verið á það bent. — Hér er ekki um neina smámuni að ræða, heldur heilan milljóna tug eða meira á ári í mörg ár. Ef heita vatnið hefði verið selt á réttu verði, :eins og’ upphaflega var ákveðið, ætti Hitaveitan nú digra sjóði og væri ekki í neinni fjárþröng. •—• Hér hefur furðulegt misrétti ver ið framið og illa séð um hag þess einstaka fyrirtækis. HVERJUM er svo aðallega ver ið að ívilna og gefa? Þeim, sem eiga stórhýsi í miðbænum, verzl- unarhúsin og skrifstofuhúsiu þ. e. þeim, sem ríkissjóður leggur nú á stóreignaskattinn. Með öðr um orðum forráðamenn bæjar- ins hafa verið að gefa þeim und anfarin ár milljónatugi til þess að ríkið fái sínu meira í sinn hlut. •— ÞEIR bæjarbúar, sem búa ut- an hitaveitusvæðisins hafa lé- lega eða enga vegi, götulýsingu víða mjög af skornum skammti. Þeir halda að mestu leyti uppi strætisvögnum. Jafnvel holræsi eða frárennsli varitar víða og loks m.á benda á neyzluvatnsleys ið; sem er ein versta plágan. —• Þetta er jöfnuðurinn, sem bæj arbúar eiga við að búa á þeim sjálfsögðu þægindum, sem bæjar félagið á að sjá borgurum fyrir, en skattana til bæjarsjóðsins fá þeir áð greiða, ekki síður en hin- ir, sem heitavatnið iá fynr kálí- virði.“, Hannes á Iiorninu. ( lltarn úr heimi ) HBRNAÐARLEGU afskiptin í Jórdaníu hafa skipt brezku þjóðinni í tvo flokka, en að vísu ekki eins gersamlega og í Súezdeilunnj fyrfr tye.ini ár- ■um síðan. Með atkvæðagreiðslu sinni gegn rfkisstjórninni hefur ■fcrezki alþýðuflokkurinn hafið þá baráttu, sem hann mun ekki fáta af á næstunni, gegn nú- gildandi brezk-bandarískri .stjórnmálastefnu á Mið-Austur Jöndum, — baráttu, sem senni- tega nær hámarki sínu í nýj- um kosningum til þings í októ- bermánuði. ;En þó lítur fólk mun rólegar og af meiri skilningi á málin nú, en þégar þjóðin skiptist um Súezdeiluna. Þegar herinn gekk ' á Uand í Port Said var hægri armur þjóðarinnar hálf- trylUur af þjóðernisofstæki og sá vinstri af siðgæðilegum for- dómum..' í þetta . skipti hefur brezka ríkisstjórnin þó ekki biekkt bandamenn sína, og það er ekki neinum vafa bundið að hún hefur Íagarétíinn sín meg- ín, þegar hun verður við beiðni Husseins koíiúngs. Skoðanir skiptast því fyrst og fremst um það hvort þessi brezku afskipfi seu hyggileg, — ekki hvort þau séu siðferðilega rétt. Enn sem komið er veit eiginlega enginn með vissu hvers eðlis þessi afskipti verða, — beim er ekki beint gegn Nass er, og ekki heldur ef marka má Macmillan, gegn byltingar- mönnum í írak. Ríkisstjórnin hefur viðurkennt að bein hætta geti stafað af þessum afskipt- um,, en réttlætir þau með því að mun meiri hætta hefði staf- að af afskiptaleysinu. Alþýðuflokkurinn brezki neit ar því ekki að um keðjuverk- anir gæti hafa orðið að ræða í minni sjeik.fylkjunum við Persaflóa —Kuwait, Bahren og Qatar, en þaðan fá Bretar mest an hluta steinolíunnar — hefðu Bretar ekki orðið við hjálpar- beiðni Husseins konungs. En alþýðufíokkurinn hsldur því fram að hernaðarleg íhlutun hljóti að verða til þess að sam- eina öll arábaríkin að bak> Nass er og að Nasser skipi sér í fylk- ingu með Krústjov. Því það er eht í þessu máli, sem ríkisstjórninni hefur enn ekki tekizt að færa rök að — hún hefur meira að segja ekki einu sinni reynt það — sem sé að þessi hernaðarlega aðstoð við Jórdaníu muni bera eða geti yfirleitt nokkurn árangur borið. Jafnvel þótt ,,Times“ styðji hernaðaraðstoðina, viður kennir blaðið að það hljóti að verða mestur vandinn að hitta ráð til að kalla bandarísku og brezku herina 'heim aftur, án þess að þær ríkisstjórnir, sem þeir áttu að vernda, séu þar með ofurseldar tortímingunni. Þess