Morgunblaðið - 24.01.1973, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUÍl i4. JANÚAK 1973
r
!
HAMFARIRNAR I VESTMANNAEYJUM
ÞAÐ voru svo margir aðilar
sem tóku þátt í björguninni
frá Vestmannaeyjum að þeir
verða ekki taldir upp í þess-
ari frásögn, enda getið í
fréttafrásögnum annars stað-
ar í blaðinu. Hitinn og þung
inn af aðgerðunum hefur þó
hvílt á Almannavamaráði,
sem samhæfði og stjórnaði
þeim öllum.
Það hefur stundum verið
sagt með nokkurri illgimi á
undanfömuim árum að úrræði
Almannavarna á neyðarstund
væru nokkur teppi sem
flæddu þegar mikið væri í
Elliðaánuim. Það eru litlar
líkur til að þetta verði sagt
framar.
í Aknannavarnaráði eiga
sæti Pétur Sigurðsson, for-
stjóri Landhelgisgæzlurmar,
sem er forstöðumaður Al-
mannavarna, Sigurjóm Sig-
urffeson, lögreglustjóri, Jón
A. Skúlason, póst og síma-
málastjóri, Sigurðuir Jóhanns-
son, vegamálastjóri og Ólafur
Ólafsson., landlæknir. Ritari
er Ólafur Walther Stefáns-
son, deildarstjóri í dómsmála-
ráðuneytinu.
Hamfarirnar í Vestmanna-
eyjum hófust um klukkan 2
aðfaramótt þriðjudagsins.
Um það bil hálftíma síðar
var Almannavarmaráð komið
saman í höfuðstöðvum sinum
undir nýju lögregkistöðinni
við Hverfisgötu og skipulagn-
ing björgunaraðgerðanna var
hafin. Auk þeirra sem eiga
sæti í ráðinu var þar og Will
H. Perry, almannavamasér-
fræðingur frá Sameinuðu
þjóðunum.
Hann var hér fyrir um
tveim árum og vann þá að
samningu neyðaráætlana,
ásamí starfsmönnum AJ-
mannavama hér. Umrnæli
hans um frábært starf Al-
manmavamaráðs, er að finna
annars staðar í blaðinu.
Þegar fréttamenn Morgun-
blaðsins komu í höfuðstöðv-
ar Almannavama um kvöld-
matarleytið í gærkvöldi, sat
ráðið enn og hafði setið nær
sleit.ulaust síðan það var kali
að út. í stöðvunum er talstöð
og fjöldi síma sem sjaldam
þögnuðu. Ráðið fýlgdist þann
ig nákvæmlega með öOlu sem
gerðist og tók sinar ákvarð-
anir og gaf fyrirskipanir eftir
því sem þörf krafði.
Sérfræðingarnir stukku i
símann eftir þvi hvert vanda-
málið var; vegamálastjóri ef
aitthvað gekk úr lagi með
samgömgur, Ólafur, landlækn
ir, ef taka þurfti ákvörðun
Úr höfuðstöðviim Almannavama. Frá v. Sigurður Jóhannsson, vegamálastjóri, Signrjón
Sigurðsson, lögreglustjóri, og Pétur Sigurðsson, forst iðiimaður Almannavarna.
um sjúkrahúsmál o. s. frv.
Þótt þeir hefðu setið lengi var
ekki miki'l þreytumerki á
þeim að sjá og þeir hresstu
sig öðru hvoru með kaflfi og
samlokum sem framreiðslu-
mamnnaskólinn hafði sent,
einn fjölmargra aðiia sem
var fús tii að leggja af mörk-
um allt sem hann mátti, eins
og þeir geta borið vitni um,
sem nutu aðhlynningar þeirra
í skólanum.
Ráðið hafði að vonum mik-
ið að gera en við fengum að
leggja fyr.r það nokkrar
spurningar:
— Nú hefur björguniarstarf
ið gengiö svo vel að gengur
kraftaverki næst, en voru
einhvers konar erfiðieikar,
sem eklki varð ráðið við?
