Alþýðublaðið - 07.08.1920, Blaðsíða 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Afgreiðsla
blaðsins er í Aiþýðuhúsinu við
Ingólfsstræti og Hverfisgötu.
Síml 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
eöst í Gutenberg í sfðasta lagi kl.
30, þann dag, sem þær eiga að
koma í blaðið.
Jón: En ef einhver ekki vilí
vinna ?
Skúli: Ja, þá hann um þaðl
Við jafnaðarmenn segjum með
postulanum Páli (sem sumir segja
að hafi verið hinn fyrsti bolsivíki)
að sá sem ekki vill vinna, eigi
ekki heldur mat að fá, en við
viljum láta þetta ná einnig til
þeirra sem erft hafa peningahrúgu
og pípuhatt.
Jón: En gamalmenni og mun-
aðariaus börn?
Skúli: Já hvernig er farið með
þau nú? Hvað liggur fyrir útslitnu
gamalmenninu og munaðarlausu
börnunum nú? Ef allir hugsuðu
um það, kæmust jafnaðarmenn
tafarlaust í meirihluta, og gætu
farið að breyta þjóðfélaginu sara-
kvæmt kenningurn sínum. En
meinið er að fjöldinn er hugsun-
arlaus ennþá.
Jón: Ojá, það er nú satt.
Skúli: Ji, og þú kaupir auð-
valdsblaðið, blaðið sem fiskhring*
urinn og aðrir stórfiskar þessa
lands haida út til þess að berjast
á móti því að tollunum sé létt af
alþýðunni og að kaupið sé hækk-
að, og það sem meira er: þú trú-
ir því sem auðvaldsblaðið segir,
þó þú vitir anda þess í garð al-
þýðunnar. Hugsaðu nú um þetta,
og vertu nú sælll
Sápan og netin
hans Sigurjóns.
Alþbl. var búið að fá Laug-
konu tii þess að láta uppi álit sitt
um »Seros“ sápuna. En þegar til
kom mátti hún ekki vera að því.
í sinn stað sendi hún son sinn
til Alþbl. og sagði hann að hún
hefði beðið að heilsa og segja „að
sápan væri bara góð.“
Sápuverksmiðjan „Seros“ er
ekki ókunn lesendum þessa blaðs,
því í vor birti það viðtal við Sig-
urjón um hana
Það sem sápuverksmiðjan býr
til er þetta: blautasápa, stanga-
sápa (tvær tegundir), sápuspænir,
vagnáburður, ullarolía (lopaolía) og
gólfvax (þ. e. til þess að „bóna“
gólf með), í viðlögum má hafa
það til þess að gera gula skó
gljáandi með, og lfklegast geta
stúlkurnar notað þetta framan í
sig, ef þær verða uppiskroppa með
„púððer“.
1 netaverksmiðju Sigurjóns eru
búin til allskonar net Á sýning-
unni eru sýnd sfldarnet, þorskanet,
pokagildra (fyrir silung og lax)
og botnvarpa1; en vitanlega er
Báran ekki nógu stór til þess, að
hægt sé að þenja hana þannig út,
að vel sé hægt að gera sér í hug
arlund hvernig hún fari í sjó, fyrir
þá sem ekki vita það. En úr því
er bætt með lítilli botnvörpufyrir-
mynd, sem hangir í loftinu. Ann-
ars eru sjálfar botnvörpurnar frá
Sigurjóni slfkar fyrirmyndir, að
Englendingar eru farnir að taka
upp lagið sem er á þeim, en síðan
rífa þeir þær langtum síður.
Um sýningu Sigurjóns má yfir-
leitt segja: lítil en lagleg.
A. B
Vilhjátmnr Stejánsson.
Vilhjálmur Stefánsson norðurfari
hefir dvalið hér í bæ um vikutíma.
Hann var hér í verzlunarerindum.
Hefir félag myndast á Englandi,
til að koma á fót hreindýrarækt
á landsvæði því hinu mikla á Baf-
finlandi, sem hann tók á leigu frá
stjórninni. ÆtLr félagið að kaupa
hreindýrahjarðir frá Noregi og
flytja vestur. Stendúr Vilhjálmur
fyrir félagsmyndun þessari, og fór
hann þeirra erinda til Englands í
vor. Lfklegt er talið að Hudsons-
flóa félagið muni setja upp sölu-
búð þar norðurfrá, ög verður það
þá norðlægasti verziunarstaður í
Ameríku.
Senn er von frá stjórninni í Ott-
awa á nýju landabréfi yfir heim-
skautalönd Amerfku, og verða þá
sýndar á því landabréfi eyjar þær
er Vilhjálmur fann þar norðurfrá.
Eru þær allar enn óskírðar, en
hann sagði oss, að Ifk]ega myndi
hann gefa sumum þeirra eitthvert
nafn úr fornsögunum. Norðurströnd-
in verður og öll táknuð eftir mæl-
ingum hans og rannsóknum. Sýnir
sig þá bezt er landabréf þetta kem-
ur út, hve miklu verki hann hefir
afkastað þar í þarfir landfræðis-
legrar þekkÍDgar. Landabréfið ætti
að verða fróðlegt og kærkomin
eign, eigi sízt íslendingum. Því af
þessu Bjarmalandi hinu vestlæga
eru fáar sagnir til, þangað til Vil-
hjálmur kom þangað, og allar hug-
myndir um legu landa þar norð-
urtrá mjög á reiki og óglöggar.
Eigi kvaðst Vilhjálmur mýndi
geta farið til íslands á þessu ári,
en sagði sig langa til að fara þahg-
að við fyrstu hentugleika, Bók um
hina síðustu ferð sína norður (1913;
—1918) er hann að enda við að
skrifa. Býst hann við að bókin
verði fullptentuð á komandi hausti,
Og verður húh gefin út saöitfmis í
New Yörk, Toronto og á Englandi.
— Héðan fór Vilhjálmur austur .tif
Ottawa um tniðja vikuna.
Hkr. 30/6
Jlesta mannvirki
heimsins.
Stórskipaleið ráðgerð inn r
miðja Ameríku.
Danski ræðismaðurinn í Chicago
tilkynnir í skýrslu til utanríkisráð-
herrans danska, að heljarfyrittæki
sé á döfinni, sem óhætt megi
telja umsvifamesta yerkfræðilega
fyrirtækið, sem enn hefir verið
byrjað á í heimi hér.
Það er hvorki meira né minna
en að tengja hin miklu stöðuvötn
Norður-Ameríku við Atlantshafið,
með siglingaleið sem fær sé
stærstu flutninga- og farþegaskip-
um heimsins, alla ieið til Chicago
og annara mestu kornbæja Ame-
ríku Þetta má verða á þann hátt,
að St. Lswrercefljótið er dýpkað
milli Ontaríovatnsins og Montreal-
bæjar. Áætlað er að verkið muni
kosta 110 miljónir dollara.
Bandarfkja- og Kanadastjórn-
irnar hafa skipað nefndir til þess
að rannsaka þetta nánar og full-
gera frekari áætlanir.
Koroist þetta í kring, sem
ástæöulaust er að efast um,
styttist leiðin til hafs mjög mikið