Morgunblaðið - 25.03.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.03.1973, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SU'NNUDAGUR 25. MARZ 1973 ® 22 022- RAUDARÁRSTÍG 31 V______________/ BÍLALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 14444*2*25555 14444 ** 25555 VINNINGUR 2.0 Saab 99 L IWIIIIKSSS332P' AL. FISKERNES REDSKAPSFABRIKK Noregi. Heildsölubirgðir: Þ. Skaftason hf., Reykjavík, sími 15750, Netagerð Suðurnesja, Kefla- vík, sími 2270, Veiðarfæragerð Hornafjarðar, sími 8293, Seifur hf., Kirkjhvoli, Reykjavík, sími 21915. Sparifjárcigendur Ávaxta sparifé á vinsælan og öruggan hátt. Uppl. kl. 11—12 f. h. og kl. 8—9 e. h. Margeir J. Magnússon, Miðstræti 3A, sími 22714 og 15385. Tveir ungir menn sem ætla að heimsækja ísland í hátfan mánuð til máouð óska eftir sambandi við 2 konur til leiðsagnar u<n landið. Verða að tala þýzku eða ensku. TiHboð á ensku eða þýzku sendist afgr. Mbl. ásamt mynd og kaupkröf- um sem fyrst merkt „ísland 168“. Séra Páll Pálsson: HUGVEKJA BARA... SÁ löstur að skopast að vangefnu eða vansköpuðu fólki og „spila með“ það, var lengi vél ótrulega lífseigur hér á landi, en er nú sem betur fer á und- anhaldi. Þann flótta þarf að reka vel og dyggilega. Hins vegar virðist önnur árátta vera komin í staðinn. Oft heyrist það í dag- legu tali, að gert sé litið úr störfum ýmissa aðila og margir eiga það jafn- vel til að viðhafa slikt gagnvart sjálf- um sér. Við höfum sjálfsagt öll heyrt setningar eins og þessar: „Hann er bara verkamaður." „Ég er bara hús- móðir.“ Svona tal er bæði hvimleitt og með öllu ástæðulaust. Eða hvað segði fólk um þá þjóðfélagsmynd, sem mundi blasa við okkur, ef bara verkamenn og bara húsmæður væru einn góðan veðurdag ekki til? Stéttaskipting þykir lítil á íslandi miðað við ýmsar aðrar þjóðir. Þó ger- ist það stundum, að vissar manngerð- ir grobba heil ósköp af því, að þær séu eitthvað tiltakanlega mikið í þjóð- lífinu. Þegar við verðum vör við slikt sjálfsálit, er þar venjulega um að ræða einhvers konar greindarstíflu. Það hefur Verið aðalsmerki krist- innar trúar að fara þann gullna með- alveg, þar sem ekki er sífellt verið að upphefja eða niðurlægja náung- ann. Og sannkristið fólk hefur vissu- lega ekki þörf fyrir iðjuna þá. Það leitar sér heldur unaðar í að rækja kærleikssambúðina við alla menn. Við vitum líka vel um afstöðu Jesú Krists til þessara mála. Hann elskaði hvern einstakling, hvort sem hann bar skrautlega og langa titla eða titilinn bara. Og vel mættum við minnast þess, hversu „voldug" við erum eða hvað við fökum mikið af fínheitum með okkur, þegar við hverfum frá jarðlífinu yfir til annars lífs. Júlíanus keisari hvarf frá kristinni trú og hugs- ist útrýma henni. Hann sópaði ekki til sín öllum titlum sinum, þegar hann yfirgaf þessa jörð, heldur er sagt að hinztu orð hans hafi verið þessí: „Þú hefur sigrað Galílei." Arinárs er það mjög misjafnt, hveifn ig mönnum ferst við samferðafólkið, svo sem alkunnugt