Morgunblaðið - 25.03.1973, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.03.1973, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. MARZ 1973 Filthattar Angórahúfur og hattar. Köflóttir jersey-hattar og húfur. Síðbuxur, blússur og peysur. HATTABÚÐ KEYKJAVÍKUR, Laugavegi 10. S afnaðarfund ur verður haldinn í Laugarneskirkju miðvikudaginn 28. marz kl. 21:30 að lokinni föstumessu. Afstaða tekin til kirkjugarðsgjalda. Sóknarnefnd Laugarnessóknar. BLAÐBURÐARFOLK: Sími 16801. AUSTURBÆR Lindargata - Freyjugata 28-49 - Miðbær - Baldursgata - Bragagata - Meðalholt. UTHVERFI Laugarásvegur. í baðherbergið Teppi og mottur í mjög fjölbreyttu úrvali. J. ÞORLÁKSSON & NORÐMANN HF., Bankastræti 11. GETIÐ ÆTÍÐ TREYST GÆÐUM ROYAL LYFTIDUFTS ÞÉR Sænskt nútímaleikrit sýnt í Þjóðleikhúsinu „Sjö stelpur“ eftir Erik Torstens- son frumsýnt umnæstu mánaðamót ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir um næstu mánaðamót sænskt nútímaleikrit, sem ber heitið „Sjö stelpur“ og er eftir sænskan höfund, sem skrifar undir duinefninu Erik Xor- stensson. Leikrit þetta var frumflutt á iitla ieiksviðinu í Dramaten, þjóðleikhúsi Svía 7. sept. 1971. Vakti leikrit þetta þegar mikla athygii og hrifningu hjá leikhúsgestum og var flutt á aðalleiksvið ieikhússins, þar sem það geng ur enn. Um þessar mundir er leikritið sýnt á leiksviðinu á öilum Norðurlöndunum og þegar eru byrjaðar æfingar á leiknum í Þýzkalandi. Kom þetta fram á fundi Sveins Ein arssonar þjóðieikhússtjóra með fréttamönnum í gær. Sveinn Einarsson skýrði svo frá, að þýðing leikritsins væri gerð af Sigmundi Erni Arngrímssyni, en Björn Björnsson annaðist leikmynd arteikningar og væri þetta fyrsta verkefni hans hjá Þjóð leikhúsinu, en Björn hefur um árabil gert leikmyndir hjá sjónvarpinu. Leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir og er þetta fyrsta leikritið, sem hún stjórnar hjá Þjóðleikhúsinu. Leikritið „Sjö stelpur" er þannig til orðið, að höfundur inn réð sig sem gæzlumann á upptökuheimili fyrir svonefnd ar vandræðastúlkur, en upp- tökuheimili þetta var staðsett i sveit. Á heimilinu skrifaði höfundurinn dagbók og eftir henni skrifaði hann sögu, sem gefin var út í Svíþjóð, en leik ritið síðan gert eftir sögunni og byggt á reynslu höfundar- ins. 1 leikritinu eru 10 hlutverk, öll veigamikil. Staðgengil höf undar, nýja gæzlumanninn, leikur Guðm. Magnússon, en annað gæzlufólk á staðn- um leika þessir leikarar: Æv- ar Kvaran, Þóra Friðriksdótt- ir og Baldvin Halldórsson. En mest áberandi hlutverkin í leiknum eru þó hlutverk stúlknanna sex. Sú sjöunda sést aldrei á sviðinu. Hlut- verk þessi eru í höndum ungra leikkvenna, sem út- skrifazt hafa úr leikskól^num hjá Þjóðleikhúsinu og Leikfé- lagi Reykjavíkur á síðari ár- um, en þær eru: Þórunn Magnúsdóttir, Steinunn Jó- hannesdóttir, Guðrún Alfreðs- dóttir, Sólveig Hauksdóttir, Helga Jónsdóttir og Helga Stephensen. Þau Guðmundur, Sólveig og Helga Stephensen koma öll núna í fyrsta skipti fram á sviði Þjóðleikhússins, en áður hafa þau leikið hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Á fundinum með frétta- mönnum í gær gat þjóðleik- hússtjóri þess m.a„ að einn þekktasti leikflokkur Banda- ríkjanna, „Open Theater", væri væntanlegur hingað í maí og myndi þá sýna „The Mutation Show“ tvisvar sinn- um. Sparnað- arvikan NEFNDIN, sem húsmæðrafund- urimn á Hótel Sögu kaus, hefur beðið blaðið að vekja athygli á því, að sparnaðarvikan hefst á mánudag. Hvetur hún húsmæður ti-1 þess að vera samtaka í að- gerðum sínum. Þá hvetur hún húsmæður til þess að mæta við alþingishúsið á mánudag kl. 2 e. h. og fjölmenna á þingpalla. Suharto áfram forseti Djakarta, 22. marz. NTB. SUHARTO hershöfðingi var í dag endurkjörinn forseti Indó- nesiu af þjóðþingi landsins. Á næsta kjörtímabil hans að standa í fimm ár. Engir mótframibjóð- endur komu fram gegn Suharto í kosningunum. Hann hefur nú verið „hinn sterki maður Indó- nesiu“ i sjö ár og var fyrst kos- inn forseti landsins 1968. Ný nómskeið í keromik að Hulduhólum Mosfellssveit eru að hefjast. — Upplýsingar í síma 66194 frá kl. 1—2 í dag og næstu daga. Steinunn Marteinsdóttir. Söluskattur Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir febrúarmánuð 1973, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 26. þ.m. Dráttarvextir eru 1V2% fyrir hvem byrjaðan mán- uð frá gjalddaga, sem var 15. marz sl., og verða inn- heimtir frá og með 27. þ.m. Fjármálaráðuneytið, 22. marz 1973. Vornámskeið Vornámskeið barna í ensku hefst á morgun mánu- dag 26. marz. Síðdegis og kvöldtímar fyrir fullorðna. Kennsla hefst mánudag 9. apríl. ENSKA, Þ^ZKA, FRANSKA, SPÁNSKA og (SLENZKA FYRIR ÚTLENDINGA. Aðeins ein innritunarvika til föstudags 30. marz. Sími 10004 kl. 1—7 e.h. MÁLASKÓLINN MÍMIR. Frá æfingu á leikritinu „Sjö steipur“ í Þjóðleikhúsinii. Bald vin Halldórsson í hlutverki gæzluinanns og Steinunn -lóhann- esdóttir seni ein af stnlknnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.