Morgunblaðið - 14.11.1972, Page 16

Morgunblaðið - 14.11.1972, Page 16
16 kORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1972 Oitgofandi fvf ,ÁtvaTor, Ffey’kijavfk Pnfffn'kveafnda&tjóri HaraMur Svemsaon. Rtetiórar Mattihlas Johormossen, Eyfóífur KonrSO Jónsson. Styrmir Gun-narsson. RftsVfdmarfutHrúi Þiorbliönn Guðirwndsson Préttastjóri Björn Jóharweison Auglýsingastjóri Árni Garöar Krlatineson Rítstjórn og afgreiðsia Aðaistræti 6, sfnri 10-100. AugBýssingaí Aðaistræti 6, sfmi 22-4-80 Ásikriftargjafd 225,00 kr i márrtjöi irmantonds I teusasöTu 15,00 Ikr eirvtokið Á undanförnum áratug hef- ur mikil breyting orðið í verzlunarháttum, sérstak- lega á sviði smásöluverzlun- ar. Hinar svonefndu kjörbúð- ir hafa rutt sér til rúms. Þær hafa krafizt mun meira hús- rýmis en hinir eldri verzl- unarhættir og kaupmenn því lagt í mikla fjárfestingu við uppbyggingu nýju kjörbúð- anna. Þeim hefur tvímæla- laust fylgt mun betri þjón- usta en hægt var að inna af hendj. í gömlu verzlununum. Vöruúrval er miklu meira á einum stað, en áður var. Þannig tíðkaðist það áður, að verzlunin skiptist í margar sérverzlanir. Sérstök verzlun fyrir nýlenduvörur, önnur sérverzlun fyrir kjötvörur, sú þriðja fyrir fisk, hin fjórða fyrir brauð og kökur og sú fimmta fyrir mjólk og flest- ar mjólkurafurðir. I hinum nýju kjörbúðum er lögð áherzla á, að hafa flest til sölu, sem heimilið þarfnast frá degi til dags, ný- lenduvörur, í sumum þeirra hafa svo fylgt stórar verzl- unarmiðstöðvar í nýjum hverfum, þar sem sérverzl- anir með hinar ýmsu sérvör- ur eru tii staðar við hlið kjörbúðanna, sem verzla með matvörur. Þannig hafa mikl- ar framfarir orðið í smásölu- verzluninni undanfarinn ára- tug og er ekki ofmælt, að einkareksturinn í verzluninni sem þarna hefur haft alla for- ystu, hafi lyft grettistaki til hagsbóta fyrir neytendur. En á einu sviði verzlunar- innar hafa ekki orðið sömu framfarir. Það er við dreif- ingu á mjólk og mjólkurvör- um. Sú venja ríkir enn að langmestu leyti, að mjólk er seld í sérstökum útsölum Mjólkursamsölunnar á höfuð- borgarsvæðinu. Út um land að selja svo aftur í sínum verzlunum án álagningar en hlotið aðkast fyrir af hálfu forsvarsmanns kaupfélagsins. Af hálfu þeirra, sem vilja halda í núverandi kerfi á sölu mjólkur og mjólkur- vara hefur því verið haldið fram, að dreifingarkostnaður mundi aukast. Þetta er auð- vitað fáránleg staðhæfing. Það er sönnu nær, að dreifingarkostnaður mundi minnka vegna þess, að Mjólk ursamsalan þyrfti ekki leng- ur að leggja í mikinn kostnað við innréttingu á útsölustöð- um. Rökin, sem mæla með þvi að breyting verði gerð á sölu- fyrirkomulagi mjólkur og mjólkurvara eru mörg. I fyrsta lagi hefur orðið svo MJÓLKURDREIFING er seldur fiskur, skólavörur og ýmislegt fleira. Augljóst er, að af þessum verzlunar- háttum hefur leitt stórbætt þjónusta við neytendur. Hús- mæðurnar þurfa ekki lengur að arka milli margra verzl- ana, sem verzla með mismun- andi vörur, heldur geta þær fengið flest, sem þær þarfn- ast á einum og sama staðn- um. í kjölfar kjörbúðanna ríkir víða einokunarkerfi, sem tilheyrir fremur liðinni öld en þeim tímum, sem við lifum á. Þar sitja kaupfélög- in ein að mjólkursölunni en kaupmönnum er meinað að veita viðskiptavinum sínum sömu þjónustu. Nefnd hafa verið dæmi um það, að kaup- menn hafi farið í kaupfélög- in til þess að kaupa þar mjólk á útsöluverði til þess mikil breyting á húsakynn- um matvöruverzlana, að þar er fullnægt ítrustu kröfum um hreinlæti og hollustu- hætti. í öðru lagi er ljóst, að sala mjólkur og mjólkurvara í almennum matvöruverzlun- um mundi spara stórfé, sem ella verður lagt í að halda áfram uppbyggingu sérstaks dreifingarkerfis fyrir mjólk og mjólkurafurðir. Þetta dreifingarkerfi er nú fyrir hendi í matvöruverzlunum og ástæðulaust