Morgunblaðið - 25.03.1973, Page 10
\ 10 MORGUNBLAÐIÐ, SU'NNUDAGUR 25. MARZ 1973
► —
— meðan fiskifræðingar kanna áhrif veiðanna
undanfarið á ansjósustofninn
NC eru tveir mánuðir liðnir
frá því að loðnuveiðin hófst
hér við land og heildaraflinn
nálgast óðum 400 þúsund lest
ir. Auðvitað þykir okkur Is-
lending-um þetta umtalsverð-
ur árangur — þetta er mesta
loðnuveiði sögunnar, sem fær
ir þjóðarbúinu nokkuð á
þriðja milljarð króna.
í S-Ameríku er þó þjóð sem
þykir vafalaust ekki mikið til
um þessar veiðar okkar. 1
Perú hafa 1300 bátar og skip
rótað upp um einni milljón
lesta af ansjósu á rúmum
hálfum rnánuði nú í marz, og
þessar veiðar hafa valdið því,
að heimsmarkaðsverð á fiski-
mjöli hefur fallið töluvert. Að
þessu sinni kemur það okkur
Islendingum ekki í koll, eins
og stundum áður, þar eð ís-
lenzkir mjölframleiðendur
höfðu náð hagstæðum fyrir-
framsamningum, sem svarar
nokkurn veginn til þess
magns sem nú hefur veiðzt
af loðnu. Auk þess ákváðu yf-
irvöld í Perú, að í gær, laugar
daginn 23. marz skyldi gert
veiðihlé meðan sérfræðingar
athuguðu hvaða áhrif síðústu
veiðar hafa haft á ansjósu-
stofninn. Reynist niðurstaða
rannsóknanna neikvæð má
gera ráð fyrir að yfirvöld í
Perú setji algjört veiðibann
á veiðarnar, og mun þá heims
markaðsverð á mjöli vafa-
laust stíga á nýjan leik.
Að beiðni Morgunblaðsins
tók AP-fréttamaðurinn Willi-
am H. Heath sér á hendur
250 kilómetra ferð 7— frá
Lima, höfuðborg Perú, suður
til Pisco, þar sem höfuðstöðv
ar ansjósuveiðanna og mjöl-
framleiðslunnar eru. Fer frá-
sögn hans hér á eftir:
Pisco, Perú. — Þykkur, hvít
ur reykur ásamt daunillri lykt
af bræddum fislki stígur nú
aftur til himins frá fiski-
mjölsverksmiðjunum. Perú-
menn láta sér þó ólyktina vel
líka, því að þeir bera í brjósti
þá von að hún tákni endalok
mesta áfalls sem þessi veiga-
mesti iðnaður þjóðarinnar hef
ur nokikiru sinni komizt í kasit
við.
„Það er erfitt að ímynda
sér, að þessir litlu fiskar
standi undir efnahagslífi þjóð
arinnar," sagði einn verk-
fræðingurinn í Pisco um leið
og hann horfði með ánægju
á milljónir örsmárra ansjósu
fiska berast eftir færibandinu
að fiskimjölsverksmiðjunni.
Um það bil 100 verksm. hófu
starfrækslu á nýjan leik hinn
5. marz sl. eftir 10 mánaða
lokun, sem stafaði af því að
þessi litli fiskur hvarf að
mestu af miðunum vegna
heitra sjávarstrauma við
strendur landsins.
Herforingjastjórnin bannaði
ansjósuveiðar 1. júlí sl. vegna
minnkandi fiskgengdar. Hins
vegar hefur stjórnin leyft
veiðar að nýju inin,ain vissra
takmanka og I tilrauina-
skymi. Var þessi ákvörðun
grundvölluð á vísiindalegum
raninsóknuim, sem gáfu til
kynna að anisjósan væri að
ganga á miðin að nýju.
