Morgunblaðið - 14.11.1972, Page 19

Morgunblaðið - 14.11.1972, Page 19
Félagsstarf eldri borgara, Lang- holtsvegi 109—111 Miðvikudaginn 15. nóv. verð- ur opið hús frá kl. 1.30 e. h. Meðal annars verður upplýs- ingaþjónusta, bókaútlán og einsöngur. Kristinn Hallsson syngur við undirleik Láru Rafnsdóttur. Fimmtudaginn 16. nóv. hefst handavinna og föndur kl. 1.30 e. h. □ Edda 597211147 = 2 I.O.O.F. Rb 1 = 122111480 — 9. III. K.F.U.K. — AD. Alþjóðabænavika K.F.U.M. og K. Biblíulestur í kvöld kl. 20.30 í umsjá Kristínar Markúsdóttur. Efni: Hann leiðir þig. Allar konur vel- komnar. -—- Stjórnin. Kæri félagi. Gídeonsfélagið heldur fund 14. nóv. kl. 8.30 e. h. í Bet- aníu, Laufásvegi 13. Eldri Gídeonsfélagar sjá um efni fundarins. Reynið að mæta vel, því það er igott að vera í hópi trúaðra vina. Sálarrannsóknarfélag (slands Skrifstofa Sálarrannsóknarfé- lags íslands, bókasafnið og afgreiðsla „Morguns", Garða- stræti 8 er opin á fimmtudög- um kl. 5.30—7 e. hád. (ekki á miðvd. eins og áður). Tekið á móti pöntunum á miðils- fundi hjá frú Björgu Ólafs- dóttur aðeins á miðvikudög- um kl. 5—6 e. hád. í síma 18130. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1972 FÉLAGSSTARF SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Aðalfundur FUS, Kjósarsýslu Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn Keflavík, heldur aðalfund í Æskulýðsheimilinu Austurgötu 13 fimmtudaginn 16. nóv. n.k. kl. 9 siðdegis. Venjuleg aðalfundarstörf, kaffidrykkja og siðan spilað bingó. Félagskonur fjölmennið. STJÓRNIN. Aðalfundur í Hvöt, félagi • Sjálfstæðiskvenna, verður haldinn í Atthagasal, Hótel Sögu, þriðjudaginn 21. nóv. kl. 8,30. Fundarefni: Stjórnarkjör og önnur aðalfundarstörf. STJÓRNIN. Spilakvöld í Hafnarfirði Spilað miðvikudaginn 15. þ.m. í Sjálfstæðishúsinu í Hafnar- firði. — Verðlaun — Kaffi. SJALFSTÆÐISFÉLÖGIN I HAFNARFIRÐI. verður haldinn að HLÉGARÐI mánudaginn 20. nóvember n.k. og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ellert B. Schram mætir á fundinum og flytur ávarp. Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. STJÓRN F.U.S. KJÓSARSÝSLU. * Arnessýsla Sjálfstæðiskvennafélag Arnessýslu heldur aðalfund sinn að Bláskógum 2 Hveragerði miðvikudaginn 15. nóv. 1972 kl. 21. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Frú Unnur Þórðardóttir ræðir við fundarkonur um laukblóm í görðum. 3. Önnur mál. 4. Sameiginleg kaffidrykkja. STJÓRNIN. □ Edda 597211147 — 1 Filadelfía Almenn samkoma í kvöld kl. 8.30. Ræðumenn Daníel Glad og Willy Hansen. Þingstúka Reykjavíkur Fundur verður haldinn í Þing- stúku Reykjavíkur, Templ- arahöllinni, Eiriksgötu 5 í kvöld kl. 8.30. Fundarefni: 1. Stigveiting. 2. Erindi um starfsemi áfeng isvarnarnefndar Rvíkur. 3. Önnur mál. Kassi eftir fund. Allir templarar velkomnir á fundinn. — Þingtemplar. Knútur Bruun hdl. 