Morgunblaðið - 16.03.1973, Side 5
MOROUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1973
5
PÉTUR Á
ÞANGSTÖÐUM
ÁTTRÆÐUR
>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f
NÝJAR VÖRUR t DAG
PÉTUR Jónsson, Þangstöðum
við Hofsós, er áttræður í dag.
Hann hefur alið allan sinn starfs
aldur á Hofsósi, var fyrsti for-
maður Verkamannafélagsins Far
sæls á Hofsósi, og lengi einn
íremsti maður í starfi þar. Hann
hefur alltaf stundað sjó og al-
menna vinnu, og er raunar enn
bundinn þeim störfum.
Pétur er ekki allra vinur, en
traustur og trúr þar sem hann
tekur vináttu, skýr í huga og á
gott með að ræða almenn mál-
efni, jafnvel nú á öldungsafmæli
Björn í Bæ.
Harma
árásir
Þorgeirs
ÚTVARPSRAÐ samþykkti ein-
róma á fundi sínum 9. marz s.l.
ályktun, sem fer hér á eftir:
„Útvarpsráð harmar ósmekk-
legar og órökstuddar árásir Þor-
geirs Þorgeirssonar á Ríkisút-
varpið og yfirmenn þess í við-
tali við Guðrúnu Helgadóttur i
þættinum „Glugginn“ 1. marz
s.l.
Af þessu tilefni leggur útvarps
ráð áherzlu á, að stjórnendum
dagskrárþátta er ætlað að sjá
um, að þeir séu ekki notaðir til
að níða stofnanir eða einstakl-
inga.“
Búa viö kertaljós
og luktir
Gjögri, 7. marz.
SVEINN á Gjögri sagðist
vera að bj'Astra við að kveikja
á kertaljósinu við símann, þeg
ar við hringdum til hans fyrir
nokkru, en tveir bæjanna á
Gjögri hafa ekkert rafmagn.
Þeir hafa ekki ennþá fengið
lán fyrir ljósavélum, en þær
kosta þó ekki nema 30—50
þús. kr„ notaðar. Sveinn sagði
að á tveimur bæjum væru
ljósavélar og sjónvörp og
hann sagðist reyndar eiga
sjónvarp einnig, en rafmagn-
ið vantaði. „Ég er hræddur
um að sunnanmenn myndu
ekki taka í mál að búa við
þetta og þetta er lika bölvað,
en ræturnar halda í mann,“
sagði Sveinn og kvaðst nú
vera búinn að kveikja á kert-
inu, en þeir nota einnig gas-
lampa og olíulampa í þessum
landshluta.
Sveinn sagði að karlamir
væru byrjaðir á rauðmagan-
um. „Þrír eru byrjaðir," sagði
hann, „þeir Axel Thoraren-
sen, Valdimar Thorarensen
og Eiríkur Lýðsson í Viga-
nesi. Fimm bátar munu róa
héðan á rauðmaga, en einnig
munu þeir leggja í grásleppu
annars staðar frá í sve'tinni.
— Sveinn.
Buxur Mr. Bojangles, Lewi’s, Live’ins baggy, ★TNT Scott,
★ Lester peysur og bolir ★ IBEX belti ★ DPT bindi
★ Stakir drengjajakkar ★
W y J ■ i 4l. *
jlr/ Æ V $$ t ft "*
f* mm ÍÉ -sk ,.
Ljósamastur
skemmt
Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ kl.
20.00—20.30 var ekið á ljósamast-
ur við gatnamót Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar og það
skemmt talsvert. Er þarna um
verulegt tjón að ræða, en þar
sem ekki er vitað, hver því olli,
lýsir rannsóknarlögreglan eftir
vitnum að ákeyrslunni og öku-
manni bifreiðarinnar, sem ekið
var á staurinn.
ÞRUMUR í HLJÓMDEILD
★ Ný Birds ★ NýPink Floyd ★ Ný Alice Cooper
★ Ný Focus ★ Ný Foghat ★ Ný Doobie brothers
★ Ný Fanny ★ Ný Judy Collins ★ Ný David Bowie -
★ Ný Peter Skellern.
Nýjustu plötufréttir í síma 13008. Sendum um allt land
samdægurs ★
>f >f>f>f>f >f>f>f>f>f>f>f >f>f>f>f