að kasta fé í að byggja upp tvöfalt slíkt kerfi. í þriðja lagi er ljóst, að sala mjólkur og mjólkur- afurða í almennum matvöru- verzlunum þýðir stórbætta þjónustu við neytendur. Hús- mæður geta þá fengið þessar nauðsynjavörur keyptar á sama stað og aðrar matvörur. í fjórða lagi er ekki ólíklegt, að salan á þessum afurðum bænda mundi aukast vegna þess, að hin almenna verzl- un býður upp á betri þjón- ustu og rýmri opnunartíma en útsölur Mjólkursamsöl- unnar á höfuðborgarsvæð- inu. Hér hafa verið nefnd- ar nokkrar þær röksemdir, sem mæla með því að fyrir- komulagi mjólkurdreifingar verði breytt. Tímarnir hafa breytzt mikið frá því að nú- verandi sölukerfi mjólkur var tekið upp. Sölusamtök bændanna hljóta að horfast í augu við þessar breyting- ar. Tíðarandinn er sá, að gerðar eru síauknar kröfur um bætta þjónustu við neyt- endur. Þessum kröfum verða Mjólkursamsalan í Reykja- vík og mjólkurbú annars staðar á landinu að mæta. Ella verður niðurstaðan sú, að bændur missa markaðinn til annarra neyzluvara. Þýzku kosningarnar: 55 Áttið yður, Karl Schilleru Eftir Matthías Oberammergau, nóv. — Willy Brandt, kanslari Vest- ur-Þýzkalands, segir hiklaust hvar sem er að efnahagsmál landsins séu í stakasta lagi. í umræðunum um efnahags- málin hefur hann sterk- an mann við hlið sér, Helmut Sehmidt, fjármálaráð herra, sem tók við af Karl Sehiller. Sehmidt er harður í hom að taka og í einni af auglýsingunum sem jafnaðar- menn (SPD) dreifa í blöðin segir með mynd af honum: „Við getum verið stolt af gjaldeyri okkar. Allur heim- urinn öfundar okkur af mark inu okkar.“ Má það vel til sanns vegár færa. I auglýs- ingunni segir ennfremur: Ferðamenn vita að maySyr fær í dag fleiri dollara, flejfri piund, fleiri franka fyrir markið okkar en 1969. En Strauss er ekki sam- mála því að nú ríki góðæri í vestur-þýzku efnahagslífi. Hann var fljótur að svara kanslaranum í sjón varpsþætti og spurði hvort af staða Karis Schillers hefði borið því vitni að allt væri með felldu í efnahags- málunum. Brandt hristi höf- uðið, ekki til .samþykkis, heldur til að láta í ljós van- þóknun sína á þessu innskoti um Schiller. Eins og kunnugt er hefur Karl Schiller, fyrrum fjár- málaráðherra V-Þýzkalands, snúið baki við flokki sínum. 1 samtali síðast í september sagði hann að hann væri óháður öllum flokkum og hygðist ekki ganga í neinn flokk. En hann mundi áfram láta rödd sina heyrast og halda fast við þá fyrri sann- færingu sína, að stjórna J ohannessen þyrfti fjármálum rikisins af meiri festu en gert hefði ver- ið undanfarið. Dýrtiðin í Vestur-Þýzkalandi væri meiri en unnt væri að verja með skírskotun til utanaðkomandi verðbólguáhrifa. Hann hefði ekkert aðhafzt af persónu- legum ástæðum, heldur hefði hann ávallt tekið málefna- lega afstöðu. Sér hefði reynzt erfitt að slíta böndin við flokk sinn, en orðið að gera það naiuðugur viljugur. Eins og kunnugt er skrif- aði Schiller Brandt bréf 2. júlí s.l., þar sem hann sagði af sér embætti fjármálaráð- herra, en sendi það ekki fyrr en firnm dögum siðar. Bréf þetta var mesta áfall stjórn- ar Brandts. í bréfinu sagðist Schiller ekki vera fjármálaráðherra „sem héldi að sér höndum mánuðum sam an“. Hann bendir á að ekki hafi verið hlustað á sig i rík- isstjórninni, hamn hafi oft staðið einn, jafnvel hafi hann orðið fyrir aðkasti fé laga sinna, en látið persónu- legar árásir oft og einatt lönd og leið. Hann hafi skýrt kanslaranum i bréfi frá 29. febrúar frá væntanlegum erf iðieikum í efnahagsmálum og varað við afleiðingunum. Hann hafi beðið um stuðn- ing kanslarans, en árangurs- laust. Einkum hafi samráð- herrar hans gert atlögu að honum á stjórnarfundi 16. maí í vor og enginn hafi sýnt efnahagsáætlutium hans skilning. Hann hafi ekki get- að setið aðgerðalaus árið út (kosningar áttu ekki að