er. Um hinn heims- fræga stjórnmálamann, Gladstone, hef ur þessi saga verið sögð: Gamall götu sópari starfaði í mörg ár fyrir fram- an énska þinghúsið. En þar kom að hann veiktist. Hann lá í fátæklegu herbergi og svo gerðist það að prest- ur varð til þess að heimsækja hann. Þar kom tali þeirra, að líklega væru þeir ekki margir, sem litu inn til gamla mannsins. Hann sagði þá: „Jú, Gladstone kemur hingað." „Sjálfur forsætisráðherrann?" „Já, Gladstone kemur til þess að lesa fyrir mig úr Biblíunni. Hann situr þá alltaf á sama stólnum og þér sitjið á núna.“ Stundum er tekið svo til orða, að við séum bara manneskjur. Vonandi erum við öll sannar manneskjur. Mér finnst það hreint ekki svo lítið. [ JILnumliInbifi - -■::=-^=.t==-i—r-.- CCIDGE Ú JJmwZ Bridgedeild Breiðfirðinga spilaði áttundu og næstsíð- ustu umferðina í barometer- keppninni sl. fimmtudag. Staða efstu paranna er nú þessi: Sígríður Pálsdóttir — Jóhann Jóhannsson 505 Jón Þorleifsson — Stefán Stefánsson 451 Ingibjörg Halldórsdóttir — Sigvaldi Þorsteinsson 383 Guðjón Kristjánsson — Þorvaldur Matthíasson 381 Ólafur Jónsson — Halldór Jóhannesson 371 Björn Gíslason — Jón Stefánsson 357 Bergsveinn Breiðfjörð — Tómas Sigurðsson 355 Hans Nielsen — Þorsteinn Laufdal 343 E ís R. Helgason — Þorsteinn Kristjánsson 332 Ámundi ísfeld — Óiafur Guttormsson 328 Siðasta umferðin verður einni setu styttri en hinar, þ.e. 3 setur (24 spil). Næsta keppni verður sennilega hrað- sveitakeppni. Þar eru allir vel komnir á meðan húsrúm leyf- ir. ★ ★ ★ Þegar ellefu umferðum er lokið í barometerkeppni TBK er staða efstu paranna þessi: B rg r ísleifsson — Gunnlaugur Þórðarson 293 Inga Nielsen — Ólafía Jónsdóttir 285 Baldur Ásgeirsson — Zophonias Benediktsson 269 Viðar Jónsson — Sveinbjörn Guðmundss. 260 Garðar — Guðrmindur 211 Rafn Kristjánsson — Þorsteinn Kristjánsson 205 Högni Torfason — Þorvaldur Valdimarss. 177 Kristján Jónasson — Þórhallur Þorsteinsson 175 Bernharður og Júlíus Guðmundssynir 156 Gunnar Vagnsson — Pétur Pálsson 138 Næsta umferð verður spiluð n.k. fimmtudagskvöld kl. 20 stundvíslega. ★ ★ ★ Bridgeblaðið, annað tbl. 1973 er komið út. — Efni blaðsins er fjölbreytt að vanda og má þar nefna m.a.: Sveit Hjalta Elíassonar á Akureyri, sagnkerfi kynnt, brotasilfur úr bridgeheimin- um, Herman Filarski á Islandi 1962, varnarspil (köll), sagn- tækni, fréttir frá félögum, sagnkeppnin o.fl. o.fl. R tstjóri Bridgeblaðsins er Jón Ásbjörnsson. ★ ★ *r Breiðfirðingar hafa ákveðið að fara til Færeyja á vori komanda. Um 20 spilarar munu fara í ferð þessa, en eitt hvað mun fara fleira af fólki, t. a. m. munu nokkrir spil- arana taka maka sína með sér. Farið verður til Þórshafnar 24. maí og komið heim 31. maí. Færeyingar munu svo endurgjalda heimsóknina að ári. A. G. R. spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í síma 10100 Id. 10—II frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins. „GUNNARSHÓLMI“ VIÐ TÓNLIST Þorkell Hjaltason, Hverf- isgötu 