Morgunblaðið - 24.01.1973, Side 32
Offsetprentun
tímaritaprentun
í* litprentun
Freyjugötu 14* Sími 17667
MIÐVIKUDAGUK 24. JANUAR 1973
2Hot0tml>Iítí>tí>
nucLvsmcnR
<£U-*224&a
.farðe1da.g:irðingin í sjó fram á Heimaey. (Ljósm. Mbl.: Kr. Ben.)
Eyjasjómenn ætla ekki að
láta gosið hindra veiðar
2000 lestir af frystum flökum og 200 tonn
af þurrfiski sótt til Eyja
Vestmannaeyjum, 23. jan.
Frá Árna Johnsen, blm. Mbl.
ELDGOSIÐ í austurjaðri Helga-
fells var talsvert minna í dae en
í nótt. Gossprungan lokaðist á
nokkur hundruð metra kafla
syðst og einnig dró úr hraun-
pusinu nyrzt. Gm miðjan dag
virtist sem sérstakur gigur ætl-
aði að myndast skammt fyrir
austan og ofan Kirkjubæ; ösku-
sprengingar urðu, en þau tilþrif
hjöðnuðu fljótt. Engin aska féli
á kaiipstaðinn í dag og engar
jarðhræringar fimdust, en tals-
verðan hvin mátti lieyra frá gos-
stöðvunum. Sumir, sem hingað
komu í dag, töldu, að gosið væri
að aukast með kvöldinu, en svo
er alls ekki. Það virðist hins veg-
ar stórfelldara í myrkrinu.
Hraunrennsli virðist einnig hafa
minnkað frá i nót)t, en aftur á
móti slettist talsvert af þunn-
fljótandi gosefni úr gígsprung-
unni í ioft upp. Þetta gos er
mjög svipað og síðasta gos, sem
hófst í Surtsey í ágúst 1966. Ég
fylgdist með því gosi frá byrjnn,
þar sem ég dvaldi þá í eynni, og
ef þetta gos heldur sama hátt-
erni og síðasta Surtseyjargos, þá
horfir ekki illa. Enginn veit að
vísu, hvað náttúruöflin kunna að
gera, en ekki er ástæða til að
gera of mikið úr hættunni, eins
og sakir standa. Enginn Vest-
mannaeyjarbátur var i höfninni
í morgun, en síðdegis i dag voru
liðlega 30 bátar við bryggjur og
voru sjómenn að vinna við báta
sina; taka veiðarfæri um borð
og gera klárt fyrir veiðar.
Virðast þeir þvi ckki
ætla að láta þcssa, vonandi tima-
biindnu ei-fiðleika stöðva velðar,
Framhald á bls. 31
Slíkt hefur aldrei gerzt áður
í sögu almannavarna
— segir Will H. Perry,
almannavarnasérfræðingur
frá Sameinuðu þjóðunum
BANDABÍK.IAMAÐLBINN
Will H. Perry, er almanna-
varnasérfræðingur frá Sam-
einiiðu þjóðunum, sem kom
hingað til lands fyrir um
tveim árum til að aðstnða við
gerð neyðaráætiana, m. a.. fyr
ir Húsavik og Vík i Mýrdal
og Isafjörð. Hann var staddur
hér þegar gosið hófst og sat
með Almannavarnaráði í höf-
uðstöðvum þess í nýju lög-
reglustöðinni við Hverfisgötu,
en þaðan var aðgerðum stjórn
að. Morgunblaðið spurði hann
áíits á framkvæmd björgunar
starfsins.
Framhald á bls. 31
Gosið
á
800 m
Vestmannaeyjuim í gær-
k/völdi. Frá Árna Johnsen,
blm. Mbl.
ELDGOSID nær nú klukkan
22.30 yfir um 800 metra lang-
a.n kafla i gossprungunni.
Það hefur enn frekar rýrnað
til beggja enda með kvöldinn,
en hins vegar hefur það auk-
izt nokkuð á þessum 800
metrum. Mestur kraftur er í
gosinu um það bil 400 metra
austur at' bænum Einland og
virðist svo sem þar sé að
myndast gigur, sem kraumar
talsvert í, með niiklum dynkj-
um. Þarna er hraunkajnbnr-
inn lægstur.
Þar sem hraumið ramm i sjó
fram í átt að vatnsleiðslunni,
sést nú engin glæta. Svo
virðist sem gosið sé nú nokk-
uð í rénum, og hraumkambur-
inm hefur lítið breytzt, þrátt
fyrir mikið hraumpus.