fara fram fyrr en á næsta ári), við lítinn skilning og enn minni aðgerðir. í bréfinu er skýrt frá því, hvernig stjórn in tók afstöðu gegn og á bak við Schiller, en með forseta þýzka ríkisbankans. Schiller segist hafa setið við hliðina á forseta rikisbankans á fundi i Líuxemburg ttm- um saman og hafi hann þá ekki orðað tillögur þær sem hann hugðist leggja fyrir ráð herrafund skömmu síðar, og þegar Schiller spurði forseta Sambandsbankans þýzka í návist kanslarans, hvernig á þessu hefði staðið, hefði hann svarað því til, að hann hefði ekki skýrt honum frá tillög- unum vegna þess að kunn- ugt væri að Schiller væri þeim andvígur. Ekki er ástæða til að fjölyrða um þennan áriagaríka þátt í póii tískri sögu Vestur-Þýzka- lands á síðari árum, en að- eins vitnað að lokum í niður- lagsorð bréfs Schillers: „Einnig mér eru takmörk sett. Nú get ég ekki lengur fram- fylgt réttlæti til handa þessu ríki og borgurum þess, né sinnt skyldustörfum mín- um eins og rétt er, vegna þess að ég hef ekki fengið stuðning til þess, hef jafnvei verið hindraður í störf'um mínum." Segir Karl Schiller loks að hann sjái enga leið aðra en segja af sér. Nú hafa Karl Sehiller og Ludwig Erhard tekið hönd- um saman og hafið auglýs- ingaherferð („þótt við höfum ekki alltaf verið sammála") i blöðunum og vara við verð- bólguþróuninni, en leggja áherzlu á festu og frelsi. Ekki veit ég hver greiðir þessar auglýsingar, en sennilegt er að á bak við þær standi m.a. fyrirtæki sem sjá hagsmunum sínum og starfsfólks síns bezt borgið með því að stuðla að réttri þróun í efnahagsmálum. í einni auglýsingu þeirra fé- laga, þær verða sjö fyrir kosningar og hafa fimm birzt, segir: 6,2 Prozent und noch kein Ende! og er þar auð- vitað átt við verðbólguþró- unina. Þar er m.a. sagt að lífsnauðsynjar hækki um (4% á mánuði, þ.e. verðlag hækki um % % fram yfir kaupgjalds hækkanir. Enn fremur: „Verðbólga okkar er að veru legu leyti heimatilbúin". Og loks: „Festa og full vinna fara saman". En þá er þess einnig að geta að Karl Schiller lofaði því, þegar hann tók við embætti fjár- málaráðherra að dýrtíðin mundi ekki aukast nema um 2%, meðan hann væri í emb- ætti. Honum tókst aftur á móti ekki að hafa hemil á verðbólgunni frekar en ýms- um öðrum ágæfcum far- andriddurum „hins heil- brigða efnahagslífs". Annars hefur kveðið minna að Schiller undanfar- ið en í upphafi kosningabar- áttunnar og er enn óséð hver áhrif brottför hans úr flokki jafnaðarmanna hefur á kosn ingaúrslitin. En áreiðanlega er hann fleinn í holdi flokksins. „Sálrænt vanda- mál“, hefur Willy Brandt sagt stutt og laggott um þennan fyrrverandi sam- starfsmann sinn. „Áttið yður, Karl Schiller; ég vildi helzt ekki þurfa að skammast mín svo fyrir yður að ég yrði orð l’aús,“ segir mesti orðhákur- inn í hópi þýzkra rithöf- unda, Gúnter Grass — og jafnframt einn mesti rithöf- undur Evrópu nú um stund- ir, þótt erfitt sé að lesa skáldsögur hans, svo mjög sem hann notar mállýziku fæð ingarbæjar síns, Danzig, í sín um þykku doðröntum. En þá ér bara að lesa verk hans eins og nýlátinn skáldjöfur, Ezra Pound, segir að menn eigi að lesa „Contos", ljóða- flokk hans: „Hlauptu yf- ir allt sem þú skilur ekki, og lestu áfram, þangað til þú finnur þráðinn aftur.“ „Ég einn? Af hverju ekki Grass líka?“ voru fyrstu orð in sem Heinrich Böll sagði, þegar hann fréttí að hann hefði hlotið Nóbelsverðlaun. Grass þeysist um landið þvert og endilangt fyrir Willy Brandt. Hann er eitil- harður eins og Strauss. Hér í Bæjern var einn fundur Grass hneyksli, af því hann kallaði Strauss ræfil eða þorpara (Lump). En Sfcrauss kærir sig kollóttan. Engin ástæða til að taka mark á Grass, hann er orðhákur og málrófsmaður. Hann er bara skáld. Segir „ógnvaldurinn Franz Jósef".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.