'A'".: v • Lögmannsskrifstofa Grettisgötu 8 II. h. Sími 24940. ^imiiiiiiiiiiimur ■ BtTI» VEL. OG ÓDÝRT | í KAUPMANNAHÖFN Vliklð lækkuð vetrarffjöld. ■ Hotel Viking býður yður ný- ■ tízku herbergi með aðg'angi ■i að baði og herbergi með I baði. Símar í öllum her- [ bergjum, fyrsta flokks veit- I ingasalur, bar og sjónvarp. ■ 2. mín. frá. Amalienborg:, 5 VI mín. til Kongens Nytorv og ■ Striksins. = HOTEL VIKING . Bredgade 65, DK 1260 Kobenhavn K. ■i Tlf. (01) 12 45 50, Telex 19590 Ol Sendum bæklinga og verðl. ÞAKKLÆTI TIL VINA Hjartans þakklæti flytjum við hjónin vinum okkar, sem fylltu Súlnasalinn á Hótel Sögu og héldu okkur kveðjusam- sæti með höfðinglegum gjöfum og dásamlegum mannfagnaði þann 29. okt. siðastliðinn I tilefni af sjötugsafmæli mínu. Við þökkum þjóðfrægu listafólki, óperusöngvurum og upp- lesara og ræðumönnum þjóðkunnum, sem mæltu fyrir minni okkar hjónanna, svo og starfsbræðrum mínum innan kirkj- unnar, sem mæltu á sama hátt til okkar. En fyrst og síðast þökkum við þeim vinum okkar, sem stóðu fyrir þessu gríðarlega fjölmenna samsæti af mikilli vináttu, höfðingslund og rausn. Sömuleiðis þakka ég heillaóskaskeyti, blóm og gjafir, sem mér bárust í sambandi við afmæli mitt, sem allt ber vitni um gamla og gróna vináttu, tryggð og kærleika. Hjartans þakkir. Guð blessi ykkur öll. Lifði heil. Jón Thorarensen. ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■BHHH||HHHHHHHaHHHHHHHH||HHHHHHa ÞETTA GERÐIST 1 APRÍL 1972 AIÞINOI Ríkisstjórnin fellst á sjónarmið USA um framkvæmdir á Keflavíkur- ílugvelli (7). Miklar umræður um varnarmál (7). Stjórnarfrumvarp til nýrra fram- leiðsluráðslaga (11). Stjórnarfrumvarp um heilbrigðis- þjónustu (13). Umræöur um sjónvarp (18). Stjórnarfrumvarp um Húsnæðis- málastofnun (18). Þingsályktunartillaga rikisstjórn- arinnar um, að öll meginraforku- vinnsla og örkuflutningur verði i höndum eins aöila (20). Umræður um frumvarpið um heil- brigðisþjónustu (22). Stjórnarfrumvarp um heildarlög- gjöf vátryggingastarfsemi (28). Stjórnarfrumvarp um 500 millj. kr. spariskirteinalán (29). VEDVR OG FÆBÐ. Grimsvötn sigin um 85 metra (7). Fárviðri gengur yfir Reykjavik og nágrenni (30). t)TGER»IN Tregur afli suö-vestan-lands (6). Mokafli Ólafsvikurbáta (6). Afli togaranna stórminnkar (19). Heildarrækjuafli Vestfjarðabáta 1570 lestir frá áramótum (20). Heildaraflinn sunnanlands frá Hornafirði til Stykkishólms 108 þús. lestir (25). FRAMKVÆMDIR 60 ibúðir fyrir aldraða I Reykja- vik teknar i notkun (7). Miklar byggingaframkvæmdir á döfinni 1 Garðahreppi (7). Þrir nýir skuttogarar keyptir til Reykjavikur (14). Stálvik h.f. hefur samið um smíði þriggja skuttogara (15). Nýjum 103 lesta báti, Sigurborgu AK 375 hleypt af stokkunum hjá I»orgeir & Eliert á Akranesi (16). Nýr gæzluleikvöllur teklnn 1 notk- un 1 Kópavogl (16). Landhelgisgæzlan semur um kaup á Fokker-Friendship-flugvél frá Japan (16). Stóriðjunefnd ræðir við United Carbide um málmblöndunarverk- smiðju á Islandi (22). Unnið að skipulagi svæðisins við Árbæ (23). Iðnþróunarsjóður samþykkir 102 millj. kr. lánveitingar (25). Fóstbræöur vigja eigið félagsheim- 111 (26). MENN OG MÁLEFNI Gylfi Þ. Glslason skipaður prófess- or í rekstrarhagfræði við Háskóla íslands (5). Björn Dagbjartsson, efnaverkfræð- ingur, ver doktorsritgerð við Rut- gers University i New Jersey (5). Lögreglurannsókn vegna dreifi- bréfs 1 Keflavík (8). Forseti Islands, dr. Kristján Eld- járn, gefur kost á sér til endurkjörs (12). Sigrún Guöjónsdóttir hlýtur 1. verðlaun í samkeppni Þjóðhátiðar- nefndar 1974 um veggskildi (15). Kristin Þorkelsdóttir hlýtur 1. verðlaun fyrir þjóðhátíðarmerkið 1974 (15). Guðmundur Einarsson sigraði á Hvanneyri i keppni um Morgunblaðs skeifuna (18). Guðmundur Sigurjónsson skák- meistarl Islands 1972 (19). Brezk sendinefnd til viðræðna um fiskveiðilögsöguna komin (19). H. S. Amerasinghe, formaður und- irbúningsnefndar Hafréttarráðstatnu SÞ, í heimsókn (20). Halldór Laxness kjörinn heiðurs- borgari Mosfellshrepps (22). Dr. Selma Jónsdóttir, forstöðumaö ur Listasafns Islands, heldur fyrir- lestur viö Edinborgarháskóla (22). Margrét Guömundsdóttir og Klem- enz Jónsson hljóta verðlaun úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins (23). Halldór Laxness kjörinn heiðurs- doktur við Háskóla Islands (25). Fundur utanrlkisráðherra Norður- landa haldlnn I Reykjavik (25). Amerísku læknasamtökin veita dr. Sigmundi Guðbjarnarsyni 3 millj. kr. styrk til rannsókna við Raunvísinda stofnun Háskólans (28). Guðmundur Guðmundsson ver doktorsritgerð i beinaskurðlækning- um við háskólann i Lundi (29). Miöilshæfileikar Hafsteins Björns- sonar kannaðir (30). fEt.agsmAl Tíu danskir unglingar i námsferð til íslands um páskana (7). Hagsmunásamtök Norðlendinga vilja tækniskóla á Akureyri (7). Ölvir Karlsson endurkosinn íor- maður Samhands sveitarfélaga á Suðurlandi (7). Verkfræðifélag Islands heldur ráð- stefnu um matvælaiðnað (8). Fyrsta íslenzka myntsýningin haldin hér (8). Magnús K. Geirsson kosinn formað ur Félags islenzkra rafvirkja (9). Gengið frá sérsamningum vinnu- veitenda og verkalýðsfélaga (11). Alþjóðleg ráðstefna um mengun sjávar haldin hér (11). ÆSl heldur ráðstefnu um mengun sjávar og heilbrigðisþjónustu (14). Veiðifélag Flóamanna stofnað. Formaður Hörður Sigurgrimsson, Holti (14). Fyrsta náttúruverndarþingiö hald- ið hér (15). Tómas Steingrimsson kjörinn for- maður Almennu tollvörugeymslunn- ar h.f. á Akureyri (16). Gunnar J. Friöriksson endurkosinn formaður Félags isl. iðnrekenda (22). Sigurgrímur Jónsson, Holti, endur- kosinn formaður Mjólkurbús Flóa- manna (22). Jón Þorgilsson formaður Veiðifé- lags Rangæinga (23). Sigurður M. Þorsteinsson endur- kjörinn formaður Flugbjörgunar- sveitarinnar (23). Veiðifélag Þingvallavatns