Fyrsitu tiöliur um veiði vekj a
góðar vonir, ein ýmsir úr röð-
um sjómanna eru þó vantrú-
aðir á að ansjósuveiðarnar
færist í eðlilegt horf fyrr en
1974. Þannig segir ein,n skip-
stjórinn í Pisco: „Ég hygg að
viið getum haldið áfram veið-
um í takmörfcuðum mæli,
byggt upp fiisfcistofninn þang-
að til næsta ár að ástandið
ætti að verða orðið eðlilegt
aftur.“
Núna hafa 1300 anisj ósuskip
heimild til einnar veiðiferðar
á daig — fimrn daga vi'kunnar
— til að sjá verksmiðjunum
fyrr hráefni. Verksmiðjurnar
viruna siðan úr ainsjósunum
fíngert, brúnleitt mjöl sem
selt er úr landi sem fóður-
vara.
Hvarf ansjósunnar nú af
miðunum hefur verið sett í
samiband við suðrænan sjávar-
straum, sem heimamenn nefna
„E1 Nino“. Straumiur þessi á
upptök sín við miðbaug en
á tíu ára fresti leggur ha,nn
leið sína suður með ströndum
S-Ameríku og hitar þá veru-
lega upp grunnsævi þar um
Slóðir — með þeim afleiðing-
um að svifið í sjónum drepst,
en á því lifa risastórar an-
sjósutorfumar undan strönd-
um Perú.
Ú fcflutningsverðmæ'ti fisiki-
mjöls í Perú hetur numið allt
að 300 miilljómum döllara á
ári hin síðustu ár eða uim 30
milljöirðuim íisi. króna og er nú
stærsti útlfiutniings'atvinnuveg
ur Perúmanna — neest á unid-
an fcopar. ÁirsafiHnn á ansjósu
vertíðum Perúmanna heifiur
orðið rúmlega 10 milljóin lest-
ir og heíur ásiamit 200 þúsiund
lesta ársafla a,f fæðuifisiki gert
Parú að mestu fislkveiðiþjóð
veraldar.
Ansjósuveiðar Perúmanna
eru mjög sjá’.ifvirfcar, sérstaik-
lega hvað varðar löndun,
þannig að afköstin verða
mjög mikil. Þegar ansjósu-
flotinn — um 1300 sfcip —
kemiur inn t’il lömdumar —
hvert rnieð 100 til 400 lestir
af ansjósu, leggjast þau utan
á pramm,a, sem liggja fyrir
aikfcerum rétt utan við strönd-
i,na. Prömmunum er siðan
siglt upp að landi, og það'an
er ansjósunni dælt upp úr
þeim beinrt upp í verksmiðj-
umar.
Nú bíða 22 þúsund fiski-
menn fullir eftirvæntingar eft
ir jákvæðum niðurstöðum
rannsókna á ansjósustofnin-
um, og að veiðihléinu, sem
hófst i gær, verði aflétt hið
fyrsta. Heildaraflinn í dag hef
ur verið 85-6 þúsund lestir,
sem þykir lofa góðu. Fiski-
mjölsverksmiðjurnar í Pisco
hafa verið starfræktar með
fullum afköstum undanfarið,
en hins vegar verksmiðjur
þær sem liggja norður af höf
uðborginni aðeins með hálf-
um afköstum. „Það er líka
mjög óvenjulegt, að allar hafn
ir nái 100% afköstum, jafn-
vel við eðlilegar aðstæður,"
sagði framkvæmdastjóri einn
ar fiskimjölsverksmiðjunnar,
sem er í eigu bandarísks mjöl
framleiðenda.
Yfirvöld hafa enn ekki gef-
ið út neinar upplýsingar sem
geta gefið vísbendingu um
hvort veiðar fái að hefjast að
nýju eða hvort veiðibann taki
gildi. Mikill þrýstingur er þó
á yfirvöld að veiðar verði hafn
ar hið fyrsta, enda hefur veiði
bannið undanfarna mánuði
leikið perúanska fiskimenn
grátt, svo og efnahag þjóðar-
innar. Að minnsta kosti hef-
ur ekki fengizt staðfesting á
því, að stór hluti aflans sé
ungfiskur og rýr að fituinni-
haldi, eins og orðrómur hef-
ur gengið um.
| Haukur Ingibergsson: HLJÓMPLÖTUR
Ríó tríó:
Bommfaderí.
Stereo, LP.
Fálkinn.
