Morgunblaðið - 05.09.1972, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIOJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1972
— „Veizla aldarinnar"
Fyrrum heimsmeistari í skák, Boris Spassky, þiggur silfur-
pening Alþjóðaskáksamba ndsins frá dr. Max Euwe.
Framh. af bls. 10
yfir stórum eldi. Steikin var
síðan framreidd með sérstök-
um drykk, „víkingablóði“.
Var svo kveðið á um að gestir
skyldu halda eftir til eignar
og minningar diskum, hnifa-
pðrum og víkingahorni þvi,
eem víkingablóðið var drukk-
ið úr. Átti fólk að eiga þessa
gripi til minningar um heims-
meistaraeinvígið og þessa
veizlu aldarinnar og gerðu
það flestir.
Söfnunaræðið var annars í
algleymingi í Laugardalshöll-
inni á sunnudagskvöld. Póst-
húsið var opið og fólk lét
frímerkja og stimpla alla
hugsanlega hluti, eins og að-
göngumiða, pentudúka, og
matseðla.
Bobby Fischer gekk fyrst-
ur að matborðinu og með hon
um Sæmundur, sem útskýrði
fyrir honum, hvað væri á boð-
stólum. Mátti Sæmundur
hafa sig allan við til þess að
Ijósmyndararnir gengu ekki
of nærri Fischer, því að þeir
sóttu að úr öllum áttum.
FAKSÆLLEGA TIL LYKTA
LEITT
Síðan hófst dagskrá krýn-
ingarháitíðarinnar. Aðaldóm-
ari einvígisins, Lothar Schmid,
steig í ræðustólinn á sviðinu
og lýsti úrslitum einvígisins.
Lýsti hann Bobby Fischersig
urvegara, þar sem hann hefði
eftir 21. skák einvígisins ver-
ið búinn að hljóta 12% vinn-
ing. Óskaði hann Fischer til
hamingju með sigurinn og
þann baráttuanda, sem
hann hefði sýnt í öllu ein-
víginu. En Schmid bar jafn-
framt lof á Boris Spassky,
sem hann sagði, að hefði sýnt
sannan íþróttaanda. í>á hrós-
aði Lothar Schmid íslenzka
skáksambandinu fyrir að
hafa staðið fyrir heimsmeist-
araeinvíginu. Þeir, sem þar
hefðu verið að verki, hefðu
lagt sig alla fram til þess að
leysa þá erfiðleika, sem upp
hefðu komið í sambandi við
einvígið og tekizt að leiða
þennan einstæða atburð til
farsælla lykta. Þá færði
Schmid aðstoðardómara sín-
um, Guðmundi Arnlaugssyni
rektor þakkir sinar fyrir frá-
bært starf. Loks færði Schmid
þakkir sinar dr. Max Euwe,
sem hann sagði, að hefði innt
af hendi ómetaniegt starf við
að koma þessu einvígi á og
bað hann síðan að koma upp
á sviðið og krýna nýja heims-
meistarann.
LÁRVIÐARSVEIGUR
OG GULLORÐA
Dr. Max Euwe gekk þar
næst upp á sviðið, tígulegur
og virðulegur að vanda og
bað Bobby Fischer að koma
til sín að ræðustólnum og
taka við útnðefningu. Dundi
við dynjandi Iófaklapp veizlu
gesta, þegar Fischer gekk létt
um skrefum og brosmild-
ur á svip upp að ræðustóln-
um.
— í nafni FIDE, Alþjóða-
skáksambandsins, lýsi ég
Bobby Fischer heimsmeistara
í skák, kunngerði dr. Euwe
við geysileg fagnaðarlæti
veizlugesta. Lagði hann sið-
an lárviðarsveig um axlir
Fischers og óskaði honúm til
hamingju. Jafnframt afhenti
dr. Euwe nýja heimsmeistar-
anum viðurkenningarskjal
um heimsmeistaratitilinn og
sæmdi hann gullorðu. Á eft-
ir var leikinn þjóðsöngur
Bandaríkjanna.
Næst bað dr. Euwe Boris
Spassky um að ganga upp á
sviðið og var honum sízt
minna fagnað af veizlugestum
en Fischer. Dr. Euwe hrósaði
honum fyrir að hafa vei<tt
harðvítugt viðnám i einvig-
inu og afhenti honum silfur-
orðu. Þar á eftir var leikinn
sovézki þjóðsöngurinn.
Síðan tók dr. Euwe aftur
til máls og sagði: — Fyrir
hönd FIDE, fyrir hönd alls
skákheimsins vil ég færa ís-
EŒM
E£E3
Atvinna í boði
Innflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráða þrifinn
og reglusaman mann með góða skipulagshæfileika
til afgreiðslu og pakkhússtarfa.
Góð laun í boði fyrir réttan mann.
í>eir sem hafa áhuga sendi nafn og uppl. um fyrri
störf á afgr. blaðsins, merkt: „2413“.
Atvinna
Kanadísk kona með B.A. (aðalfag, enska) og
B.E.D. próf frá University of British Columbía,
tíu ára starfsreynslu sem kennari og nokkra reynslu
sem einkaritari, óskar eftir hálfs- eða heilsdags-
starfi
Upplýsingar gefnar í síma 22705.
Aðstoðarstúlku óskast
Óskum að ráða aðstoðarstúlku í rannsóknastofu
vora strax.
SÁPUGERÐIN FRIGG,
sími 51822.