sjást ekki hfeldur nein merki að Bretar eða Banda- ríkjamenn taki alvarlega hótun Sovétstjórnarinnar í sambandi við afskiptin. Þótt ekki sé tal- að um þá hættu sem orðið get- ur á heimssíyrjöld þeirra vegna getur ’hæglega farið svo að feini árangurinn af þessum afskipt- um Breta og Bandaríkjamanna verði sá að rússneskar hersveit ir taki sér varanlega bólfestu í öðrum ríkjum á Mið-austur- löndum, og hefði þó aldrei til þess komið annars, að viðkom- andi ríkisstjórnir hefðu farið fram á slíka vernd. Hörmulegast er að enn lak- ara hefði orðið ef þetta vxlspor hefði ekki verið stigið, þar sem hvert svar annað við þróun mál anna í Líbanon og írak að und- anförnu mundi hafa kippt öll- um grundveUi undan þeirri stefnu, sem þeir Eisenhower og Macmillan hafa tekið í sam- bandi við stjórnmálin á Mið- Austurlöndum eftir Súeszdeil- una. Og það er einum of mikið að ætiast til þess af shkum leiðtogum, að þeir viðurkenni, þegar dedan er sem áköfust, að þeim kunni að hafa skiátlazt. Samt sem áður fyrirfinnst þó enginn í stjórnar'herbúðunum, sem þorir að fullyrða að af- skiptin hafi verið rétt ráðin. Verði ekki stjórnarskipti er þess helzt að vænta að Mac- millan muni sjálfur minnka við sig völd og reyna þannig að finna ieiðir út úr ógöngunum, án. þess að lítillækka stjórn sína um of. Denis Healey, er selt á þessum stöðum: Austurhœr: Adloubar, Bankastræti 12. Adion, Laugavegi 11 Adlon, Laugavegi 126 Ásbyrgi, Laugavegi 139 Ásinn, Grensásvegi 26 Austurbæjarbar, Austurbæjarbíói. Blaðasalan, Brekkulæk 1. Blaðasalan, Hátúni 1. Blaðasalan, Laugavegi 8. Bókaverzl., Hólmgarði. Gafé Florida, Hverfisgötu 69 Drífandi, Samtúni 12 Flugbarinn, Reykjavíkurflugvelli Flöskubúðin, Bergstáðastræti 10 Gosi, Skólavörðustíg 10 Hafliðabúð, Njálsgötu 1 Havana, Týsgötu 1 Krónarr, Mávahlíð 25 Maísv. og ve'tingaþj. skr., Sjómannask. Mjólkurbúðin, Nökkvavogi 13 Rangá, Skipasundi 56 Söluturn Austurbæjar, Hlemmtorgi Söluturninn, Arnarhóli Söluturninn, Baróixsstíg 3. Söluturninn, Barónss.tíg 27 SÖluturninn, Borgartúni 3. Söluturninn, Laugavegi 30 B " Söluturninn, Laugarnesvegi 52 Tóbaksbiiðin, Laugavegi 34 Tóbakslniðin, Laugavegi 12 Turninn, Réttarholtsvegi 1. Vcitingastofan, Þórsgötu 14 Veiíingastofan, Oðinsgötu 5 Verzlunin Bergþórugötu 23 Verzlunin Hverfisgötu 117 Verzlun Jóns J. Jónssonar, Bergstaðastræti 40. Vérzlun Árna Sigurðssonar, Langholtsvegi 174 Verzl. Víðir, Fjölnisvegi 2. Vinnufatakjallarinn, Barónsstíg 12. Vitabarinn, Bergþórugöíu 21 Vöggur, Laugavegi 64 Þorsteinsbúð, Snorrabúð 61 Útsalan, (Þórsgötu 29) Lokastíg 28. V esturbœr: Adlon, Aðalstræíi 8 Bókastöð Eimreiðarinnar, Lækjargötu 2 Bifreiðastöð íslands. Birkiturninn, Iíringbraut/Birkimel. Veitingastofan, Bankastræti 11 Tóbaks- og sælgæiisverzlun, Hverfisg. 50 Tóbalcs- og sælgætisverzlun, Langholtsv, 131 Siró, Bergst. 54. Stjörnukaffi, Laugavegi 86 Drífandi, Kaplaskjólsveg 1 Fjóla, Vesturgötu 29 Hressingarskálinn, Austurstræti Hreýfilsbúðin. Konfektbúðin, Vesturgötu 14 Matstofan, Vesturgötu 53 Melaturninn, Hagamel 39. Ncsi, Fossvogi. Pétursbúð, Nesvegj 39. Pylsusalan, Ausíurstræti Pylsubarinn, Lauavegi 116. Sælgætisverzl, Aðalstræti 3. Sælgætisbúðin, Bræðraborgarstíg 29 Sælgætisalan, Lækjargötu 8. Söluturninn, Blómv. 10. Söluturninn, Lækjartorgi Söluturninn, Veltusundi Söluturninn, Vesturgötu 2 Söluturninn, Thorvaldsensst::æii 6 Verzl. Ilraunsholt. Verzlunin Straumnes, Nesvegi 33 West-End, Vesturgötu 45 Tóbaksbúðin, Kolasundi. Kópavogur: Biðskýlið, Kópavogi Verzlunin Fossvogur Kaupfélagið, Kópavogi Álþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.