— Nei, það er ekki hægt að
segja að neitt hafi gerzt sem
ekki var hægt að finna lausn
á. Líklega hafa mestu erf ð
leikarnir orðið í sambandi við
símann. Þegar fréttist um
gosið varð þegar mikið álag
á símakerfinu. Það er eðlilegt
að fólk vilji spyrjast fyrir
um ættingja, en þetta getur
skapað erfiðíeika. En við höfð
um talstöðvar að gripa
til þegar með þurfti svo
þetta varð ekki alvarlegt.
— Hversu mikið er vald A1
mannavarna? Nú baifia borizt
fregnir um að flólk haifi neit-
að að yfirgefa eyjarnar, getið
þið skipað þeim það?
— 1 lögum um ailmanna-
vamir segir að hlutverk
þeirra sé að skipuleggja og
fraimikvæma ráðstafanir sem
miða að því að koma í veg fyr
ir að atonenniniguir verði fyrir
likaims- eða eigniaitjóni aif völd
um hemaðaraðgerða, náttúru
hamfara eða af annarri vá.
Starfssvið Almannaivama ei
því slikt að það verður að
haifa töluvert vald og getur
því gert kröfur tiil og geifið
fyrirsikiipanir, opinberum aðil-
um, einstakiingum eða stoifn-
un-um. Rikisstjórnin heifur
hins vegar úrsl'itiavald, þar
sem lailmannavamir liúta henn
ar stjóm oig hún getur geifið
fyrirsikipanir um nauðflutn-
iniga ef þörf krefur.
f sambandi við vald ráðs-
ins má geta þess að í lögium
um almannavarnir er kveðið
á um að ríkisistjóminni sé
heimilt að taka leigunámi
skip, flugvélar og vélknúin
ökutæki fyrir brottflutning
þess fól'ks sem ekki getur séð
sér sjálfit fyrir farkosti. Hún
má einrnig gefia fyrinmæli á
neyðarstund um að húseigandi
eða húisráðandi Skuli taka við
fólk sem flutt er af hættu-
svæði og veita því fæði ef
nauðsyn er.
_— Þar sem ríkisstjórnin fól
Almannavarruaráði fram-
kvæmd björgunarstarfsins
má segja að vald þess i þessu
tilvilki sé mikið. Það skal hins
vegar tekið skýrt fram að það
þurfti engar fyrirskipanir að
gefa í þessu efni, það buðu
svo rraargir aðstoð sina að við
gátum ekki notað nærri öll
til'boðin.
— Nú var til neyðaráætlun
um brottflutning frá Eyjum,
sem hægt var að styðast við
að nokkru lieyti. Hvað eru til
margar sams konar áætlianir
fyrir aðra staði?
— Það eru fullbúnar áætl-
anir fyrir HúSavík, Vik í Mýr
dai og ísafjörð og svo fluig-
vellina í Keflavík og Reykja-
vík. Það er nú verið að vinna
að áætlun fyrir Reykjavík og
Akiureyri. Undir Reykjavík
faffla einnig í þessari áætlun,
Kópavogur, Seltjamarnes,
Hafnarfjörður, Garðahreppur
og Mosfellshreppuir.
—: Nú er mesta hættan á
mannskaða úr sögunni, hvað
teflcur þá við hjá ykkur?
— Hættan er nú ekki úr
sögunini enin, það eru enn
menn í Eyjum og verða næstu
daga ef eklki gerizt eitthvað
nýtt. Við fylgjuimst að sjálí-
sögðiu með öryggi þeirra sem
þar eru enn, en þar að auki
byrjum við nú að vinna að
því að hindra eignatjón eftír
því sem við getum. Við erum
t.d. að senda skip til að ná
i bifreiðar til Vestmannaeyj-a
og einnig fiak sem þar er í
fryS'tifhúsum. Fleiri samibæri-
legar ráðstafanir verða vænt-
antega gerðar á næstu dög-
um. — ót.
Jón A. Skúlason, póst- og símamálastjóri, Ólafur Ólafsson, landiæknlr og Will Perry, aJ-
mannavarnasérfræffingur frá Sameiniiðu þjóðiinum. (Ljósm. Sv. Þ.)
0
I höfuðstöðvum Almannavarna sátu fimm
menn og stjórnuðu björgunaraðgerðunum