stofnaö (23, 27). Elias Sn. Jónsson formaður Blaöa- mannafélags Islands (25). Frtðjón Sveinbjörnsson formaður Sambands ísl. sparisjóða (26). Félag prentiðnaðarins stofnað, for- maöur Baldur Eyþórsson (28). Bergsteinn Guðjónsson endurkjör- inn formaður Frama (29). Bahá’i ráðstefna haldin 1 Reykja- vlk (29). BÓKMENNTIR OG I.ISTIR Nemendur Hamrahlíðarskóla sýna leikrit i Laugardalslauginni (9). Rudolf Firkusny, píanóleikari, leik ur með Sinfónluhljómsveitinni undir stjórn Uri Segal (11). Málverk eftir Gunnlaug Blöndal selt á 130 þús. kr. á uppboði (12). Þorvaldur Guðmundsson kaupir málverk Jóns Stefánssonar, Áning, fyrir 380 þús. kr. (13). Norðanstúlkan, leikgerð Atóm- stöðvarinnar eftir Halldór Laxness (19). Carmen Dragon stjórnar Sinfóníu- hljómsveitinni I Laugardalshöllinni (20, 22). Helgafell gefur Halldóri Laxness afsteypu i bronsi af brjótsmynd Ólaf ar Pálsdóttur af skáldinu (23). Dr. Róbert A. Ottósson stjórnar „Te Deum“, sem söngsveitin FIl- harmonla flytur með Sinfóníuhljóm- sveitinni (26). Þjóðleikhúsið sýnir Sjálfstætt fólk í leikgerð Halldórs Laxness og Bald- vins Halldórssonar (28). SLYSFARIR OG SKABAR 17 ára piltur fellur i jökulsprungu við Grímsvötn. Bjargað með aðstoð þyrlu (5). Japanskt skip missir ollu i Þor- lákshöfn (8). 4ra ára drengur biður bana I um- ferðarslysi i Reykjavík (11). Trolldræsur stöðva vél Lunda VE 110 og eyöileggst hann i brimróti (11). Hafliði GK 210 sekkur út af Grindavlk (13). Tveggja ára drengur ferst 1 elds- voða á Hellissandi (18). 19 ára piltur, Brynjar Ananíasson, drukknar af togaranum Kaldbak (22). Verulegar skemmdir verða 1 Reykjavík og nágrenni í fárviðri (30). ÍÞRÓTTIR Akureyringar í sérflokki á Sk>ða- landsmóti Islands (5). Islendingar í 4. sæti í Polar up- keppninni 1 körfuknattleik (5) KR Islandsmeistari I innanhjss* knattspyrnu karla og Akrane 1 kvennaflokki (5). Armann vinnur sig upp i 1. u uá I handknattleik karla (5). Island vann USA I tveimur leikj- um í handknattleik, með 21:11 og 25:18. Geir Hallsteinsson skorar sitt 300. landsleiksmark (11). Haraldur Korneliusson tvöfalrtur meistari á Reykjavíkurmótinú í bad- minton (11). Island í 3ja sæti á Norðurlanda- móti unglinga i handknattleik og I 4. sæti á Norðurlandamóti stúlkna (4). Ágúst Ásgeirsson sigrar i Viða* vangshlaupi IR (22). Ungmennafélag Njarðvikur flyzt upp í 1. deild í körfuknattleik, en lið Umf. Skallagríms fellur i 2. deild (25). Úrslit allra flokka í Islandsmótinu I handknattleik (30). AFMÆLI Sundhöllin í Reykjavlk 35 ára (7) Verzlun Jóns Mathiesen I Hafnar- firði 50 ára (8). Verkfræðingafélag Islands 60 ára (19). Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis 40 ára (22). Hestamannafélagið Dreyri á Akra- nesi 25 ára (26). Kristján Ó. Skagfjörð h.f. 60 ára (27). Kvenfélag Hallgrímskirkju 30 ára (30).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.