Morgunblaðið - 16.02.1973, Síða 12
12
MORGUNHLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. FEBROAR 1973
Stúlkur leika
„Útilegu-
menmna
u
— á 90 ára afmæli
Framtíðarinnar,
málfundafélags MR
„ÉG BJÓ til eða snllaði eða
skrúfaði saman leikriti i
jðlafriinu. I>að heitir Útiiegu-
mennirnir og er í 4 þáttum
með Ijóðmælarusli hér og þar.
Mér leiddist þessi danska
„kommindía“, sem griðkonur
hérna segja, og tók mig þvi
til, og Jió þetta rit mitt í raun
og veru sé ómerkilegt, gjörði
það J>ó hvínandi lukku; ég
var æptur fram á senuna, og
klappaði pöbullinn yfir mér,
svo að ég varð áttavilltur.“
Þannig komst Matthías
Jochumsson að orði i bréfi,
sem hann ritaði i marz 1862,
i mánuðinum eftir að það var
frumsýnt af nemendum presta
skólans, en sjálfur sat hann
þá í 5. bekk hins lærða skóla,
sem síðar varð Menntaskólinn
í Reykjavík. Síðan hefur leik-
ritið verið sýnt oft og þá eink
um i nýrri búningi undir
nafninu Skugga-Sveinn, og er
óþarfi að fjölyrða um það
nánar. En nú hefur málfunda
félagið Framtíðin i Mennta-
skólanum í Reykjavík tekið
það til sýninga í tilefni af 90
ára afmæli félagsins, en um
leið má líta á sýninguna sem
afmælissýningu leikritsins
sjálfs; það er nú 110 ára gam-
alt.
Framtiðarmenn hafa í þetta
sinn breytt út af hefðbund-
inni uppfærslu verksins, nú
eru öll hlutverk í höndum
námsmeyja við skólann og
gefur það leikritinu að sjálf-
sögðu nokkuð annan blæ en
menn eiga almennt að venj-
ast. Er leikritið var frumsýnt
fyrir 110 árum, voru öll hlut-
verk í höndum karlmanna —
og sú hefð hefur með tíman-
um skapazt, að Grasa-Gudda
væri ieikin af karlmanni, en
Gvendur smali af kvenmanni.
En í þetta sinn er enginn karl-
maður í neinu hlutverkanna
— meira að segja Skugga-
Sveinn sjálfur er leikinn aí
stúlku.
Leikritið var frumsýnt í gær
kvöldi, á afmælisdegi Fram-
tiðarinnar í iþróttahúsi Voga-
skóla fyrir boðsgesti og nem-
endur skólans. Önnur sýning
fyrir nemendur verður á
sunnudag, en viku síðar,
sunnudaginn 25. febr. verður
sýning fyrir almenning, og
verða miðar á hana seldir i
Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar og bókaverzlun
Máls og menning'ar. Leik-
stjóri var Baldvin Halldórs-
son, dr. Hallgrímur Helgason
bjó hljómlist til flutnings, og
með helztu hlutverk fara:
Þórdis Kristjánsdóttir (Lár-
enzíus sýslumaður), Bera Nor
dal (Sigurður lögréttumaður
i Dal), Ágústa Stefánsdóttir
(Ásta), María Þorleifsdóttir
(Gvendur smali), Ragna Ól-
afsdóttir (Grasa-Gudda), Inga
Lára Baldvinsdóttir (Skugga-
Sveinn) og Sigrún Hjálmtýs
dóttir (Ketill). — Leikritið er
stytt, því að í upphaflegu leik
gerðinni var mikið um lang-
ar einræður og löng samtöl,
og tekur sýningin um tvo
tima í heild sinni.
Þessi leiksýning er, eins og
áður sagði, hátíðarsýning
vegna afmælis Framtíðarinn-
ar, en hin hefðbundna Herra-
nótt verður i marz — og er
þar raunar einnig um afmæli
að ræða, 250 ára afmæli
Herranætur. Forseti Framtíð-
arinnar er nú Mörður Árna-
son.
Efst: Skugga-Sveinn (Inga
Lára Baldvinsdóttir) telur
kjarkinn i Ketii (Sigrúnu
Hjálnitýsdóttur).
1 ntiðið: Baldvin Haildórsson,
leikstjóri kíkir á farða og
skegg Ketils (Sigrúnar Hjálm
týsdóttur, seni einnig leikur
frk. Gúðmundsen í Brekku-
kotsannál næsta sunnudag).
Neðst: Gaidra-Héðinn yfir-
heyrður. Frá vinstri: Grímur,
stúdent frá Hólum (Helga
Jónsdóttir), Galdra-Héðinn
(Elín Ólaf sdóttir), Helgi,
stúdent (Sigrún Eldjárn) og
Lárenzíus, sýslumaður (Þór-
dís Kristjánsdóttir).
Tii hliðar: Lára, dóttir Sigurð-
ar lögréttumanns í Dal (Ág-
ústa Stefánsdóttir).
Ljósmyndir Ól. K. M.