70, spyr: „Hvers vegna hefur Ríkis- útvarpið aldrei flutt kvæði Jónasar Haligrímssonar, Gunnarshólma, með tónlist? Ég veit ekki betur en að til sé ágætt lag við allt kvæðið eftir Helga Helgason, tón- skáld. Að visu mun það vera milli 80 og 90 ára gamalt og e.t.v. þykir það of langt til söngs, en þá er hægt að út- setja lagið fyrir hljómsveit og gæti það orðið hin feg- ursta hljómkviða." Þorsteinn Hannesson, full trúi í tónlistardeild hijóð- varps, svarar: „Vissulega kannast ég við þetta lag, en mér er ekki kunnugt um að það hafi nokkurn tímann verið flutt. Það er þvi miður með þetta lag eins og svo mikið af ís- lenzkri tónlist, að hún er ekki til í upptökum hjá útvarpinu og þar af leiðandi ekki hægt að flytja hana.“ lAn til HÓTELBYGGINGAR Geir H. Gunnarsson, Freyjugötu 36, spyr: „Nýlega seldi formaður Ferðamálaráðs stórhýsi sitt við Rauðarárstíg, sem teikn- að hafði verið og byggt sem hótel, en verður nú notað sem aðsetur stjórnmála- flokks. Mikinn pening hefur þurft til að gera húsið fok- helt og væri því fróðlegt að vita hve miklu af opinberum lánum til eflingar ferðamál- um var veitt í bygg- ingu þessa, á þeim forsend- um að hún mundi hýsa ferða menn. Ef þau hafa verið veitt kemur þá ekki til fullkomin endurgreiðsla þeirra, svo að unnt sé að veita þeim til bygginga sem verða að hótelum?" Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneytisstjóri samgöngu- málaráðuneytisins, svarar : „1. Lánveitingar úr Ferða- málasjóði til byggingarinnar nema 5,5 millj. kr. Lánin eru vísitölubundin til 15 ára með 7y2% ársvöxtum og 0,5% ár- legu kostnaðartillagi. 2. Að sjálfsögðu eru lán þessi, eins og önnur Ferða- málasjóðslán, veitt til að stuðla að byggingu gistihúss á umræddum stað, samkvæmt uppdráttum, sem fylgja um- sókn, enda óheimilt að lána úr sjóðnum til annarra hluta. 3. 1 10. gr. reglugerðar um Ferðamálasjóð, nr. 272/1964, er gert ráð fyrir að krefjast megi greiðslu láns, ef hætt er „rekstri þeim, sem skapað hefur rétt til láns“ úr Ferða- málasjóði. 1 kaupsamningi um eignina er yfirtaka hins nýja eiganda, að því er Ferðamála sjóðslánið varðar, bundin þeim skilmálum sem greindir eru í veðskuldabréfi og ákvæðum 10. gr. reglugerð- ar nr. 272/1964. Ekki er enn vitað, að hve miklu leyti hinir nýju eig- endur hyggjast taka húsnæð ið tii annarra nota en gisti- hússreksturs, en ef sú verð- ur raunin á, að því verður breytt í skrifstofuhúsnæði að hluta eða öllu leyti, er heim- ilt að krefjast greiðslu á skuldinni, að hluta eða allri. Ég er sammála fyrirspyrj- anda um það, að ef breytt er þannig tii, eru forsendur lánveitingarinnar brostn- ar og fortakslaust rétt áð beita ákvæði 10. gr. reglu- gerðar nr. 272/1964, enda hefur slíkt jafnan verið gert, er við átti. Vart mun ijóst, hvort efni standa til beitingar nefndrar 10. gr. fyrri en eigninni verð ur afsalað, sem mun sam- kvæmt kaupsamningi eiga að gerast fyrir 1. júní 1973.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.