Morgunblaðið - 12.10.1972, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1972
Jólabækurnar
taka senn að streyma á markað
Jón Sigurðsson
frá Kaldaðarnesi
BÓKAFORLÖGIN eru að leggj»
síðustu hönd á undirbúning, áður
en jólabækurnar fara að streyma
á markaðinn, en þær eru orðnar
fastur liður þessa siðustu þrjá
mánuði ársins. Morgunbiaðið hef
ur eins og undanfarin ár snúið
sér til forsvarsmanna útgáfu-
fyrirtækjanna og leitað upplýs-
inga um bækur þeirra. Er hér
fyrsta yfirlitsgreinin af þremur
til fjórum, sem birtast munu á
næstunni, og gefa lesendum hug-
mynd um hvers þeir mega vænta
frá bókaútgefendum í ár.
HELGAFELL
Ragnar Jónsson, forstjóri
Helgafells, sagði að bókaútgáfa
forlagsins ó þessu ári væri að
verulegu leyti helguð hinu sjö-
tuga Nóbelsskáldi. Fjórtán bæk-
ur koma út á árinu eftir Laxness.
Tíu eldri bækur hans, sem hafa
verið uppseldar um tima, hafa
verið endurprentaðar. Komið
hafa út tvær nýjar bækur
„Skeggræður gegnum tíðina“ og
„Norðanstúlkan", leiksviðsger ð
Atómstöðvarinnar. í þessum mán
uði kemur „Kristnihald undir
jökli“ á ensku (Christianity at
glacier) í þýðingu Magnúsar
Magnússonar.
Þá má 'geta þess að ný Lax-
dæluútgáfa Laxness er að koona
út og haifa nokkrir ungir mynd-
listarmenn prýtt hana með verk-
uan sínuan. Kristján Karlsson rit-
ar in.ngang að bókinni og fjallar
meðal annars um það mikla póli-
tíska rót, er þókin olli, þegar hún
kom fyrst út árið 1943.
Þá hefur NóbeLsskáldið nú af-
hent forlaginu nýjan stórróman,
verk á fjórða hundrað blaðsiður,
sem kemur út fyrir jólin. Sú bók
hefur ekki hlotið nafn enn.
Ólafur Jóhann Sigurðsson
Tvær ljóðabækur koma út hjá
forlaginu, eftir Heiðrek Guð-
mundsson frá Sandi og Ólaf
Jóhann Sigurðsson. Ný skáld-
saga eftir Þráin Bertelsson kem-
ur út hjá forlaginu fyrir jólin.
Loks er svo ritsafn Jóns Sigurðs-
sonar frá Kaldaðarnesi, í útgáifu
Kristjáns Albertssonar. í ritsafni
Jóns — sem mifcinn orðstír gat
sér fyrir Hamsunþýðingar sínar
— eru birt fruimsamin ljóð Jóns,
sem fæst hafa komið fyrir al-
menningssjónir, svo og ritgerðir
og ýmis bréf hans.
Björn J. Blöndal
SETBERG
Aldaskil heitir bók eftir Árna
Óla, ritstjóra, sem Setberg gefiur
út og eru í henni frásagnir
manna og kvenna um lifið i land
inu fyrir, uim og eftir síðustu
aldamót. „Einn í ólgusjó — lifs-
sigling Péturs sjómanns Péturs-
sonar“ heitir bók eftir Svein
Sæmundsson. Eru þetta ævi-
minningar Péturs, eins og nafn-
ið gefur til kynna. Þá er bók eft-
ir Björn J. Blöndal, „Vötnin
ströng“, bók um veiðiskap, nátt-
úruskoðun, ár í Borgarfirði og
fléttað inn i þjóðsögum og ýmsuim
gömlum frásögum. „Byggðin í
hrauninu" eftir Stefán JúIiuS-
son, mannlýsingar og minninga
þættir úr átthögum hans, Hafn-
arfirði.
Setberg gefur út fyrstu ljóða-
bók eftir Hjört Pálsson, „Dyn-
fararvísur“. Auk þess koma út
hjá forlaginu tvær unglingabæk-
ur eftir íslenzka höfumda: Anna
Heiða, 18 ára eftir Rúnu Gísla-
dóttur, sem er síðasta bókin i:
þeim flokki og „Röskir strákar í
stórræðum", 2. bók uim sömu
söguhetju og í þeirri fyrri. Höf-
undur er Ragnar Þorsteinsson
kennari. Fyrir yngstu lesendurna
koana svo endurútgáfur af Snúð
og Snældti og íslenzku dýrin.
LEIFTUR
Milli 30 og 40 bækur koma út
hjá Bókaútgáfunni Leiftri í ár
og komu þrjár þeirra reyndar
fyrr á árinu: „Til mín laumaðist
orð“ eftir Pétur Magnússon í
Valianesi, „Niðjatal síra Jóns
Benediktssonar og Guðrúnar
Kortsdóttur" og Afmælisrit helg-
að Steingrími J. Þorsteinssyni,
prófessor. Þá kemur III. bindi
skáldsögu Guðrúnar frá Lundi
„Utan frá sjó“ og er það niður-
lag sögunnar. „Lent með birtu“
eftir Bergsvein Skúlason, söigur
og sagnir úr Breiðafirði. Guð-
miundur Einarsson frá Brjánslæk
sendir frá sér endurminningar
sinar, „Fokdreifar“, og Cesar
Mar skrifar sjóferðasögur og
kallar bókina „Vitann“.