Sendisveinn
Sendisveinn á hjóli óskast strax.
Upplýsingar í síma 11421 milli klukkan 1 og 3.
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS,
Skúlagötu 20.
Róðskona og aðstoðarstúlka
óskast að heintavistorskóla
Nesjaskóli, Hornafirði, óskar að ráða ráðskonu til
starfa 4 vetri komanda. Til greina kemur að ráða
hjón, og mundi maðurinn þá annast ýmsa félags-
málastarfsemi nemenda.
Einnig óskast aðstoðarstúlka.
Umsóknir um aldur, menntun og fyrri störf, sendist
Rafni Eiríkssyni, skólastjóra, Sunnuhvoli, Nesjum,
Homafirði, fyrir 15. sept. nk. og veitir hann einnig
nánari upplýsingar um störfin.
Verksmiðjuvinna
Óskum að ráða eftirtalið starfsfólk:
1 vaktarformann, 2 karla og konur til almennra
verksmiðjustarfa. Vaktavinn.
Uppl. hjá verkstjóra, ekki í síma.
HF. HAMPIÐJAN,
Stakkholti 4.
IM ítí) auglýsa í MorgunbEaðinu
landi þaklkir fyrir það, sem
það hefur innt af hendi í
þágu hinnar göfugu íþróttar
okkar. Það, sem Islenzika
skáfesambandið hefur afrekað
er nær ótrúlegt. Verfeefnið
var risavaxið. Þessi atburð-
ur hefur verið frá upphaíi
til enda fullkominn vitnis-
burður sameiningar, sam-
stöðu og sameiginlegs átaks,
sem er einsdæmi í skáksög-
unni og ef til vill
í aliri sögunni. Sagði dr.
Euwe, að þetta hefði aldrei
verið kleift, ef ekki hefði
komið til aðstoð Islendinga,
hárra sem lágra. Lauk hann
ræðu sinni með þessum orð-
um: —- Megi Island vaxa og
dafna um aldur og ævi.
VIKINGATAFL
Að ræðu dr. Euwes lokinni
fór fram afhending sjálfra
einvigisverðlaunanna. Tók
Bobby Fischer við ávísun að
upphæð 78.000 dollarar eða ná
lægt 7 millj. ísi. kr. úr hendi
Guðmundar G. Þórarinssonar.
Jafnframt hlaut Fischer að
gjöf bók mikla, íslandslýs-
ingu Paul Gaimards og að
auki sérstaka gjöf, sem bor-
izt hafði þá um daginn, en
það var ný tegund tafls, sem
hefur verið fundið upp á ís-
landi og ber nafnið „Víkinga-
t'afl". Höfundur þess og gef-
andi var Magnús Ólafsson.
Næst var Boris Spassky
kallaður að nýju upp á svið-
ið til þess að taka við sínum
verðlaunum. Auk fjárverð-
launa sinna hlaut hann einn-
ig Gaimardbókina og vik-
ingatafl Magnúsar Ólafsson-
ar.
Að svo búnu voru þeim dr.
Max Euwe, Lothar Schmid,
Guðmundi Arnlaugssyni og
aðstoðarmönnum beggja
keppendanna einnig færðar
góðar gjafir.
IMARFT TEFLT
Þegar verðlaunaafhendingu
var lokið og gjöfum útdeilt,
tók Halldór E. SigurðssO'n
fjármálaráðherra til máls og
sagði meðal annars, að þessa
einvígis yrði ekki aðeins get-
ið sem merkisatburðar í sögu
íslands, heldur og í verald-
arsögunni. Gat ráðherrann
þess, að eitt af mörgu, sem
gerði mun á lífi litillar þjóð-
ar og stórþjóðar, v?eri það, að
stórþjóðum félli margt í
skaut án fyrirhafnar, en smá
þjóðir þyrftu mikið á sig að
leggja til þess að öðlast þau
hnoss, er þættu eftirsóknar-
verð.
Mörgum hefði þótt djarft
teflt og mikið áræði
að halda einvígið á
Isiandi, en isilenzkir skák-
menn hefðu sýnt, að þeir
voru vandanum vaxnir og
hefðu aukið hróður íslenzku
þjóðarinnar og undirstrikað
tilverurétt hennar sem sjálf-
stæðrar þjóðar. Þá ftutti fjár
málaráðherra dr. Euwe og
Alþjóðaskáksambandinu þakk
ir fyrir vinsemd i þágu Is-
lendinga.
Að ræðu Halldórs E. Sig-
urðssonar Iokinni var stiginn
dans til kl. 1.
BOBBY SKEMMTI SÍÓR VEL
Það var greinilegt, að
hekmsmeistarinn nýbakaði
akemmti sér vel og steig dans-
inn alveg eins og aðrir veizlu
gestir. Ekki hafði hann samt
alveg silitið hugann frá skák-
inrri, þvi að hann var bæði
með vasataf! og skákbækur
meðferðis. Á meðan setið var
undir borðum hafði hann
þanníg rakið 21. skákina með
Boris Spassky og eftir að
dansinn var hafinn kom það
oft fyrir, að hann blaðaði i
s'kákbók einni.
Þegar hótfinu lauk kl. 1 var
það álit flestra, að það hefði
yfiríeitt tekizt mjög vel.
Menn héldu á braut með vík-
ingahorn sin eftir veizlu, sem
í samræmi við einvigi aldar-
innar gat vel staðið undir
nafninu veizla aldarinnar.