ÞETTA er fjórða LP-plata
Ríó triósins á rúmum tveim
árum, og e.t.v. sú bezta. Kem-
ur þar margt til. Flutningur-
inn er góður, og er þá átt við,
að söngurinn sé i senn kraft-
mikill, vel æfður og radd-
setningar góðar auk þess sem
framburðurinn er einstaklega
skýr. Einnig er undirleikurinn
í samræmi við sönginn og
mæðir þar mest á Ríó tríóinu
og Gunnari Þórðarsyni, en
einnig koma við sögu norskir
tónlistarmenn, aðallega blás-
arar.
Efnið er einnig vel valið
utan eitt lag, „Dag einn“, sem
er í litlu samræmi við annað
á plötunni, þar sem það lag
er rólegt og textinn ekki
fyndinn. Að öðru leyti geislar
platan af fjörugum lögum
með fyndnum textum. Ríó
hafa greinilega dálæti á írsk-
um þjóðlögum, því að fjögur
af níu lögum plötunnar eru
einmitt írsk þjóðlög. Einnig er
að finna þarna norsk þjóðlög
auk langrar syrpu af gömlum
rokklögum, sem voru vinsæl
á árunum fyrir 1960. Eru þessi
löig fléttuð saman í eina heild,
og segir í textanum frá ball-
för ungs manns. Er þetta
hrein danslagatónlist, og
komast Rói vel frá öllu sam-
an.
Þá skal þess getið, að Jón-
as Friðrik hefur samið alla
textana utan einn, og úir og
grúir þar af alls konar persón-
um og skemmtilegum sögum,
þótt erfitt sé að gera sér
grein fyrir, hvaða hugmyndir
séu komnar beint frá Jónasi
Friðriki og hverjar hann hafi
staðfært eftir frumiexta.
Ef nefna á einhver lög, sem
séu öðrum betri, er það heizt
Ástarsaga, Sigga litla, Vernd-
aramir góðu og Flákkarinn
káti, sem nýlega hefur verið
gefið út á lítilli plötu i Noregi
til styrktar fyrir Vestmanna-
eyjar, og hafa borizt um það
fréttir, að Ríó hafi „slegið í
gegn“ hjá frændum vorum.
Trúlega hafa Rió þó ekki tæki
færi til að fylgja sigrinum eft
ir, þar sem þeir eru nú að
hefja nokkurra mánaða tón-
leikaferðalag um Bandarikin.
Og fylgja þeim beztu óskir
uim velgengni.
Geyslr:
Refusing/Ont in the
conntry Dawning.
Þessi hljómsveit, Geysir,
er íslenzk/kanadísk og heitir
islenzki hluti hennar Gísli
G'ssurarson og leikur sá á
sótógítar. Eftir því, sem ég
bezt veit, hefur þessi hljóm-
siveit ekki leikið hér á landi,
en tveir af meðlimum hljóm-
sveitariinnar, Gísli og Gordon,
komu eitthvað fram á ýmsum
skemmtunum á sl. sumri, m.a.
á Lauigarvatni um verzlunar-
mannahelgina. Virðist svo á
fylgiblaði með plötunni, sem
hljómsveitin hafi aðaLlega
starfað í ÞýzkalancS við all-
góða blaðadóma.
Grundvöllur hljómsveitar-
innar er h n sameiginlega trú
hljómsveitarmeðlimanna, en
þeir eru allir Bahaiar, en
grundvöilur þeirra trúar-
bragða mun einhvers konar
samræming á hinu bezta úr
öðruim trúarbrögðum, og þeir
leggja áherzlu á hið óspillta.
Kemur þetta fram i laginu
Out iin tha country, þar sem
lögð er áherzla á hreina nátt-
úru og það, að maðurinn fari
að meta gersemar hennar. 1
laiginu Refusing er fjalliað um
sameiningu mannkyns.
Þessi plata er anzi hrá og
gróf, virðist t.d. hafa verið
hljóðrituð i lélegu stúdió, en
boðskapurinn er jafn góður
fyrir það, og vonandi hefur
Geysir lært af reynslunni
þannig að næsta plata hljóm-
sveitarinnar verði ekki með
þeim augljósu einkennum
reynsiuleysisins, sem ein-
kenna þessa plötu.