Þriðja bindi Vestur-Skaítfell-
Hjörtur Pálsson
B.jörn Magnússon, prófessor
ingatals eftir prófessor Björn
Magnússon og er þá eitt bindi
ókomið. „Úr byggðum Borgar-
fjarðar“, II. bindi eftir Kristleif
Þorsteinsson á Stóra-Kroppi.
Seinna bindi Ólafs Jónssonar,
búnaðarráðunauts á Akureyri
heitir „Á tveimur jafnfljótum“
Arngrímur Signrðsson
Kristleifur Þorsteinsson
Stóra-Kroppi
og Matthias Helgason á Drangs-
nesi sendir frá sér endurminning-
ar sinar, II. bindi og heitir það
„Á faraldsfæti“.
Tvær skáldsögur eftir konur
koma út hjá Leiftri, „Dögg í
spori“ eftir Steinunni Þ. Guð-
mundsdóttur og „Darraðardans"
eftir Kristrúnu M. J- Björnsson.
Þá gefur Leiftur út bókina „Al-
þjóðleg og islenzk líffæraheiti“,
sem er uppsláttarbók fyrir hjúkr
unarfólk og lækna. Guðmundur
Hamnesson er höfundur en próf.
Jón Steiffensen endurskoðaðd
þessa útigáfu og jók við. Einnig
er endiurprentuð bókin „fslenzk
Jæknisfræðiheiti“ eftir Guð-
mumd Hannesson, sem hefiur ver-
ið ófáanleg í nokkuð mörg ár.
Allmangar bækur, ætlaðar
börnum koma út hjá Leiftri, þar
af þrjár eftir íslenzka höfunda,
„Dúfan og galdrataskan“ eftir
Guðrúnu Guðjónsdóttur og
„Börnin í Bæ og sagan af kisu“
eftir Kristínu R. Thorlacius og
„Giggi og Gunna“ eftir Berg-
þóru Pálsdóttur. Geta má oig ým-
issa flokkabóka, sem Leiftur hef-
ur gefið út undanfarin ár, þar á
meðal koma út tvær nýjar Nancy
bækur, tvær Bob Moran-bækur
og tvær uim ævintýri Franks og
Jóa.
Ein bók kemur út í Pétur Most-
flokknum, en af öðrunn sj álfstæð
um unglingiabókium má nefna
„Homblower sjóliðsforingja“,
„Kaldrifjuðu leikkonuna", „Dótt-
urina“, „Karnabæ og ræningj-
ana“ oig nokkrar fleiri.
Að síðuistu má nefná eina bók
til viðbótar, sem Leiftur gefur út
í ár, „Heimsmyndin eilífa", II.
bindi eftir Martinus. Þorsteinn
Halldórsson þýddi þá bók.
ÆSKAN
Bókaútgáfa Æskunnar sendir
frá sér fjórar bæfcuir í ár: Ann-
álar íslenzkra flugmáia II. bindi,
sem Arngrímur Sigurðsison hef-
ur tekið saman. Unglingabókina
Stefán Júlíusson
Guðrún frá Lundi
„Upp á líf og dauða“ eftir Ragn-
ar Þorsteinsson, endurútgáfu af
„Ennþá gerast ævintýr“, barna-
bók eftir Óskar Aðalstein og að
lofeuim 5. bókina í frumbyggja-
flokknum „Baráttan við Indíán-
ana“ eftir Elmer Horn. Jónína
Steinþórsdóttir þýddi.
BÓKAÚTGÁFAN SNÆFELL
Fjórar bæfcur koma frá Snæ-
felli í ár, og eru það allt þýddar
bækur, þrjár fyrir börn og ein
læknasaga eftir Carrie Mitchell.
Bamabækurnar eru Ævintýri á
Eyðiey, sem er einkum ætluð
drengjum, 2. útgáfa aif „Frænk-
unum fjórum og ömmu í Fagra-
dal“ eftir Dikken Zwiltemeyer og
einnig kemur út ný bók í Tom
Swift-flokknum og heitir hún
„Gullborgin á hafsbotni“.
BÓKAÚTGÁFAN IIILDUR
Hjá Hildi kemiur út bók eftir
Jónas Guðmundsson, stýrimann,
um Grænlandsreisu með
dönskum skipum, sagt frá lifn-
aðarháttum Grænlendinga fyrr
og nú og ýmis fróðleikur og
skemmtain. Gisli Sigurðsson
myndskreytir bókina.
Jónas Guðmundsson stýi iinaðiir
Hildur gefur einnig út all
marígar þýddar skáldsögur, svo
sem undanfarin ár. Ellefta bókin
sem kemiur út eftir danska höf-
undinn Ib Henrik Cavling heitir
„Hamingjuleit“ og endurútgáfa
af „Herragarðinum“ eftir sama
höfund. — Þá kemiur út „Titr-
andi sandar“ eftir Victoriu Holt
og endiurútgáfa af „Birgittu á
Borgum“ eftir Margit Ravn.
Sötmuleiðis er bókin „Hjartað
ræður“ eftir Sheilu Brandon gef-
in út öðru sinni og Hildur er að
hiefja útgáfu á þýðingum og
íruimsömduim bókum Aðalsteins
hieitins Sigrmundssonar og ríður
á vaðið með 1. bindi af „Þegar
drengur vill“.
BÆKUR 1972
1. grein